Morgunblaðið - 04.06.1976, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 04.06.1976, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 4. JUNI 1976 33 + Þessi kona, Bettv Aniek að nafni, er sú manneskja sem lengst hefur lifað með hjarta annars manns í brjósti sér. Betty sést hér gera daglegar æfingar á reiðhjóli en læknir hennar hefur ráðlagt henni að grennast um 5 kfló. Betty þá hjarta sitt frá 30 ára gömlum manni sem lézt í október árið 1968. innblásin leikkona” + „Hún verður aldrei leik- kona,“ sagði enski ieikarinn Miehael Redgrave um dóttur sína Vanessu þegar hún var ung stúlka. „Það er líklega be/.t að setja hana f málanám. þá getur hún alltaf fengið sér ein- hverja vinnu...“ Og Vanessa Redgrave getur vissulega valið úr störfunum þegar henni þóknast — sem mesla leikkona sinnar kynslóðar. Vanessa, sem er 39 ára gömul, bláevg og hávaxin, kemur nú fram á Breiðgötu í New York í ieikriti eftir Ibsen. „Eg sóttist eftir þessu hlutverki," segir Vanessa, „það er svo stórfeng- legt.“ Michael faðir Vanessu hefur nú þetta að segja um dóttur sína: „Hún er óð, guð- dómlega óð.. . innblásin leik- kona.“ + V-þvzka leikkonan Romv Sehneider fær um 30 milljónir kr. fyrir hlutverk sitt í kvik- mvnd sem verið er að gera eftir einni bóka rithöfundarins Henrichs Bölls. Leikstjóri mvndarinnar verður Júgóslav- inn Alexander Petrovic. Laun Romv verða um einn sjötti af öllum kostnaði við mvndina. Blindur maður lýkur lœknisprófi + David Hartman er fyrsti blindi maðurinn í 104 ár sem lýkur læknaprófi við banda- riskan skóla. Hartman, sem er 26 ára, útskrifaðist frá Temple- háskólanum i Fíladelfíu og hef- ur i hyggju að sérhæfa sig í sállækningum og endurhæf- ingu. Hinn annar sem lokið hefur prófi i lækni.sfræðum blindur var Robert Babcook sem lauk námi við skóla í Chicago árið 1872. Babcook var reyndar alsjáandi þegar hann hóf nám sitt en missti sjónina meðan á því stóð. Fyrir nokkr- um árum var gerð kvikmynd sem byggði á ævi Hartmans og nefndist hún „Journey Into Darkness" eða Inn i myrkrið. ;-V:y v.; -; David Hartmarf' ásamt móður sinni er hann útskrifaðist f ■< Skrifstofuhúsnæði Óskum eftir að taka á leigu skrifstofuhúsnæði 3 til 4 hérbergi, helzt nálægt miðbænum. Þriggja til fjögurra herbergja ibúð kæmi vel til greina. Góð leiga í boði fyrir rétt húsnæði. Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins merkt skrif- stofuhúsnæði 4800 fyrir miðvikudagskvöld. V_____________________________________ Körfugerð Ingólfsstræti 1 6 Framleiðir nýtisku körfuhúsgöng, stóla með púðum og borð með hillum Mest er selt af barnavöggum, brúðuvöggum og ýmsum körf- um sem blindir menn framleiða Látið islenzkt fyrirtæki ávallt sitja fyrir kaupum á körfum og körfuhúsgöngum. Blindra Iðn, Ingólfsstræti 16 HVÍTASUNNU FÖTIN á alla fjölskylduna HEIMA OG AÐ HEIMAN Opið til 10 í kvöld og hádegis á morgun SKEIFUNNI 15 SIMI 86566

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.