Morgunblaðið - 22.05.1976, Side 30
30
MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAl 1976
Einn afúrslitaleikjum
1. deildarinnar í dag
er Valurmœtir Víkingi
LIÐ Vfkings og Vals virðast til alls líkleg um
þessar mundir og margir spá þessum liðum
tveimur efstu sætum í tslandsmótinu í ár. Vfk-
ingur sigraði Val 2:1 1 úrslitaleik Revkjavíkur-
mótsins fyrir nokkru síðan, en Valsmenn hafa
fuilan hug á að snúa dæminu við er þeir mæta
Vfkingunum á Laugardalsvellinum f dag kl. 14.
Viðureign þessara liða er tvfmælalaust leikur
helgarinnar f 1. deildinni, en auk þess leika FH
— Akranes, Fram — KR og loks Þróttur — IBK f
1. deildinni um helgina.
— Þetta er tvímælalaust einn
af úrslitaleikjunum í mótinu og
ég hef trú á að þessi tvö lið
verði i tveimur efstu sætunum
þegar upp verður staðið i lok
mótsins, sagði Dýri Guðmunds-
son nýskípaður fyrirliði Vals-
manna er við ræddum við hann
í gær. — Mér finnst þessi lið
hafa sýnt beztu knattspyrnuna
í vor og t.d. stórsigur Keflvík-
inga yfir mínum fyrri félögum í
FH hold ég að hafi að talsverðu
leyti ver o heppni. Pirfitt or að
s^gja hvað lið eins og Fram og
IA gera, en ég held þó að þau
standi bæði á nokkrum tíma-
mótum og verði því ekki efst á
toppnum í sumar eins og í
fyrra.
— Ef aðsta'ðurnar verða
góðar í dag þá er ég. nokkurn
veginn viss um að við vinnum,
sagði Dýri. — Víkingarnir verð-
skulduðu fyllilega sigurinn i
Reykjavikurmótinu, en þá var
Hka leikið á möl í hífandi roki.‘
Við ætlum okkur að snúa dæm-
inu við í dag og ég held að með
góðum leik eigi okkur að takast
það.
Ekki var Gunnlaugur Krist-
finnsson hinn stöðugt vaxandi
tengiliður Vikingsliðsins á
sama máli, að sjálfsögðu ekki.
— Þetta verður erfiður leikur
tveggja sterkra liða, sagði
Gunnlaugur. — Við ætlum okk-
ur að sjálfsögðu að endurtaka
sigurinn frá því í Reykjavíkur-
mótinu og vonandi tekst það.
Víð vorum nokkuð ánægðir
með leikinn á móti Fram sið-
asta sunnudag, en þó er alltaf
eitthvað sem fer úrskeiðis og
höfum við rætt þau atriði og
reynt að iaga það sem miður
fór. Við förum inn á völlinn í
dag með eitt stig og ætlum
okkur út af honum með tvö stig
tii góða, sagði Gunnlaugur að
lokum.
Leikur Fram og KR á Laugar-
dalsvellinum annað kvöld gæti
einnig orðið skemmtilegur,
leikir þessara gömlu fjenda úr
Reykjavikurknattspyrnunni
eru það yfirleitt. FH-ingar ætla
sér stærri hlut frá leiknum við
ÍA á morgun en þeir uppskáru
gegn ÍBK síðasta laugardag.
Skagamenn þurfa líka að
standa sig vel i dag, mun betur
en gegn Þrótti á dögunum er
þeir skoruðu heppnismark og
kræktu i 2 ódýr stig gegn
Þrótti. Siðastnefnda liðið verð-
ur svo í sviðsljósinu á mánudag-
inn er liðið leikur gegn IBK, en
Breiðablik á frí um helgina.
Aðeins einn leikur verður í 2.
deild um helgina, en keppnin í
3. deild og 1. deild kvenna hefst
á morgun:
Knattspyrnuleikir helgarinn-
ar verða að öðru leyti sem hér
segir:
1. deild, Laugardalsvöllur kl.
