Morgunblaðið - 04.06.1976, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 04.06.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 4. JUNÍ 1976 29 — Hafa kommúnistar Framhald af bls. 14 stefnu sína og óstöðugleika, jafnt heima fyrir og meðal bandalagsþjóða. Kjarnyrtar yfirlýsingar Fords forseta og Kissingers að undanförnU, um að lýðræðinu á Vesturlöndum stafi nú sí- vaxandi ógn af kommúnistum og „détente" hafi verið misheppnuð til- raun, hafa vakið mikla athygli, með til- liti til fyrri stefnu þeirra. Hvað sem um Ford og Kissinger má segja, þá bendir framkoma Sovét- stjórnarinnar ekki til þess að hún ætli að slaka á, hvorki á alþjóðavettvangi né heima fyrir. Þvi er jafnvel haldið fram, að Sovétstjórnin hafi aldrei ætlað sér annað með „détente" en að geta komið ár sinni betur fyrir borð erlendis, eins og eftirminnilega hefur komið í ljós í Angóla. Tvístirnið Ford og Kissinger á sér marga gagnrýnendur um þessar mundir. Hægri armur Repúblikanaflokksins undir stjórn Ronalds Reagans lætur þar ekki sitt eftir liggja, og velgengni demókratans Henry Jacksons í forkosn- ingum fyrir forsetakosningarnar, sem fram fara i Bandaríkjunum i haust, bendir til þess að stefnufesta i utanríkis- málum höfði nú til kjósenda i auknum mæli. AÐVARANIH SOLZHENITSYNS Sovézki útlaginn og Nóbelsverðlauna- hafinn Alexander Solzhenitsyn hefur verið einn helzti andstæðingur „détente"-ævintýrsins. Að undanförnu hefur hann hvað eftir annað varað við afleiðingum andvaraleysis Vesturlanda gagnvart útþenslustefnu Sovétríkjanna. Ljóst er, að Solzhenitsyn hefur áhrif á skoðanir fjölda mannna um heim ailan. Það hefur ekki farið, eins og ýmsir spáðu er hann var rekinn í útlegð fyrir tveimur árum, að hann mundi senn gleymast þegar mesta nýjabrumið væri af dvöl hans á Vesturlöndum. Þvert á móti er greinilegt, að á hann er hlustað, ekki sízt þegar gagnrýni hans beinist að Vesturlöndum. Solzhenitsyn hefur það fram yfir flesta stjórnmálamenn, að honum er lagið að setja skoðanir sínar fram umbúðalaust. Hann fjallar um flókin máléfni á þann hátt, að almenningur skilur hann milli- liðaiaust. Nýlega deildi hann mjög á Henry Kissinger og las honum lexíuna svo skorinort, að ekkert var um að villast. ÞÝÐIR VAXANDI FYLGI KOMMÚNISTA, AÐLYÐRÆÐI SÉ A UNDANHALDI? Fljótt á litið kann að virðast svo sem vaxandi áhrif kommúnista á Vesturlönd- um sé ótvirætt merki þess að lýðræðið sé á undanhaldi. Þetta þarf þó ekki endi- lega að vera. Skýringin getur lika verið sú, að þróunin sé afleiðing lýðræðisins, og sé jafnvel sigur þess þjóðfélagskerfis, sem rikir á Vesturlöndum. Þannig, til dæmis, að kommúnistaöflin hafi orðið að varpa einræðiskenningunum fyrir róða og hafi skilið það um síðir, að ekki væri hægt að koma á sósíalisma nema í sam- ræmi við lýðræðislegar leikreglur. Það er staðreynd, að sú kynslóð, sem hreifst af kenningum og hugsjónum kommúnis- mans um og eftir 1920 og kynntist heims- kreppunni miklu af eigin raun, er nú senn að liða undir lok, — og sú kynslóð, sem nú hefur mest áhrif er raunsærri og siður háð tilfinningum. Ný viðhorf leiða af sér ýmsar spurn- ingar um vöxt og viðgang alheims- kommúnismans: Er harðstjórnin í Sovétríkjunum, al- ræðisvaldið, gulag- og geðveikrahæla- kerfið, einangrað sovézkt fyrirbirgði, eða er þetta rökrétt og óhjákvæmileg afleiðing af grundvallarkenningum kommúnismans? Er hugsanlega til einhvers konar sósíalistiskt eða marxistískt kerfi, sem hægt er að samræma lýðræðislegu þjóð- félagskerfi á Vesturlöndum? Yrðu örlög hugsanlegrar rikisstjórnar kommúnista