Morgunblaðið - 04.06.1976, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JUNÍ 1976
Verð landsins hækkaði
meir en nam virði lands-
ins sem fór undir veginn
LANDEIGENDUR aðrir en
Reykjavfk og Mosfellshreppur, er
land áftu sem fór undir vegagerð
við Vesturlandsveg, gerðu kröfur
á hendur Vegagerð ríkisins um
hætur fvrir það land, sem undir
veginn fór. Vegagerð rfkisins
áleit að þeir ættu ekki bætur
skildar í samræmi við verð á
lóðum — eins og landeigendurnir
héldu fram, og að landeigendur
hefðu ekki átt bótarétt, þar sem
Pundið lækk-
ar og lækkar
London.júní. \TB. Houlor.
ENN versnaði staða sterlings-
pundsins á gjaldeyrismörkuðum í
dag og þrátt fyrir viðleitni Denis
Healeys fjármálaráðherra að
endurvekja traust á gjaldmiðlin-
um, stóð pundið í 1.7100 dollar
þegar markaðir lokuðu. Pundið
hækkaði örlftið fvrr í dag en
síðan lækkaði það á ný. Hefur nú
gildi sterlingspundsins lækkað
um 41.4% gagnvart öðrum mikil-
vægum gjaldmiðlum, sfðan f
desember 1971.
FUNDUR var í gær haldinn f
utanrfkismálanefnd Alþingis og
landhelgisnefnd. A fundinum
kynntu þeir Einar Agústsson og
Matthías Bjarnason samkomulag-
ið, sem þeir gerðu við Breta f Osló
f byrjun vikunnar. Samkvæmt
upplýsingum Þórarins Þórarins-
sonar, formanns utanrfkismála-
nefndar, kom fram fyrirspurn á
fundinum, hvort einnig hafi verið
gerður leynisamningur við Breta,
sem ekki hafi verið gert uppskátt
um. Fyrirspurnin var borin fram
af fulltrúa stjórnarandstöðunnar
og svaraði Einar Ágústsson henni
þannig, að enginn slfkur
samningur hafi verið gerður.
A fundinum kom fram, að það
væri á valdi Alþingis, hvað við
tæki eftir 1. desember, þar sem
íslendingar hefðu með samningn-
um öðlast algjört sjálfdæmi um
framvindu mála. Aðspurður sagði
Þórarinn Þórarinsson, að ekki
hefði í gær verið haldinn fundur í
þingflokki framsóknarmanna, þar
sem þingfíokksfundurinn í
síðustu viku hefði gefið ráðherr-
um flokksins fullt umboð til þess
að ganga frá samningum sem
niðurstaða þeirra varð.
A utanríkismálanefndarfundin-
um í gær óskuðu fulltrúar
stjórnarandstöðunnar eftir að fá
bókað um afstöðu sína til sam-
komulagsins við Breta. Bókunin
er i fjórum eftirfarandi liðum:
„1. Við teljum að samkomulagið
FYRSTU 5 mánuði þessa árs var
landað 45.054 lestum af fiski I
Reykjavíkurhöfn. Munar þar
mesl um loðnulöndun, en alls var
landað í Reykjavík 30.941 lest af
loðnu. Togaraafli í Reykjavfk var
10.863 lestir og bátaafli 3.250 lest-
ir.
Bátaaflinn, sion harst á land i
Reykjavík, 3.2 n mu, kom úr
509 sjóferðum ihatsti hátur-
inn var Asþór m-ö 759 lestir
eða 23,4% af h< • la hátanna.
Næsthæsti-báti .< -• i.cplega
land þeirra hækkaði í verði við
vegargerðina.
Vegagerð þessi fór fram á
árunum 1970 til 1973 og landeig-
endurnir sem gerðu kröfur voru
eigendur jarðanna Leirvogstungu
og Blikastaða. Skipuð var mats-
nefnd til þess að fjalla um þettá
mál, en í henni voru Bjarni K.
Bjarnason borgardómari og Einar
B. Pálsson prófessor.
Matsmennirnir töldu að taka
bæri tillit til þeirra sjónarmiða
landeigenda að ekki bæri að meta
lönd þeirra með hliðsjón af þvi
sem þau gefa af sér sem bújarðir
— en það var ein af kröfum Vega-
gerðar ríkisins. Matsmenn álitu
að líta bæri á löndin sem þétt-
býlissvæði. Þeir reiknuðu út að
flatarmál þess lands sem fór
undir veginn hafi verið 1,19% og
3,0% af heildarflatarmáli
jarðanna. Töldu þeir að land land-
eigendanna hækkaði það mikið
við gerð vegarins að sú hækkun,
sem af henni leiddi væri mun
hærri en missir landsins undir
veginn væri miðað við meðalverð
jarðanna. Því töldu þeir ekki að
landeigendurnir ættu rétt á sér-
stökum hótum vegna vegagerðar-
innar.
beri tvímælalaust að leggja fyrir
Alþingi áður en það tekur gildi.
