Morgunblaðið - 04.06.1976, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 04.06.1976, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUÐAGUR 4. JÚNI 1976 17 Unnið að þvf að setja upp sögulega sýningu á fslenzkri grafik, sem verður f austursal Kjarvalsstaða. Sérkennileg sýning Dunganons sagt tillögur, sem aldrei voru framkvæmdar. SÖGULEG SÝNING Agrafik Félag íslenzkra grafiklista- manna efnir nú í fyrsta skipti til yfirlitssýningar á íslenzkum grafiklistaverkum frá byrjun og fram að okkar tíma. Frétta- manni Mbl. var sagt að elzta myndin mundi vera Kjarvals- mynd frá 1919. Hefur verið lögð mikil vinna i að safna sam- an grafikmyndum, enda -er þetta í fyrsta skipti sem reynt er að koma upp slikri sögusýn- ingu um þessa listgrein á ís- landi. En mikil vakning iiefur orðið á þvi svíði á undanförnum árum Þarna verða nokkrar myndir til sölu, m.a. eftir Jón Engil- berts og einnig eftir yngri myndlistarmenn. UTISÝNING í AUSTURSTRÆTI Myndhöggvarafélagið stend- ur fyrir útisýningu á högg- myndum í Austurstræti, þar sem 20 verkum verður komið fyrir. Þetta er önnur högg- myndasýningin, sem þar er sfð- an göngugatan var gerð. En þessar sýningar eru í rauninni framhald á sýningunum fimrrí, sm efnt var til á Skólavörðu- holti. Á sýningunni eru myndir úr margs konar efni, svo sem steinsteypu, málmum, plasti o.fl, og mjög fjölbreyttum form- um. Níu félagsmenn i Mynd- höggvarafélaginu eiga þarna verk og að auki sjö gestir, m.a. nemendur, sem eru að ljúka námi. Myndhöggvararnir 16 eru: Ölöf Pálsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Magnús H. Árnason, Ragnar Kjartansson, Níels Hafstein, Þorbjörg Páls- dóttir, Ingvar Valgarðsson, Baltasar, B. Samper, Ingi Hrafn Hauksson, Sverrir Ólafsson, Árni Ingólfsson, Þór Elís Páls- son, Astríður Ólafsdóttir, Vign- ir Jóhannsson og Sigurður Sveinsson. DUNGANON í BOGASAL í Bogasal Þjóðminjasafnsins verður sýning á myndum, hand- ritum og skjölum Dunganons, sem hann arfleiddi íslenzka rík- ið að við andlát sitt. Björn Th. Framhald á bls. 29 r — j Þessar myndir voru teknar í Bogasal, þar sem búið er að koma f.vrir mjög sérkennilegri sýningu á verkum, handritum og skjölum Dunganons. Ljósm. Emilfa. hann fór að læra á fiðlu. Aðferðin er kennd við Japana að jafni Suzuki, en hún miðast við það að móðir barnsins lærir fyrst að leika á hljóðfærið og hún fær tilsögn i því að kenna barninu. Barnið er látið hlusta á leik móðurinnar fyrst í stað. Svo kemur að því að það vill fara að herma eftir móðurinni og þá fyrst er kominn timi til að það fari að meðhöndla hljóðfærið. Eins og gefur að skilja er ekki um neinn hljóðfæraleik að ræða fyrst í stað, en sonur minn er nú farinn að geta leikið talsvert á fiðluna sína. Leikir hans eru flestir tengdir tónlist og eftirlætisiðja hans er hljómsveitarstjórn á pianóbekkn- um heima i stofunni hjá okkur. Hann óskapast og leikur öll hlut- verkin. Það er gaman að fylgjast með þessu, en þetta þýðir samt ekki það, að við viljum að hann verði tónlistarmaður. Þegar þar að kemur velur hann sjálfur hvað hann gerir að ævistarfi sinu, en við teljum þetta mikilvægan þátt i uppeldinu, hvert svo sem áfram- haldið verður. Siðan drengurinn