Morgunblaðið - 26.06.1976, Síða 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
LAUGARDAGUR 26. JUNÍ 1976
Sex ára drengur
lézt voveiflega
í umferðarslysi
UNGUR drengur lézt meö
voveiflegum hætti f bílslysi f
Breiðholti um fjögur leytið f gær-
dag.
Verið var að vinna að gatna-
gerðarframkvæmdum á ómerktri
götu milli Seljabrautar og Breið-
holtsbrautar (Reykjanesbrautar)
sem sérstaklega er ætluð strætis-
vögnum, þegar þar kom að sex ára
drengur á hjóli. Mun hann
skyndilega hafa misst vald á hjóli
sínu með þeim afleiðingum að
hann lenti fyrir og undir stórri
malarflutningabifreið frá Reykja-
víkurborg, sem þarna var við
vinnu. Drengurinn mun hafa
látizt nær samstundis.
Ekki var hægt að birta nafn
barnsins í gærkvöldi, þar eða ekki
hafði þá tekizt að hafa upp á
öllum aðstandendum þess.
Stórstúkuþing:
Ræða hótel- og spari-
sjóðsbyggingu í Rvík
TILLAGA um byggingu hótels og
rekstur sparisjóða í Reykjavík á
vegum Góðtemplarareglunnar
var rædd á þingi Stórstúkunnar í
gær og var þessum tillögum vísað
til frekari athugunar hjá stjórn
reglunnar.
1 tillögunum er annars vegar
gert ráð fyrir því að komið verði á
stofn bindindishóteli í Reykjavík
i tengslum við Templarahöllina
og hins vegar er gert ráð fyrir þvi
að framkvæmdanefnd Stórstúk-
umiar athugi sem allra fyrst
möguleika á stofnun sparisjóðs
bindindismanna á vegum regl-
unnar og að til liðs í þessum efn-
um verði fengnir sérfróðir menn
á sviði bankamála.
Nordli í opinbera
heimsókn til íslands
Liónið sem lifir hefur hresstst nokkuð
EINS OG kunnugt er af frétt-
um varð að lóga ljónunum
tveimur, sem verið hafa I Sæ-
dýrasafninu vegna sjúkdóms,
sem þau tóku, svo og öðrum
unga þeirra. Enn lifir þó annar
ungi og er í hjúkrun á heimili
Jóns Kr. Gunnarssonar, for-
stöðumanns Sædýrasafnsins.
Samkvæmt upplýsingum
Gunnars Jónssonar líður ljón-
inu, sem lifir nokkuð sæmilega
og hefur því talsvert farið fram
að undanförnu. Ekki er þó enn
ljóst, hvort það nær heilsu á ný,
en þetta er þó það ljónið, sem
fyrst veiktist. Grunur leikur á
að sjúkdómurinn, sem hrjáir
ljónið og varð hinum að aldur-
tila, sé kattafár, en það er þó
ekki sannað enn, en vonazt er
til að rannsóknir geti leitt það í
ljós.
Ljónið, eða litla ljónynjan, er
þó orðin heldur þreytt á karl-
mönnum, því að í gær, er Ijós-
myndari Mbl. kom til þess að
taka myndir af því, kom í Ijós
að það þýðist aðeins konur.
Mun þetta stafa af þvi að það
eru yfirleitt karlmenn, sem
komið hafa til þess i því skyni
að sprauta það með lyfjum og
öðru slíku. Af því er litla ljónið
skiljanlega ekki hrifið, en von-
andi nær það sér, svo að það
geti glatt unga sem aldna gesti
Sædýrasafnsins.
AKVEÐIÐ hefur verið að for-
sætisráðherra Norðmanna, Odvar
Nordli, komi í opinbera heimsókn
til íslands dagana 27. til 31. ágúst
næstkomandi í boði ríkisstjórnar
tslands. Með þessari heimsókn er
Nordli að endurgjalda heimsókn
Geirs Hallgrímssonar forsætisráð-
herra til Noregs á síðastliðnu
hausti.
Odvar Nordli varð forsætisráð-
herra Noregs síðla á síðasta ári,
en áður hafði hann gegnt embætti
atvinnumáiaráðherra í stjórn
norska verkamannaflokksins.