14 á laugardag VALUR — VlK-
INGUR
2. deild, Vestmannaeyjar kl. 14
á laugardag ÍBV — VÖLSUNG-
UR
3. deild a, Hellu kl. 16 á laugar-
dag HEKLA — HVERAGERÐI
3. deild c, Háskólavöllur kl. 16
á laugardag, ÍR — BOLUNG-
ARVlK
1. deild Kaplakriki kl. 16 á
sunnudag, FH — IA
1. deild Laugardalsvöllur kl. 20
á sunnudag FRAM — KR
1. deild konur, Stjörnuvöllur
kl. 14 á sunnudag, STJARNAN
— VtÐIR
1. deild, Laugardalsvöllur kl.
20 á mánudag, ÞRÓTTUR —
tBK
Úrvalið átti í brösum
SUÐVESTURLANDSÚRVALIÐ, sem landsliðsnefndin í handknattleik tefldi í
gær fram á móti bandaríska landsliðinu, lenti í hinum mestu erfiðleikum með
Bandaríkjamennina og það var ekki fyrr en á lokamínútum leiksins sem landinn
tryggði sér fjögurra marka
Fyrri hálfleiknum lauk 10:10
og voru Bandarikjamenn fyrri
til að skora framan af leiknum.
í seinni hálfleiknum náði
íslenzka liðið svo forystunni og
varð hún mest þrjú mörk, en
bandariska liðið minnkaði þann
mun niður I eitt mark, 20:19,
Firmakeppni
á skíðum
Firmakeppni Skíðaráðs Reykja-
víkur fer fram í Bláfjöllum í
dag. Nafnakall verður klukkan
12, en keppnin sjálf hefst
klukkan 14. Allgott skiðafæri
er nú i Bláfjöllum og ekki ama-
legt að dvelja þar efra þessa
dagana.
sigur, 24:20.
þegar 4 mínútur voru eftir af
leiknum. Lokamínúturnar voru
eign íslenzka liðsins, sem þá
skoraði 4 mörk á móti 1 og vann
24:20.
Þeir Viðar Símonarson og
Geir Hallsteinsson voru burðar-
ásarnir i leik islenzka liðsins,
en mörkin dreifðust á flesta
leikmenn þess.
Bandaríska landsliðið heldur
heimleiðis i dag eftir viku dvöl
hér á landi, sem notuð hefur
verið til æfinga og leikja á
hverjum einasta degi. Léku
Bandarikjamennirnir 6 leiki I
ferðinni. unnu 4 og töpuðu 2.
Er greinilegt að bandaríska
landsliðið er á hraðri uppleið,
þó svo að enn hafi það lítið að
gera í islenzka handknattleiks-
menn í toppþjálfun. tFrslit
leikja Bandarikjamannanna i
ferðinni urðu sem hér segir
IR — Bandaríkin 16:18
FH — Bandaríkin 18:20
Fram — Bandaríkin 19:25
Víkingur — Bandaríkin 28:32
Þróttur — Bandarikin 26:21
Suðvesturlandsúrval
— Bandaríkin 24:20
I bandaríska landsliðinu eru
flestir sömu leikmennirnir og
leikið hafa með því hér á
1 andi undanfarin ár. Þó má
geta þess að í liðinu nú voru
tvíburabræður og voru þeir
meðal sterkustu manna liðsins.
Hafa þeir æft handknattleik í
sex mánuði að því að sagt er,
leikið 10 leiki i bandariska
meistaramótinu og tvo lands-
leiki fyrir Bandaríkin á þeim
stutta tima sem þeir hafa
stundað iþróttina.
Dýri Guðmundsson fyrirliði Vals gaf sér tfma til að llta upp frá
skólabókunum — og gosdrykkjunum — er RAX Ijósmyndari birtist
á lesstofu viðskiptafræðinema f gær.
Vfkingarnir Gunnlaugur Kristfinnsson og Róbert Agnarsson brúna-
þungir við afgreiðslustörf f Sportval f gær.
