Morgunblaðið - 14.07.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.07.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1976 ^ Þorsteinn Sigvaldason var á leið ^ til Þorlákshafnar Hildur og Sigurrós voru að koma frá Akureyri. Fólk á förnum vegi í rigningunni Kjartan og Skúli voru að dytta að netum. EFTIR að sólin hafði haft yfirhönd- ina í veðráttunni hér sunnanlands f nokkra daga tók rigningin aftur völdin og í gær var komið hið alkunna sunnlenzka sumarveður á nýjan leik. Af þvf tilefni tók blm. Morgunblaðsins fólk tali og spurði það hvernig veðrið legðist í það o.s.frv. ,, EKKI BEIN ÚR SJÓ AÐ HAFA” Niðri við höfn hittum við tvo trillu- sjómenn, sem voru að dytta að net- unum. Þeir heita Kjartan og Skúli og voru bara hressir yfir veðrinu, en hins vegar höfðu þeir ekki sömu sögu að segja af fiskiríinu ,.Það er ekki bein úr sjó að hafa", sögðu þeir, „forfeðurnir hafa liklega séð til þess." í því kom að landi trillan Sædis RE 84 og um borð voru hjónin Svanur og Byndís og 5 ára gamall sonur þeirra, Tryggvi, ásamt litlum frænda, sem heitir Valdimar. „Við vorum nú bara að vitja um nokkur net, sem við áttum. Þetta er annað sumarið sem við erum að dunda við þetta, en þetta er nú svona mest til gamans," sagði Svan- ur Tryggvi litli, 5 ára sonur hans, sagðist oft fara á sjóinn, enda ætlar hann að verða sjómaður þegar hann verður stór. Hann var spurður hvað þeir veiddu mest og sagði hann að það væri „mest koli en líka ýsa". „VERÐUR LATUR í GÓÐA VEÐRINU" Við Borgartúnið hittum við nokkra byggingamenn, sem sögðust vera að byggja fyrir Farmanna- og fiski- mannasambandið og stæði til að Sparisjóður vélstjóra yrði þarna til húsa „Veðrið er ágætt," sagði einn þeirra, Ragnar að nafni, og þá skaut eldri maður, Svanur, inn í að hann yrði nefnilega svo latur í góða veðr- inu Þeir sýndu okkur hvar búið er að koma peningaskáp sparisjóðsins fyrir, en honum er kirfilega komið fyrir innan 50 cm þykkra veggja og er ekki fyrir hvern sem er að komast að honum. „Þetta er kallað fjárhúsið á teikningunni," sögðu þeir að slð- ustu og sneru sér siðan aftur að vinnu sinni. „ VEGIRNIR HRÆÐILEGIR" Á tjaldstæðinu í Laugardal eru nú um 25 tjöld og var litið lifsmark þegar við komum þangað siðdegis i gær Fólk hélt sig mest i tjöldunum og dormaði í rigningunni Við geng- um fram á ung hjón, sem lágu inni í tjaldi og létu sér liða vel Þau sögð- ust vera frá Austurriki og hefðu komið hingað til að sjá eitthvað nýtt. „Við komum hingað á sunnudag frá New York og höfðum hugsað okkur að leigja bíl og keyra um landið, en eftir tvo daga sáum viðað það yrði of dýrt fyrir okkur. Við ætlum því að fara með rútu til Akurey^ar og leigja okkur bíl þar í nokkra daga og halda síðan áfram með rútu til Egilsstaða Þaðan ætl- um við svo að fljúga til Vestmanna- eyja", sögðu þau Þau sögðust ekki hafa hitt neina landa sína, en þó væri örugglega slangur af þeim hér þvi það væri þó nokkur áhugi á íslandi í Austurriki „Það eina sem er slæmt," sögðu þau, „er að það er engar upplýsing Hjónin Þórður og Kristfn með soninn Björn. Austurrísku hjónin létu rigninguna litið á sig fá og spenntu bara upp regnhllf (Ijósm Mbl. RAX) ar hægt að fá um landið og þær fáu, sem við gátum grafið upp reyndust allar rangar " Þarna rétt hjá sátu tveir ungir menn i bil og sögðu austurrisku hjónin okkur að þar væru þeir búnir að sitja mestallan daginn Viðákváð- um því að spyrja þá hverju þetta sætti. „Við fórum i langa gönguferð," sögðu þeir, „og síðan kom þessi úrhellisrigning svo við tókum það ráð að koma okkur i skjól hér i bilnum" Þetta reyndust vera Sviar, sem hafa verið hér i viku og ferðazt nokkuð um. Þeim likaði vistin vel, en sögðu að vegirnir væru hræðileg- ir. Við litum við hjá Kristjáni Sigfús- syni, sem er ásamt tveim öðrum umsjónarmaður með tjaldstæðinu „Ferðamannastraumurinn hér hef- ur verið aðeins undir meðallagi í sumar," sagði hann, „en þó hefur oft verið fjölmennt hér, t.d. voru milli 120 og 130 tjöld hér um helgina Þetta eru að langmestu leyti útlendingar og eru Þjóðverjar fjöl- mennastir og síðan Norðurlanda- búar " Aðspurður sagði hann að yfirleitt Framhald á bls. 18 Kristján Sigfússon, einn þriggja umsjónarmanna tjaldstæð isins í Laugardal. Hjónin Svanur og Bryndís með S soninn Tryggva og frændann J Valdimar Unnið við malbikun á Miklubraut. Viðfengum Svfana út úr bílnum fyrir myndatöku. Þeir byggja yfir peningana mundur f.v. Ragna, Svanur og V-íslenzkir bændur kynna sér landbúnað hér á landi KINS og áður hefur komið fram f fréttum er staddur hér á landi hópur Vestur- Islendinga. Næst komandi fimmtudag leggja 37 bændur og bændafólk úr þeirra hópi upp I fimm daga kynnisferð um Vestur- og Suðurland, þar sem skoðuð verða bændabýli og framleiðslufyrirtæki bænda. Fyrsta daginn verður farið um Borgarfjörð og Snæfells- nes og þátttakendur skoða Bændaskólann á Hvanneyri og þiggja morgunkaffi hjá for- manni Stéttarsambands bænda, Gunnari Guðbjartssyni á Hjarðafelli. Farið verður fyr- ir Jökul og þátttakendur gista Framhald á bls. 18 UTANHUSSMALNING Sendi í póstkröfu um larH allt 9 ára reynsla og ending hér á landi Sigurður Pálsson, byggingam., Kambsveg 32 Einkaumboð á íslandi Sfmar 34472— 38414 Perma-Dri — Ken-Dri (málning) (silicon) OLÍUMÁLNING í SÉRFLOKKI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.