Morgunblaðið - 11.07.1976, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULÍ 1976
21
Þetta gerðÍBt líka ....
Fjallganga í blindni
Tíu blindir Malayar náðu að klifra upp á tind eins af hæstu fjollum
Suðaustur Asíu, Mt. Kinabalu, 13.455 feta hátt, um wðustir'helgi. I>á
hafði einn W vrðbótar gefizt upp í 11.000 feta hæð. Fjallganga, sem
fylgir í kjölfar göngu sjö blindra manna á Kilimanjaro i Austur Afríku
árið 1967 var til þess ætluð að sýna fram á að blint fólk getur gert
hvað sem er ef þeir einsetja sér að gera það, og að vekja athygli á
málefnum og aðbúnaði blindra Reyndir fjallgöngumenn leiðbeindu
hinum blindu upp á tindinn. Einn hinna blindu fjallagarpa, Mohamed
Nor, tvitugur að aldri, lýsti göngunni sem „draumi".
r
Oheilög þrenning
Það var eins og kunnugt er
heldur ógæfuleg hersing sem
mannræningjarnir, sem báru bein-
in í Uganda um síðastliðna helgi,
heimtuðu lausa í skiptum fyrir
Gyðingana sem þeir höfðu á valdi
sínu. Til að byrja með kröfðust
þeir þess að á sjötta tug nafn-
greindra hryðjuverkamanna af
báðum kynjum yrði hleypt úr
fangelsunum sem þeir gista nú f
fimm löndum, en seinna slógu þeir
samt eilítið af kröfunum og styttu
þennan óhrjálega lista. Hér með
eru myndir af þremur af mönnun-
um, sem mannræningjarnir ætluð
ust til að fengju frelsi: Hilarion
Capucci, grfskkaþólskur erkibisk-
up sem nú afplánar 12 ára dóm f
ísrael fyrir vopnasmygl. Jan Carl
Raspe (sá með yfirskeggið), einn
af sakborningunum f Baader-
Meinhof réttarhöldunum í Vestur-
Þýskalandi. Og loks einn Japansk-
ur — Kozo Akomoto, sem dæmd-
ur var f lífstfðar fangelsi f ísrael
fyrir þátt sinn í blóðbaðinu á Lod-
flugveili þar f landi árið 1 972.
Bregttir tímar
Vietnamar hafa gert tilkall til Spratley eyjaklasans, sem liggur
undan strönd Suður-Víetnam og sem Kfnverjar lýstu yfirráðum sfnum
yfir eftir sólarhrings bardaga við hermenn Saigon stjórnar fyrir meira
en tveimur árum. Norður Víetnamar létu sér þá vel Ifka, en hafa nú
semsagt fengið eftirþanka eftir að landið var sameinað undir stjórn
þeirra.
Skjárinn og réttvísin
Yfirvöld f Singapore eru tekin upp á þvf að leiða handtekna
neiulaskæruliða og stuðningsmenn þeirra fyrir sjónvarpsvélar og
sjónvarpa játningum þeirra og iðrunarorðum. Einn slfkur ,,gestur f
sjónvarpssal" nú á dögunum var 36 ára gömul balletdansmær, sem
numið hafði list sfna f Ástralfu og lýsti nú yfir að hún hefði um langt
skeið verið f slagtogi við neðanjarðarhreyfingu kommúnista. Hún var
ein úr hópi 49 kvenna og karla sem handtekin voru á einu bretti. Hún
viðurkenndi syndir sfnar fyrir sjónvarpshlustendum þótt „játning" af
þessu tagi þætti óneitanlega Iftils virði hér á Vesturlöndum. Hún
kvaðst meira að segja hafa efnt til danssýninga fyrir skæruliðasveitir f
leynilegur herbúðum þeirra í frumskóginum!
Nú er þaö svart!
Stjórnvöld f Suður Afríku hafa rétt einu sinni bannað leikrit á þeirri
forsendu að blakkir leikarar voru þar f hlutverkum auk hvftra. Leikritið
hafði þó verið sýnd fyrir fullu húsi f nokkrar vikur, og ekki að sjá að
neinum yrði meint af, hvftum né svörtum.
