Morgunblaðið - 04.06.1976, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JUNI 1976
Ljósm. Mbl. ihj.
Sverrir, Runólfur. Eyþór or Axel með fallega laxa og Siguróur f Ferjukoli slendur á milli þeirra.
,,Ivf liúr er lax að
fá næ ég ’onum”
Dagstund við Norðurá,„fegurstu áa”
eftir Ingva Hrafn Jónsson
ÞAÐ var glaólegur hópur sem
var aó setjast aó malarborðinu í
veióihúsinu vió Noróurá á
þriðjudaginn er undirritaóur
renndi þar í hlaó. Austangolan
lék vió vangann og júnfsólin
skein f heiði. Dagurinn vareins
unaóslegur og fslenzkur sumar-
dagur getur orðió og einn
slíkur virðist ætfð gæddur
þeim töframætti aó fá menn
sem eru reiðir út í veturinn og
hans veóravíti til að gleyma
þeirri reiói. Hópurinn við
Noróurá var búinn að fvrirgefa
Vetri konungi enda laxveiói-
tíminn loksins byrjaður og 10
silfurgljáandi fiskar komnir f
kælinn.
Frá lokum laxveiðitímabils
að hausti til opnunarinnar vor-
ið eftir líður heill meðgöngu-
tími, sem mörgum reynist
erfiður. Það er alltaf verið að
tala um það að karlmenn skilji
ekki hvað það sé að ganga með i
9 mánuði. Það kann að vera að
einhverjir slíkir karlmenn
fyrirfinnist en óha'tt er að full-
yrða að í þeim hópi er enginn
laxveiðimaður, því að þeir vita
hvað það er að ganga með eitt-
hvað í maganum í 9 mánuði.
Það var stjórn. varastjórn og
framkvæmdastjóri Stangveiði-
félags Reykjavíkur ásamt eigin-
konum, sem átti því láni að
fagna að opna laxveiðitímabilið
í ár í Norðurá, ..Fegurstri áa"
eins og Björn vinur minn
Blöndal skýrði bók sína, sem út
kom í haust laxveiðimönnum til
ánægju á löngunt vetrarkvöld-
um. Stangveiðifélagið hefur nú
haft Norðurá á leigu í 40 ár, og
þaö er jafngömul hefð að
stjórnarmenn opni tímabilið
Þeir félagar höfðu tekið ljúf-
mannlega beiðni minni um að
fá að koma í heimsókn og buðu
mig velkominn í hópinn.
Flestir þeir, sem gera grín að
laxveiðimönnum fyrir delluna,
gera sér ekki grein fyrir því að
stærsta gleði hins sanna veiði-
manns er að fá að dvelja við
ána sína í fögru umhverfi og
góðum félagsskap, og nái menn
að slæða nokkrum löxum á land
er það bai a eins og punkturinn
vfir 1-ið
\fir borðhaldmu skiptust
menn « veiðisögum nýjum og
gömlum og hlátrasköllin ómuðu
um allt húsið. Það var varafor-
maður félagsins, Magnús Ólafs-
son læknir, sem hafði fengið
fyrsta lax sumarsins, hann tók
hjá honum á slaginu 8 á maðk,
en Sverrir Þorsteinsson í Hliða-
grilli átti heiðurinn af fyrsta
flugulaxinum kl. 08.05 og var
flugan túba, sem heitir Skrögg-
ur.
BYRJAÐAEYRINNI
Það varð úr að ég fengi að
slást í hópinn með Sverri og
Eyþóri Sigmundssyni br.vta í
Utvegsbankanum, sem áttu að
veiða á Eyrinni fyrir neðan
Laxfoss, en hinum megin á
Skerjunum þeir Runólfur Hey-
dal og Axel Aspelund. Mikið
vatn var í ánni og ekki hægt að
vaða fyrir ofan eða neðan foss-
inn og því urðum við Sverrir og
Eyþór að róa yfir fyrir ofan
Laxfoss. Þeir hafa lengi veitt
saman, enda báðir brytar og
með sérstakt próf í matreiðslu
fyrir menn og laxa. Blaða-
maðurinn tók að sér að róa vfir
og gekk það vonum framar þótt
ekki væri skektan til mikilla
stórræða, en sá sem hefur róið
fullhlöðnum báti út i hólmann
milli Kistukvíslar og Stórafoss í
Laxá i Aðaldal á fjöru kallar
ekki allt ömmu sína.
Þegar við voru.m búnir að
koma okkur niður undir Eyrina
urðum við að kasta mæðinni og
Evþór landar-laxi á Brotinu.
fækka við okkur flikum því að
gangan frá veiðihúsinu og
róður í yfir 20 stiga hita og
skínandi sól sagði til sín.
Sverrir varð fyrstur til að gera
sig kláran og hann byrjaði að
kasta flugunni. Skröggur var
tvisvar búinn að hitta vatnsflöt-
in er stöngin kengbognaði og
hann var á. Við sáum strax að
hér var vænn fiskur á ferðínni,
þvi að hann strikaði strax niður
flúðina. Sverrir f.vlgdi honum
eftir og fór að öllu með gát.
notaði fingurinn léttilega til að
halda við línuna. Laxinn tók nú
á rás upp flúðina og lagðist
siðan á tökustaðinn. Eftir smá-
þóf fór hann að gefa sig enda
líklega göngumóður.
Neðst á Eyrinni kemur smá-
vík inn í hana og þangað nudd-
aði Sverrir laxinum. Komið var
að leikslokum og eftir 5 mínút-
ur tók Sverrir hann sporðtaki
og lyfti honum örugglega á
land. Þetta var 15'h pd silfur-
gljáandi hrygna komin beint úr
sjó og hefur líklega losað sig við
síðustu lúsina i slagnum.
Sverrir var að vonum lukku-
legur enda þriðji flugulaxinn,
sem hann fékk þann daginn.
A I ÖÐRU KASTI.
Eftir að hafa óskað félaga
sinum til hamingju fór Eyþór
með fluguna á sama stað og
byrjaði að kasta, en greinilegt
var að eitthvert rót hafði komið
á staðinn því að laxinn fékkst
ekki til að taka. Þá sögðu þeir
félagar blaðamanninum að taka
maðkinn og gáfu honum upp-
skrift af hinni girnilegustu
beitu til að freista laxins. Hann
var á í öðru kasti og ég fann
hvernig adrenalínið streymdi
út í æðarnar er laxinn þreif fær
ið og rauk með það út í straum-
inn. Og nú var að rifja upp í
skyndi eftir hvaða
kúnstarinnar reglum skyldi
farið og eftir því sem leið á
leikinn kom hin þægiiega til-
Framhald á bls. 23
'Sverrir Þorsteinsson kastar flugunni
og brátt er leiknum lokið.
Sjáðu lúsina á honum!
og ‘ann er á
f
Eiginkonurnar komu færandi hendi með kaffi og meðlæti.
Magnús Ólafsson rennir á Bryggjunum, en hann varð hæstur
hollinu með 7 laxa og Eyþór með 6. Alls fékk hollið 31 lax.