Morgunblaðið - 14.09.1976, Page 3

Morgunblaðið - 14.09.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976 3 Eyjastúlkur í silfri hafsins Með silfur hafsins f höndunum og sæiubros á vör. SÍLDARSÖLTUN hófst í Eyjum um helgina og verður saltað á þremur stöðum þar í haust. Fyrsta síldin, sem barst í söltun var reknetasíld til Vinnslustöðvarinnar, en fram til þessa hefur að- eins verið fryst, mest til útflutnings, en einnig nokkuð í beitu. í fyrsta sinn um margra ára bil stunda þrír heimabátar rekneta- veiðar, en einnig munu nótabátar stunda síld- veiðar sem fyrr. Það má því reikna með góðri haustvinnu við síldina í Það bregzt ekki, að það er fjör í þvf, þegar sfldin er annars vegar. * I' 1 * Saltað á fuliri ferð f Vinnslustöðinni. Saltað á þremur stöðum í Eyjum Eyjum, svo fremi að síld veiðist. Tveir litlir bátar hafa að und- anförnu verið með lagnet, fá net, og fengu þeir allgott fram- an af, en það hefur gengið treg- lega hjá þeim upp á siðkastið og hefur svo einnig verið hjá rek- netabátunum, sem hafa lagt upp í Eyjum og stundað veiðar á Eyjamiðum. Þeir hafa flutt sig nokkuð austur á bóginn síð- ustu daga, en þar hefur einnig tregast síldveiðin. Fróðir veiði- menn telja þó, að þetta kunni að lagast þegar straumurinn er genginn hjá. 1 Vinnslustöðinni var einnig verið að panna sfld af fullum krafti fyrir frystingu. Aðalfundur Bílgreinasambandsins: 150 milljónir króna á ári til að jafna aðstöðumuninn BlLGREINASAMBANDIÐ hélt aðalfund sinn 11. sept. s.l. á Hornafirði. Auk venjulegra aðal- fundastarfa voru haldnir sér- greinafundir og erindi flutt. Einnig kynnti Ingimar Hansson verkfræðingur niðurstöður könn- unar, sem hann hefur gert fyrir Bflgreinasambandið og Fram- kvæmdastofnun rfkisins á bfla- verkstæðum á Vesturlandi. Vest- fjörðum og Austf jörðum. Skýrsla þessi mun vera hin fyrsta, sem gerð er um einstaka þjónustu- grein úti á landi. 1 könnuninni tekur Ingimar mið af Suðvesturlandi, ekki vegna þess að þar sé mannskapur og tæknilegur búnaður fullkom- inn, heldur vegna þess að menn úti á landsbyggðinni miða aðstöðu sína yfirleitt við þetta svæði. Þar kemur fram, að þörf er á mikilli þjónustuaukningu fyrir lands- byggðina og fjölgun bifvélavið- gerðarmanna. Rekstur verkstæða á landsbyggðinni er mjög ótraust- ur, sem að miklu leyti má rekja til fjármagnsvöntunar og aðstöðu- munur er mikill á fleiri sviðum s.s. þeirri hlið er viðkemur vara- hlutum. Ingimar segir I skýrslu sinni að jöfnun þessa aðstöðumunar krefj- ist mikillar fjölgunar bifvélavið- gerðarmanna úti á landi, fjölg- unar nema I iðninni og síðast en ekki sízt meira fjármagns, og nefnir hann í því sambandi að 150 milljónir þurfi á ári til að jafna aðstöðumuninn, en þó sé aðstaðan á Suðvesturlandi ófullnægjandi á margan hátt. Þarna funduðu einnig verk- stæðiseigendur og þar komu fram miklar kvartanir vegna slæmrar þjónustu Flugfélags íslands við flutning á varahlutum út á land, sem leiddi af sér óhagkvæman rekstur verkstæða og óþægindi bíleigenda. Einnig ra;ddu verk- stæðiseigendur nýtt verðlagskerfi fyrir bílamálningaverkstæði og lága álagningu á gúmmíhjólbörð- um. Framtíðarskipulag bifreiða- skoðunar Bifreiðaeftirlits ríkisins var einnig mikið til umræðu, en I því sambandi vill Bílgreinasam- bandið benda á, að heppilegt geti verið að láta vissan hluta skoðun- arinnar fara fram á verkstæðum, s.s. hjólastillingu og hemla, í stað þess að