Morgunblaðið - 14.09.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
13
Hér eru þeir Gunnar Gunnarsson og Friðrik við upphaf 14. umferðar-
innar, sem tefld var á sunnudag. öllum á óvart náði Friðrik aðeins
jafntefli út úr viðureign þeirra, en Gunnar hefur verið á botninum frá
upphafi móts. Friðrik sagðist hafa reiknað með allt annarri takttk frá
Gunnari, sem reyndi að skipta sem mest upp.
„Gunnar sækir vanaiega af mikilli hörku og kom leikaðferð hans
mér þvf nokkuð að óvörum, a.m.k. átti ég von á öðru,“ sagði Friðrik.
„Þýðir ekkert
annað en að slást”
Friðrik er í 2.—3. sæti fyrir síðustu umferð
„Það þýðir ekkert annað
en að tefla til vinnings í
síðustu umferðinni. Maður
verður að slást, því Timm-
an gerir sig örugglega ekki
ánægðan með jafntefli úr
sinni skák,“ sagði Friðrik
Ólafsson, þegar við rædd-
um viö hann í móttöku
borgarstjóra í Höfða í gær.
Friðrik er nú í öðru til
þriðja sæti í Reykjavíkur-
mótinu, ásamt Sovétmann-
inum Tukmakov, en aðeins
ein umferð er eftir í mót-
inu, og verður hún tefld í
dag í Hagaskóla. Hefst um-
ferðin kl. 17.30.
Ingi R. Jóhannesson hefur teflt
betur en flestir þorðu að vona (
Reykjavfkurskákmótinu, sem nú
er að ljúka. Er hann f 5.—9. sæti
og var hálfur titill stórmeistara
aðeins f seilingarfjarlægð.
(Ijósm. ÓI.K.M.)
Hollendingurinn Timm-
an er í efsta sæti með 10V$
vinning. Fastlega má búast
við, að hann tefli til vinn-
ings í skák sinni í dag, enda
andstæðingurinn af léttara
taginu fyrir hann, en þó
koma úrslitin ekki í ljós
fyrr en taflið er búið. Frið-
rik og Tukmakov eru með
10 vinninga hvor. Teflir
Friðrik við Inga R. en
Tukmakov við Helga Ólafs-
son, og hafa stórmeistar-
arnir báðir hvítt.
Najdorf er í 4. sæti með
914 vinning, en hann teflir í
dag við Gunnar Gunnars-
son, og hefur gamla kemp-
an hvítt. Fimm eru í 5—9
sæti með 8 vinninga hver,
það eru þeir Antoshin,
Gúðmundur, Ingi R.,
Keene og Westerinen.
Bandaríkjamennirnir Mat-
era (614) ogVukcevic (514)
eru i 10. og 11. sæti, en
síðustu 5 sætin skipa svo
þeir Margeir (5), Haukur
(414), Helgi (4), Björn (3)
ogGunnar (2).
Umferðin í dag verður
annars sem hér segir:
Matera — Haukur
Antoshin — Keene
Björn — Westerinen
Timman — Vukcevic
Guðmundur — Margeir
Friðrik — Ingi R.
Najdorf — Gunnar
Tukmakov — Helgi
Sovétmaðurinn Tukmakov, sem hér hugsar djúpt, er f f.%—3. sæti
ásamt Friðrik við upphaf sfðustu umferðar.
Kennarafélag Kópavogs og
Kjósarsýslu lýsir vanþóknun
sinni á úrskurði kjaranefndar
Kennarafélag Kópavogs og Kjósar-
sýslu hélt nýlega fjölmennan fund og
ræddi úrskurð kjaranefndar um laun
og réttindi og starfsskyldur kennara á
barnaskólastigi. Þar kom fram töluverð
undrun og gagnrýni á ýmis ákvæði og
orðfæri þessa úrskurðar Vakti það
m a. athygli að nýútskrifaðir kennarar
frá K.H.Í. fara beint i sama launaflokk
og kennarar með eldra kennara próf,
sem hafa áunnið sér starfsreynslu i 6
eða 1 2 ár. Fannst mörgum þetta van-
mat á kennaraskólaprófi þeirra, sem þó
ekki áttu annars kost á sínum tima og
starfsreynslu þeirra, sem þó er lögð til
grundvallar að launum kennara meiri
hluta starfsævi þeirra Fundurinn gerði
svohljóðandi ályktun:
Fundur Kennarafélags Kópavogs og
Kjósarsýslu, haldinn i Kópavogi 8
sept 1976, lýsir yfir vanþóknun sinni
og mikilli óánægju með það óréttlæti
gagnvart kennurum 1 —6. bekkjar
grunnskóla, sem fram kemur i úrskurði
kjaranefndar Fundurinn vekur sérstak-
lega athygli á eftirfarandi atriðum, þar
sem þessir kennarar eru beittir augljós-
Sýningarskrár sýningarinnar ÍS-
LENZK FÖT '76 eru tölumerktar og
gilda sem happdrættisnúmer, en
vinningar að verðmæti 25 þúsund
krónur eru dregnir út á hverju kvöldi,
úr þeim númerum, sem seljast hvern
dag. í lok sýningarinnar verður svo
dregið um einn 250 þúsund króna
vinning úr öllum seldum númerum.
Vinningar eru allir íslenskur fatnað
ur.
um órétti miðað við aðra kennara
grunnskólans
1 Lengri vikuleg vinnuskylda
2 Skert laun þeirra, sem starfa viðátta
mánaða skóla
3 Lægri stigagjöf fyrir hvert starfsár
4 Lægra yfirvinnukaup
Fundurinn felur stjórn og samninga-
nefnd S í B að krefjast þegar i stað
leiðréttingar á framangreindum atrið-
um Beri samningaviðræður ekki við-
unandi árangur fyrir 1 5 okt telur fund-
urinn rétt að kalla saman aukaþing
5 Í.B þar sem teknar verða ákvarðanir
um frekari aðgerðir
Hingað til hafa eftirfarandi númer
verið dregin út
miðvikudagur, 5413. úttekt hjá Soprt-
ver hf
fimmtudagur. 7492, úttekt hjá Prjóna-
stofu Önnu Þórðardóttur
föstudagur, 4202, úttekt hjá Dúk hf
laugardagur, 91 76. úttekt hjá Gráfeldi
og
sunnudagur. 13695, úttekt hjá Karna
bæ
íslenzk föt ’76:
Sýningarhappdrætti
Nýr bíll
I
VOLVO
Litli sjálfskipti Volvobíllinn
Innlegg í lækkun rekstrarkostnaðar
Lítill, nettur og harður af sér.
Sjálfskiptur (variomatic).
4 cyl. vatnskæld vél.
47 eða 57 ha vél.
Volvo öryggisbúnaður.
Volvo 66 sameinar sparneytni,
öryggi, þægindi og gæöi.
Árs ábyrgð (án tillits til ekins km.
fjölda).
Suðurlandsbraut 16 Reykjavík Simi 35200