Morgunblaðið - 14.09.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
19
Með heimsliðsmann í fararbroddi
og sjö Evrópumeistara innanborðs
ÞÖTT vel kunni að vera að ensk 3. deildar lið séu betur þekkt á Islandi
en lið Slovan Bratislava, sem leikur gegn Fram ( UEFA-
bikarkeppninni ( knattspyrnu á Laugardalsvellinum ( dag, þá er
sennilega um að ræða eitt bezta félagslið ( Evrópu um þessar mundir.
Hvorki fleiri né færri en sjö af leikmönnum liðsins voru f landsliði
Tékka, sem sigraði ( Evrópubikarkeppni landsliða ( sumar, og þóttu
þeir þá vera beztu menn landsliðsins, og nöfn þeirra urðu á vörum
allra knattspyrnuaðdáenda ( Evrópu. (Jrslitaleikur Evrópubikarkeppn-
innar milli Tékka og Vestur-Þjóðverja þótti einn bezti knattspyrnu-
leikur sem sézt hefur a.m.k. ( langan tlma og þótti bjóða upp á hið
fallegasta sem þessi (þróttagrein getur gert.
Áður en tékkneska landsliðið
komst I úrslit í keppninni lagði
það hollenzka landsliðið að velli (
undanúrslitum með 3 mörkum
gegn 1, eftir framlengdan leik,
þar sem staðan var 1:1 að venju-
legum leiktíma loknum.
FYRST A-EVRÖPULIÐA
TIL AÐ VINNA
EVRÖPUBIKAR
Slovan Bratislava, sem leikur
við Fram i kvöld, er eitt þekktasta
og elzta knattspyrnufélagið í
Tékkóslóvakíu. Það var stofnað
árið 1919 og hefur leikið í 1. deild
síðan 1935. Sjö sinnum hefur liðið
orðið tékkneskur meistari: 1949,
1950, 1951, 1955, 1970, 1974 og
1975, auk þess sem liðið hefur
fjórum sinnum unnið tékknesku
bikarkeppnina: 1962, 1963, 1968
og 1974. I ár missti félagið hins
vegar bæði af meistaratitli og bik-
armeistaratitli og var því um
kennt, að félagið ætti svo marga
menn í tékkneska landsliðinu,
sem tók þátt í erfiðri úrslita-
keppni í Evrópubikarnum þegar
keppnin I Tékkóslóvakíu stóð sem
hæst. Fór þreyta að segja til sín
hjá landsliðsmönnunum og undir
lokin missti Slovan Bratislava for-
ystuna I 1. deildar keppninni og
hafnaði I öðru sæti, einu stigi á
eftir Banika Ostrava.
Markhæstu leikmenn Slovan
Bratislava í 1. deildar keppninni
voru Jan Sevhlik, sem skoraði 9
mörk, Jan Copkovie, sem skoraði
8 mörk, og Marian Masny, Pavol
Bojkobsky og Povol, sem skoruðu
7 mörk.
í úrslitaleik tékknesku bikar-
keppninnar í ár lék Slovan Bratis-
lava svo við Sparta Prag og tapaði
2:3.
Keppnistfmabilið er nýlega haf-
ið í Tékkóslóvakiu aftur og hefur
Slovan leikið fjóra leiki í deild-
inni til þessa, unnið alla og
markatala þeirr er 13:2.
FRABÆRIR leikmenn
1 liði Slovan Bratislava er nú
valinn maður í hverju rúmi, en
frægastur allra er sennilega mið-
vörðurinn, Anton Ondrus, sem er
talinn bezti varnarleikmaður
heims. Var hann fyrir skömmu
valinn I heimslið það, sem hið
Arni Stefánsson markvörður
Fram fær ugglaust tækifæri til að
sýna sfnar beztu hliðar f leiknum
við Slovan (kvöld.
víðlesna knattspyrnutímarit
„World Soccer“ útnefnir ár hvert,
og settur þar við hlið Franc
Beckenbauers. Annar leikmaður
Slovan þótti koma sterklega til
greina I lið þetta: Pivernik.
Slovan Bratislava hefur að und-
anförnu átt sex fastamenn f tékk-
neska landsliðinu. Eru það varn-
arleikmennirnir: Pivarnik,
Ondrus, Capkovic og Gögh, og
sóknarleikmennirnir Masny og
Svehlik.
TAPAÐI FYRIR
DERBYCOUNTY
Slovan Bratislava tók þátt í
Evrópukeppni meistaraliða á síð-
asta keppnistímabili og mætti þá
ensku meisturunum Derby. Fyrri
leik liðanna, sem fram fór á
heimavelli Slovan, unnu Tékk-
arnir með einu marki gegn engu,
en Derby tókst svo að vinna leik-
inn í Englandi 3:0 og komast
áfram f keppninni. Munaði þar
mestu um framtak hins kunna
knattspyrnugarps Francis Lee,
sem skoraði tvö mörk fyrir Derby
alveg undir lok leiksins.
FRAMARAR HVERGI
SMEYKIR
Þótt við svo fræga mótherja sé
að etja eru Framarar hvergi
smeykir og eru staðráðnir í að
selja sig dýrt í leiknum i kvöld.
— Við ætlum að leika jafnvel
eða betur en við gerðum á móti
Real Madrid, þegar islenzku blöð-
in voru sammála um, að Fram
hefði sýnt einn bezta leik, sem
íslenzkt lið hefði nokkru sinni
sýnt i Evrópubikarkeppni, sagði
Jóhannes Atlason, þjálfari Fram-
aranna. — Ég er viss um að nú
eigum við miklu betra lið en við
vorum með þá, enda vorum við að
berjast á botninum i 1. deild árið
sem við lékum við Real Madrid.
