Morgunblaðið - 11.07.1976, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULI 1976
„ER nokkur ástæða til að
blása það upp, þótt rann-
sóknarlögreglan ráði til
sín konu?“ spurði Dóra
Hlín Ingólfsdóttir, fyrsta
rannsóknarlögreglukon-
an á tslandi. Dóra Hlín
tók til starfa í síðustu
viku, en hefur unnið við
almenn lögreglustörf í 3
ár.
„Oft betra fyrir
kvenlögreglu að
yfirheyra karla”
Segir fyrsta konan í rannsóknarlögreglunni
„Ég er hér í afleysingum sem
stendur, en ég get vel huj>sad
mér að starfa áfram í þessari
deild. Þetta er meira spennandi
en í almennum lögreglustörf-
um, hér eru tækifæri til að
vinna að og fylgjast betur með
lausn mála. Helgi Daníelsson er
yfirmaður minn og við erum
aðallega með unglingaafbrot.
Það er mjög gott að eiga við
unglinga yfirleitt, ég hefi gam-
an af þvi."
Blaðakona Mbl. gat ekki á sér
setið og spurði, hvort yfirmenn-
irnir hefðu nokkra tilhneigingu
til að láta Dóru Hlín annast
mál, sem þeim þætti hæfa kon-
um frekar en körlum.
„Nei,“ svaraði Dóra Hlín og
brosti að því er virtist fegin-
samlega. „AIls ekki. Enda kæri
ég mig ekkert um slíkt. Og það
er held ég alls ekki rétt, sem
margir virðast halda, að betra
sé t.d. fyrir konu að yfirheyra
konu og karl karl. Ég er ekki
frá því að þá sé betra fyrir
kveniögreglu að tala við karl-
mennina og svo öfugt.“
Á meðan við ræddum við
Dóru Hlín beið hennar það
verkefni að taka skýrslu af ung-
um manni, sem kærður hafði
verið fyrir líkamsárás. Næsta
spurning yar augljós. „Nei, ég
finn ahlrei til hræðslu, og þú
getur tekið það fram, að ég hef
aldrei lent í neinu sérstaklega
vegna þess að ég er kvenmað-
ur.“
Loðnuskipin fjögur
öll með góðan afla
„ÞAÐ horfir mjög vel með þessar loðnuveiðar og
ég sé ekki annað en úr þessu ætti að vera óhætt að
hleypa fleiri skipum hingað á miðin. Þau eru mörg
hver verkefnalaus þessa stundina og það virðist
Sigurður var þá nýkominn á
miðin aftur eftir að hafa landað
í gær tæpum 1000 tonnum í
Siglufirði og reyndar var verið
að dæla úr fyrsta kastinu sem
Haraldur gizkaði á að væri um
150 tonn. Guðmundur RE og
Gullberg voru i gærmorgun að
landa fullfermi í Siglufirði hinn
fyrrnefndi í öðrum túrnum en
Gullberg í þeim fyrsta, en
Súlan EA var einnig komin á
loðnumiðin og komin með um
300 tonn að því er Haraldur
tjáði Morgunblaðinu.
„Ég get ekki annað sagt en
horfur séu góðar eins og veiðin
gengur núna,“ sagði Haraldur
ennfremur. „Það er talsvert af
loðnu hérna, en hún er dálítið
dreifð ennþá og köstin þess
vegna fremur smá, þótt eitt og
evtt gott kast fáist inn á milli.“
Haraldur kvaðst telja að úr
þessu væri óhætt að fara að
fjölga skipum á miðunum
vera nóg loðna hérna handa þeim,“ sagði Haraidur
Ágústsson, skipst jóri á Sigurði RE, þegar Mbl. náði
tali af honum á loðnumiðunum norður af vestfjörð-
um f gær.
nyrðra. Mörg skip væru einmitt
verkefnalaus um þessar mund-
ir og fengju varla neitt betra að
kljást við en þessa loðnu. Þetta
væri sérstaklega falleg loðna og
smáloðna sæist ekki í torfum
heldur væri þetta allt 3ja ára
fiskur og þar af leiðandi rétt-
dræpur.
Margeir tapar á svart
gengur betur með hvítt
MARGEIR Pétursson tapaði fyrir
Grinberg frá tsrael í fimmtu skák
sinni á unglingamótinu f Frakk-
landi, sem stendur yfir um þessar
mundir. Hefur hann þar með tap-
að tveimur skákum 'en unnið ^
þrjár, en fjórar umferðir eru eft-
ir. „Mér hefur gengið vel með
hvftt en þegar ég hef haft svart
hefur sigið á ógæfuhliðina hjá
mér,“ sagði Margeir í samtali við
Morgunblaðið í gær. "Ss&í
Fjallvegir
almennt færir
FJALLVEGIR á landinu eru nú
allir færir stórum bflum og jepp-
um, en mikill vöxtur er f ám á
Sprengisandi og Kjalvegi og eru
þessir vegir ófærir litlum bflum.
Uxahryggir og Kaldidalur eru
færir öllum bflum og leiðin f
Veiðivötn, Landmannahelli og
Landmannalaugar er fær stærri
bflum. Þjóðvegir eru allir greið-
færir og komnir f eðlilegt sumar-
ástand.
1 efsta sæti á mótinu nú er
Rodgers frá Ástralíu og hefur
hann hlotið \'A vinning, Grimberg
hefur 4 vinninga, Crawling frá
Svíþjóð er með 3'A vinning, þar
sem hann tapaði fyrir Rodgers í
síðustu umferðinni. Margeir
kvaðst heldur óhress með að hafa
hleypt Svíanumog ísraelsmannin-
um fram fyrir sig, því að á síðasta
unglingamóti sem þeir kepptu all-
ir á, hafi þeir báðir verið töluvert
neðar en hann.