á Ítalíu þau sömu og örlög stjórnar Allendes i Chile? Eða stenzt kenningin um það, að kommúnistar séu og verði kommúnistar, og hið nýstárlega yfirbragð þeirra sé aðeins gríma, sem falli þegar þeir hafa náð undirtökunum? — A R (Heimildir: Observer, Newsweek, Weekendavisen) — Kvenna- skólinn Framhald af bls. 18 dóttir. Verðlaun fyrir bezta frammistöðu í heilsufræði og hjúkrun hlutu Anna Lisa Kristjánsdóttir og Jóhanna Jóhannesdóttir. Verðlaun úr minningarsjóði um Rannveigu og Sigríði Þórðardætur, fyrir bezta teiknikunnáttu hlaut Ása Jóhannsdóttir 2. bekk Z. Að lokum þakkaði forstöðukona skólanefnd, kennurum og stjórn nemendasambandsins ánægjulegt samstarf og óskaði stúlkunum sem brautskráðust allra heílla á komandi árum. — íþróttir Framhald af bls. 89 um liðum erfiðir í sumar og getur ekkert lið bókað sér sigur gegn þeim og allra sist á Húsavík. Hinn ungi og bráðefnilegi Helgi Helga- son var besti maður Völsunga að þessu sinni. Það er knattspyrnu- maður sem á framtíðina fyrir sér. Þá var Guðmundur Jónsson sterk- ur að vanda. AUÐVELDARA GETUR ÞAÐ EKKI VERIÐ,,, Murray mótorsláttuvélin slær auðveldlega allar grasflatir og hin framúrskarandi hönnun gerir stjórnun auðvelda, jafnvel á erfiðustu stöðum. / ^unnca Sqfizehbbon h Suðurlandsbraut 16. Reykjavik Glerárgötu 20 Akureyri t EINNIG HJÁ UMBOÐSMÖNNUM UM LAND ALLT Austurstræti 17 starmýri 2 Rafn Hjaltalín dæmdi leikinn og var afar smásmugulegur í dóm- gæslu sinni, án þess þó að á öðru liðinu bitnaði fremur en hinu. Rafn væri án efa dómara bestur á íslandi, ef hann legði þessa lands- frægu, leiðinlegu „stæla“ niður. Sigb. G. — Listahátíð Framhald af bls. 17 . Björnsson og Steinþór Sigurðs- son hafa sett sýninguna upp og kennir þar margra grasa. Dunganon lést 1972, 75 ára gamall, í Kaupmannahöfn, þar sem hann átti sitt lögheimili. En hann fór víða, var á Spáni, i Frakklandi, í Berlín á stríðsár- unum, I Briissel og heima á Íslandi. Og allan tímann var hann að skapa þessa hluti, sem nú eru sýndir. Á sýnunginni getur m.a. að líta myndir hans „Oracles af St. Kilda“, sem er 300 mynda flokkur. Þeir Björn og Steinþór hafa valið úr skjölum hans, handritum, alls konar skilrikj- um, bæði rétt og rangt feðruð- um o.s.frv. Dunganon orti mik- ið af glasakvæðum, i formi alls kyns vínglasa, koníakskvæði, sherrykvæði o.s.frv. og eru þarna sýnishorn af þeim. Einn- ig eru þarna riddaraljóð. Og meðan á sýningunni stendur eða út mánuðinn, verður flutt á hverjum klukkutíma tónlist eft- ir Dunganon og söngur hans af bandi, en hann er fluttur á ís- lenzku, ensku og St. Kildamáli, sem er týnt mál, sem hann hef- ur endurvakið. Sýningin er semsagt hin for- vitnilegasta og skemmtileg. - Junior Chamber Framhald af bls. 15 viðhöfð í brezka þinginu. Á hverju ári halda islenzku félögin keppni á milli sín í rökræðum og er þar um útsláttarkeppni að ræða. Lokakeppnin fer siðan fram á ársþinginu, en að þessu sinni vann JC Hafnarfjörður úr- slitakeppni á móti JC Borg í Reykjavík. Hugmynd okkar er sú að koma þeim námskeiðum sem við bjóð- um upp á til afnota fyrir aðra en okkur, þau félög, skóla eða ein- staklinga sem hug hafa á.“ ASÍMINN KK: 22410 2n*r)junbiabib Að mörgu er aö hyggja, er þú þarft að tryggja f ~ Brunar og slys eru of tíóir vióburöir í okkar þjóófélagi. Þegar óhapp skeóur er hverjum manni nauósyn, aó hafa sýnt þá fyrirhyggju, aó fjárhagslegu öryggi sé bongió. Hagsmunir fyrirtœkja og einstaklinga eru þeir sömu. SJÓVÁ tryggt er vel tryggt SUÐURLANDSBRAUT 4 -SÍMI 82500

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.