Morgunblaðið - 14.09.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
25
Farþegarnir ganga frá borði á Parisarfiugvelli.
,Jjíflátsógmm vofði yflr
okkur allan tímann ”
Frásagnir farþega
TWA-þotunnar
New York — París 13. september AP — Reuter.
„SKELFILEGASTA augnablik ferðarinnar var á Parísarflugvellin-
um, er ræningjarnir þjöppuðu okkur öllum umhverfis sprengjurn-
ar og hótuðu að sprengja okkur í loft upp,“ sagði Norreen Collins
kennari frá New York, sem var meðal farþega f TWA-þotunni, sem
Króatarnir 5 rændu um helgina. „Við gátum ekki vitað, að þeir voru
að gabba okkur, og svona héldu þeir okkur ( hátt f klukkustund. Það
var alveg hræðileg lffsreynsla. Þeir sögðust myndu drepa okkur öll
ef Bandarfkjastjórn yrði ekki við kröfum þeirra. sem þeir sögðu, að
væru mjög einfaldar".
hreint ótrúlega kurteisir. Þeir
hefðu beðið farþegana um að
sýna samstarfsvilja, og sagt, að
þeir þyrftu ekkert að óttast,
engum myndi gert mein. Þeir
vildu aðeins vekja athygli á
málstað sinum. Perkins sagði,
að þeir hefðu komið í farþega-
klefann og spurt, hvort nokkur
ætti við heilsufarsleg vandamál
að striða. Perkins sagði, að far-
þegarnir hefðu verið ákaflega
rólegir og aldrei æórazt. Hann
sagði, að er ræningjarnir hefðu
tilkynnt á Gander, að þeir væru
tilbúnir að sleppa einhverjum
farþegum hefðu þeir spurt,
hverjir ættu að fara, og hefðu
þá allir verið sammála sem einn
maður, að hjón með börn og
Busic f flugstjórnarklefa TWA-
þotunnar.
Sam Edsell, 17 ára frá Mon-
roe New Hampshire, sagðist
hafa verið skelfingu lostinn, er
ræningjarnir voru að rjála við
það, sem farþegarnir héldu, að
væri sprengja, sett saman úr 6
túbum af dínamiti með þráðum
i rafhlöðu og hnapp til að
sprengja hana. Edsell sagði, að
ræningjarnir hefðu yfirleitt
verið einkar þægilegir og góðir
f viðmóti nema síðasta klukku-
tímann á Parísarflugvelli, þeg-
ar þeir hótuðu að spi >ngja vél-
ina. Hann sagði, að r._aingjarn-
ir hefðu alltaf verið að segja við
farþegana, að þeir vildu ekki
gera neinum mein, þeir vildu
aðeins vekja athygli á málstað
sínum. Þegar þeir hefðu mætt
einhverjum f ganginum hefðu
þeir beðizt afsökunar eða sagt
„þakka þér fyrir“, er skelfdir
farþegarnir viku fyrir þeim.
ÓTRCLEGA kurteisir
Sem kunnugt er var 34 far-
þegum leyft að fara frá borði i
Gander á Nýfundnalandi. Einn
þeirra var James Perkins, 29
ára frá New York. Perkins
sagði við fréttamenn i Chicago
eítir að hann hafði gefið alrik-
islögreglunni FBI skýrslu, að
flugræningjarnir hefðu verið
FlugræningjarniD áður en þeir fóru um borð f frönsku herþotuna, sem flutti þá til New York.
vinstri: Mark Vlasic, Prane Psut, Petar Matav'c, Zvonko Busic og Julianne Eden Busic kona hans.
konur skyldu fara, enginn orðið
til þess að spretta upp og segja
„ég“.
MARGAR RÆNASTUNDIR
Meðal farþeganna var kaþ-
ólskur biskup frá Preoria í 111-
inois, Edward O’Rourke, sem
var á leið frá fundi í New York.
Hann sagði fréttamönnum, að
hann hefði I samvinnu við flug-
stjórann reynt að fá ræningj-
ana til að ræða málin og einnig
til að fá þá til að hætta við
áform sín. Hann sagðist árang-
urslaust hafa reynt að sýna
þeim fram á, hve siðlaust at-
hæfi þeirra væri, en þeir vísað
slikum tilraunum á bug. Hann
sagðist einnig hafa stjórnað
mörgum bænastundum með
farþegunum. Biskupinn sagði,
að líflátsógnun hefði hvílt yfir
hverjum einasta manni allan
tímann, sem þeir voru um borð
i vélinni, fyrir utan síðustu
tvær mínúturnar á Parísarflug-
velli, en þá hefðu ræningjarnir
tekið „sprengjurnar” og rifið
þær í sundur og sýnt þeim, að
ekkert sprengjuefni væri f
þeim, aðeins leir og nokkrir
meinlausir rafmagnsvírar.
O’Rourke sagði, að enginn um
borð hefði meiðzt, en að einn
maður hefði fallið f sykursýkis-
dá vegna skorts á mat og vatni
um borð. Sá maður var fluttur f
sjúkrahús í París. Hann sagði,
að skelfilegasta augnablikið
hefði verið, skömmu áður en
ræningjarnir gáfust upp, er
þeir settu alla farþegana saman
í hnapp umhverfis sprengju og
sögðu, að samningaviðræður
við frönsk yfirvöld gengju illa.
Héldu þá margir farþeganna,
að sfðasta stundin væri runnin
upp. Biskupinn sagði, að sér
hefði ekki virzt nokkur farþeg-
anna reiðast, er ræningjarnir
sýndu, að þeir hefðu aðeins ver-
ið að gabba með sprengjurpar,
enda allir verið svo fegnir að
losna úr prfsundinni. Fólk
hefði verið orðið yfir sig þreytt
af svefnleysi og stöðugri tauga-
spennu.
EINTÓMT GABB
Flugvélstjóri þotunnar,
Thomas D. Sheary, lét það
verða sitt fyrsta verk að hringja
i eiginkonu sína, Mary Ann, f
New Jersey og ræddi síðan við
fréttamenn. „Þetta var allt
gabb, eintómt gabb, þeir voru
ekki með neitt sprenguefni eða
' Framhald á bls. 26