Morgunblaðið - 22.05.1976, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 22.05.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1976 15 Hðpur stuðningsmanna tslands í fiskveiðideilunni við Breta sést hér ganga framhjá sendiráði Bandarfkjanna í Óslð síðdegis á fimmtudag, þar sem hvatt er til að Bandaríkjamenn styðji málstað Islendinga. „Fiskveiðideilunni milli íslands og Bret- lands var hreyft á ný og rætt um hana” — segir m.a. í lokayfirlýsingu Oslóarfundarins Osló21. mai — Reuter. 0 ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ varaði í dag Sovétrfk- in við því að þrátt fyrir áframhaldandi stuðning þess við „detente44 stefnuna væri frekari jákvæð þróun í því efni komin undir framkomu Sovétmanna um heim allan. t lokayfirlýsingu fundar utanríkisráðherra bandalags- landanna í Ósló, sem er 1500 orð, segir að virkileg og varanleg slökun spennu sé aðeins hugsanleg ef öll viðkomandi ríki komi fram af hófsemi og varkárni í samskiptum sín í milli og í aðgerðum sínum annars staðar í heiminum. „Nauðsynlegur trúnaður milli aust- urs og vesturs kemst ekki á ef kreppur og viðkvæm vandamál sem bægt er frá í Evrópu, skjóta síðan upp kollinum annars staðar,“ segir í yfirlýsingunni. Daily Telegraph í leiðara um þorskastríðið: „Verndarstefna” Breta óraunsæ og árangurslaus Fréttin um hótun um úrsögn úr NATO á forsíðum brezku blaðanna London 21. maí Reuter — AP VAXANDI óþolinmæði gætir nú vegna „sýnilegs getuleysis brezku ríkisstjórnarinnar til að hafa nýtt frumkvæði" f fiskveiðideilu Breta og tslendinga segir brezka blaðið The Daily Telegraph í for- ystugrein f dag. „Bandalagsþjóðir Bretlands í NATO hafa hingað til sýnt mikla þolinmæði og sýnt verulega hlédrægni varðandi þessa langvarandi deilu við tsland. En,“ segir blaðið, „hin óheimju kostnaðarsama og fremur árangurslausa stefna að senda frégátur af flota hennar hátignar til að halda vörð og vernda örfáa togara sem veiða nokkur hundruð tonn af þorski, er af bandalagsþjóðunum ekki lengur talin raunsæ eða viðeig- andi afstaða af hálfu Breta til vandamálsins. Og það er hún ekki.“ „Það sem grefur undan tiltrú á „verndarstefnu" Breta er sú vissa að mörg lönd eru i þann veginn að taka upp 200 mílna mörkin, þ. á m. Efnahagsbandalag Evrópu. Þar við bætist að á meðan „vernd" er haldið áfram er ætið hætta á alvarlegum atburðum sem gætu lyft deilunni á algjör- lega nýtt stig.“ % Brottkvaðning freigátna f athugun? Öll helztu morgunblöð i dag birta á forsíðum fréttina um hót- un Einars Ágústssonar, utanríkis- ráðherra, um hugsanlega úrsögn íslands ú NATO ef deilan leysist ekki innan sex mánaða. Haft er eftir talsmanni utanrikisráðu- neytisins í London að Bretar „myndu að sjálfsögðu harma mjög brottför íslands úr NATO. Við vonum að unnt verði að ná Framhald á bls. 31. 0 Stöðug aukning vfgbúnaðar Sovétríkjanna „umfram það sem virðist réttlætanlegt fyrir markmið detente“ og aðild Moskvustjórnarinnar að borgarastyrjöldinni í Angóla voru með helztu viðfangsefnum utanrfkisráð- herranna á fundinum. Þessi atriði voru þau einu sem skýrt er um fjaliað í lokayfirlýsingunni. Önnur „innan- húsmál“ bandalagsins eru aðeins reifuð fáum eða óljós- um orðum í yfirlýsingunni, þótt þau hafi verið ítarlega rædd bæði á hinum formlegu fundum og í einkaviðræð- um ráðherranna. Þar á meðal er þorskastrfð Breta og tslendinga, en umtalsverður árangur náðist í átt til lausnar þvf, Ifkur á stjórnaraðild kommúnista á ttalfu eftir kosningarnar 20. júní og spennan á milli Grikkja og Tyrkja. Þá voru forsetakosningarnar í Bandaríkjunum greinilega til umræðu milli ráðherranna. Yfirlýsingin minnist aðeins óbeint á ttalfu, sem þó var helzta umræðuefni manna f milli á fundunum. Án þess að minnast á Italíu með nafni staðfesta ráðherrarnir stuðning rl'kisstjórna sinna við „grundvallarreglur lýðræðis, virðingu fyrir mannréttindum, réttlæti og félagslegum framförum sem eru leiðarljós bandalagsins og póli- tfskar stofnanir aðildarrfkjanna og Iffshættir byggjast á.