Morgunblaðið - 11.06.1976, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JUNÍ 1976
17
FLUGLEWIR EIGA
7 FYRIRTÆKI OG
HLUTDEILD í 6
FLUGLEIÐIR h.f. reka umfangs-
mikla starfsemi. svo sem alkunna
er. Félagið á nú alla hluti f þrem-
ur fyrirtækjum, sem nefnd eru
dótturfyrirtæki félagsins f árs-
skýrslu þess. Auk þess á félagið
fjögur önnur dótturfyrirtæki,
sem mynduð hafa verið um sölu-
skrifstofur félagsins erlendis,
vegna lagafyrirmæla f við-
komandi fandi. t sex fyrirtækjum
eiga Flugleiðir hlutdeild og eru
þau fyrirtækl f skýrslunni nefnd
hlutdeildarfvrirtæki.
Dótturfyrirtæki Flugleiða h.f.
eru: International Air Bahama
Ltd., sem heldur uppi flugi á milli
Luxemburgar og Nassau á
Bahamaeyjum. Er fyrirtækið
skráð í Nassau og velti á árinu
1975 2,5 milljörðum fslenzkra
króna og hafði veltan aukizt um
20,8% frá fyrra ári; Hekla
Holdings Ltd., er í eigu Loftleiða
og skráð á Bahamaeyjum. I eigu
þess eru hlutabréf IAB Ltd. og
leigði fyrirtækið DC-8 þotu IAB,
en eftir að Flugleiðir keyptu hana
1. júlí 1975 er enginn rekstur á
vegum fyrirtækisins: Hótel Esja
er að fullu eign Flugleiða. Velta
Hótel Esju var á árinu 1975 195,2
milljónir króna, en árið áður
110,9 milljónir. önnur dóttur-
fyrirtæki Flugleiða eru: Icelandic
Airlines Inc., New York,
Icelandic De Colombia Ltd.,
Bogota, Loftleiðir Icelandic
Airlines, S.A., Luxemburg og
Loftleiðir Icelandic Airlines,
S.A.R.L., Paris.
Hlutdeildarfyrirtæki Flugleiða
h.f. eru: Cargolux Airlines
International S.A., sem er að
þriðja hluta eign Loftleiða h.f.
Sænskir aðilar eiga síðan
þriðjung og ýmsir aðilar i Luxem-
burg þriðjung. Ársvelta fyrir-
tækisins 1975 nam 6,8 milljörðum
islenzkra króna og hjá því unnu
350 manns, þar af um 100
tslendingar. Flugfélag íslands á
49,5% í Ferðaskrifstofunni Urval.
Hefur starfsemi fyrirtækisins far-
ið ört vaxandi, en starfsmenn þar
eru 11. í fyrirtækinu Kynnis-
ferðir ferðaskrifstofanna s.f. eiga
Flugleiðir 45%, en fyrirtækið sér
um kynnisferðir innanlands.
Veltan 1975 nam 54 milljónum
króna og hafði aukizt frá fyrra ári
um 160%. Starfsmenn voru í árs-
lok 3. í Flugfélagi Norðurlands
eiga Flugleiðir 35% af hlutafénu,
sem er 5,7 milljónir. Veltan 9
mánuði 1975 nam 22 milljónum
króna og i árslok voru starfsmenn
7. í vor eignaðist félagið Twin
Otter-200. i Hótel Húsavík eiga
Flugleiðir 16,7% hlutafjár, sem
er 36 milljónir króna. Veruleg
veltuaukning varð á árinu hjá
þessu fyrirtæki, starfsmenn eru
33. Loftleiðir eiga 20% hlutafjár f
Hótel Aerogolf S.A. í Luxemburg.
Velta hótelsins 1975 var um 252
milljónir króna. Starfsmenn eru
85.
Fyrsti aðalfundur Flugleiða í gœr:
Hagnaður 512 milljónir eftir
295 milljón króna afskriftir
HAGNAÐUR af rekstri Flugleiða
h.f. á árinu 1975 nam 512 milljón-
um króna, er afskriftir félagsins
hafa verið dregnar frá en þær
námu 295 milljónum. Sölu-
hagnaður og tjónabætur, sem
félagið fékk á árinu, m.a. vegna
brunans á Reykjavíkurflugvelli,
námu 307 milljónum króna og þvf
er hagnaður af reglulegri starf-
semi félagsins, er afskriftir hafa
verið dregnar frá, 205 milljónir
króna. Hér hafa mjög skipazt
veður f lofti frá árinu áður, en þá
varð tap af rekstri félagsins 425
milljónir króna, en þá námu
afskriftir 278 milljónum króna.
Samþykkt var að greiða 2.95%
arð af hlutaf járeign.