byggja upp nýja skoð- unarstöð fyrir Bifrfeiðaeftirlitið. Bllasalar ræddu verðlagsmál, innflutningsgjöld á bílum og leng- ingu ábyrgðatima nýrra bíla úr sex mánuðum í tólf. Tvö erindi voru haldin á fund- inum. Guðmundur Hilmarsson form. Félags bifvélavirkja sagði frá hugmyndum sínum um aukin samskipti Bílgreinasambandsins og Félags bifvélavirkja og lagði til, að þessi tvö félög stofnuðu með sér samstarfsnefnd. Þá rakti hann þá jákvæðu þróun, sem orðið hefur I námi bifvélavirkja- nema i Iðnskólanum. Jónas Þór Steinarsson skrifstofustjóri Bílgreinasam- bandsins f lutti erindi um hagræð- ingar I eyðublaðatækni bifreiða- verkstæða og kynnti i þvi sambandi hugmynd að eyðublaði fyrir bifvélaverkstæði. Þessi eyðublöð yrðu I stöðluðu formi þannig að það gæti hentað flest- um verkstæðum auk þess sem þau gæfu viðskiptavinunum gott yfir- lit yfir viðgerðarkostnað. Á fundinum voru gerðar nokkr- ar ályktanir um bifreiðar og ann- Framhald á bls. 26 Itali gekk berserks- gang á Hótel Sögu SÁ ATBURÐUR varð á Hótel Sögu rétt eftir hádegið á sunnu- dag, að æði rann á Itala einn, sem staddur var á hótelinu. Hóf hann að kasta öskubökkum í allar áttir og brjóta allt og bramla. Þegar þjónar ætluðu að grlpa manninn, henti hann glasi f höfuð eins þeirra, svo hann rotaðist. Um sfðir tókst að yfirbuga manninn og var hann fluttur f far.gahús. Voru svo mikil læti f manninum, að það varð að járna hann. I gær var æðið ekki runnið af manninum og var hann þá enn f járnum. Læknar höfðu fengið manninn til meðferðar og á að senda hann til sfns heimalands eins fljótt og unnt er. Maður þessi er rétt rúmlega fertugur, en hann hefur dvalizt hér við vinnu f rúmt ár. Af þjóninum er það að frétta, að hann skarzt eitthvað á höfði ofe er hann rúmliggjandi. Ein á ferð. ljósm. Friðþjófur. Fáskrúðsfjörður: Nýtt frysti- hús í notkun Fáskrúðsfirði — 13. september NÝTT hraðfrystihús var tekið f notkun á Fáskrúðsfirði sl. laugar- dag. Húsið sem er eign Hrað- frystihúss Fáskrúðsfjarðar, dótt- urfrystihús Kaupfélags Fáskrúðs- firðinga, er 2 þúsund fm. stál- grindahús, reist á uppfyllingunni framan við gamla frystihúsið á Fiskeiði. Er öll suðurhlið hússins við bryggjukantinn, sem gerir alla móttöku og útskipun á fiski mjög hagkvæma. Bygging hússins hófst haustið 1973 og hefur þvi staðið i þrjú ár, og er heildarkostnaður hússins i kringum 240 milljónir. Vilhjálm- ur Þorláksson verkfr. teiknaði húsið, en Karl Bjarnason hafði umsjón og eftirlit með fram- kvæmdum. Aðalverktaki við inn- réttingu hússins var Trésmiðja Austurlands hf. áFáskrúðsfirði. Full afköst hússins eru áætluð um 35—40 tonn á dag. Mikil hátið var í tilefni opnunar hraðfrysti- hússins. Var öllum starfsmönnum fyrirtækisins, svo og öðrum ibú- um staðarins, boðið að skoða hús- Framhald áhls. 26 Verð á nýslátruðu að vænta í vikunni VÆNTA má nýrrar verðákvörð- unar á búvöru nú f vikunni vegna haustslátrunar, að þvf er Gunnar Guðbjartsson formaður Stéttar- sambands bænda tjáði Morgun- blaðinu f gær. Verðákvörðun 6- manna nefndarinnar verður sfðan að fara fyrir rfkisstjórnina og hljóta staðfestingu hennar. Gunnar sagði, að þegar hefði verið unnið töluvert að hinu nýia búvöruverði og fundir væru dag- lega í 6-manna nefndinni. enda væri-hér margþætt mál á ferðinnt og viðamiklir útreikningar þvi samfara. Gunnar sagði hins vegar. .u' Framhald á bls. 26

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.