Morgunblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 1976 7 Útflutnings- bætur á land- búnaðarafurðir í Tímanum í gær er vitnað til ummæla Asgeirs Bjarnasonar, forseta sam- einaðs þings, og Halldórs E. Sigurðssonar, landbún- aðarráðherra, um útflutn ingsbætur á landbúnaðar- afurðir, sem þurfi endur mats og athugunar við. Þar eru eftirfarandi um- mæli höfð eftir ráðherran- um, sögð á aðalfundi Stéttarsambands bænda: „Eins og kunnugt er, hefur sú regla verið notuð s.l. 15 ár, að greiða út- flutningsbætur á þær landbúnaðarafurðir, sem út hafa verið fluttar og ekki hafa náð þvi verði, sem skráð var hér innan- lands. Samkvæmt lögun- um þar um er heimild til þess að greiða þannig sem nemur 10% af land- búnaðarf ramleiðslunni. Á þeim 15 árum, sem þessi regla hefur verið notuð, eru 8 ár, sem þessi réttur hefur verið notaður að fullu, og var það samfleytt á árunum 1965—1971, en sjö árin hefur þessi marki ekki veri<5 náð. Það var sérstaklega fyrstu árin eftir að útflutningsbætur voru upp teknar, að þær voru hverfandi litlar. Á árunum 1971—'72 náðu þær ekki því að vera 10%, en gerðu það aftur á árinu 1 974”. Endurmat á þessum þætti Enn er haft eftir ráð- herranum, orðrétt: „Á hinu vil ég vekja athygli, að hér er nú orðið um verulegar fjárhæðir að ræða. Það gerir það að verkum, að þjóðin verður að vega það og meta, hvort hún getur I raun og veru fylgt þeirri stefnu, að láta erlendum neytendum í té neyzluvörur á svo lágu verði, sem raun ber vitni. í landbúnaði sem á öðrum sviðum, verður að meta það, hvernig þvi fjármagni er bezt varið, er til ráð- stöfunar er á hverjum tíma. Auðvitað hafa þess- ar greiðslur áhrif á aðrar fjárveitingar ríkissjóðs til landbúnaðarins. Ég efast ekki um að þetta veldur bændum í landinu miklum ^hyggjum, og öllum þeim, sem að landbúnaðarmál- um vinna og vilja land- búnaðinum vel, og þjóð- inni í heild. Það er þvi mitt mat, að hjá því verði ekki komizt, að endurmeta þennan þátt og leita eftir nýjum leiðum að einhverju leyti til þess að tryggja afkomu bændastéttarinnar, með öðrum hætti heldur en þarna er gert. Ég tel lika, að þessi regla um útflutn- ingsbætur feli i sér þá veilu, ekki sizt þegar til lengdar lætur, að hún hvetji ekki til þess að leita hinna hagkvæmustu markaða, þegar það skjól er fyrir hendi, að útflutn- ingsbótakrafan til ríkis- sjóðs er ekki að fullu not- uð. Ég var við þeirri hugs- un, að lita á þennan rétt sem eign sem þurfi að hagnýta sér að fullu. Slikt gæti leitt til þess, að hann glataðist.” Þjóðviljinn gleyminn á gengna tíð í leiðara Tímans i gær er enn vikið að vinstri stjóminni sálugu og efna hagsaðgerðum hennar af þvi tilefni, að Þjóðviljinn sé gleyminn á gengna tið. Þar segir m.a.: „Þjóðviljinn hefur reynt að reka þann áróður, að mikill munur sé á stefnu og vinnubrögðum núver- andi ríkisstjórnar og vinstristjórnarinnar. Fátt eða ekkert hefur Þjóðvilj- inn getað fært þessum áróðri sínum til sönnunar. Sé það nokkuð, sem Þjóð- viljinn hefur fært fram fullyrðingum sinum til stuðnings, felst munurinn helzt i þvi, að vinstri stjórnin bjó yfirleitt við batnandi viðskiptaárferði, en núverandi rikisstjórn hefur lengstum búið við versnandi viðskiptakjör. Þetta hefur óhjákvæmi- lega haft áhrif á lifskjörin, sem ekki er með neinum rétti hægt að saka núver- andi stjórn um. Halldór E