Morgunblaðið - 14.09.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRJÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
Sýningin ISLENZK FOT 76 framlengd
15 þúsund gestir hafa komið
„VIÐ framlengjum sýning-
unni í tvo daga vegna
þeirrar viðtöku sem hún
hefur hlotið hjá almenn-
ingi. Hún hefur hreinlega
sprengt allt utan af sér
hvaða aðsókn snertir,“
sagði Pétur Sveinbjarnar-
son frkvstj. íslenzkrar iðn-
kynningar í viðtali við Mbl.
í gær, þegar hann var
spurður um ástæður fyrir
Spassky og Fischer á
frímerki í Nicaragua
GEFIN hafa veriö út I Nicaragua
frímerki meö myndum af skák-
meisturunum Spassky og Fischer.
Myndir frlmerkjanna sýna þá að
tafli í Laugardalshöllinni þegar
heimsmeistaraeinvlgið var háö
hér á landi árið 1972. Þetta eru
myndir Chester Fox og eru þær
birtar með hans leyfi.
Það eru myndir Chester Fox sem eru á
frímerkjunum en hann fttti sem kunnugt
er allan birtingarrétt ft myndefni frft
skftkeinvlginu.
framlengingu sýningar-
innar ÍSLENZK FÖT ’76.
Upphaflega átti sýning-
unni að ljúka á sunnudags-
kvöldið, en síðan var
ákveðið að framlengja
hana í tvo daga, þ.e. sýn-
ingunni lýkur í kvöld. Að
sögn Péturs hafa um
15.000 manns séð sýning-
una, þar af um 10.000 á
laugardag og sunnudag.
„Við teljum það vera þátt dag-
blaðanna útvarps og sjónvarps,
sem hefur gert það að verkum að
svo vel tókst til. Fjölmiðlarnir
hafa tekið bæði iðnkynninguna og
fatasýninguna slikum tökum og
gert slík skil, að það hefur vart
farið fram hjá neinum, hvað var
að gerast," sagði Pétur.
Tízkusýningar tvær verða í dag,
siðasta sýningardag, kl. 18.00 og
21.00.
Síðustu héraðsmót Sjálf-
stæðisflokksins í sumar í
Stapa og Vestmannaeyjum
UM NÆSTU helgi heldur Sjálf-
stæðisflokkurinn tvö siðustu hér-
aðsmótin f sumar á eftirtöldum
stöðum:
Stapa í Njarðvikum föstudag-
inn 17.. september kl. 21. Ávörp
flytja Matthias Á. Mathiesen fjár-
málaráðherra og Sverrir Her-
mannsson alþingismaður.
Vestmannaeyjum laugardaginn
18. september kl. 21. Ávarp flytur
Ingólfur Jónsson alþingismaður.
Skemmtiatriði á héraðsmótun-
um annast hljómsveitin Nætur-
galar ásamt óperusöngvurunum
Kristni Hallssyni og Magnúsi
Jónssyni, Jörundi og Ágúst Atla-
syni. Hljómsveitina skipa: Skúli
K. Gíslason, Einar Hólm, Birgir
Karlsson og Ágúst Atlason.
Að loknu héraðsmöti verður
haidinn dansleikur til kl. 2 eftir
miðnætti, þar sem Næturgalar og
Ágúst Atlason syngja og leika
fyrir dansi.
Matthfas
Ingólfur
Sverrir.
ASV mótmæl-
ir bráða-
birgðalögum
FUNDUR stjórnar Álþýðusam-
bands Vestfjarða og fulltrúa sjó-
mannafélaga á sambandssvæð-
inu, haldinn á Isafirði 8. septem-
ber 1976, mótmælir harðlega
setningu bráðabirgðalaga um
kaup og kjör sjómanna og for-
dæmir það gerræði sjávarútvegs-
ráðherra og rfkisstjórnar að ráð-
ast á þennan hátt á óskoraðan rétt
sjómanna til frjálsrar samninga-
gerðar um kaup og kjör.
Fundurinn bendir sérstaklega á
þá staðreynd, að I gildi eru samn-
ingar um kaup og kjör sjómanna
milli samtaka þeirra og samtaka
vestfirzkra útvegsmanna undir-
ritaðir 13. apríl 1975. í ljósi þessa
geta bráðabirgðalögin á engan
hátt gilt hvað varðar kjör vest-
firzkra sjómanna fram að setn-
ingu laga þessara.
Þá skal vakin sérstök athygli á
því, að lögfestur er með lögunum
vilji útvegsmanna, þar sem með
þeim eru knúðir fram samningar,
sem þeir hafa samþykkt en sjó-
menn fellt.
Furðuleg er sú þröngsýni
sjávarútvegsráðherra að stofna á
þennan hátt atvinnulífi sjávar-
plássa á Vestfjörðum í voða, þar
sem fyrirsjáanlegt er, að aðgerðir
þessar leiða til uppsagnar sjó-
manna og hafa þegar gert það.
Fundurinn samþykkir að fela
lögfræðingi að kanna stöðu
aðildarfélaga Alþýðusambands
Vestfjarða gagnvart lögum þess-
um og leita réttar þeirra fyrir
dómstólum ef þurfa þykir.
(Fréttatilkynning).
HVAÐHÆGT ERAÐ GERA
/AKALEGA góðkaupá
Stakar terylene- og
ullarbuxur, bæði dömu
og herra frá kr. 3.000.
Rifflaðar flauelsbuxur
frá kr. 2.500 —
Herra- og dömubolir
í ofsalegu úrvali
frá kr. 600.—
Föt m/vesti
frá kr. 12.000,—
Kjólar frá kr. 2.500.—
Peysur frá kr. 1.200.—
Herraskyrtur frá kr. 1.290
Kápur frá kr. 6.500.—
Pilsdragtir frá kr. 6.500 —
Buxna fínflauelspils
Allt mjög góðar og nýlegar vörur
Látið ekki happ úr hendi sleppa
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
Utsölumarkaðurinn
Laugavegi 66
sími 28155