Morgunblaðið - 14.09.1976, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
39
Símamynd AP.
Maó á viðhafnarbörum — Myndin sýnir lík Maó Tse-tungs, formanns kínverska
kommúnistaflokksins á viðhafnarbörum i Höll alþýðunnar í Peking, en í gær höfðu
meir en 100 þúsund manns virt fyrir sér lík formannsins. Á laugardag komu um
50.000 manns og á sunnudag um 60.000, en kínverskir embættismenn telja að allt
að 800 þús. manns muni hafa vottað formanninum virðingu sína með þvi að koma í
Höll alþýðunnar á föstudag n.k. Daginn eftir verður mikil minningarathöfn við
Hlið hins himneska friðar í Peking. Enn er óvíst hvenær eftirmaður Maós verður
valinn og hver hann verður.
Friðarlíkur í
Líbanon dofna
Beirut 13. september — Reuter.
NVlR bardagar á „grænu lín-
unni“ svokölluðu, sem skiptir
Beirut (tvennt, drógu ( dag held-
ur úr lfkum á þvf, að hið tiltölu-
lega góða andrúmsloft, sem rfkt
hefur f Lfbanon að undanförnu
fyrir pólitfskar samningaviðræð-
ur til lausnar borgarastyrjöld-
inni, héldist til langframa. Við
safnahúsið f Beirut, sem er á
grænu Ifnunni og er eini staður-
inn þar sem leyfður er samgang-
ur milli austurhluta borgarinnar
undir stjórn hægri manna og
vesturhlutans undír stjórn vinstri
manna, héldu leyniskyttur uppi
skothrfð f morgun og sfðan hófu
hægri sveitir sprengjuárásir á
stöðvar vinstri manna, að þvf er
vitni skýrðu frá.
Ef bardagar halda áfram um-
hverfis safnahúsið, þar sem
friðar'gæzlusveitir Arababanda-
lagsins halda uppi eftirliti, er
talið sennilegt, að líkur minnki á
því, að friðarsamkomulag liggi
fyrir 23. september, þesar kjör-
inn forseti landsins. Elias Sarkis,
tekur við af Suleiman Franjieh.
Allir strfðsaðilar í Líbanon hafa
tekið þátt f samningaumleitunum
að undanförnu.
Sérlegur sendimaður Hafez
Assad, Sýrlandsforseta f Líbanon,
Johammed Al-Kholi ofursti flutti
I dag boð til Franjiehs frá Assad,
og sfðar hugðist hann eiga fund
með Pierre Gemayel, leiðtoga
falangista, og Sarkis.
AP-mynd.
Konsningabaráttan hafin — Jimmy Carter, frambjóð-
andi demókrata í forsetakosningunum í Bandaríkjun-
um, fær hlýlegar móttökur við upphaf kosningabar-
áttu sinnar í síðustu viku í heimaríki sínu, Georgíu.
Alkirkjuráðið hvetur
til mótmæla gegn Chile
Genf 13. september — Reuter.
ALKIRKJURÁÐIÐ krafðist þess
f dag að aukinn yrði þrýstingur á
það að Hernan Montealegre, chil-
enskur lögfræðingur, sem var áð-
ur ræðismaður f Bretlandi, verði
látinn laus úr haldi f Chile. Ráðið
Enn myrða
skæruliðar
í Argentínu
Buenos Aires 13. september — AP.
TALIÐ er, að vinstri sinnaðir
skæruliðar hafi staðið á bak við
sprengingu, sem varð í lögreglu-
rutu í gærkvöldi í borginni Ros-
ario f Norður-Argentínu, og sfðan
varð hún fyrir vélbyssuskothríð
að þvf er heimildir innan lögregl-
unnar sögðu. Að sögn hersins
biðu níu lögreglumenn og tveir
óbreyttir borgarar bana, og þrfr
borgarar til viðbótar særðust. Þá
hermdu heimildir innan lögregl-
unnar, að 12 manns hefðu beðið
bana og a.m.k. 17 særzt, er skæru-
liðarnir sprengdu lögreglurútuna.
Þetta mannfall þýðir, að a.m.k.
946 manns alls hafa beðið bana í
pólitískum ofbeldisvekum á þessu
ári i Argentfnu, samkvæmt opin-
verum tölum. Þar af hafa 752
a.m.k. farizt frá þvf herforingja-
stjórnin tók við völdum af Isabel
Peron 24. marz.
segir, að handtaka hans kunni að
vera táknræn fyrir þá hnignun,
sem orðið hefur f Chile á sviði
mannréttinda, og raunar öðrum
löndum f Suður-Amerfku.
Montealegre hafði unnið fyrir
erkibiskupinn f Santiago, áður en
hann var handtekinn, og hann
hefur verið hafður f haldi án þess
að ákæra hafi verið lögð fram.
Tilraunir chilensku kirkjunnar
til að fá hann látinn lausan hafa
ekki borið árangur, og skorar al-
kirkjuráðið á kirkjur um heim
allan að láta f Ijós kröftug mót-
mæli við fulltrúa Chile erlendis
og krefjast þess að Montealegre
verði sleppt.