Hann hefur setið nær óslitið á
Stórþinginu fptf árinu 1961 og í
Norðurlandafáði frá 1969. NTB-
fréttastofan skýrði í gær frá þess-
ari væntanlegu heimsókn Nordlis
til islands.
Hrísey:
Sjö manna fjölskylda
missti allt sitt í bruna
„GÓÐ bjartsýni hlýtur að draga
hálfan dráttinn", sagði Örn
Snorrason, er Mbl. spurði hann
hvernig honum litist á að hefja
búskap að nýju, en hann átti hús-
ið Hámundarstaði f Hrísey, sem í
fyrrakvöld brann og þar með
heimili hans og konu hans, Guð-
rúnar Jóhannsdóttur. Eíga þau 5
börn og stendur fjölskyldan nú
uppi f þeim fötum, sem hún var i
er eldurinn kom upp.
Eldurinn kom upp í fyrradag
um klukkan 18. Samkvæmt því,
sem Örn Snorrason sagði í viðtali
við Mbl. í gær var kona hans
Gífurlegt smákarfadráp
Sovétmanna við Grænland
Eins og sviðin jörð að baki sovézku togurunum,
- segir Jakob Magnússon fiskifræðingur
SOVÉZKIR „ryksugutogarar“
eins og hinir stóru mikilvirku
togarar Sovétmanna hafa oft
verið nefndir stunda nú smá-
karfaveiðar f gífurlegum mæli
við Grænland á svæðinu frá
Jónsmiðum að Dohrnbanka.
Þar er óhemjumikið af karfa í
uppvexti, sem fengið hefur að
vera þar óáreittur undanfarið
og hefur það vakið bjartsýni
vísindamanna á að góður stofn
karfa kæmist á legg, en við
þessar veiðar breytist sú von
manna — eins og Jakob Magn-
ússon fiskifræðingur sagði f
viðtali við Mbl f gær. Er hann
nýkominn úr leiðangri Haf-
rannsóknarstofnunarinnar,
sem leigði vélskipið Runólf til
þessa verkefnis — að leita að
nýjum fiskitegundum.
Jakob Magnússon sagði að
mjög miklar uppeldisstöðvar
karfa væru á austur-
grænlenzka landgrunninu. Er
það breitt á þessum slóðum og
þegar komið er upp á flákana
virðist vera mjög mikið af
karfa. Jakob sagði: „Þetta hef-
ur fengið að vera að miklu leyti
í friði, a.m.k. megnið af þessu,
fyrir venjulegum veiðum, enda
ekki eftir neinu að slæðast á
þessum slóðum, nema þessu
smælki, sem er langt fyrir neð-
an það, sem íslendingar mega
veiða.“ Jakob sagði að hins veg-
ar væru ýmsar þjóðir, sem
nýttu mun smærri karfa en við,
en við og Þjóðverjar nýtum
ekki til manneldis karfa á borð
við þann, sem þarna er. Hafa
Þjóðverjar t.d. ekki litið við
þessum karfa, vegna þess að
markaður er ekki fyrir hann
svo smáan.
Framhald á bls. 31.
Guðrún ein heima, en hann var
við vinnu ásamt elzta syni þeirra.
Hin börnin voru öll úti við. „Kon-
an var að steikja kleinur handa
okkur og hefur brugðið sér aðeins
frá pottinum. Hefur þá feitin þá
hitnað um of og ósköpin gerzt.“
örn sagðist lítið hafa rætt við
konu sína um þetta óhjppp, þar
sem hún hafi farið fra Hrísey
þegar I gærkveldi til foreldra
sinna með börnin, en hann sagði
Framhald á bls. 31.
Verða Sovét-
menn krafnir
skýringa á
duflunum?
EKKI hefur verið tekin afstaða til
þess, hvort íslenzk stjórnvöld
krefji sovézka sendiráðið í
Reykjavík skýringa á öllum þeim
duflum, sem hér hafa rekið á fjör-
ur undanfarin 2 ár. Þesar upp-
lýsingar fékk Mbl. í gær hjá
Henrik Sv. Björnssyni, ráðu-
neytisstjóra I utanríkisráðuneyt-