Morgunblaðið - 26.06.1976, Page 11
MORGUNfeLAÐIÐ, LÁUGARDAGUR 26. JUNÍ 1976
11
■
cfansleikur á eftir. Þar verðúi
spilað bingó og eru vinningar í
hverju kvöldi tvær sólarlanda-
ferðir með Ferðamiðstöðinni,
hver að verðmæti 55 þús, krónur.
Til þess að fólk geti glöggvað
sig á hvar Sumargleðin verður
hverju sinni verða hér taldir upp
staðirnir: Stapa föstud. 2. júlí,
Stykkishólmi Iaugard. 3. júlí,
Bíldudal föstudaginn 9. júli.
Hnífsdal laugardaginn 10. júli,
Suðureyri sunnudaginn 11. júlí,
Vopnafirði fimmtudaginn 15. júlí,
Norðfirði föstudaginn 16. júlí,
Egilsstöðum laugardaginn 17.
juli, Fáskrúðsfirði sunnudaginn
18.júlí, Akranesi föstudaginn 23.
júlí, Sævangi laugardaginn 24.
júlí, Tjarnarlundi í Dölum sunnu-
daginn 25. júli, Sjálfstæðishúsinu
Akureyri föstudaginn 30. júlí,
Omar og Bessi bregða á
leik með Sumargleðinni
EINS og undanfarin sumur mun
Sumargleðin bregða undir sig
betri fætinum og ferðast um land-
ið þvert og endilangt í sumar.
Þetta er fjórða sumarið sem Sum-
argleðin fer út á landsbyggðina
og nú loksins hefur tekizt að fá
Bessa Bjarnason til að slást í hóp-
inn þannig að nú verður boðið
upp á báðar stórstjörnurnar
Ómar Bagnarsson og Bessa.
Auk þeirra verður í förinni
hljómsveit Ragnars Bjarnasonar,
en hana skipa auk Ragnars, Þur-
íður Sigurðardóttir söngkona,
Grímur Sigurðsson söngvari og
gítarleikari, Jón Sigurðsson
bassaleikari, Árni Scheving sem
leikur á vibrafone og barrytone
saxafón, Stefán Jóhannsson
trommuleikari og Andrés Ingólfs-
son sem leikur á tenor saxafón.
Sumargleðin verður með liku
sniði og undanfarin sumur, hefst
kl. 9 með tveggja tíma stanzlausri
skemmtidagskrá og síðan verðui
Skjólbrekku laugardaginn 31.
júli, Skúlagarði 1. ágúst, Siglu-
firði föstudaginn 6. ágúst, Hofsósi
laugardaginn 7. ágúst, Ásbyr'gi
Miðfirði sunnudaginn 8. ágúst,
Festi Grindavík föstudaginn 13.
ágúst, Aratungu laugardaginn 14.
ágúst, Borgarnesi sunnudaginn
15. ágúst, Hvoli laugardaginn 21.
ágúst, Kirkjubæjarklaustri
sunnudaginn 22. ágúst, Vest-
mannaeyjum föstudaginn 27.
ágúst. —
Rjómabú Baugsstaða
opið um helgar í sumar
BAUGSTAÐARJÓMABtlIÐ, sem
nú er varðveitt sem minjasafn
með öllum vélum og tækjum, var
opið almenningi til skoðunar á
laugardögum og sunnudögum í
fyrrasumar, frá 21. júnf til 7.
september.
Vegna mikillar aðsóknar og
vaxandi í fyrrasumar, hefur verið
ákveðið að rjómabúið verði opið
um helgar í sumar og fólki þannig
gefinn kostur á að kynnast þess-
um forna þætti vélvæðingar í ís-
lenzkum landbúnaði.
Rjómabúið verður til sýnis alla
laugardaga og sunnudaga frá 19.
júní til ágústloka frá kl. 14—18,
og e.t.v. fram í september ef
ástæður leyfa.
Vatnsbunan fellur á
yfirfallshjólið og knýr
vélar rjómabúsins.
100. stjórnariundur Bílgreinasambandsins
FYRIR skömmu hélt Bflgreina-
sambandið 100. stjórnarfund
sinn. Sambandið var stofnað í
nóvember 1970 með samruna Fé-
lags bifreiðainnflytjenda og Sam-
bands bflaverkstæða á lslandi.
