Morgunblaðið - 11.08.1976, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 11.08.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 1976 5 Eru þeir að fá 'ann ■? ■ Stóra-Laxá Hátt i tvö hundruð laxar eru nú komnir á land úr Stóru-Laxá í Hreppum og hefur veiðzt mest á neðstu svæðunum þ.e. svæð- um 1 og 2. Laxinn í Stóru-Laxá er alltaf jafn fallegur. T.d. var 11 punda meðalþyngd úr ánni í fyrra og virðist útkoman ætla að verða svipuð á þessu ári. Veitt er á 10 stengur í Stóru- Laxá. 5 stengur eru á efsta svæðinu, svæði fjögur, 2 stengur eru -á svæði tvö, 2 á svæði þrjú og 1 á svæði 1. Nokkur leyfi til enn Friðrik Stefánsson sagði, að lítið væri til af veiðileyfum hjá Stangaveiðifélaginu, en þó væri eitthvað eftir í Grímsá í septem- ber og í þessari viku er til fluguveiði í ánni fram á sunnu- dag. Þá eru örfáar stengur laus- ar i Norðurá i lokin og eins í Stóru-Laxá í lok ágúst og endað- an september. Elliðaár Á mánudagskvöld voru komnir 975 laxar á land úr Elliðaánum, en 1. ágúst í fyrra höfðu veiðzt þar 1326 laxar. Meðalþyngd laxanna er mjög svipuð því, sem hún var á s.l. ári, en stærstu laxarnir eru um 14 pund. Einn 14 punda veidd- ist 22. júni s.l. og á mánudag veiddi Sverrir Kristinsson rúm- lega 14 punda lax við fossinn og var hann 90 cm langur. Leirvogsá Að sögn Friðriks Stefáns- sonar hjá Stangaveiðifélagi Reykjavikur hafa veiðzt 360 laxar i Leirvogsá, en 11. ágúst á s.l. ári höfðu fengizt 460 laxar, eða 100 löxum meira. Þótt veið- in sé mun minni á þessu sumri, þykir þetta ágætis veiði, t.d. voru aðeins 200 laxar komnir á land úr ánni 10. ágúst 1974. Tveir 14 punda laxar hafa fengizt úr Leirvogsá og er veitt á flugu og maðk. Norðurá 4. ágúst voru 1250 laxar komnir á land úr Norðurá í Borgarfirði, en á sama tíma i fyrra var veiðin'orðin 1791 lax. Veiðin í sumar er því um 70% af veiði s.I. árs miðað við sama tíma. Laxinn í Norðurá er mjög svipaður því sem hann var í fyrra, 6—8 pund og þaðan af stærri. Veitt er á 15 stengur i Norðurá. Grímsá Friðrik Stefánsson sagði að 4. ágúst hefðu verið komnir 630 laxar á land úr Grímsá í Borgar- firði á móti 1030 löxum i fyrra. Er þetta svipað og var komið á land á sama tima 1974, en 4. ágúst i fyrra voru komnir 1030 laxar á land. Veiði í Grímsá hefur verið að aukast, en af einhverjum ástæðum er alltaf betra veiði í henni eftir því sem liður á sumarið. T.d. er oft mjög góð veiði í ánni í september. Island verður með í 6-landa keppninni í skák SVONEFND 6-Ianda keppni I skák fer fram i Breman í vestur- Þýzkalandi f september n.k., en þátttakendur f keppninni eru Norðurlandaþjóðirnar fimm, fs- 2 sjúkraflug í Þórsmörk ÞYRLA frá Varnarliðinu á Kena- vfkurflugvelli sótti f gærmorgun slasaðan mann f Þórsmörk og flutti hann til Reykjavfkur. Mað- urinn hafði fallið f stiga f skála Ferðafélagsins á staðnum og meiðzt f baki, en maðurinn var bakveikur fyrir. Beiðni um aðstoð barst Slysa- varnafélaginu fyrir klukkan átta í gærmorgun um Gufunesradíó og um kl. 9.30 var þyrla Varnarliðs- ins komin i Þórsmörk. Þeir sem þar voru kynntu bál i Mörkinni til að beina flugmanninum á réttan stað. Komið var með manninn til Reykjavíkur um kl. 10.40. Sl. sunnudag var farið annað sjúkraflug inn í Þórsmörk. I þetta sinn fór þyrla Landhelgisgæzl- unnar TF-GRÓ á staðinn og sótti sex ára gamla stúlku sem fengað hafði botnlangakast. lendingar, Danir, Norðmenn, Svf- ar og Finnar og Vestur- Þjóðverjar þeir sjöttu. Vegna Reykjavíkurskákmótsins verður ekki hægt að senda okkar beztu skákmenn utan í keppnina, en hins vegar er ljóst að þangað fer allsterk sveit. Ingvar Ásmundsson og Jón Kristinsson verða á tveimur efstu borðunum og Ómar Jónsson mun að öllum likindum tefla í unglingaflokki. Birna Norðdahl og Guðlaug Þor- steinsdóttir munu heyja einvígi um það hvor þeirra verður þátt- takandi. Flugm álas t j ór ar, en ekki flug- umferðarstjórar SlÐASTLIÐINN sunnudag bir't- ast í Mbl. frétt um fund vestur- evrópskra flugmálastjóra, sem haldinn var I Reykjavlk i fyrri viku. I fréttinni varð misskilning- ur, þar sem ávallt var talað um flugumferðarstjóra i stað flug- málastjóra. