Morgunblaðið - 14.09.1976, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
plnrgmmWulííili
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavlk
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sími 10100
Aðalstræti 6, simi 22480
Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 50,00 kr. eintakið.
S j ávarútvegsr áð-
herra hefur tryggt
öllum sjómönnum
sambærileg kjör
Eins og menn muna sigldu
langflest fiskiskip lands-
manna í höfn fyrir tæpu ári
vegna óánægju sjómanna með
ákvörðun fiskverðs. í málflutn-
ingi sjómanna þá kom fram, að
þeir töldu, að sjóðakerfi sjávar-
útvegsins væri orðið að risa-
vöxnu bákni, sem nauðsynlegt
væri að skera niður við trog.
Þessar eindregnu skoðanir sjó-
manna leiddu til víðtækrar um-
ræðu um sjóðakerfi sjávarút-
vegsins, og þá kom í Ijós, að
flestir þeir, sem um málefni
sjávarútvegsins fjölluðu, voru
sömu skoðunar og sjómennirn-
ir. Með því að skera sjóðakerfi
sjávarútvegsins niður var unnt
að hækka fiskverð mjög veru-
lega, en um leið var öllum Ijóst,
að breyta yrði skiptaprósentu,
ef einhver grundvöllur ætti að
vera fyrir útgerðarrekstri í land-
inu
Rikisstjórnin tók kröfum sjó-
manna vel og breytingar á
sjóðakerfinu voru lögfestar.
Þegar sú lagasetning lá fyrir
var fiskverð ákveðið í samræmi
við breyttar forsendur og
hækkaði einnig mjög verulega.
Þá voru ennfremur undirritaðir
nýir kjarasamningar milli full-
trúa útgerðarmanna og sjó-
manna, sem tóku mið af þess-
um breytingum á sjóðakerfi og
fiskverði. í þeim samningum
fólust breytingar á skipta-
prósentu, sem voru óhjá-
kvæmilegar, ef útgerð á íslandi
átti að geta haldið áfram.
Þessir samningar voru sam-
þykktir i sumum félögum, felld-
ir í öðrum, og ekki einu sinni
bornir undir atkvæði í enn öðr-
um sjómannafélögum. Nokkrar
breytingar voru síðar gerðar á
þessum samningum og ný til-
raun gerð til að bera þá undir
atkvæði, en þeir voru enn felld-
ir eins og kunnugt er í at-
kvæðagreiðslu, þar sem þátt-
taka var sáralítil. Rver hefði nú
afleiðingin orðið éf hér hefði
verið látið staðar numið? Afleið-
ingin hefði orðið sú, að sumir
sjómenn hefðu lagt sinn skerf
af mörkum til þess að fram-
kvæma kerfisbreytinguna í
sjávarútvegi og tekið á sig
lægri skiptaprósentu. Þeir sem
ýmist felldu samningana eða
sáu ekki ástæðu til að bera þá
undir atkvæði, hefðu notið
góðs af sjóðakerfisbreytingunni
og fiskverðshækkuninni, en
hefðu hins vegar ekki tekið á
sig breytta skiptaprósentu, sem
þó var forsenda allrar kerfis-
breytingarinnar.
Lagasetning sú, sem ríkis-
stjórnin beitti sér fyrir um
breytinguna á sjóðakerfinu, var
gerð i þeirri góðu trú að sam-
staða væri meðal útgerðar-
manna og sjómanna um þessar
breytíngar og kjarasamning-
arnir á nýjum grundvelli
Vegna þess að lögin voru sett i
góðri trú var enginn fyrirvari
settur í þau um að breytingin á
sjóðakerfinu tæki ekki gildi,
nema nýir samningar yrðu
samþykktir i öllum sjómannafé-
lögum.
Engin sanngirni er fólgin í
því, að sumir sjómenn stigi
skrefið til fulls og standi heilir
og óskiptir að nauðsynlegum
breytingum til þess að hægt sé
að afnema sjóðakerfið, en að
aðrir haldi að sér höndum og
njóti góðs af hvoru tveggja.
Þetta er hvorki sanngjarnt né
drengilegt og þess vegna var
óhjákvæmilegt fyrir sjávarút-
vegsráðherra að höggva á
hnútinn og setja bráðabirgða-
lög um kjarasamninga sjó-
manna
íslenzkir sjómenn ættu að
beina orðum sínum til forsvars-
manna sjómannafélaganna og
spyrja þá, hverju sæ.ti sú ein-
kennilega málsmeðferð, sem
öll þessi mál hafa hlotið í sum-
um sjómannafélögum. Þegar
gengið er til svo viðamikilla
breytinga, sem gert var í sam-
bandi við sjóðakerfi sjávarút-
vegsins, verða menn að geta
treyst því, að full heilindi liggi
að baki. Þetta er kjarni þess
máls, sem um hefur verið rætt
síðustu daga. Af þessu má Ijóst
vera, að Matthías Bjarnason,
sjávarútvegsráðherra, hefur
gert það eina, sem hægt var að
gera í þeirri stöðu sem upp var
komin. Sjávarútvegsráðherra
hefur með bráðabirgðalögun-
um tryggt, að allir sjómenn á
íslandi sitji við sama borð
vegna þefrrar breytingar, sem
gerð var fyrr á þessu ári á
sjóðakerfinu, og enginn maður
getur haldið því fram með
nokkrum rökum, að annað sé
sanngjarnt og drengilegt.
