Morgunblaðið - 26.06.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JUNl 1976
Herflugvél frá stríðsárunum finnst í húsgrunni:
Ákveðið að fjarlægja
Rannsóknarlögreglumennirnir athuga skrúfuna. Vélin fannst undir bakkanum fjærst á myndinni.
NÚ HEFUR verið ákveðið
að grafa upp flak herflug-
vélarinnar, sem fannst er
unnið var við að taka
grunna fjölbýlishúsa við
Flyðrugranda. Flak flugvél-
arinnar fannst á fimmtudag
og ( gær unnu rannsóknar-
lögreglumennirnir Njörður
Haukur Bjarnason heldur á einni
bókinni, Njörður Snæhólm stend-
ur með skófluna.
Snæhólm og Haukur
Bjarnason að því að grafa
nokkuð af því upp og kanna
það. Annar hreyfill vélar-
innar fannst og voru
skrúfublöðin nokkuð heil-
leg. Ýmsir smáhlutir, svo
sem legur voru eins og ný-
smurðar og óryðgaðar, og í
leitirnar komu einnig ýmsar
bækur vélarinnar, sem nú
verða kannaðar nánar.
„Það liggur nokkuð Ijóst
fyrir að mótorinn er úr Mitch-
ell flugvél með einkennisstaf-
ina B — 25, sem fórst hér
18. desember árið 1943 og
var þá að koma frá Bandaríkj-
unum," sagði Njörður í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann
kvað ekki hafa verið ákveðið
hvað gert yrði við brakið.
Þá hafði Morgunblaðið
samband við Ragnar Ragn-
arsson en hann er einn af
framámönnum félags áhuga-
— því ekki þykir
ráðlegt að reisa
húsið ef sprengjur
eða skot leynast
þar undir
manna um módelsmíði, en
hann hefur kynnt sér ítarlega
ýmsar heimildir um flug her-
flugvéla til íslands á stríðsár-
unum og vinnur að heimilda-
söfnun um það.
„Flugvél þessi var ein af
mörg þúsund flugvélum sem
Bandaríkjamenn ferjuðu til
Bretlands á stríðsárunum,"
sagði Ragnar. Þær flugu
þessa leið með viðkomu á
íslandi og flugvellinum á
Grænlandi sem nú heitir
Nassasuaq.
Þessi fórst hér í lendingu i
desember árið 1 943 og með
henni þrír menn, en þeir voru
flugstjórinn Walker, loft-
Fjórðungsmótið á Hellu:
Skeiðhesturinn
Fannar slasaðist
— Keppir ekki á mótinu
Fyrstu fisktæknarnir ásamt skólastjóranum, Sigurði B. Haraldssyni, sem situr fyrir miðju.
Fiskvinnsluskólanum slitið
SUNNLENZKIR hestamenn
halda um helgina fjórðungsmót
sitt á Rangárbökkum við Hellu.
Rúmlega þrjú hundruð hross eru
skráð til keppni á mótinu og má
gera ráð fyrir harðri keppni f
kappreiðum mótsins en þar mæta
Fíkniefni:
Fjórði maðurinn
úrskurðaður í
gæzluvarðhald
FÍKNIEFNALÖGREGLAN hand-
tók á miðvikudagskvöld ungan
mann vegna gruns um að hann
væri viðriðinn ffkniefni, og var
hann sfðan í fyrrakvöld úrskurð-
aður I gæzluvarðhald. Þessi mað-
ur er þó ekki talinn beinlfnis við-
riðinn við hin tvö aðalmálin, sem
ffkniefnadómstóllinn hefur nú til
meðferðar, en alls sitja nú fjórir
menn f gæzluvarðhaldi vegna
þessara mála.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá starfs-
mönnum fíkniefnadómstólsins
bárust þeim upplýsingar sem
bentu til þess að maður þessi sem
síðast var handtekinn, hefði fíkni-
efni undir höndum. Var maður-
inn síðan handtekinn og yfir-
heyrður, og síðan úrskurðaður
áfram í gæzluvarðhald. Gæzlu-
varðhald þess sem lengst hefur
setið, átti að renna út i gærkvöldi
á miðnætti en þegar Morgunblað-
ið hafi samband við fíkniefnalög-
regluna fyrr um kvöldið, lá ekki
fyrir hvort gæzluvarðhaldsúr-
skurðurinn yrði framlengdur eða
ekki.
til leiks flest beztu kappreiða-
hross landsins. Gert hafði verið
ráð fyrir sérstaklega spennandi
keppni f skeiðinu og þá milli
þeirra Öðins, Þorgeirs f Gufunesi,
og Fannars, Harðar G. Alberts-
sonar, en báðir þessir hestar hafa
f sumar unnið skeiðið á nýjum
Islendamettfma 22.5 sek. Fannar
er hins vegar slasaður og mætir
ekki til keppni á mótinu.
