Morgunblaðið - 14.07.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.07.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JULl 1976 31 Netzer til Grasshoppers VESTUR-ÞÝZKI knattspyrnu- maðurinn Giinther Netzer, sem að undanförnu hefur leikið með spánska félaginu Real Madrid hefur nú gert samning við sviss- neska félagið Grasshoppers og verður h.iá því a.m.k. I eitt ár. Þegar fréttir bárust um að Real Madrid svildi selja Netzer fóru fjölmörg félög þegar á stúfana og freistuðu þess að ná samningum við hann. Meðal þeirra voru nokk- ur bandarísk félög sem buðu mjög háar upphæðir í Netzer og leit um tíma út fyrir að hann færi vestur um ver. Þegar svo Grass- hoppers bauð honum upphæð sem svarar til 18 milljóna islenzkra króna fyrir árssamning ákvað hann að taka þvi tilboði, jafnvel þótt Bandaríkjamennirnir 'biðu betur. Grasshoppers hefur verið eitt bezta knattspyrnuliðið í Sviss undanfarin ár og hefur hlotið svissneska meistaratitilinn alls 16 sinnum og 13 sinnum sigrað í svissnesku bikarkeppninni. Hins vegar gekk liðinu fremur erfið- lega á nýloknu keppnistímabili og hafnaði i fjórða sæti í deildinni. Auk þess að ráða Netzer hefur Grasshoppers einnig skipt um þjálfara og fengið til sín Helmut Johannsen, sem er einn þekktasti vestur-þýzki knattspyrnuþjálfar- inn. Hann gerði m.a. Eintracht Braunschweig að meistaraliði ár- ið 1967 og í vetur tókst honum að koma Tennis Borussias í vestur- þýzku 1. deildina, eftir að liðið hafði verið um árabil í 2. deild. Fjögurra ára erfiði var þá til einskis — FJÖGURRA ára þjálfun hefur farið fyrir ekki neitt, var það sem Tanzaníumaðurinn Filbert Bayi sagði, þegar það lá fyrir að engir keppendur frá Tanzanfu myndu taka þátt f Ólympíuleikunum f Montreal, en sem kunnugt er þá er Bayi heimsmethafi í 1500 metra hlaupi, og var álitinn mjög sigurstranglegur á leikunum í Montreal. Bayi sagði jafnframt að hann skildi og virti mótmæli stjórnar Heimsmet AUSTUR-ÞÝZKA stúlkan Ruth Fuchs setti nýtt heims- met í spjótkasti kvenna á móti sem fram fór í Austur- Berlfn um helgina. Kastaði hún 69,12 metra og bætti eigið heimsmet um 1,90 metra. Bendir þetta afrek til þess að Fuchs muni eiga auðvelt með að verja Olympíutitil sinn frá leikun- um f Miinchen 1972 á Montrealleiknum. Önnur f spjótkastinu f Berlín varð Jaqueline Hein-Todter sem vann einnig frábært afrek, kastaði 62,50 metra. Nokkur austur-þýzk met voru sett á móti þessu. Frank Sieberk hljóp 110 metra grindahlaup á 13,33 sek., Frank Wartenberg stökk 8,18 metra í langstökki, Urlrike Klapeczynski setti met f 800 metra hlaupi kvenna og hljóp á 1:57,06 mín. og Evelyn Schlaak setti met f kringlu- kasti kvenna, kastaði 68,70 metra. Tanzaníu, þau að ekki yrði leyfð þátttaka þeirra þjóða á leikunum er hefðu haft íþróttasamskipti við Suður-Afríku. Eigi að síður væri það sárt að fá ekki tækifæri til þess að keppa við Walker. Bætti Bayi því við að ólíklegt væri að hann hefði tækifæri til þess- að keppa á Ölympíuleikum, þar sem á næstu leikum myndu mótmælin snúast gegn Bandaríkjunum, Frakklandi eða Englandi, sem öll hefðu íþróttasamskipti við Suður- Afríku. Það verður því að