Morgunblaðið - 11.06.1976, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 11.06.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JUNÍ 1976 3 Karfaverð hækkað um 46% til að beina sókn togskipa frá þorskveiðum Ríkisstjórnin ábyrgist greiðslugetu Verðjöfnunarsjóðs RlKISSTJÓRNlN hefur ábvrgst, að Verðjöfnunarsjóður fisk- iðnaðarins geti staðið undir greiðslum úr sjóðnum, sem kunna að leiða af hinni miklu hækkun karfaverðs, en hún var sem kunnugt er ákveðin i fvrra- dag 46%. Er þessi hækkun fyrst og fremst gerð til að beina sókn togskipa frá þorskveiðum að karfaveiðum. Að sögn Þórðar Ásgeirssonar skrifstofustjóra 1 sjávarútvegsráðuneytinu er á þessu stigi ekki hægt að spá neinu um það hvort Verðjöfn- unarsjóður þurfi á fyrirgreiðslu að halda vegna karfahækkunar- innar, þar sem margir óvissuþætt- ir eru í dæminu. Sagði Þórður að ef til þess kæmi, myndi ríkis- stjórnin ábyrgjast fyrirgreiðslu til sjóðsins, en ekki yrði um að ræða neina ríkisstyrki. Sjávarútvegsráðuneytið lét í gær frá sér fara fréttatilkynningu um þetta mál, birtist hún orðrétt hér á eftir: Fram hefur komið í fréttum, að Verðlagsráð sjávarútvegsins ákvað á fundi sínum í gær nýtt lágmarksverð á karfa 500 gr. og stærri. Samkvæmt þvi verður verðið á timabilinu 8. júni til 31. desember 1976 36 kr. fyrir hvert kg. og er hér um 46% hækkun að ræóa. Vegna þessa vill ráðuneytið upplýsa, að til þess að beina sókn togskipa frá þorskveiðum að karfaveiðum og til þess að styrkja rekstrarstöðu togaraútgerðar- innar og auka atvinnu og fram- leiðsluverðmæti í frystihúsum, þá beitti sjávarútvegsráðherra sér fyrir því, með samþykki ríkis- stjórnarinnar, að stjórn Verðjöfn- unarsjóðs fiskiðnaðarins sam- þykkti að hækka viðmiðunarverð karfaafurða frá 8. júní.s.l. að telja til n.k. áramóta. Á þessum grund- velli samþykkti Verðlagsráð sjávarútvegsins fyrrgreinda hækkun á karfaverðinu. Sjávarútvegsráðuneytið leggur mikla áherslu á, í sambandi við þessar ákvarðanir, að veiðiferðir togveiðiskipa á karfaveiðum standi eigi í lengri tíma en 13 daga til þess að tryggt verði gott hráefni í framleiðslu karfaflaka fyrir Bandaríkjamarkað, sem skila á miklum verðmætisauka. í ljósi alls þessa samþykkti rikisstjórnin að ábyrgjast getu Verðjöfnunarsjóðs til þess að rísa undir greiðslum úr sjóðnum, sem kunna að leiða af hækkun viðmið- unarverðsins á sömu forsendum og gert var um ábyrgð rikissjóðs til Verðjöfnunarsjóðsins á s.l. ári. Sjávarútvegsráðuneytið, 10. júni 1976. TONSMTOJAN endur- tekin vegna vinsælda Nafji mannsins MAÐURINN, sem fannst lát- inn í fjörunni við Keflavík s.l. miðvikudag, hét Einar Hjálm- týsson. Hann var 45 ára gamall, einhleypur og bjó í Keflavík. TÓNSMIÐJA Gunnars Walkare reyndist svo vin- sæl á Kjarvalsstöðum um síðustu helgi, að listahátíð hefur fengið hann og sam- starfsmenn hans til að vera þar aftur næsta sunnudag, að því er Hrafn Gunnlaugs- son framkvæmdastjóri listahátíðar tjáði blaðinu. Þegar fólk hafði áttað sig á hvað þarna var á ferð, komu full- orðnir til að skoða og fá að smíða sér hljóðfæri og börnin tromm- uðu á ásláttarhljóðfæri af hjart- ans list. Verður þetta aftur í aust- urenda hússins