2. Við gerum því kröfu um, að
Alþingi verði kallað saman og
málið lagt fyrir það.
3. Við erum andvígir samkomu-
laginu við Breta og vísum til fyrri
yfirlýsinga okkar um einstök
efnisatriði.
4. Af samkomulaginu við Breta
leiðir, að áður gerður samningur
við Vestur-Þjóðverja, — en af
honum stendur enn eftir veiði-
heimild sem nemur um 90 þúsund
tonnum, — heldur áfram gildi, í
stað þess að réttu lagi átti hann að
falla niður."
Lögmæt
í Eyjum
ATKVÆÐI í prestkosningu í
Vestmannaeyjum, sem fram fór
sunnudaginn 30. maí, voru talin í
biskupsstofu í gær. Einn umsækj-
andi var í kjöri, séra Kjartan Örn
Sigurbjörnsson, settur sóknar-
prestur i Vestmannaeyjum.
Umsækjandi hlaut 1.321 at-
kvæði af 1.324, en tveir seðlar
voru auðir og einn ógildur. Á
kjörskrá voru 2.547. Var kosning
því lögmæt.
402 lestum minni afla. Skipstjóri
á Ásþór er Þorvaldur Árnason.
Togaraaflinn í Reykjavík varð
þessa fyrstu 5 mánuði 10.863 lest-
ir og fékkst hann í 72 löndunum.
Til samanburðar má geta afla í
höfnum suður með sjó. Tölurnar,
sem hér fara á eftir eru þó yfir
hálfum mánuði skemmri tíma eða
til 15. maí.
1 Keflavík höfðu borizt á land
6.990 lestir í 1.425 sjóferðum, í
Sandgerði 8.385 lestir í 1.579 sjó-
ferðum og í Grindavík 19.236 lest-
ir í 3.006 sjóferðum.
Lenti með fót-
inn í snigli
og missti 3 tær
VINNUSLYS varð í Vestmanna-
eyjum f gær. 14 ára piltur fór með
hægri fótinn f snigil með þeim
afleiðingum að hann missti 3 tær
og framan af hinum tveimur.
Pilturinn var strax fluttur á
sjúkrahúsið f Eyjum, þar sem átti
að freista þess að græða tærnar á
aftur en þegar Morgunblaðið
ræddi við lögregluna í Vest-
mannaeyjum um kvöldmatarleyt-
ið, lá ekki ljóst fyrir hvernig það
myndi takast.
Piúurinn var við vinnu í is-
geymslu Fiskiðjunnar hf. Snigill-
inn var í gólfinu og yfir honum
rist. Var pilturinn að ryðja isnum
að sniglinum en einhverra hluta
vegna fór hann með hægri fótinn
niður um ristina með þeim
afleiðingum sem að framan
greindi.
— Getum aukið
Framhald af bls. 2
gær flutti Geir Hallgrímsson for-
sætisráÓherra ræðu um samning-
ana við Breta, málflutning and-
stæðinga þeirra og viðhorf að
samningunum loknum og verður
birt frásögn af ræðu forsætisráð-
herra í Mbl. á morgun. Jóhann
Hafstein, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, flutti stutta ræðu og
bað hann fundarmenn rísa úr sæt-
um og hylla alla þá, sem fremst
hefðu staðið í baráttunni við
Breta. Risu fundarmenn úr sæt-
um og tóku undir orð Jóhanns
Hafstein með lófataki. Fundar-
stjóri var Ragnar Júlíusson en
aðrir, sem töluðu og báru fram
fyrirspurnir voru Pétur Guðjóns-
son, Ingólfur Möller og Guttorm-
ur Einarsson.
— Fagnar sigri
Framhald af bls. 2
ábyrga forystu ríkisstjórnar
Geirs Hallgrímssonar forsætis-
ráðherra við lausn þessarar
erfiðu deilu, þar sem tryggður
er fullur sigur hins fslenzka
málstaðar. Þá þakkar fundur-
inn starfsmönnum Landhelgis-
gæzlunnar ötula og giftu-
drjúga baráttu i þágu lands og
þjóðar og flytur aðstandendum
þeirra heilla- og hamingjuósk-
ir með það að friður er feng-
inn.“ ...♦ -----
- Minnispeningar
Framhald af bls. 2
þrjár gerðir af peningunum. Upp-
lag peninganna er mjög lítið og er
hver peningur tölusettur. Af gull-
peningunum verða gefin út 40
stk. og kostar hvert eintak 50.000
krónur, upplag silfurpeninganna
er 300 stk. og kostar hver 12.000
krónur en upplag bronspening-
anna er 400 stk. og kostar eintakið
5.000 krónur.