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á þessum mis- skilningi. Hólahátíðin á sunnudag Hólar í Hjaltadal. HÓLAHÁTlÐIN verður haldin á Hólum f Hjaltadal næstkomandi sunnudag, 15. ágúst, og hefst klukkan 2 eftir hádegi með þvf að klukkum dómkirkjunnar verður hringt og skrúðgöngu presta til kirkju. Sfðar fer fram hátfðar- guðsþjónusta, séra Bofli Gústafs- son f Laufási predikar, en vfgslu- biskup, séra Pétur Sigurgeirsson, þjónar fyrir altari ásamt próföst- unum séra Sigurði Guðmunds- syni á Grenjaðarstað og séra Stefáni Snævar á Dalvfk og séra Pétri Ingjaldssyni á Skagaströnd. Kirkjukór Sauðárkróks annast söng undir stjórn Jóns Björnsson- ar söngstjóra. 1 guðsþjónustunni syngur Kristján Jóhannsson ein- söngvari. Að lokinni guðsþjónust- unni fer fram vígsla hins nýja garðs umhverfis dómkirkjuna. Klukkan 4,30 eftir hádegi verður hátiðarsamkoma f dómkirkjunni, sem hefst með ávarpi formanns Hólafélagsins, séra Árna Sigurðs- sonar. Haukur Guðlaugsson söng- málastjóri Þjóðkirkjunnar leikur einleik á orgel, Haraldur Sigurðs- son, bókavörður, flytur erindi um bókaútgáfu Guðbrands biskups 400 ára. Kristján Jóhannsson ein- söngvari á Akureyri syngur ein- söng með undirleik Áskels Jóns- sonar. Að lokum verður almennur söngur ásamt kirkjukór Sauðár- króks. Klukkan 6 eftir hádegi hefst aðalfundur Hólafélagsins í skóla- húsinu. A dagskrá verða m.a. venjuleg aðalfundarstörf og laga- breytingar. I kirkjunni verður sýning á bókum frá bókaútgáfu Guðbrands biskups. Kaffiveiting- ar verða í hléi á staðnum. Prestar eru af Hólafélaginu beðnir að mæta í hempum til guðsþjónust- unnar. (Fréttatilkynning frá Hólafélaginu). Manuela Wiesler og Snorri Sigfús Birgisson. Ungt íslenzkt tónlistar- fólk vekur athygli í Höfn MANUELU Wiesler og Snorra Sígfúsi Birgissyni var boðið að halda tónleaka f konsertsalnum f Tfvolf f sumar, og fóru þeir fram 23. júlf s.l. að viðstöddu fjöl- menni. Meðal tónleikagesta voru sendiherrahjón lslands f Kaup- mannahöfn. Unga fólkinu var frá- bærlega tekið og blaðadómar mjög lofsamlegir. Gagnrýnandi „Berlingske Tidende" skrifar m.a. undir fyrir- sögninni „Frábært flautudúó": „Islenzka flautudúóið, Manuela Wiesler og Snorri Sigfús Birgis- son, vann fyrstu verðlaun á norr- ænni kammermúsfkkeppni í Helsingfors í vetur og það skilur maður vel eftir að hafa heyrt það á tónleikum í konsertsalnum i Tívolf á föstudagskvöldið (23.7.) Hér var á ferðinni kammertón- list á hæsta alþjóðlegum mæli- kvarða (höjeste internationale niveau), sem þetta unga listafólk flutti. Nákvæm í öllum smáatrið- um, lifandi samspil, sem borið var uppi af stórbrotnu tónlistarnæmi bæði hjá flautuleikaranum Manuela Wiesler og Snorri Sigfús fá frábæra dóma Manuelu Wiesler og hinum frá- bæra (eminente) meðleikara hennar, Snorra Sigfúsi Birgis- syni. í hinum klassísku verkum kom hæfni þeirra sterkast í ljós í sónötu fyrir flautu og píanó eftir Poulanc þar sem hægi kaflinn var leikinn af hrífandi ljóðrænni við- kvæmni (bedárende lyrisk föl- somhed) og lokaþátturinn varð trylltur. ertandi og glæsilegur (elegant). Samt sem áður var það i nútimaverkunum íslenzku, að Manuela Wiesler og Snorri Birgisson vöktu einna mesta athygli. Verk Leifs Þórarinssonar „Per Voi“ var áhrifamikið. Bogi spenntur frá einföldu frumi til kraftmikilla og ágengra loka, sem Framhald á bls. 16 Seldu nu Afgreiddu eftir örfáa daga Notfæróu pér vikulegt vöruflug okkar frá meginlandi Evrópu Og athugaóu: • Vöruflutningar eru okkar sérgrein. • Farþegar eru engir um boró. • Varan þín fær ALLA okkar athygli. ISCARGO HF Reykjavíkurflugvelli Símar: 10541 og 10542 Telex: 2105 Iscarg-is ISCARGO

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.