Aðalfundur Flugleiða h.f. var
haldinn í gær í Kristalsal Hótel
Loftleiða. Þetta var fyrsti aðal-
fundur félagsins érá stofnun, en
samkvæmt samkomulagsgrund-
velli, sem samþykktur var af aðal-
Versnandi nýting
hótela og bílaleiga
I SAMBANDI við aðalfund Flug-
leiða h.f. kom fram, að herbergja-
nýting á tveimur hótelum félags-
ins, Hótel Loftleiðum og Hótel
Esju, varð 59,9% á hinu fyrr-
nefnda, en 63,0% á hinu sfðara.
Hafði hebergjanýting batnað frá
árinu áður, sérstaklega þó á Hótel
Esju, en sé hún borin saman við
árið þar á undan hefur hún versn-
að talsvert.
Á Hótel Esju eru samtals 351
herbergi með 698 rúmum . Þar af
eru 217 herbergi á Hótel Loftleið-
u, en 134 herbergi á Hótel Esju.
Auk þess eru salir f báðum hótel-
um, sem samanlagt rúma 2.300
manns f sæti.
Bílaleiga Loftleiða rak samtals
74 bifreiða sumarið 1975. Nýting
bflaleigunnar, þ.e. hlutfall milli
seldra daga og framboðinna var
67,1% árið 1975, 72,4% árið 1974
og 76,8% árið 1973. Samdráttar í
komu erlendra ferðamanna gætir
f starfsemi þessara þjónustu-
greina segir f ársskýrslu Flug-
leiða h.f.
fundum Flugfélags Islands h.f. og
Loftleiða h.f. hinn 28. júní 1973,
var stjórnum félagana veitt um-
boð til að ganga frá stofnun hluta-
félags er skyldi sameina undir
eina yfirstjórn allar eignir félag-
anna og rekstur þeirra. Þá var
einnig samþykkt á þessum fund-
um að stjórnir félaganna beggja
skyldu skipa sameiginlega stjórn í
nýja félaginu.Flugleiðum h.f., til
aðalfundar þess árið 1976. Á aðai-
fundinum í gær var því i raun
fjallað um rekstur Flugleiða h.f.
fyrstu þrjú starfsár þess, svo og
dótturfyrirtækja.
Fundarstjóri á aðalfundinum í
gær var Björgvin Sigurðsson og
fundarritari var Geir Zoega. Á
fundinum fluttu skýrslur stjórnar
þeir Örn O. Johnson, aðalfor-
stjóri, Kristján Guðlaugsson, for-
maður stjórnar Flugleiða h.f., Al-
freð Elíasson, forstjóri, og Sigurð-
ur Helgason, forstjóri.
Heildartekjur Flugleiða h.f. á
árinu 1975 urðu 12.109 milljónir
króna. Hagnaður af reglulegri
starfsemi fyrirtækisins árið 1975
varð 205 milljónir króna, og hefur
þá verið tekið tillit til afskrifta og
fjármagnskostnaðar. Sölu-
hagnaður og tjónabætur námu á
árinu 307 milljónum króna, og
eru af lið, sem ekki tilheyrir
reglulegri starfsemi. Nemur því
afgangur til ráðstöfunar sam-
kvæmt rekstursreikningi samtals
512 milljónum króna.
Heildareignir Flugleiða h.f. í
árslok voru 8.339 milljónir króna,
en skuldir námu 6.860 milljónum
króna. Framangreindar niður-
stöður ná til reksturs Flugleiða
h.f. annars en dótturfyrírtækj-
anna, International Air Bahama
Ltd., Hekla Holdings Ltd. og
Hötel Esju h.f., sem eru gerð upp
sérstaklega. Árið 1975 voru að
meðtöldum leiguflugsfarþegum
fluttir 682.204 farþegar með flug-
vélum félagsins. Starfsmanna-
fjöldi i árslok var 1.550, þar af 466
erlendis. Yfir háannatímann á
sumrin er starfsmannafjöldinn
öllu meiri.
Svo sem áður hefur komið fram
fór fram mat á eignum flugfélag-
anna Flugfélags Islands og Loft-
leiða. Matsnefnd komst að raun
um að hlutur Flugfélagsins væri
45,99445%, en Loftleiða
54.00555%. Hafa nú hlutabréf i
félögunum tveimur verið innköll-
uð og i stað þeirra gefin út hluta-
bréf í Flugleiðum h.f. Við
sameiningu félaganna hefur
hleðslunýting batnað. Árið 1973
Flugleiðir
ætla að auka
flugflotann
1 SKVRSLU stjórnar Flugleiða
h.f. á aðalfundi félagsins í gær,
kom fram að á næstunni væri
tfmabært að hefja undirbúning
að aukningu flugflota felagsins
og að ekki vrdi komizt hjá aukn-
ingu fyrir sumarið 1977.