kl. 1.30 — 4 á sunnudag. En í vesturendanum Eru þeir að fá 'ann Og þá má nú segja að slagur- inn sé hafinn af krafti. í gær hófst veiði f Elliðaánum, Laxá í Kjós og Laxá í Aðaldal til við- bótar við Norðurá, Laxá á Ás- um og Miðfjarðará, sem veiði var byrjuð í. Um 15. opna svo flestar hinna ánna og þann 20. verður laxveiðitfminn kominn f algleyming. EUiðaárnar Borgarstjóri og nokkrir af starfsmönnum borgarinnar opnuðu Elliðaárnar í morgun að venju, en nú brá áin út af venju og var fastheldin á sína fiska og um hádegið hafði að- eins 1 fiskur komið á land, 8 punda' hrygna, sem Haukur Pálmason hjá Rafmagnsveitun- um fékk. Elliðaárnar eru æði vatnsmiklar og kaldar og ekki vel að marka þennan fyrsta dag. 18 laxar voru komnir í gegnum teljarann í morgun. Laxá í Kjós Jón Erlendsson veiðivörður sagði okkur að 15 laxar hefðu komið á land í morgun, 9—15 pund á 8 stengur. Laxá er eitt beljandi fljót og því erfitt að eiga við íaxinn. Nokkur fylla er í henni þar sem unnið hefur verið með jarðýtum í uppánni til að laga skemmdir, sem urðu í vetur er áin ruddi sig með ógnarkrafti. Þá er hún einnig köld, en Jón sagði að veiði- mennirnir væru ánægðir með morguninn. Laxá í Aðaldal Veiði hófst í Laxá i gærmorg- un fyrir neðan fossa og eru leyfðar þrjár stangir fram til 20. er uppáin opnar og þá veitt með 12 stöngum á veiðisvæði Laxárfélagsins. 5 laxar fengust fyrir hádegi, sá stærsti 12 pund, en veiðimenn sögðu að selur væri i ósnum og hann gerir laxinn alveg óðan. Ætluðu menn að reyna að vinna selinn í gær. Norðurá Ingibjörg Ingimundardóttir í veiðihúsinu við Norðurá sagði okkur að heldur væri að glaðna yfir veiðimönnum enda áin öll að koma til. í morgun komu 19 laxar á land og 12 eftir hádegi i gær á 10 stengur og eru þá komnir um 90 laxar á land frá opnun 1. júní. Er vatn nú minnkandi i ánni og auðveldara að eiga við veiðarnar. Miðfjarðará Ragnheiður Kolbeins i veiði- húsinu Laxahvammi við Mið- fjarðará sagði okkur að þar hefði heldur verið tregt, en áin vatnsmikil og köld. 16 laxar voru komnir á land á hádegi í gær á 6 stangir frá 5. júní. Eru þetta vænir fiskar. Laxá á Ásum Veiðin í Laxá á Ásum, sem líklega er mestá laxveiðiá heims, 1900 laxar á 2 stengur á sl. ári, hefur gengið sæmilega undanfarið og við fréttum að í gær hefðu fengizt þar 9 laxar. Hún opnaði 1. júní og fyrstu 2 dagana fengust 4 laXar. —ihj. lesa skáldin upp i vestursal um leið eða kl. 2. Fyrir löngu var uppselt á tón- leika Bennys Goodmans í Laugar- dalshöll, en menn hafa liklega hamstrað full mikið, því enn liggja um 100 ósóttar pantanir. Ekki verður beðið með þær leng- ur og verða þær seldar í dag. Hugleiðir greiða ekki tekjuskatt ÞRÁTT fyrir 512 milljón króna hagnað, er afskriftir hafa verið dregnar frá, greiða Flugleiðir h.f. engan tekjuskatt. Opinber gjöld svo sem aðstöðugjald og launa- tengd gjöld, eru færð til gjalda á rekstursreikningi félagsins, en þrátt fyrir hagnað 1975, mun fé- lagið ekki greiða tekjuskatt 1976 vegna heimildar til frádráttar á töpum fyrri ára. Ójöfnuð töp fyrri ára í árslok 1975, sem heimilt er að flytja áfram samkvæmt skatta- lögum. nema um 1.245 milljónum króna og hefur