En ráðherra sá, sem fer með mál-
efni blökkufólks þarna í landinu,
hefur allt um það hótað þvf að
beita sér fyrir sérstakri lagagerð
til þess að fyrirbyggja svona „ós-
vinnu" í framtíðinni. Ein af ástæð-
um hans: „Ef leikrit af þessu tagi
eru leyfð, getur sá dagur runnið
upp að svartir og hvítir leikarar af
báðum kynjunum byrji jafnvel að
faðmast á leiksviðinu." (Sjá: „Þeir
sjá ekki svart þar syðra" hér í
opnunni.?
Plástur við hósta!
Lyfjum af ýmsu tagi f pilluformi og svo allskyns mixtúrum mun
væntanlega fækka verulega á næstu árum. Þýskt lyfjafyrirtæki hefur f
samvinnu við annað bandarfskt fullkomnað „lyfjaplástur" svokallaðan
sem þannig er gerður að lyfjaupplausnin sem hann hefur drukkið f sig
smýgur f gegnum hörund þess sem ber hann. Menn munu þvf ekki
þurfa að taka lyfjaskammtinn sinn „þrisvar á dag" eins og nú er svo
algengt: plásturinn er að mjatla þessu inn f Ifkama sjúklingsins allan
sólarhringinn. „Skammturinn" f hverjum plástri á aðduga f viku.
Sitt lítið af hverju
Stálhraustur fjögra barna faðir, breskur, sem einungis hefur unnið I
sjö vikur og þrjá daga á undanförnum tveimur árum og ellefu sinnum á
þessu tlmabili neitað að tala við fulltrúa þeirrar rlkisstofnunnar sem
hafði hann á framfæri sínu, hefur verið dæmdur I sex mánaða tukthús
fyrir tiltektina. . . Mitsuo Fuchida.
aði loftárásinni á Pearl Harbour. er
73 ára að aldri. Hann tók kristna
trú eftir stríð og gerðist trúboði og
friðarsinni. . . Prófessor Marian
Diamond við læknadeild Kali
fornluháskóla hefur upplyst að
rannsóknir sem hún hefur staðið
fyrir á undanförnum árum bendi
til þess að getnaðarvarnapillur af
ýmsu tagi geti verið skaðlegar fyr-
ir heilann. . . Hvorki Elizabeth
Taylor né Richard Burton skildu I
slðastliðinni viku.
japanski flugmaðurinn sem stjóm-
látinn,
HASKOLALIF
Á ofanverðum síðasta áratug urðu miklar
stúdentaóeirðir víða um lönd. Kröfðust stúdentar
þess, að mega ráða meiru en áður um kennslu og
rekstur háskóla. Stúdentum i Hollandi varð einna
bezt ágengt. Er svo komið núna, að þeir eru nærri
hættir mótmælum. Aftur á móti eru kennararnir
teknir við. Segjast þeir hafa verið rændir kennslu-
frelsi sinu.
Árið 1970 voru sett lög í Hol-
landi um nýskipan háskólamála.
Áður fyrr höfðu prófessorar verið
alls ráðandi um rekstur skólanna,
kennslu og frama lægra settra
kennar. En hin fyrr nefndu lög
voru á þá leið, að nemendur
kennarar og aðrir starfsmenn
skyldu hér eftir stjórna háskólan-
um allir saman. Eftir þetta réðu
prófessorar engu einir, en fóru
aðeins með þriðjung , stjórnar-
valdsins.
Þessi skipan er mjög umdeild,
en þær deilur verða aðallega í
háskólunum og fréttist litið af
þeim. Segja sumir, að róttækir
stúdentar hafi komið fram öllum
sínum markmiðum og hafi upp
frá því engu að mótmæla. Þess
vegna sé nú sæmileg kyrrð í há-
skólunum. Enn kraumar samt i
pottunum. Nú eru kennararnir
óánægðir með sinn hlut. Þeir
segja málin hafa skipast þannig,
að prófessorar hafi verið sviptir
völdum, en þau fengin róttækum
stúdentum og kennurum, sem
fari með þau í marxískum anda.
Flestir stúdentar láti sér fátt finn-
ast um stjórnmál og séu afskipta-
iitlir. Herskáum marxistum sé því
hægðarleikur að komast í stjórnstöður. Noti þeir
svo stöður þessar byltingarmálstaðnum til fram-
dráttar. Öll kennsla sé orðin gegnsýrð stjórnspeki
og akademiskt frelsi muni brátt úr sögunni, ef svo
haldi áfram.
