Morgunblaðið - 11.08.1976, Síða 26

Morgunblaðið - 11.08.1976, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGUST 1976 Fylkismenn nota sumarfríið til að æfa fyrir úrslitin URSLITAKEPPNIN í þriðju deild fer fratn á Akureyri utn aðra helgi. Af sjö liðum sem þátt taka i úrslitakeppn- inni hafa fimm tryggt sér rétt. Eru það Fylkir, Reykja- vík, Reynir, Sandgerði, Afturelding, Mosfellssveit, KS, Siglufirði, og Þróttur frá Neskaupstað. 1 tveimur riðlum eru úrslitin enn óljós, en í öðrum þeirra berjast Víkíngur, Ölafsvík, ok SkallaKrímur hatrammri baráttu um úrslitasæti. Léku þessi lið í Borgarnesi um síðustu helgi og varð jafntefli, 1:1. Á Víkingur eftir að leika einn Ieik í 3. deild, Skallagrímur tvo. í öðrum Aust- fjarðariðlinum kom upp kærumál á milli Austra, Eskifirði, og Leiknis frá Fáskrúðsfiröi. Var Leikni dæmdur sigur á málinu fyrir héraðsdómi en Austri áfrýjaði og er málið nú fyrir dóm- stóli KSÍ. Vinni Leiknir málið einnig þar, fer liðið í úrslit, annars Eskfirðingarnir. Sjálfsagt æfa öll liðin, sem örugg eru í úrslitin, af miklum krafti og undirbúa sig sem bezt þau mega. Leikmenn Fylkis úr Árbæjarhverfi ætla greinilega ekki að láta sitt eftir liggja í úr- slitakeppninni og tóku flestir leikmenn liðsins sér sumarfí í allt að hálfan mánuð til að undirbúa sig fyrir keppnina. Æfa þeir tvisvar á dag flesta daga undir stjórn Teódórs Guðmundssonar þjálfara og ætla sér stóra hluti í úrslitakeppninni. Þjálfarar hinna liðanna, sem komin eu í úrslit eru þeir Eggert Jóhannesson, Kristján Sigurgeirs- son, Elías Jónasson og Magnús Jónatansson og æfa lið þeirra sjálfsagt vel þessa dagana. Þeir voru ekki beinlinis þrifalegir Agúst Asgeirsson og Rússinn Podoliakov þegar þeir komu I mark að 800 metra hlaupinu loknu á meistaramótinu um síðustu helgi. Agúst verður meðal (slenzku kepp- endanna í landskeppninni við Skota og N-tra og vonandi fá þá hann og aðrir keppendur betri skilyrði en voru um síðustu helgi. Frjálsíþróttalandsliðið valið til keppni gegn Skotum og IM-írum tSLENDINGAR taka þátt í lands- keppni í frjálsum íþróttum ásamt Skotum og Norður-Irum f Edin- borg 21. og 22. þessa mánaðar. I þeirri keppni verður sennilega erfitt að sigra Skotana, sem hafa mun sterkara liði á að skipa en Islendingar. Hins vegar ætti ís- lenzka liðið að sigra Norður-tra auðveldlega. Islenzka liðið hefur nú verið val- ið og skipa það eftirtaldir en aðeins er keppt í karlagreinum: Sigurður Sigurðsson A 100 m, 200 m, boðhlaup Vilmundur Vilhjálmsson KR 100 m, 200 m, 400 m, boðhl. Bjarni Stefánsson KR 400 m, boðhlaup Ágúst Ásgeirsson IR 800 m, 3000 m hindrunarhl. Gunnar P. Jóakimsson IR 800 m, 1500 m Sigfús Jónsson ÍR 5000 m, Valbjörn Þorláksson KR llOm grindahl. stangarst. Jón S. Þórðarson ÍR 110 m grindahl. 400 m grindahl. hást. Þorvaldur Þórsson UMSS 400 m grindahl. Jón Diðriksson UMSB 3000 m hindrunarhl. Emil Björnsson UlA 1500 m, 5000 m. Elías Sveinsson KR hástökk, stangarstökk, spjótkast Friðrik Þór Oskarsson ÍR langstökk, þrístökk Jóhann Pétursson UMSS lang- stökk, þrístökk Hreinn Halldórsson KR kúluvarp Guðni Halldórsson KR kúluvarp sleggjukast Erlendur Vaidimarsson KR kringlukast, sleggjukast Öskar Jakobsson ÍR kringlukast, spjótkast Magnús Jónasson Á boðhlaup. 10.000 km. falla niður í lands- keppninni. Hermann og Gústaf Björnssynir með verðlaunapeningana um hálsinn, skjöldinn, sem Hermann fékk sem bezti leikmaðurinn í sfnum flokki og lukkutröllið sem Framarar fengu til eignar til minningar um stórgóðan árangur og sigur í 5. flokki í „Oslo Cup“. (Ijósm. Friðþjófur). Framlengingu og vítakastkeppni þurfti í úrslitaleiknum í Osló VIÐ sögðum frá þvl I gær að fimmti flokkur handknattleiks- manna úr Fram hefði borið sigur úr býtum („Oslo Cup“, miklu handknattleiksmóti, sem fram fór ( Osló I slðustu viku. Var þetta I þriðja sinn sem Fram sendi keppendur á handknattleiksmót unglinga erlendis og jafnframt ( þriðja skipti sem Framarar vinna gullverðlaun á slíku móti. Fyrst unnu Framarar gull árið 1968 og kepptu þá fyrir hönd Fram, einnig á „Oslo Cup“, leikmenn eins og Axel Axelsson, Guðjón Erlendsson og Pétur Jóhannes- son. Fyrirliði liðs Fram i 5. flokki er Hermann Björnsson og þjálfari flokksins er Gústaf Björnsson, bróðir hans. Rabbaði Morgun- blaðið stuttlega við þá I gær og sögðu þeir báðir, að mjög gaman hefði verið að taka þátt I þessu móti. Skipulagið