Örnggt hjá Ármanni á Selfossi
Armenningar áttu f litlum erfiðleikum með Selfyssinga er liðin
mættust f 2. deildinni á fimmtudaginn. Þó svo að leikurinn færi
fram á Selfossi þá voru Ármenningar mun sterkari aðilinn og
skoruðu 4 mörk gegn 1. Fyrsta mark leiksins gerði Sumarliði
Guðbjartsson fyrir heimamenn, en sfðan skoraði Birgir Einarsson
og var staðan 1:1 f leíkhléi. 1 seinni hálfleiknum léku Armenningar
undan golunni og skoruðu þeir Magnús Þorsteinsson, Sveinn
Guðnason og Birgir Einarsson þrjú mörk fyrir liðið.
Baristum fjóra bik-
ara á sundmóti KR
ÞAÐ verður eflaust hart barist
á Sundmóti KR, sem fram fer f
I.augardalslauginni á sunnu-
daginn. Keppnin hefst klukkan
15 og allt bezta sundfólk
landsins að Guðmundi Ólafs-
syni undanskildum verður
meðal kcppenda. Keppt verður
f 12 greinum og m.a. barizt um
f jóra veglega bikara.
I 400 metra skriðsundinu
verður keppnin liklegast á milli
þeirra Sigurðar Ólafssonar,
Árna Eyþórssonar og Brynjólfs
Bjarnasonar. Sá sem sigrar í
þessari grein fær bikar sem
Sundsambandið gaf KR í tilefni
50 ára sunddeildar KR fyrir
nokkrum árum.
í 200 m fjórsundi karla verða
sömu menn að teljast
líklegastir til sigurs og sá sem
sigrar fær Sindrabikarinn. 1
100 m skriðsundi kvenna
verður keppt um Flugfreyju-
bikarinn og loks fær sá ein-
staklingur sem vinnur bezta
afrek mótsins Afreksbikar SSÍ
til varðveizlu i eitt ár.
Höggleikur hjá GR
GORLFKLÚBBUR Reykja-
víkur gengst fyrir innanfélags-
móti i Grafarholti í dag og hefst
keppnin klukkan 10. Keppt
verður í höggleik og verða veitt
þrenn verðlaun með forgjöfum
en ein verðlaun án forgjafar.
Keppendum er heimilt að taka
með sér gesti, en keppnin er
liður i stigakeppni GR.
7"/c fÆ,f/i -
h Lfl Cs/DA /JoTA'þl
HAtj/J si&o>TJ
T'u H f) STY/>/r4 : . éíSQj/y-
Horo* S/C/lAf '' o*
H*€ /Y / 9 dn oaif*9J/1.
Jt'£viu-ic>N~-ava*\ studios
í-OO/1 (
/TA
HA-// þA »<!/-
Töflý qi> STo/
P/A G/ltl/<J
5 T Jo/t /tA//
O/aJA Jr/'J-
l/Ot 1/o/lJT.l.
Óní'/ p/1
t UA-1
7" o tf- Uo/°-
Peu- æut -
Í-AA C T .
'p/ltd t/qo t
AAt-etÍT />•
£*/// /t*a
/n///SA'1 i
J/Y* H,r//\
i//Y/yJ
/idfrJ
cr/l/JJ
U/l
/l P///J
yo>4( d/t./Y
e
ÆCLYMPÍULEI
%-J/ s,
/Jii
of/t r
flo ue/t/A/icí,/
þflSflTTt
SflANAflc/efl
S/itsu } fnir/p.
/J€tja Uo*i
P’/tA/A A
STÓ/r/i/isJii>/d
r /?es»J HtAJpt
$*V7*/>oV COU/t FYSLS 7dA- f '•7/f/ltt, TAÝUT-\
0 GAiSUd A Up/l T tr//yd/L/*/ ,/\ A/e UaCtt/ TJF//Z
‘PA/r/Jryt S7 Jfl<Jd J/t tfO/SJ/YCjSTdHU/Y// / ° *
HÍdi//£ HU/§> Ho//d/* .
Vegna sérstakra
ástæðna óskar Ung-
mennafé/ag Grinda-
víkur eftir að ráða
Þjálfara
í knatt-
spyrnu
í sumar. Upp/ýsingar í
síma 92-8090 og
8390.