Morgunblaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JUNÍ 1976
15
Þann 6. júní voru 8 ár liðin frá því að Robert Kennedy var ráðinn af dögum.
Þennan dag safnaðist nánasta fjölskylda hins látna saman við gröf hans í
Arlington-grafreitnum í Washington.
Á myndinni er ekkja Kennedys ásamt börnum sínum (talið frá vinstri): Douglas,
Rory, Ethel Kennedy, Robert, Kathleen, Christopher, Maxwell og Miehael.
AP mynd
Stofna milljarðasjóð til
aðstoðar snauðum
Róm, 10. júní — AP.
t DAG HÓFST t Kóm alþjóðaráð-
stefna á vegum Sameinuðu þjóð-
anna, þar sem unnið er að stofnun
sjóðs til að efla landbúnað f van-
þróuðum rfkjum. Fyrirhugað er
að sjóðurinn nemi einum millj-
arði dollara, og að olfuútflutn-
ingsrfkin innan OPEC leggi fram
400 milljónir dollara, en iðn-
væddu rfkin 600 milljónir. Olfu-
ríkin hafa þegar heitið sfnu fram-
lagi, en iðnaðarrfkin hafa enn
sem komið er aðeins heitið 550
milljónum dollara. Búizt er við
meiri framlögum fljótlega svo
unnt verði að stofna þennan sjóð,
sem hlýtur nafnið Alþjóðasjóður
fyrir þróun landbúnaðar, eða
IFAD. Bandarfkin hafa þegar
Morris Plains, New Jersey,
10. júní — AP.
KAREN Anne Quinlan var flutt
milli sjúkrahúsa f New Jersey í
Bandarfkjunum f nótt undir
ströngu eftirliti. Var hún flutt f
sjúkrabifreið í Morris View-
heilsuhælið, og fylgdu tveir lög-
reglubflar bifreiðinni, en for-
eldrar Karenar óku á undan. Um
25 lögreglumenn voru við heilsu-
hælið til að halda fréttamönnum f
hæfilegri fjarlægð.
heitið þriðjungi heildarframlags
iðnrfkjanna, eða 200 milljónum
dollara.
Kurt Waldheim framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna setti
ráðstefnuna i Róm í dag, og fór
miklum lofsorðum um þá sam-
vinnu, sem sjóðsstofnunin væri
byggð á.
„Þegar vandamálin eru ekki
bundin innan neinna landamæra,
er lausnina aðeins unnt að finna
með sameiginlegu átaki,“ sagði
Waldheim.
„Þessi sjóður er öflug og á viss-
an hátt nýstárleg lausn á alþjóða
vandamáli, byggð á alþjóða sam-
vinnu.“ Hann bar sérstakt lof á
olíuútflutningsrikin, OPEC, fyrir
það frumkvæði þeirra að bjóða
Karen Anne Quinlan er 22 ára,
og hefur verið rænulaus í rúmt
ár. Hafa foreldrar hennar barizt
fyrir þvi að hún fengi að deyja
drottni sínum á eðlilegan hátt, og
úrskurðaði hæstiréttur New
Jersey 31. marz að heimilt væri að
hætta að reyna að halda lífi í
henni með öndunarvélum og öðr-
um tækjum.
Karen Anne hefur orðið fyrir
óbætanlegum heilaskemmdum,
og veit ekkert hvað fram fer
kringum hana.
fram aðstoð við sjóðstofnun til að
fyrirbyggja að sú spá rætist að
árið 1980 muni þriðja heiminn
svonefnda skorta 100 milljónir
tonna af kornvöru.
Waldheim benti á að í flestum
þróunarríkjunum lifði mikill
meirihluti þjóðanna á land-
búnaði, og ef ekki þar yrði um
stórlegar umbætur að ræða, yröi
efnahagur þessara þjóða jafnan í
hættu.
Hugmyndin um IFAD fæddist á
fyrstu alþjóða matvælaráðstefn-
unni árið 1974. Er ætlunin að
sjóðurinn standi undir meiri-
háttar framkvæmdum til aukn-
ingar á matvælaframleiðslu
fátæku rikjanna.
Forseti nýja sjóðsins var kjör-
inn ítalinn Giuseppe Medici, sem
var forseti alþjóða matvælaráð-
stefnunnar 1974. Auk hans var
svo ákveðið að kjósa átta varafor-
seta, og verða þeir frá Banda-
ríkjunum, Costa Rica, Ghana,
íran, Japan, Nfgeríu, Filipseyjum
og Venezúela, eða með öðrum
orðum frá olíuríkjunum, iðnríkj-
unum og fátæku ríkjunum.
Bandarikin leggja fram mestu
fjárhæðina til sjóðsins, næst
koma svo oliurikin íran og Saudi
Arabia, hvort með 100 milljónir
dollara Vestur-Þýzkaland og
Kanada verða með 50 milljónir
hvort, en Frakkland og ítalía með
25 milljónir hvort.