— Tollverðir
Framhald af bls. 40
RÚMIR TVEIR
KASSAR ÁFENGIS
Sakadómur Reykjavíkur lét í
gær fara frá sér eftirfarandi
fréttatilkynningu um tollmálið:
„Að undanförnu hefur farið
fram rannsókn i sakadómi
Reykjavíkur og hjá rannsóknar-
lögreglunni varðandi ætlaðan
ólöglegan innflutning áfengis af
hálfu eins skipverja á millilanda-
skipi og þriggja tollvarða i
Reykjavík. Samkvæmt frásögn
skipverjanna keypti hann á s.l.
vetri tvo kassa áfengis fyrir einn
tollvarðanna og afhenti honum þá
með tilstyrk annars tollvarðar,
sem hafi rofið innsigli birgða-
geymslu eftir að skipið var tollaf-
greitt. Jafnframt hafi hann í sama
skipti selt öðrum hinna tveggja
tvær flöskur áfengis og gefið hin-
um tvær. Ennfremur kveðst hann
nú nýlega hafa afhent sömu
tveimur tollvörðum tvær flöskur
áfengis hvorum, þ.e. selt öðrum
og gefið hinum, svo og selt hinum
þriðja tvær flöskur, en sá toll-
vörður hefur neitað slíkum við-
skiptum. Hinir tollverðirnir tveir
hafa viðurkennt framangreindar
afhendingar áfengis þótt þeir hafi
ekki í öllu staðfest magnið.
I framhaldi þessa og að gefnu
tilefni hefur rannsókn beinzt að
því að upplýsa hvort þessir og
aðrir starfsmenn tollgæzlunnar
hafi i öðrum tilvikum og í ríkari
mæli gerzt brotlegir um svipað
atferli. Rannsókn málsins er ekki
að fullu lokið, en málið verður
fljótlega sent ríkissaksóknara til
meðferðar. Þeir þrir menn, sem
verið hafa í gæzluvarðhaldi vegna
rannsóknarinnar hafa nú allir
verið látnir lausir.“
RANNSÓKN
EKKI LOKIÐ
Eins og fram kemur í fréttatil-
kynningunni, er rannsókn máls-
ins ekki lokið, og á eftir að kalla
fyrir fleiri menn að sögn Har-
aldar Henrýssonar. Er þess að
vænta að fleiri skipverjar verði
kallaðir fyrir, en maður sá sem
fyrst var tekinn, er eini farmaður-
inn, sem kallaður hefur verið til
yfirheyrslu.
— Við færum út
Framhald af bls. 1
þjóðarflokksins sagði að ríkis-
stjórnin gæti ekki setið aðgerðar-
laus meðan ásóknin á norsk fiski-
mið færi stöðugt vaxandi. Finn
Gustafsen leiðtogi Sósíalíska
vinstriflokksins sagði að aðild
Norðmanna að NATO hefði niður-
lægt norsku stjórnina og að hún
hefði af þeim sökum látið undir
höfuð leggjast að tryggja lífshags-
muni Norðmanna í sambandi við
fiskveiðar.
Þingmenn allra flokka fögnuðu
samkomulagi Breta og tslendinga
og fékk Knut Frydenlund utan-
ríkisráðherra mikið hrós fyrir
sinn þátt i að koma samkomulag-
inu á. Sagði Erlend Steenberg
þingflokksleiðtogi Miðflokksins
að samkomulagið myndi hafa á-
hrif á stöðu norsku samninga-
mannanna um hafréttarmál.
— Njósnamál
Framhald af bls. 1
andi höfðu aðgang að einhverjum
ríkisleyndarmálum.
Buback lofaði dugnað vestur-
þýzku leyniþjónustunnar og sagði
að frammistaða hennar í þessu
máli hefði verið til fyrirmyndar.
Mikið af skjölum og plöggum
hefði fundist hjá þessu fólki við
handtöku að sögn saksóknarans.
Þetta er þriðja meiri háttar
njósnamálið sem upplýsist i Vest-
ur-Þýzkalandi á skömmum tíma.
1 blaðafréttum um málið í dag
sagði Die Welt að kona sem hefði
verið deildarstjóri félagsmála-
deildar varnarmálaráðuneytisins
hefði verið náinn samstarfsmaður
núverandi kanslara, Helmut
Schmidt, þegar hann var varnar-
málaráðherra árin 1969 til 1972.
Samkvæmt blaðamannafundi sak-
sóknarans virðist þó ekki sem
kona sú sem nafngreind hefur
verið og heitir Renate Lutze hafi
verið svo hátt sett í ráðuneytinu
og er ekki talið að frásögn blaðs-
ins sé alls kostar áreiðanleg, hvað
þetta atriði snertir.