EYJAR:
15mánuði að byggja
sund- og íþróttahöll
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐIN í Brimhóla
laut í Vestmannaeyjum var vígð
að viðstöddu fjölmenni s.l. sunnu-
dag, en húsið, sem i er bæði full
kominn íþróttasalur með 20x40
metra leikvelli og sundlaug með
11x25 metra keppnislaug, var
byggt á 15 ménuðum. Fyrsta
skóflustungan var tekin 31. mai
og Kristján Eggertsson Þá afhenti
Stefán húslyklana Einari Hauki
Eiríkssyni forseta bæjarstjórnar, sem
eftir tölu afhenti þá Vigni Guðnasyni
framkvæmdastjóra hússins. Þá
talaði Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra og lýsti húsið
formlega tekið í notkun og siðan
Þorsteinn Einarsson í þróttaf ulltrúí
ríkisins, og rakti hann nokkuð sögu
íþróttanna i Vestmannaeyjum Sið-
ast tóku til máls Jóhannes Nielsen
frá Klemmenson og Nielsen, danska
fyrirtækinu, sem byggði húsið og
einnig tók til máls arkitekt hússins,
Poul Kjærgaard
Að loknum ávörpum afhenti
Jóhannes Nielsen húsinu að gjöf
byssu og sverð frá tíma Herfylk-
ingarinnar í Vestmannaeyjum, en
hluta þessara aflaði Jóhannes í Dan-
mörku. Herfylkingin er eini herinn,
sem hefur verið á íslandi, og var
hann formlega við lýði í nokkur ár,
aðallega vegna ótta Eyjamanna um
nýtt rán í Eyjum samsvarandi Tyrkja-
ráninn 1627. Verða þessir fornu
hlutir varðveittir í íþróttamiðstöð-
inni.
Því næst sýndi leikfimi fimleika-
flokkur frá Ollerup, alls 32 piltar og
stúlkur, og var gerður góður rómur
að hinni stórkostlegu sýningu
danska flokksins Að henni lokinni
þakkaði Páll Zóphaníasson bæjar-
stjóri gestum komuna og þar með
lauk athöfninni í þessu glæsilega
mannvirki, þar sem m.a. öll leikfimi-
kennsla i Eyjum mun fara fram og
æfingar íþróttafélaganna.
íþróttahúsið er alls 330 fermetrar
að stærð
/ — á.j.
Vilhjáimur Hjálm-
arsson menntamála-
ráðherra lýsir húsið
formlega tekið í
notkun.
Stefán Runólfsson
formaður fram-
kvæmdanefndar
hússins afhendir
bæjarstjórn húsið.
Páll Zóphanfasson
bæjarstjóri flytur
þakkir til þeirra f jöl-
mörgu sem unnu að
framgangi málsins.
tþróttamiðstoðin í Brimhólalaut í Eyjum, 3300 ferm. hús. Sundlaugin er í byggingunni hægra
megin og fþróttasalurinn vinstra megin.
1975. Auk tveggja fyrrgreindra
sala í húsinu eru þar gufuböð,
æfingaherbergi, skrifstofur, kaffi
stofa, sem er opin daglega, og
búningsklefar eru mjög rúmgóðir.
Athöfnin við vígslu hússins hófst
með lúðrablæstri Lúðrasveitar Vest-
mannaeyja/ en siðan gengu 160
unglingar inn í íþróttasalinn og fór
fánaberi fyrir með islenzka fánann
Að lokinni fánahyllingu gengu ungl-
ingarnir til sæta, en á annað þúsund
Eyjamenn voru viðstaddir athöfnina
og voru sæti í salnum fyrir um 700
manns. Við eðlilegar kringumstæð-
ur verður pláss fyrir 300—500
manns á áhorfendasvæðum
Að lokinni fánahyllingu tók Páll
Zóphaníasson bæjarstjóri til máls og
bauð gesti velkomna Þá lýsti Stefán
Runólfsson, formaður framkvæmda-
nefndar byggingar hússins, aðdrag-
anda og sögu byggingarinnar, en
auk Stefáns voru í framkvæmda-
nefndinni þeir Magnús Bjarnason
Frá vfgslu hinnar glæsilegu fþróttahallar f Vestmannaeyjum um sfðustu helgi. Ljósmynd F4bl.
Sigurgeir í Eyjum.
Leikfimiflokkurinn frá Ollerup vakti óskipta athygli gesta.