Leikmennirnir hafa nú miklu
meiri trú á sjálfum sér og gefast
ekki eins upp og þeir gerðu þá.
Árangur Fram i tslandsmótinu I
sumar sýnir líka, að við eigum að
geta staðið okkur á móti þessum
körlum, þótt frægir og góðir séu.
Þetta er i fyrsta sinn sem Fram
tekur þátt í UEFA-
bikarkeppninni. Hins vegar hefur
Fram bæði leikið i Evrópubikar-
keppni meistaraliða og Evrópu-
bikarkeppni bikarhafa. Lék Fram
í Evrópubikarkeppni meistaraliða
árið 1973 og mætti þá svissneska
liðinu Basel FC. Lék Fram báða
leiki sina ytra og tapaði þeim 0—5
og 2—6. 1971 lék Fram i Evrópu-
bikarkeppni bikarhafa við Möltu-
liðið Hibernians fóru báðir leik-
irnir fram á Möltu. Fram tapaði
fyrri leiknum 0—3, en vann hins
vegar seinni leikinn 2—0. 1974
lék Fram svo við Real Madrid,
tapaði 0—2 á klaufamörkum í
Reykjavík eftir mjög góðan leik,
og svo 0—6 i Madrid.
IRSKIR DÖMARAR
Leikur Fram og Slovan Bratis-
lava hefst á Laugardalsvellinum
kl. 17.30. Dómari og línuverðir
leiksins eru frá írlandi.
Lið Slovan Bratislava. Sennilega hafa fá lið sem hingað hafa komið átt jafn mörgum frábærum
knattspyrnumönnum á að skipa. Sjö leikmanna liðsins urðu Evrópumeistarar með tékkneska landsliðinu
(sumar.
GOLFMÓT Á HÚSAVÍK
séð inn í hið nýja og glæsilega fþróttahús TBR
I BYRJUN október n.k. verður
merkum áfanga náð ( sögu T.B.R.
— Tennis- og Badmintonfélags
Reykjavíkur — en þá hefjast æf-
ingatfmar ( hinu nýja húsi félags-
ins við Gnoðarvog 1. Með tilkomu
hússins verða allmiklar breyting-
ar á starfsemi félagsins. Aðstaða
til þjálfunar mun gjörbreytast og
á það ekki einungis við um
keppnisfólk félagsins, heldur er
ætlunin að sinna unglingastarf-
inu betur en hingað til hefur
verið mögulegt. '•
Æfingatímar verða i húsinu
fimm daga vikunnar frá kl. 8 á
morgnana til kl. 21.20 á kvöldin,
en eftir þann tima eru sérstakir
tímar fyrir keppnisfólk félagsins.
Einnig verða leigðir út tímar fyrir
hádegi á sunnudögum, en laugar-
dagar og seinni hluti sunnudaga
eru ætlaðir fyrir unglingatima,
mót og frjálsa tfma. Sérstaklega
GOLFMEISTARAMÖT Norður-
lands fór fram á Húsavfk dagana
Bikarkeppni
í fjölþrautum
BIKARKEPPNI Frjálsíþrótta-
sambands Islands í fjölþrautum
fer fram á Laugardalsvellinum
18. og 19. september n.k. Keppt
verður i tugþraut karla og
fimmtarþraut kvenna. Hverju
félagi eða sambandi er heimilt að
senda þrjá þátttakendur i grein,
en stig tveggja betri verða reikn-
uð. Þátttaka tilkynnist til Sveins
Sigmundssonar i síma 26020.
er vert að vekja athygli hús-
mæðra, skólafólks og fleiri á æf-
ingatímum fyrir og eftir hádegi.
Félagið mun einnig leigja út
tima i Laugardalshöllinni, eins og
undanfarin ár. Verður þó þar sú
breyting á, að einungis verða
timar tvo daga í viku, á mánudög-
um og miðvikudögum frá kl.
16.50—19.20. Hefjast æfingar þar
20. september.
Æfingatimar verða skráðir
12.—19. september i Gnoðarvogi
1, ki. 18—19, sími 82266 og skulu
tímar greiðast við pöntun.
(Frétt fráTBR.)
28. og 29. ágúst s.l. og var þar
keppt ( þremur flokkum. karla,
kvenna og drengja, með og án
forgjafar. Fór keppnin fram á
velli Golfklúbbs Húsavfkur, sem
hefur verið endurbættur mikið að
undanförnu og er nú hinn
skemmtilegasti. Leiknar voru 36
holur og voru keppendur samtals
56—32 frá Akureyri, 10 frá Ölafs-
firði og 14 frá Húsavfk.
Helztu úrslit urðu þessi:
Karlaflokkur — án forgjafar:
Gunnar Þórðarson, GA 167
Frimann Gunnlaugsson, GA 167
Árni Jónsson, GA 171
Karlaflokkur — með forgjöf:
Jónas G. Jónsson, GH 140
Óli Kristjánsson, GH 146
Karl Hannesson, GH 146
Kvennaflokkur — án forgjafar:
Katrín Frfmannsdóttir, GA 208
Karólína Guðmundsdóttir, G A 225
Sigríður B. Ólafsdóttir, GH 236
Kvennaflokkur — með forgjöf:
Sigríður B. Ólafsdóttir, GH 166
Katrin Frimannsdóttir, GA 172
Karólína Guðmundsdóttir, GA 177
Drengjaflokkur — án forgjafar:
Jón Gunnarsson, GA 180
Stefán Jóhannsson, GÓ 189
Gunnar Straumland, GH 190
Drengjaflokkur — með forgjöf:
Jón Gunnarsson, GA 132
Stefán Jóhannesson, GÓ 141
Baldur Sveinbjörnsson GH 150