Ég bar þessar aðdróttanir undir Annemarie
Grewel, formann háskólaráðs i Háskólanum i
Amsterdam. „Það er vafalaust nokkuð til i þessu,“
sagði hún. „Fleiri hafa t.d. ritað af viti um hagfræði
en Marx og Engels, og ekki dugir að hafa þá félaga
eina til leiðsagnar. Einhliða uppfræðsla er ekki
vísindaleg, og ætti sú röksemd að duga, þótt stjórn-
málskoðunum sé sleppt." Aftur
á móti var Grewel þeirrar skoðun-
ar,-að nýskipan háskólamálanna
hefði verið til hagsbóta stúdent-
um. Hefðu þeir meiri rétt en áður,
væru marksæknari og tækju nú
þátt í stjórn sinna eigin mála og
skipti það mestu.
En annan hitti ég, sem var á
öndverðum meiði við Grewel. Það
er Aldo van Eyck. Van Eyck er
kunnur arkitekt og starfaði síðast
i Tækniháskólanum í Delft, en nú
er hann búinn að segja upp starfi.
Reunar fóru sex eða sjö prófessor-
ar starfsbræður hans, að því
dæmi og eru ekki nema tveir eftir
í skólanum. Van Eyck sagðist svo
frá, að hann hefði verið mjög
hlynntur stúdentum fyrst í stað.
„Ég kom hingað árið 1966,“ sagði
hann. „Þá voru hér gamaldags
stjórnarhættir. Prófessorar réðu
öllu, sem þeir vildu. Þegar breyt-
ing varð á þvi urðum við himinlif-
andi og ímynduðum okkur, að nú
liði að nýju blómaskeiði i arki-
tektúr. Því miður kom fljótlega í
ljós, að það var ails ekki ætlunin
að hefja arkitektúr til vegs.
Stjórnmál komu í staðinn. Upp
frá þvi var það höfuðmarkmið í
háskólanum að breyta þjóðfélagsskipuninni. Arki-
tektúr skipti ekki lengur máli. Nú orðið ráða ungir,
róttækir kennarar lögum og lofum í arkitektúr-
deildinni. Og þeir eru nærri hættir að kenna og
læra. Þeir fást aðeins við stjórnmál. Þeir hafa ekki
lengur tima til annars." — HENRY KAMM
Pólitíkin flæm
ir prófessor-
ana burtu
SJÓNVARP
ÞAÐ er ekki nema hálft ár frá því, að sjónvarp kom til sögunnar í
Suður-Afriku John Vorster ræður lögum og lofum þar í landi, og
það kom fljótt i Ijós, að hann ætlaði að ráða sjónvarpsefninu
einnig Fyrir skömmu var sýndur i suður-afríska sjónvarpinu
þáttur, sem nefndist ..Vörðuð leið til lýðræðis” í þætti þessum var
sögð saga Suður-Afriku frá 1961, það var þá, sem Suður-
Afríkanar sögðu sig úr lögum við brezka samveldið og stofnuðu
lýðveldi Þátturinn var qaumast á enda, þegar fjölmargir fokreiðir
sjónvarpsnotendur tóku upp símtól sín og hringdu til sjónvarpsins
ellegar settust niður og rituðu dagblöðum kvörtunarbréf Þáttur-
inn var nefnilega rakinn áróður fyrir þjóðernisstefnu Suðurafrikana
af hollenzkum ættum Lítið sem ekki
var sagt frá negrum eða Suður-
afríkönum af mdverskum ættum og
aðeins var vikið að enskumæltum, hvít-
um mönnum í þáttarlokin Eflaust hafa
margir ekki gert sér miklar vonir um
heimiídamynd þessa Að visu keyrði
um þverbak i þetta sinn, en stefnan r
sjónvarpsmálunum var þó orðin vel
Ijós áður Þar er flest á eina bókina
lært.