Karen Anne flutt
Bretland:
Hert verði á eftirliti með
ryksugutogurum Rússa
SKÝRT hefur verið frá þvl í
brezkum blöðum að togaraskip-
stjórar þar í landi, sem hafi nú
miklar áhyggjur af framtfð siuni
„eftir uppgjöf við Islendinga f
þorskastrfðinu" hafi lagt aukið
kapp á að skráðir verði allir hinir
geysistóru rússnesku togarar sem
ausa upp fiskinum á miðunum
umhverfis Bretland. Eftirlit úr
lofti er einnig haft með togurun-
um sem veiða á þessu svæði, en
það myndi faila undir brezka lög-
sögu, ef 200 mflna reglan öðlast
alþjóðlegt gildi á hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna f
Ncw York.
Sovétríkin eiga stærstan úthafs-
flota í heimi og hafa sovézk skip
óspart stundað veiðar á þeim
svæðum, sem munu falla undir
lögsögu Efnahagsbandalagsins,
svo og á svæðum sem falla undir
200 mílna lögsögu Bandaríkjanna
og Kanada. Segir I blöðum að
þetta gæti leitt til mjög harðvít-
ugra samningaviðræðna um
„hefðarrétt" þegar fiskveiðilög-
sagan verði stækkuð. Bretar
kunni til að mynda að þurfa að
gera verulegar tilslakanir gagn-
vart Rússum til að fá á móti að
stunda áfram þorskveiðar í Hvíta-
hafi norður af Sovétríkjunum og
Noregi. Rússneskir og pólskir tog-
arar sem hafa stundað veiðar út
af strönd Cornwall svo og suður
af írlandi hafa veitt fimm sinnum
meira en brezkir sjómenn og 17
sinnum meira en írskir sjómenn á
siðustu mánuðum.
Þá segir að það sé mikið vanda-
mál að leysa úr því ástandi sem
muni nú skapast vegna samn-
inganna við lsland. Efnahags-
bandalagið hafi ^ert að tillögu
sinni að sjómenn fari á eftirlaun
55 ára gamlir og að fyrirtækjum
verði greiddar bætur fyrir gömul
skip. Brezkir sjómenn sem stunda
veiðar á heimamiðum óttast að
úthafssjómenn muni nú færa sig
nær ströndunum og þetta geti þvi
bitnað á heimamiðaveiðunum all
harkalega. Þess sé og að gæta að
kvóti hafi verið settur á allmargar
fiskveiðitégundir.
Þrátt fyrir það óttist margir að
þessir kvótar séu of rúmir. Á ár-
um áður hafi Danir og íslending-
ar átt mikinn þátt í því að rýra svo
Norðursjávarsíldina að hún sé nú
í mikilli hættu og ástand hennar
aldrei verið verra en nú. Bretar
veiði langmest til manneldis af
rikjum Efnahagsbandalagsins,
enda þótt Danir veiði meira
magn. Bretar beri þá röksemd
meðal annars fram að Efnahags-
bandalagið eigi að gefa þeim for-
gang, sem leggi áherzlu á að veiða
til manneldis, fremur en þeim
sem vinna fiskinn i skepnufóður.
Kanada treystir á
samninga um veiðar
Ottawa, 10. júni. AP.
KANADA mun frekar treysta á
alþjóðlega samninga en eftirlit til
að tryggja að veiðar verði ekki
stundaðar f óleyfi f fyrirhugaðri
200 mflna fiskveiðilögsögu að
sögn Allan MacEaehen utanrfk-
isráðherra.
MacEachen var spurður um
þetta á þingi og sagði að um væri
samið að erlend fiskiskip fengju
leyfi til'veiða við Kanada þegar
útfærslan tæki gildi 1. janúar
1977.
„Við teljum eftirlit skipta
miklu máli en ekki jafnmiklu og
samþykki annarra ríkja," sagði
MacEachen.
„Mér sýnist að svipting veiði-
leyfa ætti að geta orðið mjög sterk
vörn gegn brotum á kanadiskum
reglugerðum og ég tel að með
slíku fyrirkomulagi takist bezt að
framfylgja kanadískum lögum."
Skotinn á götu úti
Basauri, Spáni, 10. júni, AP.
FORMAÐUR flokks-
deildar falangista í
Basauri, skammt frá
Bilbao á Spáni, var skotinn
til bana á götu úti í gær, og
segir lögreglan að frelsis-
samtök Baska, ETA, hafi
staðið fyrir morðinu.
Morðingjarnir komust
undan, en hafin er vfðtæk
leit að þeim f Baskahéruð-
unum.
Sá myrti hét Luis Carlos Albo
Llamosas. Hann var fimmtugur
og starfandi lögfræðingur. Er
hann annar stjórnmálamaðurinn,
sem myrtur er í Baskahéruðunum
frá því Juan Carlos konungur tók
við völdum að Franco látnum
fyrir hálfu ári.
