Morgunblaðið - 11.07.1976, Side 44
AUGLVSINGASÍMíNN ER:
22480
IWoröunlílfltJiíí
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JtUreunblnbib
SUNNUDAGUR 10. JULl 1976
11% hækkun á
ýsu og þorski
SAMÞYKKT hefur verið
hjá verðlagsstjóra um
11% hækkun á ýsu og
þorski í fiskbúðum og
gengur hækkunin í gildi
mánudaginn 11. júlí.
Verðlagsstjóri kvað
þessa hækkun vera í
beinu framhaldi af fisk-
verðshækkuninni sem
Verðlagsráðið ákvað á
sínum tíma. Ýsa og
þorskur með haus hækka
nú úr 114 kr. kg. í 127 kr.
og flök hækka úr 253 kr.
kg. í 282 kr.
(Ljósm. Sigurgeir).
Ungt fólk í Eyjum bfður spennt eftir þvf að geta stungið sér í nýju sundlaugina
þar, en fjöldi fólks fylgdist með vígslu þessa glæsiiega mannvirkis í gær.
Sól og blíða
um allt land
EINSTÖK veðurblföa hefur
verið um allt land undanfarna
daga, léttskýjað og sólsRin. Að
sögn Markúsar Einarssonar
veðurfræðings er það helzt við
austurströndina, sem svolftið
svalara er, en annars er hiti
vfða um og yfir 20 stig.
„Við gerum ráð fyrir að
þessi austlæga átt haldist fram
yfir helgi a.m.k.,“ sagði
Markús, ,,og eina veðurbreyt-
ingin sem gæti orðið er að ör-
lítið gæti þykknað upp allra
syðst á landinu og jafnvel
gætu nokkrir dropar fallið þar
á sunnudag. Þá er einnig
hætta á nokkru þokulofti við
austurströndina.“
— Er þetta kannski angi af
Framhald á bls. 43
Siglufjörður:
Fugladauði af
grútarmengun
LlTIÐ eitt er tekið að bera á
fuglsdauða í grennd við Siglu-
fjarðarkaupstað og er ástæðan
grútarmengun frá fiskimjöls-
verksmiðjunni.
Að því er Þórður Þórðarson í
Siglufirði tjáði Morgunblaðinu er
mikil rauðáta i loðnunni, sem fer
síðan í sjóinn. Rauðátufita meng-
ar hafflötinn, og straumurinn
sem liggur frá austri til vesturs f
firðinum ber grútinn í SigluneS-
krikann eða Neskrókinn, þar sem
hann safnast saman.
Þórður sagði, að á þessum stað
væri nokkurt æðarvarp í uppsigl-
ingu og hefðu þar nokkur hundr-
uð fuglar verpt nú í vor. Kvaðst
Þórður nú ekki sjá fram á annað,
að unga þessara fugla biðu þau
örlög að deyja vegna fitu í fiðri.
Kvartað hefur verið við forráða-
menn fiskimjölsverksmiðjunnar
vegna grútsins sem mengar fjörð-
inn og beðið,um að gerðar verði
einhverjar ráðstafanir til að
hindra þessa mengun en þar hafi
verið taiað fyrir daufum eyrum.
Þorskblokkin í 80 cent
Framleiðsla SH hér heima um
2 þús. tonnum mciri en í fyrra
VERÐ á þorskblokk á
Bandarfkjamarkaði hefur
nú á skömmum tíma hækk-
að um 6,7%, eða úr 75 cent-
um upp í 80 cent hvert
pund. Á sama tfma hefur
ýsublokkin hækkað Iftið
eitt eða úr 79 centum í 80
cent, samkvæmt upplýs-
ingum Guðmundar H.
Garðarsonar hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna.
Laugardals-
laugin lokuð
ÓHÆTT er að segja að mikillar
óánægju gætti í gær meðal Reyk-
vfkinga með að Laugardalslaugin
skvldi vera lokuð allan daginn
vegna norræns unglingamóts sem
þar var haldið. Þess ber hins veg-
ar að gæta, að Sundsamband ts-
lands tók að sér þetta mót og
skipulagði fyrir ári sfðan eínmitt
á þessum dögum til að leggja sinn
skerf til norræns samstarfs á
þessu sviði. Enga gat þá órað fyrir
því, að einmitt þessir keppnisdag-
ar yrðu mestu góðviðrisdagar f
Reykjavfk á þessari öld.
Rannsókn að
ljúka í Stangar-
holtsmálinu
RANNSÓKN á dauða
drengsins í Stangarholti
var haldið áfram hjá Saka-
dómi Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu í gær og fóru
þá fram frekari yfirheyrsl-
ur. Rannsóknin er nú að
komast á lokastig og er
gert ráð fyrir að niðurstöð-
ur hennar liggi fyrir um
helgina.
Engin breyting hefur hins
vegar orðið á flakaverðinu,
en flökin hafa verið í mjög
góðu verði nú um skeið.