í SuðuVafriska sjónvarpinu er t d
fjallað þannig um stjórnmál, að ráð-
herrarnir birtast á skerminum á reglu-
legum fresti og lesa upp ritaðar yfirlýs-
ingar, eða þægir fréttamenn spyrja þá
einskisverðra spurninga Forystumenn
i stjórnarandstöðunni fá sjaldan að láta
sitt Ijós skína Oft eru fluttir sjónvarps-
þættir um það, sem miður fer i heimin-
um — annars staðar en i Suður-
Afríku Aldrei er gerð hreinskilnisleg
úttekt á innanlandsmálum, en látið
sem þau séu öll i himnalagi Þættir um
það, sem að Suður-Afriku snýr eru oft
hinir fáránlegustu og stundum allhlá-
legir Menn muna, að suðurafriskir
hermenn börðust i borgarastyrjöldinni
? Angóla Eftir, að suðurafrísku her-
sveitirnar héldu heim þaðan var gerð
sjónvarpsmynd, sem hét ..Brú nr. 14",
átti það að vera sviðsettur bardagi
Suðurafrikana við Kúbumenn ,.ein-
hvers staðar i Angóla". Þar skaut
suðurafrískur liðsforingi 1 1 Kúbu-
menn með skarrrbyssu í miðri þessari
sláturtið særðist hann á hægri hand-
leggnum Hann þreif þá byssuna bara
vinstri hendi og lauk skothríðinni
æðrulaus. Liðsforinginn var auðvitað
hvitur og sannu: Suðurafríkani Þeir
eru algengastir i sjónvarpinu Það væri
raunar ekki furða, þótt sjónvarpsnot-
endur i Suður-Afriku gleymdu þvi
smám saman, að landið er fullt af
negrum Þeldökkum mönnum bregður
varla nokkurn tima fyrir i sjónvarpinu;
það eru þá helzt Bantustanráðherrar og
þá er óhætt að sýna, því að þeir gera
alltaf skyldu sina og vegsama aðskiln-
aðarstefnu ríkisstjórnarinnar En aðrir
þeldökkir eru faldir vandlega og er það
mikill blekkmgarleikur í marz siðast
Þeir sjá
ekki svart
þar syðra
liðnum heftu 28 þúsund negrar ferðir
strætisvagna i Springs i Transvaal, af
því, að fargjöld höfðu hækkað mjög
Sjónvarpsmenn gerðu þessum atburði
þau skil, að þeir ræddu við embættis-
mann frá Strætisvögnunum og fékk
hann að skýra sitt mál Aftur á móti
gleymdist að hafa tal af mótmælendun-
um 28 þúsund. Negrarnir eru yfirleitt
aldrei spurðir álits á neinu Skoðanir
annarra en hvitra manna ..henta ekki til
flutnings i sjónvarpi"
Ríkisstjórnin heldur sannast sagna
aðdáanlega styrkum höndum um ak
tauma sjónvarpsins. Ekki alls fyrir
löngu voru fluttir i sjónvarpinu hinir
alkunnu og vinsælu þættir um heims-
styrjöldina siðari Einn þeirra fjallar um
tortimingarherferð nazista á hendur
Gyðingum En það efni hentar ekki
rikisstjórninni i Suður-Afriku Þvi var
það tilkynnt i sjónvarpinu, að þátturinn
um Gyðingamorðin yrði ekki sýndur
Þótti yfirvöldunum ekki taka því að
bera neina ástæðu fyrir sig Hins vegar
birtist um svipað leyti greinaflokkur i
blaðinu ..Die Afrikaner". ákaflega
hægrisinnuðu málgagm I þeim grein
um var því haldið fram i einlægni, að
það væri tóm lygi, að Hitler hefði látið
myrða Gyðinga i stórum stíl En svo
varð ókyrrt i landinu, þegar sjónvarps
þátturinn var felldur niður. að yfirvöld
in hugsuðu sig um tvisvar og var
þátturinn svo sýndur
Og Suðurafrísku yfirvöldin vaka ekki ‘
bara yfir stjórnmálunum Sjónvarps
menn gerðu kvikmynd um leikrit nokk
urt eftir Robm Maugham Leið nú að
þvi, að sjónvarpsleikritið skyldi sýnt
En nokkru fyrir sýningu komu skelfdir
embættismenn á vettvang og buðu, að
em setnmg i leiknum yrði numin burt
Emhver leikarinn átti sem ?é að segja
við annan ..Littu niður á milli lappanna
á þér Varð það svo nokkurt umhugs
unarefni sjónvarpsnotendum, þegar
kom að þessu i sýnmgunni og má'
mannsins féll allt i einu niður, þótt
hann héldi áfram að bæra varirnar En
siðgæðinu var borgið, guði sé lof Já
það er að mörgu að hyggja
DAVID BARRITT