Margeir sagði hins vegar, að
mótið væri enn ekki nema rétt
Framhald á bls. 43
Sundhöllin í Euium onnuð
Vestmannaeyjum, 10. júli,
frá Árna Johnsen.
HIN nýja sundlaug Vestmann-
eyinga í Brimhólalaut var vfgð
í dag að viðstöddu miklu fjöl-
menni, um 2000 manns, eða
nær helmingi bæjarbúa. Sund-
höllin er fyrri áfangi fþrótta-
miðstöðvarinnar f Brimhóla-
laut, en síðari áfanginn,
íþróttasalurinn, verður tekinn í
notkun 12. september nk. Sund-
laugin er fullkomin keppnis-
laug, 25 metra löng, og búin
öllum fullkomnustu tækjum,
rúmgóðum búningsklefum og
gufubaðstofu. Byrjað var á
byggingunni sl. ár en hún er
byggð samkvæmt danskri
teikningu.
Meðal gesta við vigsluna var
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra og flutti
hann ávarp og árnaði Eyja-
mönnum heilla í tilefni dagsins.
Þá voru einnig viðstaddir þing-
menn bæjarins og bæjarstjórn
og voru sundhöllinni færðar
ýmsar góðar gjafir bæði af fé-
lögum í Eyjum og á fasta land-
inu. Stefán Runólfsson formað-
ur framkvæmdaráðs íþrótta-
miðstöðvarinnar tók við og
þakkaði veittar gjafir. Sr.
Kjartan Örn Sigurbjörnsson
flutti blessunarorð, Einar
Haukur Eiríksson forseti bæj-
arstjórnar flutti ávarp og Frið-
rik Jesson opnaði laugina al-
menningi. Síðan syntu ferming-
arbörn frá sl. vori fyrsta sund-
sprettinn. Athöfninni lauk með
þvf að samkór Vestmannaeyja
söng Yndislega eyjan mín
ásamt öllum viðstöddum.
Eins og sjá má er bæði bjart og vistlegt f hinni nýju sundlaug Vestmanneyinga. (Ljósm. Sigurgeir).
Ungir og eldri fjölmenntu f
sundhöllina f gær.
Sundlaug hefur ekki verið í
Eyjum síðan fyrir gos, þar sem
sundlaugin sem áður var notuð
fór undir hraun, en á morgun
verður laugin opnuð almenn-
ingi og mun þá aftur tekið til
við sundkennslu, en Vestmann-
eyingar komu á sundskyldu í
Vestmannaeyjum um síðustu
aldamót, áratugum á undan
öðrum stöðum landsins. Var þá
kennt sund í sjónum við Heima-
klett. Síðan var gerð lítil sund-
laug við gúanóið, þá sundlaugin
á Skansinum, sem nú er á 40
metra dýpi í hrauni, — og svo
er nú risin glæsilegasta sund-
höll landsins í Eyjum.
Metfjöldi
farþega með
Smyrli
METFJÖLDI farþega kom
með Smyrli til Seyðisfjarðar i
dag. Með skipinu voru 340 far-
þegar og 81 bíll og hafa aldrei
áður komið svo margir með
skipinu í einni ferð. Út aftur
með Smyrli fóru 130 farþegar
og 30 bílar. Þvi má bæta við að
í ferðum Smyrils frá Seyðis-
firði að undanförnu hefur ver-
ið flutt talsvert af dilkakjöti. í
hverri ferð hafa farið
400—1000 kjötskrokkar.
Sveinn.
Fitumagn
loðnu minna
en talið
hafði verið
FITUMÆLINGAR á fyrstu loðnu-
förmunum sem bárust til Siglu-
fjarðar 6.—7. júlí síðastliðinn og
gerðar voru þar á staðnum, gáfu
til kynna að fitumagn loðnunnar
væri 12—13%. Mælingarnar hafa
nú verið endurteknar á Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins i
Reykjavik og hefur komið i ljós
að fituinnihaldið reyndist vera
10—11%. Mælingarnar á Siglu-
firði eru einnig gerðar af starfs-
manni Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins, en fitumælingatæki
Sildarverksmiðja ríkisins í Siglu-
firði, sem notuð eru við efna-
greiningarnar, reyndust ekki í
fullkomnu lagi, enda ekki verið
notuð alllengi. Auk þess hefur
komið í ijós að vatnsinnihald
farmanna hefur reynzt mismun-
andi mikið, en vatn eða sjór sem
landast með loðnunni hefur áhrif
til lækkunar á fitu- og þurrefnis-
innihaldi, auk þess sem það veld-
ur truflunum i vinnslu og fita og
þurrefni geta tapazt um leið og
landað er.
Fituinnihaldið 10—11% er tii-
tölulega hátt svo snemma sumars
miðað við þær fitumælingar á
sumarloðnu sem til eru frá fyrri
árum. ____ ______
Samúðarbók
liggur frammi
„SENDIRÁÐ Sambandslýðveldis-
ins Þýzkalands hefur tilkynnt lát
fyrrverandi forseta Sambandslýð-
veldisins, dr. jur. Gústav W.
Heinemann, hinn 7. júlí s.l.
Af þvi tilefni mun þeim, er óska
að votta samúð sína, verða gefinn
kostur á að rita nöfn sín i
samúðarbók, er mun liggja
frammi í þýzka sendiráðinu, Tún-
götu 18, Reykjavík, 12. júlí frá kl.
14 til kl. 17 og 13. júlí frá kl. 10 til
kl. 12 og frá kl. 14 til kl. 16.“
(Sendiherra Samhands-
lýðveldisins Þýzkalands)