var fjögurra mánaða hefur hann farið með okkur á tónleika og nú er svo komið að við förum ekki öðruvísi en að taka hann með okkur. Við spyrjum Freeman hvort hann hafi leikið jazz, en hann segir: — Nei, það hef ég ekki gert. Þegar ég var ákveðinn i þvi að gera tónlistina að starfi mínu fór óskaplega I taugarnar á mér, að þeldökkir tónlistarmenn voru um- svifalaust og óhjákvæmilega bendlaðir við jazz. Þetta olli því, að ég fékk andúð á þeirri tegund tónlistar og lagði áherzlu á að koma fólki f skilning um að ég kæmi ekki nálægt henni. Þetta ástand stóð í mörg ár, en eitt sinn var ákveðið að ség stjórnaði hljóm sveit i Noregi og á efnisskránni var píanókonsert eftir Gershwin. Þegar á hólminn kom og ég var farinn að æfa með hljómsveitinni laukst upp fyrir mér, að hún lék nákvæmlega eins og um væri að ræða verk eftir Beethoven eða Mozart. Það vantaði allt kryddið í flutninginn, — alla hreyfinguna, sem er ómissandi þáttur í verkum Gershwins. Þá tók ég við mér og áður en ég vissi af var hljómfailið orðið allt annað. Síðan hef ég ekki haft þessa fordóma, heldur hef ég gaman af jazz. Þótt ég ætti lífið að leysa gæti ég ekki dansað eftir valsatónlist Strauss, heldur þykir mér langskemmtilegast að dansa eftir jazztónlist. —A.R. Skáldavaka á listahátíð: Skáldin lesa upp Ijóð sín Á listahátíð verður eins og f.vrr efnt til Skáldavöku, sem Rithöfundasamband tslands efnir til á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 13. júnf. Þar munu 30—40 skáld lesa ljóð sfn og eru það í þetta sinn allt Ijóð, sem ekki hafa birzt á bók. Skáldin lesa sjálf Ijóð sfn og hafa upp f hámark 15 mínútur, en geta að sjálfsögðu haft minni tíma, og lesið eitt Ijóð. Skáldavakan hefst kl. 2 sunnudaginn 13. júní og verð- ur lestri haldið áfram þannig, að skáldin lesa í stafrófsröð. Sagði Ingimar Erlendur Sig- urðsson, varaformaður sam- bandsins, Mbl. að dagskráin væri þannig samansett að þar væri að finna eitthvað fyrir alla. Þarna væru þekkt ljóð- skáld og rithöfundar, sem lum- uðu á Ijóðum. Og væri þar f hópi að finna óvænt númer. Þar væru listaskáldin vondu og að sjálfsögðu listaskáldin góðu. Nöfn skáldanna fara hér á eftir, og má listinn heita end- anlegur. Þó hefur ekki tekizt að ná sambandi við fjögur ljóðskáld, sem vonazt er til að verði einnig með Baldur Oskarsson, Blrgir Sigurdsson, Birgir Svan Sfmonarson, Kinar Bragi. Einar Ólafsson. Elfas Mar, Erlendur Jónsson. Filippfa Kristjánsdðttir (Iliigrún), (ludbergur Bergsson, Guórún Jaeobsen, Gunnar Dal, Hilmar Jónsson, Hjiirtur rálsson, Hrafn Gunnlaugsson, Ingimar Erlendur Sigurðsson, Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka, Sóra Jakob Jónsson, Jenna Jensdóttir, Jón frá Pálm- holti, Kristinn Beyr. Kristján Röðuls, Nfna Bjiirk Arnadóttir Njörður P. Njarð- vfk, Pótur Hafstein Lárusson. Rósberg G. Snædal, Sigurður A. Magnússon, Sigurð- ur Pálsson. Sigvaldi Hjálmarsson. Thor Vilhjálmsson, Vilborg Dagbjartsdóttir, Þorsteinn frá Hamri, Þiffunn Elfa Magn- úsdóttir, Þórunn Magnea Magnúsdótlir ' SLATTUVÉLAR Það er leikur einn að slá grasflötinn með Nórlett Nú fyrirliggjandi margargerði á hagstæðum verðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.