Sigurðsson, landbúnaðarráðherra Sé gerður nánari sam- anburður i þessum efnum, kemur m.a. eftirfarandi i Ijós: í efnahagsmálum hafa báðar rikisstjórnirnar beitt svipuðum aðferðum, þeg- ar rekstur útflutnings- framleiðslunnar hefur staðið höllum fæti og því þurft að gera sérstakar ráðstafanir til að koma i veg fyrir atvinnuleysi. í þeim tilgangi felldi vinstri stjómin gengið haustið 1972 og beitti sér fyrir takmarkaðri kaupbind- ingu vorið 1974. Núver- andi rikisstjórn hefur tvi- vegis fellt gengið i sama skyni, sumarið 1974 og veturinn 1975. í fyrra skiptið viðurkenndu for- ystumenn Alþýðubanda- lagsins, að gengisfelling væri nauðsynleg, en þeg ar atkvæði voru greidd í Seðlabankanum um siðari gengisfellinguna greiddi annar fulltrúi Alþýðu- bandalagsins atkvæði með henni, en hinn sat hjá." Skák eftir JÓN Þ. ÞÓR Þrjár skákir úr 6. umferð ROBERT Byrne bætti enn stöðu slna I 6. umferð milli- svæðamótsins I Biel, er hann sigraði Israelsmanninn Liber- zon í snoturri skák. Liberzon náði aldrei að jafna taflið full- komlega og þegar hann hugðist létta á stöðu sinni með upp- skiptum náði Byrne afgerandi sókn: Hvítt: R. Byrne Svart: V. Liberzon Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6, 6. Bg5 — e6, 7. Dd2 — a6, 8. 0—0—0------Bd7, 9. f4 — Be7, 10. Be2 — Dc7, 11. Bf3 — 0-0-0, 12. Rb3 — Be8, 13. Del — Rd7, 14. Bxe7 — Rxe7, 15. Df2 — Rb6, 16. Hd3 — Bc6, 17. Rd4 — e5, 18. Rde2 — exf4, 19. Rd5 — Bxd5, 20. exd5 — Ra4, 21. Dd4 — Dd7, 22. Rxf4 — Rf5, 23. Da7 — Rh4?, 24. Re6! — fxe6, 25. dxe6 — Dc7, 26. Da8+ — Db$, 27. Bxb7+ — Kc7, 28. Dxa6 — Dxb7, 29. Dxa4 og svartur gafst upp. Oft er talað um, hve mikil sé útbreiðsla skákarinnar á síð- ustu árum og hve styrkur ungra meistara hafi aukizt. Þetta er rétt, en engu að síður virðast gömlu meistararnir enn hafa í fullu té við þá yngri. Þetta kem- ur glöggt fram í Biel, þar sem Vassily Smyslov, fyrrverandi heimsmeistari, stefnir nú hröð- um skrefum i átt til áskorenda- keppninnar. Spurningin er fyrst og fremst sú, hvort Smysl- ov hafi úthald á við hina yngri þegar líða tekur á mótið. Hér sjáum við viðureign Smyslovs við einn þeirra, sem gætu næst- um verið barnabörn hans. Þetta er dæmigerð Smyslovskák, hann eykur yfirburði sína með hverjum leik og þegar andstæð- ingurinn fellur á tíma er staða hans gjörtöpuð. Hvftt: V. Smyslov Svart: U. Andersson Drottningarindversk vörn. 1. c4 — c5, 2. Rf3 — Rf6, 3. g3 — b6, 4. Bg2 — Bb7, 5. 0-0 — e6, 6. Rc3 — Be7, 7. d4 — cxd4, 8. Dxd4 — d6, 9. b3 — 0-0, 10. Bb2 — a6, 11. Hfdl — Rc6, 12. Df4 — Db8, 13. Rg5 — Ha7, 14. Rce4 — Re5, 15. Rxf6+ — Bxf6, 16. Bxb7 — Hxb7, 17. Re4 — Be7, 18. Hd2 — Rg6, 19. De3 — Hd8, 20. Hadl — b5, 21. Dc3 — f6, 22. De3 — Rf8, 23. Ba3 — b4, 24. Bb2 — Dc7, 25. Hd3 — Dc6, 26. Df3 — Hc7, 27. Rd2 — Dxf3, 28. Rxf3, — Kf7, 29. a3 — bxa3, 30. Bxa3 — Hc6, 31. Rd4 — Hb6, 32. Rc2 — Hc6, 33. c5 — e5, 34. cxd6 — Bxd6, 35. Re3 — Bxa3, 36. Hxd8 — Re6, 37. H8d7+ — Kg6, 38. Rc4 — Bb4, 39. e3 — Rc5 og hér fór svartur yfir tfmamörkin. í þessari umferð vann vestur- þýzki stórmeistarinn Húbner einnig góðan sigur, nu, yfir Bandarfkjamanninum Rogoff. Hvítt: Hubner Svart: Rogoff Griinfeldsvörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rf3 — Bg7, 4. g3 — 0-0, 5. Bg2 — d5, 6. cxd5 — Rxd5, 7. 