Flugflotinn er nú fullnýttur og
aukningar á flutningum von, ef
hagvöxtur heldur áfram í ná-
grannalöndunum, svo sem verið
hefur. I þessu sambandi Var rætt
um, hvort og hvenær aukning á
hlutafé'félagsins væri timabær. 1
fréttatilkynningu frá Flugleiðutn
um aðalfundinn er þess ekki get-
ið, hvaða flugvélar yrðu fyrir val-
inu, ef fjölgað yrði í flugflota
félagsins.
var hún 66%, árið 1974 72% og
árið 1975 71,9%. Á sama tima
hefur heildarfragtflutningur
dregizt saman um 29,1% reiknað í
tonn/km. Póstflutningar hafa
haldið áfram að aukast, en hægar
en áður. Farþegaflutningur flug-
félaganna þriggja, Flugfélags
íslands, Loftleiða og
International Air Bahama voru
685.475 árið 1974, en þessi tala
lækkaði um 5% i 651.151 árið
1975.
Flugstarfsemi Flugleiða skipt-
ist í 5 aðalþætti. Farþegaflutning-
ar samkvæmt þeirri skiptingu ár-
ið 1975 voru sem hér'segir: Norð-
ur-Atlantshafsflug 243.362 far-
þegar, innanlandsflug 205.176
farþegar, Evrópuflug 130.677 far-
þegar, Bahamaflug 71.936 farþeg-
ar og ieiguflug 31.053 farþegar. Á
Norður-Atlantshafsflugleiðinni
var sætanýting 75,9%, á Evrópu-
flugleiðum 62,4% og í innan-
landsflugi 63,7%. Á leiðum Inter-
national Air Bahama var sætanýt-
ing 73,1 %.
Hluthafar í Flugleiðum h.f. eru
1.900.
í stjórn og varastjórn Flugleiða
voru fram að aðalfundi: í aðal-
stjórn Alfreð Elíasson, Bergur G.
Gíslason, Birgir Kjaran, Dagfinn-
ur Stefánsson, Einar Árnason, E.
Kristinn Ólsen, Jakob Frimanns-
son, Kristján Guðlaugsson, Öttarr
Möller, Sigurður Helgason, Svan-
björn Frímannsson og Örn O.
Johnson. I varastjórn voru Axel
Einarsson, Einar Helgason,
Jóhannes Einarsson, Jóhannes
Markússon, Ölafur Ó. Johnson og
Thor R. Thors.
Á aðalfundinum átti að kjósa 7
menn í aðalstjórn, en eins og af
ofanskráðu er ljóst voru 12 i
Framhald á bls. 18
Ljðsmynd ÓI.K.M.
Steindór Steindórsson frá Hlöðum og dóttursonur Grondajs, Benedikt Þ
Gröndal, ásamt konu hans. Halldóru Gröndal, með eintak af bókinni dýru.
pýrflst®
ÁjslflQ^
bók
„Náttúrufræðingurinn
Gröndal gleymist ekki”
„ÞETTA er stærsti dagur I tiu ára
sögu fyrirtækisins," sagði Öriygur
Hálfdánarson bókaútgefandi, er
hann kynnti fyrir blaðamönnum
útkomu bókarinnar Dýraríki ís-
lands eftir Benedikt Gröndal skáld
og náttúrufræðing. Gröndal hóf
verk sitt á árunum 1874—75 og
hélt þvi ótrauður áfram i 30 ár og
er bókin nú gefin út eins og hann
gekk frá henni með teikningum,
formála og registri. Myndasíður
eru alls 100 en myndafjoldinn á
öðru þúsundi, allt litmyndir af
spendýrum, fuglum, fiskum og
miklum fjölda hryggleysingja.
Steindór Steindórsson frá Hlöðum
ritar eftirmála við bókina, þar sem
hann fjallar um Gröndal sem
náttúrufræðing og framlag hans
til íslenzkra náttúruvísinda. Bókin
er gefin út í 1500 tölusettum
eintökum og verður aðeins seld
hjá forlaginu „Erni og Örlygi" en
um þriðjungur hennar mun nú
þegar vera seldur.
Utgáfa bókarmnar er afar
kostnaðarsöm enda mun hún vera
dýrasta bók, í krónutölu, sem komtð
hefur út hér á landt, en Örlygur
bætti því við, að ef miðað væri víð
kýrverð. væri Guðbrandsbiblía lik-
lega dýrari Þá tæki rikið sinn skerf,
um 10 þús krónur á eintak i sölu-
skatt, eða alls 15 millj króna í
útsölu mun bókin kosta um 60 þús
krónur
Eftirmáli Steindórs Steindórs-
sonar frá Hlöðum um Benedikt
Gröndal sem náttúrufræðmg er
fyrsta úttekt á Gröndal sem slik. en
Framhald á bls. 18