I dag hefst dagskrá mótsins
klukkan 10 árdegis með sýningu
stóðhesta f dómhring. Aður hefur
verið getið um stóðhesta með af-
kvæmum en í flokki stóðhesta 6
vetra og eldri má nefna tvo efni-
lega stóðhesta, þá Gust frá Krögg-
ólfsstöðum og Skó frá Flatey. Það
er nýjung á móti sem þessu að
fram fer sérstök gæðingakeppni
unglinga og fór hún fram í gær,
en klukkan 13.30 í dag riða börn
og unglingar í hópreið inn á móts-
svæðið. Alls verða á mótinu sýnd-
ar 64 hryssur og má nefna að í
flokki 4 og 5 vetra hryssa keppir
m.a. Dóttla frá Skarði en hún er
dóttir þeirrar kunnu hlaupa-
hryssu Loku, Þórísar H. Alberts-
Framhald á bls. 31.
60 þús.
krónum
stolið
BROTIZT var inn i íbúð f Hafnar-
firði f fyrradag og var stolið um
60 þúsund krónum i peningum
sem þar voru. Ekki hefur tekizt
að hafa upp á þeim sem þarna
voru að verki en málið er í rann-
sókn.
I GÆR lauk fimmta starfsári
Fiskvinnsluskólans með þvf að
Sigurður B. Haraldsson skóla-
stjóri sleit skólanum. (Jtskrifaðir
voru samtals 28 nemendur, 15
fiskiðnaðarmenn og f fyrsta sinn
voru nú útskrifaðir fisktæknar
svokallaðir, 13 að tölu.
Skólinn er til húsa að Trönu-
hrauni 8 í Hafnarfirði en verkleg
kennsla fer fram f húsi Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar, sem er ut-
búið sem frystihús, en verklega
kennslan er um 40% námsins.
Húsnæði til kennslu í saltfisk- og
skreiðarverkun vantar tilfinnan-
lega.
Sigurður B. Haraldsson skóla-
stjóri sagði að nú væru útskrifað-
ir í fyrsta sinn fisktæknar en
þeim er ætlað að starfa við rann-
sóknir og framleiðslueftirlit. Þeir
útskrifast eftir fimm ára nám við
skólann, fyrsti hlutinn, þrjú ár, er
fiskiðnnámið en eftir tvö ár f við-
bót útskrifast fisktæknar.
Hæstu einkunnir fiskiðnaðar-
manna hlutu Benedikt Sveinsson.
Eskifirði 9,25 og Svavar Svavars-
son, Reykjavík, 8,91 og eru þetta
hæstu einkunnir sem gefnar
hafa verið. Fisktæknar glutu all-
ir góðan vitnisburð.
Skólanefnd hefur nýlega sam-
þykkt nýja námstilhögun til
reynslu og er hún þrískipt:
1) Fiskiðndeild, 3 ára fiskiðnnám
SENDINEFND frá Alþingi heim-
sótti Kanada dagana 6. til 15. júní
í boði Kandaþings. Átti nefndin
viðræður við kanadfska ráðherra
og þingmenn um landhelgismál
o.fl., en auk þess að heimsækja
Kanadaþing heimsóttu alþingis-
mennirnir fylkisþingin i Ný-
fundnalandi, Nova Scotia og
Manitoba og islendingabyggðir
þar.
að viðbættú námsefni undirbún-
ingsdeildar tækniskóla.
2) Fisktæknadeild, eins og hálfs
árs fisktæknanám að viðbættu
námsefni haustannar raungreina-
deildar tækniskóla.
3) Framhaldsdeild, hálft ár,
námsefni vorannar tækniskóla,
sem opnar leiðir til frekara náms
f tækniskólum og háskólum.
Þátttakendur í þessari ferð
voru alþingismennirnir Þorvald-
ur Garðar Kristjánsson, forseti
efri deildar, sem var formaður
nefndarinnar, Ingi Tryggvason,
Svava Jakobsdóttir, Jón Ármann
Héðinsson og Magnús Torfi Ólafs-
son, en einnig var með f ferðinni
Friðjón Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri Alþingis.
Alþingismenn heim-
sóttu Kanada