hefði verið með eindæmum gott hjá Norðmönnum og allt gengið snurðulaust fyrir sig, þó svo að keppendur hefðu verið um 5000 í 440 liðum. Keppn- in hefði staðið yfir frá því klukkan 8 á morgnana, til klukkan 7 á kvöldin alla sfðustu viku og leikirnir farið nákvæm- lega fram eftir fyrirfram ákveðn- um tímaseðli. Til að komast i úrslit þurftu Framarar að vinna 5 leiki, en einn fengu þeir gefins. Var yfirleitt einn leikur á dag hjá liðunum. en þó þurftu Framarar að leika þrjá leiki á föstudaginn og voru piltarnir að vonum orðnir þreyttir þegar siðasta leiknum var lokið. Lentu þeir reyndar í hinum mestu brösum i þeim leik og úr- slit fengust ekki fyrr en að lokinni framlengingu og vítakast- keppni. Var mikil spenna meðal leikmanna jafnt sem áhorfenda, en Framarar höfðu vinninginn að lokum og unnu 11:10. Markatala Framara út úr mótinu var 51:28 og stærsta sigurinn unnu þeir gegn dönsku liði, 7:1. Ekki voru Danirnir alveg ánægðir með þau úrslit og kærðu þrjá Framara sem þeim fannst of stórir og sterklegir til að geta verið 12 eða 13 ára. Þurftu Framararnir að sýna vega- bréf sin til að sanna aldur sinn. Auk Framstrákanna úr 5. flokki tók þriðji flokkur kvenna frá Fram þátt í þessu móti og komst í 8-liða úrslit. Haukar áttu tvo flokka í mótinu, 3. flokk karla og kvenna. KR-ingar mættu með 3 flokka 3. fl. karla og 2. flokk karla og kvenna. Loks tók svo 2. flokkur kvenna frá Keflavfk þátt i mót- inu. MANCHESTER VAR SÉR Á BÁTI Um 1.150 þús. sáu liðið leika á Old Trafford SENN liður að því að keppnin í 1. deild ensku knattspyrnunnar hefjist. Knattspyrnuunnendur í Englandi bfða án efa spenntir eftir því að vertfðin hefjist og eins og sjá má á tölum þeim sem fylgja hér á eftir um aðsókn á leiki í Englandi þá er það ekki lítill hópur sem farið hefur á knattspyrnuvellina þar síðastliðinn vetur. Aðsókn að leikjum enska liðs- ins Manchester United var næstum með ólíkindum á síð- asta keppnistimabili, þar sem alls komu 1.149.751 áhorfandi á heimaleiki félagsins, eða tæp- lega 55 þúsund manns að með- altali. Þó er þarna ekki um að ræða metaðsókn í Englandi, þar sem 57.759 áhorfendur sóttu að meðaltali leiki Manchester United á keppnistímabilinu 1967—1968. Manchester United er algjör- lega sér á báti hvað varðar að- sókn að leikjum í Englandi svo sem bezt má sjá af því að þetta var fjórða árið í röð sem Manchester United átti þar flesta áhorfendur og lék liðið þó eitt af þessum árum í ann- arri deild. Ög á tíu siðustu ár- um hefur Manchester United verið með metaðsóknina í átta! Aðsóknaraukning hjá Manchester United milli keppnistímabilanna 1974—1975 og 1975—1976 var 133.588 manns, og er það hærri tala en sum 2. deildar félögin fengu á alla leiki sína á siðasta keppnistímabili. Utkoman var mjög mismun- andi hjá ensku liðunum á síð- asta keppnistímabili. Ekkert lið fór þó eins illa út úr því og Everton, en áhorfendum á heimaleiki liðsins fækkaði hvorki meira né minna en um 271.026. Langmesta aukningin varð hins vegar hjá Birming- ham-liðinu Aston Villa, sem fékk 235.616 áhorfendum fleira á leiki sína í fyrra en árið áður. Þau 1. deildarlið sem fengu fleiri áhorfendur á leiki sína í fyrra en í hitteðfyrra voru: Aston Villa, Coventry, Derby, Ipswich, Manchester City, Manchester United, Norwich, Q.P.R., Sheffield United og Tottenham Hotspur. I 2. deild skar eitt lið sig algjörlega úr hvað aðsókn snerti. Var það lið Sunderland sem fékk samtals 656.259 áhorf- endur á heimaleiki sína, eða 31.250 að meðaltali. Er það at- hyglisvert að aðeins sex lið i 1. deild fengu meiri aðsókn en Sunderland. Aðsóknaraukning varð þó ekki mest hjá Sunder- land, Heldur West Bromwich Albion sem fékk 100.847 áhorf- endum fleira á leiki sína s.l. vetur en veturinn áður. Útkoma liðanna í 2. deild er geysilega misjöfn. Það lið sem hafði dræmasta aðsókn var York City sem hafði aðeins 113.673 áhorfendur alls eða 5.413 að meðaltali. Fækkaði áhorfendum á leikjum félags- ins um 74.371 á árinu. Skammt undan eru svo Hull sem hafði 6.901 áhorfenda að meðaltali, Oxford með 6.736 og Orient með 6 385. í 3. deild var það Lundúnafé- lagið Crystal Palace sem fékk flesta áhorfendur á heimaleiki sina, 462.849 alls, eða 20.123 að meðaltali. Næst í röðinni var svo Brighton með 352.891 áhorfanda. Það félag hafði einnig mesta aukningu: 82.624.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.