— „I vasa
mínum”
Framhald af bls. 3.
eru meginuppistaða verka
málarans, eru einnig sýnd
grafíkverk en eftir 1970 hefur
Hundertwasser í æ ríkara mæli
snúið sér að grafíklist og gefur
á sýningunni að lita hin ýmsu
afbrigði þeirrar listar s.s. stein-
prent, raderingu, silkiþrykk
auk þess nýmælis að nota
upphleyptar mislitar málmflög-
ur og lýsandi liti. Japönsk tré-
skurðarlist á einnig fulltrúa á
sýningunni. Einnig sýnir
Hundertwasser myndvefnað
auk nokkurra líkana, sem
málarinn hefur unnið í tengsl-
um við baráttu sína fyrir betra
og mannlegra umhverfi.
Meðan sýningin á verkum
Hundertwassers stendur yfir í
Listasafninu verður daglega
sýnd þar kvikmynd um ævi og
starf málarans. Mynd þessi
tekur 40 mínútur í sýningu en
sýningartimi hennar verður
nánar auglýstur siðar.
— Prescott
Framhald af bls. 1
náðst undir vernd 13 freigátna.
Samtökin ættu einnig að gefa
opinbera yfirlýsingu þar sem sú
staðhæfing væri rökstudd að níu
þúsund menn myndu missa at-
vinnu sína og þeir ættu einnig að
rökstyðja 30 milljón punda skaða-
bótakröfuna. Prescott spurði
hvort i þessum 30 milljónum
punda fælust bætur og umfram-
greiðslur til handa þeim sem
misstu atvinnu sína og bætur
fyrir skip sem senn yrðu hvort eð
væri tekin út af skipaskrá.
Slíkar fébætur ættu aðeins að
koma til ef þær væru í beinum
tengslum við atvinnumissi eða
áætlanagerð um aðgerðir í at-
vinnumálum og ekki til þess eins
að bæta tjón atvinnurekenda.
— í lágflugi
yfir Beirut
Framhald af bls. 1
fundi að herinn myndi rísa önd-
verður gegn hernámi, hvaðan svo
sem liðið væri komið. A1 Khatib
varpaði fram þeirri hugmynd að
Líbanir færu í mótmælagöngu til
Bekaadalsins þar sem sýrlenzkir
herflokkar hafa nú búið um sig.
Aftur á móti sagði í fréttum frá
Líbanon í dag aðtiltölulega kyrrt
hefði verið víðast hvar í landinu í
dag, og aðeins hefði komið til
skotbardaga milli Palestinu
manna sem eru á móti íhlutun
Sýrlendinga og skæruliðaher-
manna sem styddu aðgerðir
þeirra.
Alexei Kosygin forsætisráð-
herra Sovétríkjanna sem er i
heimsókn i Damascus sagði í dag
að hann styddi heilshugar að-
gerðir Sýrlendinga og óskaði for-
ystumönnum þess að þær bæru
tilætlaðan árangur á þessum
rauna- og erfiðleikatímum eins og
Kosygin orðaði það.
Kosygin kom til Sýrlands á
þriðjudag og bar komu hans upp á
þann hinn sama dag og Sýrlend-
ingar sendu vopnað lið inn i
Líbanon.
Enda þótt kyrrt hafi verið að
kalla í Beirut í dag rikir þar hið
mesta hörmungarástand, þar sem
mikill hluti borgarinnar er raf-
magnslaus og óttast er að mat-
vælaskortur taki senn að gera
vart við sig.
Þá segir i fréttum frá Paris um
heimsókn sýrlenzka utanríkisráð-
herrans þar, að hann hafi lýst því
yfir að herlið Sýrlendinga yrði
dregið til baka jafnskjótt og
öryggi Líbanons leyfi slfkt.
Khaddam ræddi við ýmsa ráða-
menn i París í dag og einnig við
sendiherra lands sfns í ýmsum
Evrópulöndum, sem komu þangað
til fundar við hann.
— Kamp
mann
Framhald af bls. 1
þá sögu fyrr og
síðar.
í handritablaði
Mbl. sem kom út
21. apríl 1971 er
fyrstu handritin
voru flutt til
íslands var viðtal
við Kampmann,
þar sem hann sagði
frá þætti sínum að
handritamálinu.
Hann sagði þá með-
al annars. „Sem
stjórnmálamaður
vann ég að mörgum
málum, en ég held
að þáttur minn í
handritamálinu
gleðji mig mest.
Það hlýtur alltaf að
vera ánægjulegt
fyrir norrænan
stjórnmálamann að
miðla vináttu milli
Norðurlandaþjóða
og þannig lft ég á
lausn handrita-
málsins.“
Samningarnir til umræðu
í utanríkismálanefnd
Aflinn í höfuðborginni:
45.054 lestir fyrstu
5 mánuði ársins