Morgunblaðið - 04.06.1976, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.06.1976, Blaðsíða 40
METSÖLUBÆKUR Á ENSKU í VASABROTI FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1976 Falli bókun 6 úr gíldi má fresta samningunum EF SV'O færi að Bretar hefðu rétt fyrir sér og unnt verrti að fella bókun 6 úr Rildi eftir 1. desem- ber. þ.e. þegar samningur um fiskveiðiréttindi Breta á Islands- mióum rennur út — geta þá ís- lendingar frestað gildi samning- anna. er þeir gerðu við Vestur- Þjóðverja? Morgunblaðið bar þessa spurningu undir Hans G. Ander- sen sendiherra. Hann sagði, að íslendingar gætu það eftir sem áður vegna þess að i samningnum við Þjóðverja stendur. að íslendingar megi hvenær sem er eftir að 5 mánuðir eru liðnir frá gerð samningsins fresta fram- kvæmd hans. Geta íslendingar því frestað gildi samningsins hvenær sem þeim sýnist, svo framarlega sem bókun 6 er ekki i gildi. Hans G. Andersen sagði að allt það tal, sem verið hefði um bókun 6 og ákvæðin í samkomulaginu vegna þess, væri meira eða minna óraunhæft, vegna þess að jafnvel þótt bókunin væri i gildi allan tímann og við neituðum siðan öll- um samningum um gagnkvæm réttindi, gætu þessar þjóðir fundið upp á einhverju öðru til þess að valda Islendingum erfið- leikum. 11% hækkun rafmagns? Á FtlNDI borgarráðs í gær 3. júní var samþykkt samhljóða af full- trúum allra flokka hækkun á gjaldskrá Rafmagnsveitu Reykja- víkur. Þetta er þó háð samþykki Framkvæmdanefnd EBE: Bókun sex taki gildi 1. júlí „FRAMKVÆMDANEFND Efnahagshandalagsins lagði í dag til við ráðherranefndina, að hókun sex um tollalækkanir á innfiutningi fslendinga til aðildarrfkjanna tæki gildi hinn I. júlí næstkomandi," sagði fulltrúi Efnahagsbanda- lagsins þegar Mbl. hafði sam- band við hann í gær. Hann sagði enn ekki Ijóst, hvort ákvörðun ráðherranefndarinn- ar vrði tekin á fundi hennar f júní-lok eða hvort ráðherrarn- ir tækju afstöðu til málsins skriflega, en taldi þó síðari kostinn Ifklegri, enda mundi slfk málsmeðferð stuðla að fljótari afgreiðslu. ríkisstjörnarinnar. Ef samþvkki fæst tekur hækkunin gildi I. júlí næstkomandi og er hún 11%. Ástæðan fyrir hækkuninni er, að rfkisstjórnin hefur nú þegar heimilað 15 % hækkun á heild- söluverði rafmagns til Rafmagns- veitunnar frá Landsvirkjun. Megin orsökin liggur þó i að mikið gengistap hefur orðið bæði á afborgunum og vaxtagreiðslum erlendra lána. Ef hækkunin dregst er talið að fjárhagsstaða RR komist á slæmt stig, en þess ber að geta að nú þegar hefur fjárhagsáætlun RR hækkað um 150 milljónir króna. Um það hef- ur verið gerð lausleg athugun. Tollverðir hafa fengið áfengi á laun fyrir af- greiœlu millilandaskipa 22 Bretar að veiðum í gær BREZKIR togarar nýttu ekki i gær þá heimild, sem þeir hafa hlotið til þess áð hafa 24 togara að veiðum á dag innan fiskveiðilög- sögu Islands. Fjöldi togaranna var í gær 22 og voru felstir úti af Vestfjörðum alldreifðir. Þar var i gær komin bræla, 6 til 7 vindstig og því óhægt um veiðar. Þá voru brezkir togarar einnig við suð- austurströndina, alldreifðir einn- ig- Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæzlunnar voru einnig 17 Vestur-Þjóðverjar á veiðum inn- an 200 mílna markanna sam- kvæmt heimild í samningi íslands og Sambandslýðveldisins Þýzka- lands. Einnig voru 3 færeyskir togarar að veiðum við ísland. Segja þetta alþjóðlega hefð — Yfirmenn tollgæzlunnar kannast ekki við slíka hefð TOLLVERÐIR, sem hafa verið kallaðir til yfirheyrslu að undan- förnu vegna rannsóknar tollmáls- ins svonefnda, hafa skýrt frá því að það hafi verið venja að þeir hafi þegir að gjöf eina og eina áfengisflösku, þegar þeir hafi lokið við að tollafgreiða milli- landaskip. Hafi þetta viðgengizt hjá tollgæzlumönnum f áratugi, enda sé um að ræða alþjóðlega hefð og hafi ekki fylgt þessum gjöfum neinar kvaðir. Þessar