Lögreglan segir að þrír menn
hafi skotið Llamosas út um
glugga bifreiðar. Er þeirra leitað í
norðurhéruðunum, og sérstakur
vörður er við frönsku landamær-
in.
ETA-samtökin berjast fyrir
sjálfstæði Baskahéraðanna
þriggja, Vizcaya, Guipuzcoa og
Alava.
Vantraust-
ið fellt
London, 10. júní — AP.
EINS og spáð hafði verið var
vantrauststillaga íhaldsmanna á
ríkisstjórn Verkamannaflokksins
felld í Neðri málstofu brezka
þingsins i gærkvöld. Greiddu 290
þingmenn tillögunni atkvæði, en
309 voru á móti. Alls eiga 635
þingmenn sæti i Neðri málstofunni.
Það var Margaret Thatcher, for
maður íhaldsflokksins, sem bar fram
vantrauststillöguna og fylgdi henni úr
hlaði Réðst hún harkalega á efnahags-
stefnu rikissttórnarinnar, sem hún
sagði að væri reikul og rotin, og
byggðist á skuldasöfnun
Ljóst var fyrirfram að tillagan næði
ekki fram að ganga, þvi þingmenn
Frjálslynda flokksins 13 að tölu. til-
kynntu að þeir ætluðu að sitja hjá
Tillagan hlaut atkvæði 14 þingmanna
þjóðernissinna i Skotlandi og Wales,
en talið er að nokkrir þingmenn
Sameininyarflokksins á Norður írlandi
hafi greitt atkvæði gegn henni
Tónllst
Á LISTAHÁ TÍÐ
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
Mik-
tónlistarmaður og ætlunin væri að
gera sýninguna grænlenzkari en
hún nú er. Það má skipta þessari
sýningu I tvær andstæður; græn-
lenzk þjóðlög, sem eru mjög sér-
kennileg, og danskættaða söngva
í fjórrödduðum „þýzkum kóral-
stíl" og dansa eins og trommu-
dansinn andspænis „skandina-
vískum" göngu- og pardönsum. í
heild er þessi sýning skemmtileg
vegna frjálslegrar framkomu
Grænlendinganna, en þau atriði,
sem gefa sýningunni lit, eru
trommudansarnir og grænlenzku
þjóðlögin.
söngflokkurinn
ÞAÐ tekur árþúsundir fyrir þjóðir
að skapa sér menningu en ekki
nema nokkra mannsaldra að eyða
eða spilla henni svo, að það er
eins og allri mannlegri reisn hafi
verið útbyggt. Ekki eru nema
nokkrir áratugir síðan við íslend-
ingar nærri þurrkuðum út alla inn-
lenda tónlist I ákafa okkar að ger-
ast hlutgengir til jafns við erlendar
þjóðir. Frá þeim tíma eigum við
stórt safn dansk þýzkra söngva,
sem enn » dag eru manna á meðal
nefndir ísl. alþýðusöngvar.
Gleymd þjóðlög okkar hafa á sið-
ari árum verið endurlærð fyrir til
stilli manna, sem trúa því, að í
þeim felist grókraftur sem tón-
menningu þjóðarinnar sé nauð-
synleg. Á tónleikunum Mik-
songf lokksins, sem skipaður er
ungum grænlenzkum námsmönn-
um í Danmorku voru þessi skil,
milli innlendrar og innfluttrar tón-
listar mjög greinileg. Kynnir kórs-
ins tjáði undirrituðum að I fyrstu
hefði flokkurinn að mestu haft á
efnisskrá sinni danskættaða
söngva sem væru aðallega um
hönd hafðir í stærri bæjarsamfé-
lögum á Grænlandi. Nú væri tek-
inn við stjóminni grænlenzkur
Undirritaður vill hvetja alla til
að sjá þessa sýningu, sem á erindi
til okkar íslendinga, því enn er
unnið að því kappsamlega að út-
rýma fornum minnum úr þjóðlífi
okkar svo rækilega að tónmál og
tungutak íslenzkrar æsku er að
verða alerlend poppstæling og illa
gerð eftiröpun verzlunartónlistar.
Þar fara fremst í flokki Ríkisút
varpið og Sjónvarpið, sem beinlín
is eru að skapa sér þá stöðu í
íslenzkri menningarsögu að hafa
stutt við allt sem er erlent, en
jafnframt forðazt eins og heitan
eldinn allt, sem á einhvern hátt
gæti talizt smitað af ísl. einkenn-
um. Á sama tima og allar þjóðir
leggja mikla áherzlu á verndun
menningarverðmæta, sjáum við
ekki nein vandamál heima fyrir til
að fjalla um og sækjum þau til
Norðurlanda eða Grænlands. Við
sýnum i leikformi vandamál
Grænlendinga en á þessari sýn-
ingu sjáum við að við erum ekki
hótinu betur staddir en þeir, nema
hvað þeir eiga undan danskri
menningu að sækja, en við erum
að ánetjast verzlunarmenningu
nútimans og höfum þegar skaðazt
mjög illa.