Að sögn Guðmundar er markað-
urinn í Bandaríkjunum nú mjög
traustur og hefur verið á stöðugri
uppleið nú um nokkurn tima. Á
sama tíma er mikil framleiðsla
hér heima fyrir og sagði Guð-
mundur, að frystihúsin innan
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna væru nú búin að framleiða
um tvö þúsund tonnum meira en
á sama tíma í fyrra og það þrátt
fyrir verkfallið. fyrr á árinu þegar
framleiðslan stöðvaðist algjörlega
um 2—3 vikna skeið. Guðmund-
ur var spurður um hvað hann áliti
með framtíðarhorfur á Banda-
ríkjamarkaði og kvaðst hann
vildu svara því með að vitna i
samtal sem Mbl. hefði átt við Þor-
stein Gíslason, forstjóra Cold-
water Seafood í Bandaríkjunum í
apríl sl„ þar sem hann benti á að
söluaukningin hjá Coldwater
hefðu verið orðin 30% fyrstu 3
mánuði þessa árs, og þróunin síð-
an hefði verið í sömu veru.
Þá kom það fram hjá Guð-
mundi, að á vegum Coldwater er
nú mjög unnið að því að finna
nýjar leiðir í sölu karfaflaka, en
sem kunnugt er hefur sölu karfa
nú verið beint í mestum mæli á
Bandaríkjamarkað vegna verð-
tregðu í Sovétríkjunum, sem til
þessa hefur verið helzti markað-
urinn fyrir karfann. Guðmundur
sagði, að þar væri um að ræða að
frysta hvert karfaflak i þar til
gerðum plastpokum, sem eðlilega
hefði í för með sér meiri vinnu
við framleiðsluna i frystihúsun-
um en um leið fengist verðmætari
vara. Guðmundur sagði ennfrem-
ur, að enn væri ekki ljóst hvort
það heppnaðist að hasla karfan-
um völl á þessum markaði i mikl-
um mæli en ef það tækist mætti
segja að slíkt gæti valdið byltingu
í karfaframleiðslunni.
Bœndur ísjöunda himni
ÚT UM allt land eru menn nú f sjöunda himni yfir veðurblfðunni og bændur sunnan- og vestanlands
vita vart I hvorn fótinn skal stfga, þvf f nógu er að snúast eftir langvarandi vætutfð. Við höfðum tal af
nokkrum bændum hér á Suður- og Vesturlandi og fer hér á eftir það sem þeir höfðu að segja um
veðurfar o.fl.
„SLATTUR GENGUR VEL“
„Veðrið hefur verið gott hér
undanfarna daga,“ sagði sr.
Ingiberg Hannesson á Hvoli i
Saurbæ í Dalasýslu. „Sláttur er
byrjaður fyrir nokkru og geng-
ur almennt vel. Heykögglaverk-
smiðja tók til starfa hér fyrir
hálfum mánuði og er nú í full-
um gangi. Þó að mikil væta hafi
verið undanfarið er þó ekki
hægt að segja annað en vorið
hafi verið gott, það var hlýtt og
gott sauðburðarveður."
— Er mikil umferð um veg-
ina?
„Já, umferð hefur aukizt gif-
urlega mikið hér í gegn, og er
það bæði fólk, sem er að fara á
Vestfirðina og eins norður i
land. Menn eru sem sé mjög
ánægðir hér um slóðir og vona
bara að sumarveðrið haldist
áfram."
„ALLT 1 FULLUM GANGI,
DAG OG NÓTT“
Hjalti Sigurbjörnsson, Kiða-
felli, Kjós:
„Veðrið hér er í einu orði
sagt dásamlegt. Hér mældust á
föstudaginn 26—27 stig og
þurrkur er prýðilegur þótt sól
væri ekki mikil. Við vorum
byrjaðir að slá fyrir nokkru, en
útlitið var ekki gott fyrr en
þessi þurrkakafli kom og miðað
við veðráttuna i fyrra erum við
ánægðir. 1 fyrra komu varla 2
samfelldir góðir dagar, en nú er
allt í fullum gangi, dag og
nótt.“
— Eru einhverjar fram-
kvæmdir hjá ykkur í gangi?
„Það eru að byrja hér vega-
framkvæmdir við hraðbrautina
og umferð ferðafólks er geysi-
mikil. Fólk er að ferðast um
landið og einnig eru margir
sem eiga sumarbústaði, bæði
hér og i Borgarfirðinum."
„ALLIR AÐ ATAST
1 HEYSKAP"
Páll Pálsson, Borg, Mikla-
holtshreppi á Snæfellsnesi
sagðist geta sagt með góðri sam-
vizku að veðrið væri dýrðlegt.
„Hér er mikill hiti, 23 stig
mældust hér á föstudag," sagði
hann. „Heyskapur er all's staðar
byrjaður og grasspretta er
ágæt, en í nýrækt ber þó örlitið
á kali. Þetta er óvenjuleg veð-
urblíða, ég held ég megi segja
að ekki hafi verið svona hlý
veður síðan um 1950. Á föstu-
dag var hér hreinlega hita-
bylgja, sól, en þó hitamistur í
lofti.“
— Hvað með framkvæmdir í
sveitinni?
„Ræktunarframkvæmdir
Framhald á bls. 43