Tilgangur samhandsins er m.a.
að efla samtök og samstarf allra
hifreiðafyrirtækja í landinu og
stuðla að heilbrigðri þróun þeirra
og hefur félagið f því sambandj
látið ýmis máfefni til sfn taka.
Haldnar hafa verið ráðstefnur
og sýningar á vegum sambandsins
og einnig hefur það annazt ýmis
fræðslustörf, upplýsingamiðlun
og samskipti við almenning.
1 byrjun voru meðlimir sam-
bandsins um 40 talsins, en í dag
eru meðlimir um 140, bílainnflytj-
endur, bílastæði, hjólbarðaverk-
stæði og ýmsir fleiri.
Fyrsti formaður sambandsins
var Gunnar Ásgeirsson, en á síð-
asta hausti baðst hann undan end-
urkjöri og i hans stað var kjörinn
núverandi formaður, Geir Þor-
steinsson.
BLÓM
VIKUNNAR
UMSJÓN: ÁB.
„Stofublóm í
sumarleyfi
HVAÐ er hægt að gera við
stofublómin f sumar-
leyfinu?
Ef farið er i langt fri eða
ferðalag verða flestir að fá
kunningja sína til þess að
annast blómin, en þeir sem
dveljast í sumarbústað taka
þau gjarnan meðsér þangað
Fjarveru i nokkra daga má
undirbúa með því að taka
blómin úr glugganum, burtu
frá sólskíninu, og t.d. setja
þau i baðherbergið og vökva
vel. Sum geta staðið i bað-
kerinu og er gott að breiða
gagnsætt plast yfir. í timarit-
inu AMATEUR GARDENING
er bent á góða aðferð til þess
að láta stofublómin halda sér
vel í fjarveru heimilisfólksins.
Geta má þess strax að sum
blóm, t.d. kaktusar, indíána-
fjöður, aspidistra ofl., þola
þurrk í langan tíma svo að
engin vandkvæði eru með
þau. Og sum jafna sig fljót-
lega aftur þótt þau hafi orðið
þurr í nokkra daga, en auð-
vitað þarf þá að vökva dug-
lega þegar heim er komið. Ef
til vill drepur langvarandi of-
vökvun fleiri stofujurtir en
þurrkurinn. En svo eru aftur
á móti margar tegundir sem
þola illa langvarandi þurrk,
og af þeim má nefna til
dæmis pelargóníur, o.fl. fag-
urblómgandi jurtir, ýmsar
grænar blaðjurtir, einkum
þunnblaðaðar, og einnig
gúmmítré ofl Ficus tegundir.
Nefna má kóngavín,
begóníur, burkna og jurtir í
litlum pottum
En þá má fyrir burtför taka
plastið til hjálpar þ.e. setja
pottana með jurtunum í nið-
ur í stóra plastpoka og binda
vel fyrir opið. Setja þarf jurt-
irnar varlega I pokann sem
þarf að vera svo stór að vel
rúmt sé um þar I honum og
nóg loft á jurtinni. Má blása
ögn í pokann svo að hann
haldist útþaninn og leggist
ekki þétt að jurtinni. Þarna
fer vel um jurtina líkt og í
gróðurhúsi og moldin helzt
mjög lengi rök. Áður en jurt-
in er látin ofan I plastpokann
skal vökva hana vel en hella
þó niður afgangsvatni sem
kann að vera á undirskálinni.
Þegar heim er komið skal
taka jurtina varlega úr pokan-
um. En hvað þá með jurtir
sem ekki er hægt að hreyfa,
sem t.d. standa bundnar upp
við vegg svo sem kóngavín,
bergfléttu ofl ? Þá er til bóta
að hylja pottana með plasti
svo að moldin haldist lengi
rök. Oft má líka hylja hluta
jurtanna með gagnsæju
plasti.
I.D
SiámamadagsWað
wstwawnaeifla-
Vandað blað að vanda, fjölbreytt efni. Til sölu á Einarssyni Grindavik og í Öldunni Sandgerði
eftirtöldum stöðum á fastalandinu: Blaðsölunni Einnig er hægt að fá blaðið hjá Jóhannesi
Austurstræti 18 Reykjavík, Bæjarnesti Miklubraut Kristinssyni i Vestmannaeyjum í síma 1661 eða
Reykjavík, Biðskýlinu við Álftafell í Hafnarfirði, 1295
Hafnarbúðinrri'og Fitjanesti Keflavík, hjá Sigurpáli Sjómannadagsráð Vestmannaeyja
1