“ Þá segir: „Þeir lýstu trausti sfnu á þvf að rfkisstjórnir aðildarlandanna geti — á grundvelli þess öryggis sem bandalagið veitir — unnið bug á vanda- málum sem þær standa frammi f.vrir nú og f framtfðinni." Ekki er fjallað beinlfnis um deilur Tyrkja og Grikkja heldur aðeins sagt að ráðherrarnir hafi fagnað þeim árangri sem náðst hafi um varnarsamkomulag á suðausturhluta bandalagssvæðisins. Óslóarræða Kissingers vekur mikla athygli: Líðum ekki hugmyndafræS- lega útþenslu Sovétríkjanna RÆÐA Henry Kissingers, utanríkisráðherra Bandarfkjanna, á fundi utanrfkisráðherra NATO-rfkjanna f Ósló á fimmtudag, þar sem hann varaði m.a. Sovétrfkin við þvf að Bandarfkin myndu ekki láta það viðgangast að Sovétmenn reyndu að þröngva hugmynda- fræði sinni upp á hinn vestræna heim, hefur vakið mikla athygli, en ræðan er flutt fyrir luktum dyrum og liggja þvf nákvæmar upplýs- ingar um efni hennar ekki fyrir. En bandarfskur embættismaður sagði, að Kissinger hafi lýst þeirri skoðun sinni, að hugmyndafræði- leg árásarstefna og friðsamleg sambúð gætu ekki lifað hlið við hlið. I ræðu sinm, sem tók um hálftfma, sagði Kissinger enn- fremur utanríkisráðherrunum að grundvallarútlínur banda- rískrar utanrikisstefnu yrðu óbreyttar burtséð frá því hvaða forseti sæti i Hvíta húsinu. Að sögn embættismannsins ræddi Kissinger um hlut utanrikis- mála í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum nú, einkum með tilliti til stefnunnar gagn- vart Sovétrikjunum, og sagði hann að þar væri ekki um nein- ar hugmyndir uppi sem væru gjörólíkar stefnu núverandi stjórnar. Diplómatar sem hlýddu á ræðuna segja að hún hafi verið tilraun til að sýna fram á það að næsti Bandaríkjaforseti — hvort sem um verður að ræða repúblikana eða demókrata — myndi fylgja slökunarstefnu sem fylgt yrði eftir með hernað- arstyrk en fæli í sér vilja til að gera tvihliða samninga um tak- markanir á vígbúnaði. MINNTIST KISSINGER A ITALIU EÐA EKKI? Ræða Kissingers snerist fyrst og fremst um samband austurs og vesturs, en drap einnig á Afríku og önnur heimsmál. Heimildum ber ekki saman um umfjöllun Kissingers á þeim möguleika að kommúnistar taki sæti i rikisstjórn á Italíu. Sam- kvæmt einni heimild — áreið- anlegum eimbættismanni sem þó vill ekki láta nafns sins getið — ræddi Kissinger um þetta atriði í meir en tvær minútur unz Joseph Luns, framkvæmda- stjóri bandalagsins, greip fram í fyrir honum og sagði að um þetta atriði ætti ekki að fjalla. Þá brosti Kissinger og sagði að fyrst svo væri þá hefði hann ekkert sagt. Bruno Bottai, hátt- settur embættismaður i ítalska utanrikisráðuneytinu, kallar hins vegar þessa frásögn „hel- beran uppspuna" og bandarisk- ur talsmaður segir að Kissinger hafi ekki minnzt á Italiu. En annar embættismaður, sem einnig vill ekki láta nafns síns getið, staðfestir að þetta atvik hafi átt sér stað og bætir við að Mariano Rumor, utanríkisráð- herra Ítalíu, hefði skrifað Luns fyrir fundinn og beðið hann um að koma i veg fyrir að itölsk stjórnmál yrðu rædd á fundin- um. Það er venja innan NATO að ræða ekki innanríkismál að- ildarlandanna. Eftir fundinn hittust Rumor og Kissinger, en að sögn bandarískra heimilda var ekki rætt beinlínis um hugsanlega stjórnarþátttöku kommúnista. Samkvæmt bandariskum heimildum lagði Kissinger áherzlu á tvö atriði í umfjöllun sinni um samband austurs og vesturs. 1 fyrsta lagi geta Bandarikin eða NATO lítiðgert til að hafa áhrif á aukningu Henry Kisslnger utanrfkisráðherra Bandarlkjanna og Robert Strauss-Hupe ganga hér með Norðmann einn á milli sln sem bar lepp fyrir auga og gekk við hækjur. Þetta gerðist þegar Kissinger fór úr boði f konungshöllinni f fyrrakvöld. Sjónarvottar segjast ekki hafa orðið varir við frekari mótmælaaðgerðir en maðurinn kvaðst vera fulltrúi þeirra sem barizt hefðu og særzt f Vfetnam. herstyrks og efnahagsstyrks Sovétríkjanna. Vesturlönd geta aðeins verið vel á verði. 1 öðru lagi gætu og ættu bandalags- þjóðirnar að hafa áhrif á það á hvern hátt Sovétríkin beita styrk sinum og valdi. Fall Angóla í hendur öflum sem njóta stuðnings Sovétríkjanna og Kúbu hefði ekki verið afleið- ing getuleysis Bandarikjanna heldur viljaleysis til að spyrna gegn valdatökunni. I þessu samhengi væru hugmynda- fræðilegar ákvarðanir Sovét- ríkjanna til pólitískrar ásælni um heim allan árás á Vestur- lönd. Samkvæmt annarri banda- rískri heimild sagði Kissinger ennfremur að Sovétmönnum yrði að gera Ijóst að þessar við- varanir yrði að taka alvarlega vegna þess að þeim væri tamt að starfa silalega. Þ.e. að þegar ákvörðun um t.d. ihlutun i Angóla hefur verið tekin er rússneska skriffinnskubáknið svo hægfara að það á i mesta basli með að breyta um stefnu. — AP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.