upplýsingar fékk Mbl. í gær hjá Haraldi Henrýssvni sakadómara, sem hefur stjórnað rannsókn toll- málsins. Sagði Haraldur að þarna gæti verið um að ræða tugi eða hundruð áfengisflaskna til ein- stakra tollvarða og væri þessi þáttur tollmálsins nú f frekari rannsókn svo og fleiri þættir. STJÓRNENDÚM TOLLGÆZLÚNNAR ÓKÚNNÚGTÚM MÁLIÐ Björn Hermannsson tollstjóri og Kristinn Ölafsson tollgæzlu- stjóri skýrðu Morgunblaðinu frá því í gær að þeir könnuðust ekki við neina alþjóða hefð af þessu tagi og kváðust ekki hafa haft vitneskju um að slíkt tiðkaðist hjá íslenzku tollgæzlunni. Voru þeir báðir sammála um að þetta sam- rýmdist alls ekki störfum toll- varða og hefðu þeir strax tekið fyrir slikar gjafir, ef þeir hefðu fengið vitneskju um þær. Tók Kristinn það sérstaklega fram, að i Tollskólanum væri það kennt að slíkar gjafir mætti ekki þiggja, því það byði heim hættu á þvi að tollverðir yrðu gefendunum háð- ir. Sagði Kristinn að þetta hefði verið sett fram til öryggis en alls ekki vegna gruns um að slíkt ætti sér stað innan íslenzku tollgæzl- unnar. Sögðu þeir Björn og Krist- inn að þeir biðu eftir að fá afrit af vitnaleiðslum, og væri ekkert frekar um málið að segja. SUMIR KÖNNÚÐUST ÚKKI VIÐ MÁLIÐ Skipverji sá, sem handtekinn var við upphaf tollmálsins, mun hafa skýrt frá því, að slíkar gjafir hafi viðgengizt, og hefði hann sjálfur gefið tollvörðum margar áfengisflöskur. Vegna þessa framburðar skipverjans voru all- margir tollverðir kallaðir fyrir og viðurkenndu sumir að þetta væri rétt, en aðrir kváðust ekkert við þetta kannast. Framhald á bls. 22 Lögfræði- skrifstofu var lokað vegna sölu- skatts- vanskila SÁ ÓVENJULEGI atburður gerðist á þriðjudaginn sfðasta, að dyr lögfræðiskrifstofu einnar í borginni voru innsiglaðar vegna vanskila á söluskatti. Lögfræðiskrifstofur eru ekki söluskattsskyldar en samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. fékk hjá tollstjóraembættinu, var gripið til þessarrar óvenjulegu aðgerðar vegna söluskattsvanskila lög- fræðingsins sem stofnuna rekur, en hann er með atvinnurekstur á eigin nafni m.a. úti á landi og hefur sjálfur söluskattsnúmer. Er starfsemin að hluta rekin frá um- ræddri lögfræðiskrifstofu. Sölu- skattsskuldin nemur að sögn toll- stjóraembættisins nokkur hundruð þúsund krónum. Var skuldin ógreidd í gær. Þess skal að lokum getið, að innsigli var aðeins sett á aðaldyr lögfræðisstofunnar, en hægt er að komast inn i hana í gegnum bak- dyr. Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins: Dregið í kvöld I KVÖLD verður dregið i landshappdrætti Sjálfstæðis- flokksins — hinu mikla ferða- happdrætti, þvi að þessu sinni eru vinningar 14, þ.e.a.s. 28 ferðir fram og til baka — til eftirsóknarverðra staða til skoðunar eða hressingar, s.s. Kanaríeyja, Lundúna, Mallorka, Kaupmannahafnar, Ibiza, New Vork. Hér er um skemmtilega vinninga að ræða og má ætla, að margir vilji eiga kost á að hreppa svo sem einn slíkan, en þess ber að gæta, að einmitt í dag eru síðustu for- vöð að tryggja sér miða. Drætti verður ekki frestað og eru þeir, sem enn eiga ógerð skil, hvattir til að gera það nú þegar. Skrifstofa happdrættisins f Sjálfstæðishúsinu að Bolholti 7 er opin til kl. 22. f kvöld. Sfminn er 82900 — og geta þeir, sem ekki eiga heiman- gengt hringt f þann sfma óski þeir eftir að láta sækja greiðslu á miðum, sem hafa borist. Munið: það verður dregið f kvöld. Hundabanninu vísað frá ÍSLENZKUM stjórnvöldum hefur borizt bréf frá ritara mann- réttindanefndarinnar, þar sem skýrt er frá því, að kæru Ásgeirs H. Eiríkssonar vegna hunda- bannsmálsins hafi verið vísað frá. Sem kunnugt er kærði Asgeir fyrir mannréttindadómstólnum á þeirri forsendu, að það væri brot á mannréttindum að svipta menn sjálfdæmi um það hvort þeir vildu halda hund eða ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.