hagnaður ársins 1975 þá verið færður til lækkunar á yfirfærðum töpum. Hagnaður af reglulegri starfsemi félagsins nam 205 milljónum króna. Sölu- hagnaður og tjónabætur námu 307 milljónum króna. Stórstúka r Islands styð- ur Kristján Pétursson FRAMKVÆMDANEFND Stór- stúku Islands hefur beðið Mbl. að birta eftirfarandi, sem samþykkt var á fundi nefndarinnar ný- verið: Tillaga: Framkvæmdanefnd Stórstúku ís- lands lýsir stuðningi sínum við Kristján Pétursson deildarstjóra í baráttu hans gegn smygli á áfengi og eiturlyfjum. Álvktun: Framkvæmdanefnd Stórstúku íslands (I.O.G.T.) fagnarþeim að- gerðum menntamálaráðherra að afnema vínveitingar í Edduhótel- unum, því með þvi séstigið heilla- drjúgt spor í átt til minnkaðrar áfengisneyzlu og einnig megi þessar aðgerðir ráðherrans vera öðrum til hvatningar og fyrir- myndar til þess að stemma stigu við vinveitingar þar sem þeir eiga ráð á. 30 milljónir manna horfa á sjónvarps- þættina hennar... Anneliese Rothenberger sagði okkur að því miður gæti ekki orðið af þvf að hún sæi sig um á tslandi i þetta sinn, er fréttamaður blaðsins hitti hana snöggvast í hádeginu í gær. Hún hafði verið á æfingu í IIá- skólabíói um morguninn og átti von á að þurfa að fara í reynslu- töku fvrir hljóðnema og sjón- varpsvélar, og daginn, sem hún hefur hljómleika, kvaðst hún aldrei fara út, bara hvíla sig. En hún vonaði að þetta vrði ekki í síðasta skiptið. sem hún kæmi Til íslands. Til þess hefði hana alltaf langað frá því hún sem lítil telpa hevrði sagt frá landinu, eldfjöllunum og ts- lendingasögunum, sagði hún. En hún kvartaði ekki. Þekkir það af reynslu að maður verður að gefa sér tima til fyrir upp- tökuvélarnar. Hún kvaðst hafa eigin sjónvarpsþætti í Þýzka- landi. Hefur tvö prógröm á ári, 90 mínútur i hvert sinn, og á þá horfa um 30 milljónir manna, fyrst í öllu Þýzkalandi, og svo áfram í Þýzkumælandi löndum, Austurríki, Sviss og loks fara þættirnir um alla Evrópu. — Ég var einmitt nýlega komin heim til Sviss frá upp- töku i Vínarborg, sagði hún. Ég hefi alltaf um 10 mínútur tekn- ar úti, í Salzburg, Nizza, Tene- rife eða eins og nú í Vinarborg. Viðtal við Anne- liese Rothenberg- er sem syngur á Listahátíð í kvöld I þessum þáttum syng ég auk ljóða og óperuaría líka lög úr söngleikjum og óperettum, því svo langur þáttur verður að hafa tilbreytingu. Fólk hefur líka misjafnan smekk, og þeir sem vilja léttari tónlist, eiga líka rétt á að fá eitthvað við sitt hæfi. Illa við að syngja í sjón- varpi? Nei, alls ekki. Eg syng aldrei framan i vélar, heldur beint til áhorfenda. Eg á létt með að hafa þá i huga. Raunar hefi ég alltaf einhverja áhorf- endur í salnum. Og eitt enn. Sjónvarpsflutningur, er mjög hagkvæmur. Maður nær til svo miklu fleiri áheyrenda í einu. Það tæki 100 ár að syngja fyrir 30 — 40 milljónir manna, ef maður gerði það í litlum hljóm- leikasölum. Annars kvaðst Anneliese Rothenberger ekki syngja lengur óperett- ur eða söngleiki á sviði, ekki nema Leður- Framhald á bls. 18 Söngkonan Anneliese Rothenberger með manni sín um, Gerd W. Dieteritz, og undirleikaranum, prófess or Weissenborn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.