teljast ólík- legt að þeir Walker og Bayi reyni nokkru sinni með sér á hlaupa- brautinni, þar sem Tanzaníu- stjórn hefur bannað öllum íþróttamönnum sínum að keppa á mótum sem Ný-Sjálendingar eru með í, hvaða nafni sem þau nefn- ast. Verður það ekki fyrr en þess- ari ákvörðun verður breytt sem möguleikarnir skapast, og ólík- legt er að það verði í náinni fram- tíð. Mótmæli Tanzaníu hafa vakið mikla athygli og þá fyrst og fremst vegna þess að Bayi mun ekki keppa á leikunum. Hann er langfremsti íþróttamaður lands- ins og er nú sagður í betri æfingu en nokkru sinni fyrr. Leikjumfrestað EKKI gaf til flugs milli Færeyja og lslands í gær, og þvf varð að fresta unglingalandsleikjum þeim sem fara áttu fram í gær- kvöldi. Að sögn Ellerts B. Schram, formanns KSl, er áform- að að leikirnir fari fram á laugar- daginn. - varpaði 22 metra á móti í París SOVÉTMAÐURINN Aleksandr Barisjnikov í metkasti sinu í París, er hann kastaði 22,00 metra. Einn maður hefur þó varpað mun lengra en hann. Sá er Bandaríkjamaðurinn Brian Oldfield sem varpað hefur 22,86 metra, en það afrek fæst ekki staðfest sem heimsmet þar sem Oldfield er atvinnumaður i íþróttum. Barisjnikov er 2,02 metrar að hæð og vegur 1 25 kíló. Tækni hans í kúluvarpinu þykir mjög sérstæð, þar sem hann snýr sér i hringnum líkt og kringlukastari. Sovétmaður krækti í heimsmet í kúluvarpi SOVÉTMAOURINN Alexander Baryshnikov setti nýtt heimsmet i kúluvarpi i landskeppni Sovétmanna og Frakka sem fram fór i Paris um helgina. Varpaði hann 22,00 metra og bætti þvi eldra heimsmetið um hvorki meira né minna en 1 5 senti- metra, en það var í eigu Bandarikja- mannsins Terry Albritton. Náði Baryshnikov metkasti sínu þegar i fyrstu umferð. Sovétmenn sigruðu örugglega i um- ræddri landskeppni, hlutu 128 stig gegn 83 i karlagreinum og 8 7 gegn 47 i kvennagreinum Frábær árangur náðist i flestum greinum og mörg úrslit komu nokkuð á óvart, engin þó eins og þau að Lusis varð að sætta sig við annað sætið i spjótkastinu. Hann kastaði 82,28 metra en sigurvegari varð landi hans Myershov sem kastaði 83,52 metra Af öðrum úrslitum má nefna að Guy Drut sigraði i 1 10 metra grindahlaupi á 13,51 sek., Arame frá Frakklandi i 200 metra hlaupi á 20,80 sek , Budalov og Senyukov frá Sovétríkjun- um stukku báðir 2,22 metra í hástökki, Gorbacheva frá Sovétrikjunum sigraði í kringlukasti kvenna með 66,00 metra kasti, Kazankina frá Sovétrikjunum sigraði i 800 metra hlaupi kvenna og var ekki langt frá heimsmeti sínu, hljóp á 1 56,6 mín , Frakkinn Rousseau sigraði i langstökki, stökk 8,19 metra Anokin frá Sovétrikjunum sigraði i 800 metra hlaupi karla á 1:47,3 mín og Lissovsku frá Sovétrikjunum sigraði i 3000 metra hindrunarhlaupi á 8:23,4 mín. ry*s ru /fier/J se: rr<s: ‘Écfzœtyern (<j.s/*) 't /OO /r\ b/i,*Jp/ . t ÍOO/*1 /AWi/P/ / t/A/r/at u*</> s r/ ET#£t <s/t r//e/ttvoop 1>/). / //ÁSTOKK/ OCr C~/& éC/tr/Z/ Z/S1 / tf//Oo /n ?ioi>//c//<J r> / . /H/>*//J/l / Jt/r\sre'/tD**n /*)2& £/? ö= jn/i /n/////er /S///J/] &/*rr — TÓ'z/U X/fVvx / /r>ö/TO<J/y\ G/T€///<J/r\ 11y V/IU-!QN—A\ZAH!