0-0 — Rb6, 8. Rc3 — Rc6, 9. e3 — e5, 10. d5 — Re7, 11. e4 — Bg4, 12. a4 — c6, 13. a5 — Rc4, 14. Db3 — cxd5, 15. Rxd5 — Rxd5, 16. Dxc4 — Re7, 17. Be3 — Rc6, 18. Db5 — Dc7, 19. Hfcl — Hfc8, 20 h.3 — Be6, 21. Bfl — a6, 22. Da4 — h6, 23. Hc3 — Dd7, 24. Hdl — De8, 25. Bb6 — Bf6, 26. Kg2 — Bd8, 27. Be3 — Bxa5, 28. H3cl — Kg7, 29. Rxe5 — b5, 30 Dal — Bxh3+, 31. Kxh3 — Dxe5, 32. Hxc6 — Dh5 + , 33. Kg2 — Hxc6, 34. b4+ — Kg8, 35. bxa5 — He8, 36. Hd5 — Dg4, 37. Dd4 — h5, 38. Bh6 — f6, 39. Hd7 — h4, 40. Da7 — Dxe4, 41. Kgl — g5 og gafst upp um leið. Evrópumeistaramóti ungra manna í bridge lokið: Austurríkismenn sigruðu - Islenzka sveitin aftarlega Frá Páli Bergssyni, Lundi. A LAUGARDAG lauk 5. Evrópumeastaramóti ungra manna sem haldið var hér f Lundi. tsland endaði f 13. sæti af 18 þjóðum sem þátt tóku. Samtals náði fsienzka sveitin 147 stigum af 340 mögulegum. Sigurvegari varð Austurrfki með 223 stig. Annars varð röð þjóðanna þessi: stig. 2. Svíþjóð 222 3. Holland 212 4. Pólland 205,5 5. Noregur 203 6. Ungverjal. 197 7. England 194 8. Þýzkaland 193 9. Italía 174,5 10. Belgia 165 11. Frakkland 163 12. Portúgal 160 13. Island 147 14. l,srael 124 15. Finnland 108 16. Danmörk 104 17. Spánn 101 18. Irland 67 Árangur fslenzku sveitarinn- ar verður að teljast nokkuð slakur, en þó eru'þeir, hér í Lundi a.m.k., álitnir góðir spil- arar. Sést það bezt á því að spil, sem þeir hafa spilað, hafa nokk- uð oft verið birt í mótsblaði sem gefið er hér út daglega. Við verðlaunaafhendinguna á laugardag var úthlutað sér- stökum verðlaunum fyrir bezt spilaða spilið f keppninni. Þau hlaut Helgi Sigurðsson fyrir spil sem hann spalaði f leiknum gegn Dönum. Einnig hlaut Jón Baldursson verðlaun fyrir sigur f aukakeppni í tvímenning, en þá spilaði hann við Gilkis frá Israel. Austurfsku Evrópu- meistararnir spiluðu aðeins fjórir alla keppnina en þeir heita Fucik — Kadlek og Lehrner — Stratner. Allir eru þeir sérlega glæsilegir og geð- þekkir menn og allir byrjuðu þeir að spila bridge níu til fimmtán ára gamlir. r Bikarkei ppni K.S.I. í kvöld kl. 19.00 deildinni mætast toppliðin úr 1 Fram - Valur á Laugardalsvelli (stúkan). Allir á völlinn. Fram r ------------------------------\ | Haustsýning I_____FÍM 1976 Haustsýning Félags íslenskra myndlistarmanna verður haldin að Kjarvalsstöðum 28. ágúst — 1 2. september n.k. Tekið verður á móti verkum fimmtudaginn 18. ágúst kl. 14 —19 að Kjar- valsstöðum. Æskilegt er að utanfélagsmenn sendi a.m.k. 5 verk til sýningarnefndar. Móttökugjald fyrir utanfélagsmenn kr. 2000.00. Sýningarnefnd FÍM V_________________________ ^ jazzBaLLeCdskóLi bópu. S jj líkom/rcvk! S Dömur athugið ★ Byrjum attur eftir sumar-Q) frí mánudaginn 16. ágúst.QT CT œ N rr N ★ Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á 7K ö/lum a/dn. Q' it Morgun- dag og kvö/dtimar. [_. ★ Tímar tvisvar eóa fjórum sinnum viku. ÍC Sturtur — Ljós-sauna — Tæki. ★ Upp/ýsingar og mnritun í síma 83 730 frá kl. 1 — 6. V. jazzBaLLeCCskóLi bópu _ . Geröu svo vel Simca 1100 GLS SIMCA 1100 GLS er tilvalinn f jölskyIdobíll. Traustur, öruggur og umfram allt sparneytinn. SIMCA 1100 GLS er með fimm hurðum og með einu handtaki má brevta honum í "station" bfl. SIMCA 1100 GLS er til afgreiðslu nú þegar. Hafið samband við umboðið. Sími 84366 - 84491 SIMCA IrSkull hf. ÁRMÚLA 36,REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.