/)Sn srVJDIOS / 9oo /r\ //CJ/t/r///<J , ST/n /./<//> /Z//D/<I£ S/G/t* f> / í ý S /-y/DJ £t/<rt//l t/e///"€*//>/3S//JA ý sf>\ //örpu ttt-o/te/ /tp/J/t. j/o*c//*/i> s/o lj)j/€t //tu/jj/, /n €/*•</ o r )!>/ze~/ ru . ///./> j/o/p S/i/i sr/t/9x rret-cr ///pj/c se/>\ K’Erf/J/s <S/t€//J . a/V <//>/*. rec//j oe í.ó'/j6 T’y/t/zi </€/*//>///> ey/J/S. /J*>t /*/./>/* /irro/t oUjje-<j/t c€/D , /í/jo/t. r/t- (S/te/jJ/j/ K*/\ r€uC/j/ c//o/> /*£> Jt/ýj-J. Manning setti fyrsta metið BANDARÍSKA stúlkan Madelene Manning Jackson varð fyrst til þess að setja frjálsíþróttamet i Montreal að þessu sinni. Á æfingamóti sem efnt var til á einum æfingavalla Ólympíuleik anna hljóp Manning 1000 metra hlaup á 2:37,3 minútum og bætti eldra bandariska metið um 3 sekúndur. Skömmu síðar hljóp Manning svo 400 metra Wáup á 53,1 sek. Á umræddu æfingamóti náðist frábær árangur i öðrum greinum og má þar nefna að Hasley Craw- ford frá Trinidad hljóp 100 metra hlaup á 10,0 sek., án þess að leggja hart að sér og Fresham frá Bandarikjunum hljóp 400 metra hlaup á 46,0 sek. Þá sigraði Mike Boit i 1000 metra hlaupi á 2:19,3 min. Tókst honum ekki ætlunarverk sitt •— að setja heimsmet, en metið á Bandaríkjamaðurinn Rick Wohlnuter og er 2:13,9 mín. Bönnuð lyf 125 tegundir lyfja eru nú komnar á skrá þá sem kölluð er ,,svarta skráin", en sé lyf á þeirri skrá mega þeir sem keppa á Ólympiu- leikunum ekki neyta þeirra. Eftir- lit með lyfjanotkun verður mjög strangt á leikunum, og má búast við þvi að annar hver keppandi á leikunum verði skoðaður. Sér stök stofnun hefur verið sett upp i Montreal til þess að sjá um þessa hlið mála. Sagði forstöðu maður hennar nýlega, að tiltölu- lega auðvelt væri að fylgjast með keppendum eftir að þeir væru komnir til leikanna, en hins vegar næstum ógjörningur að sjá hvort þeir hefðu notað lyf til að byggja upp likama sinn vegna æfing.w fyrir leikana. Paraguay mótmælir PARAGUAY mun ekki taka þátt í Ólympíuleikunum i Montreal að þessu sinni. Ástæðan eru mót- mæli, sem ekki virðist gott að botna i. Upphaflega voru það mótmæli vegna þátttöku For mósubúa, en siðan var skipt um skoðun og ákveðið að mótmæla einhverju öðru, sem ekki er vitað fyrir vist hvað er. Fjórir keppend ur frá Paraguay áttu að keppa á leikunum og eru þeir komnir til Montreal fyrir nokkru og bíða þar átekta McTear meiddur BANDARiSKI spretthlauparinn McTear mun ekki geta tekið þátt í Ólympiuleikunum i Montreal vegna smávægilegra meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu fyrir skömmu. Sæti hans i bandariska Ólympiuliðinu tekur Johnny Jones. 18 ára fótboltastrákur frá New York, en hann varð fjórði i 100 metra hlaupinu á úrtöku- mótinu i Eugene. Fjarvera McTear veikir tvimælalaust bandariska liðið, þar sem hann er einn af heimsmethöfunum i 100 metra hlaupi og þykir þar að auki mjög keppnisharður maður. ÍSRAELSKA Ólympiulíðið i knatt- spyrnu kom við i New York á leið sinni til Montreal og lék þar æfingaleik við eitt bezta knatt- spyrnufélagið. Long Island All- Stars. Fóru leikar svo að ísraels- menn sigruðu 9—0. Var þetta annar æfingaleikurinn -sem ísraelsmenn unnu á fáum dógum; hinn fór 5—0. þeim i vil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.