Rannsókn á flug-
slysinu hófet í gær
Zagreb 13. september — Reuter.
I DAG hófst í Zagreb í Júgóslavíu
rannsókn á versta árekstri í lofti
sem orðið hefur i sögunni,
—árekstri brezkrar Tridentvélar
frá British Airways og júgóslav-
neskrar DC-9 leiguvélar s.l. föstu-
dag, en þá fórust 176 manns. Atti
í dag að yfirheyra fimm manns,
sem verið hafa í haldi vegna
gruns um vanrækslu í starfi, en
nöfn þeirra hafa ekki verið birt. I
gær var þjóðarsorg í Júgóslavíu
vegna slyssins.
Alþjóðadóm-
stóllinn hafnar
kröfu Grikkja
Alþjóðadómstóllinn hafn-
aði í dag kröfu Grikklands
um að tímabundið bann
yrði sett á olíuleit Tyrkja á
Eyjahafi, en Grikkir og
Tyrkir deila um yfirráð
yfir því. Það voru 15 fasta-
dómarar dómstólsins, sem
tilkynntu um úrskurðinn.
Grikkir héldu því fram fyr-
ir dómstólnum í síðasta
mánuði að olíuleit banda-
manna þeirra í Atlants-
hafsbandalaginu, Tyrkja,
væri ógnun við friöinn á
svæðinu. Sögðu þeir að leit-
arskipið Sismik—1 hefði
rofið landhelgi Grikklands.
Kröfðust þeir að tímabund-
ið bann yrði sett á olíuleit-
ina. Hafnaði dómstóllinn
því með 12 atkvæðum gegn
1. Tveir dómarar tóku ekki
þátt í vitnaleiðslunum.
Koma togaranna um 40
talsins, ber upp á sama
tíma og miklar torfur af
makrll halda inn á miðin
undan ströndum Devon-
héraðs. Fiskimenn þar ótt-
ast, að þessir erlendu tog-
arar með fullkominn
frystiútbúnað muni ýta
„Ömurlegt plagg”
— segir Allon um skýrslu embættismanns
Jerúsalem 13. september — Reuter.
YIGAL ALLON, utanrfkisráð-
herra tsraels, fordæmdi I dag
skýrslu embættismanns ísraelsku
rfkisstjórnarinnar, þar sem mælt
er með þvf, að settar verði hömlur
á fólksfjölgun á svæðum Araba f
Galfleu, og kallaði hana „ömur-
legt plagg“. Allon sagði, að skýrsl-
an, sem unnin var af Yisroel
Koenig, aðalfulltrúa stjórnar-
innar f Galfleu, hefði skaðað orð-
stfr tsraels sem lýðræðisrfkis og
spillt fyrir viðleítninni til að
skapa friðsamlega sambúð milli
Araba og Gyðinga. Þetta er harð-
asta árás af hálfu rfkisstjórnar-
Enn frestar
Tito heimsókn
Beljjrad 13. september-Reuter.
TITO Júgóslavfuforseti frestaði f
dag iiðru sinni á einni viku opin-
berri heimsókn erlends þjóð-
höfðingja til landsins, en hann
gengst undir læknismeðferð
vegna lifrarsjúkdóms. Tilkynnt
var á föstudag f Belgrad, að fjög-
urra daga heimsókn Giscard
d’Estaings forseta Frakklands
hefði verið frestað, og f dag var
tilkynnt að fjögurra daga heim-
sókn Margrétar Danadrottningar
hefði einnig verið frestað, en hún
átti ekki að hefjast fyrr en
28,september.
Fréttaskýrendur f Belgrad
segja að þessi tilkynning kunni
að vera tilraun til að stöðva
vangaveltur fréttamanna um að
yfirlýsingin um veikindi Titos
eigi sér pólitíska undirtóna.
innar á skýrslu þessa, sem hið
vinstri sinnaða dagblað A1
Hamishmar birti f sfðustu viku f
heimildarleysi. I henni er hvatt
til harðra refsinga gegn arabfsk-
um leiðtogum f Galfleu sem gagn-
rýna rfkisstjórnina, niðurskurðar
opinberra fjölskyldubóta til fjöl-
mennra arahfskra fjölskyldna og
til þess að ungir Arabar stundi
nám elendis, — og verða þar sfð-
an eftir.
Helsingfors í
Sovétríkjimiim?
Helsinsfors 13. september — NTB
ER Helsingfors f Finnlandi
eða í Sovétrfkjunum? Þeirrar
spurningar spyrja margir eftir
að hafa skoðað nýjasta auglýs-
ingabækling finnska flugfé-
lagsins Finnair, sem ætlaður
er bandarfskum markaði. A
kápunni er maður hvattur til
að fara í fimmtán daga ferð
um Sovétríkin og heimsækja
18 stórborgin. Meðal þessara
sovézku borga nefnir flugfé-
lagið, sem er rfkisrekið,
Moskvu, Kiev, Leningrad, Tall-
in og Helsingfors. Kvöldblaðið
Ilta sanomat hefur spurt
markaðsstjóra Finnair, Risto
Ojanen, hvort þetta gefi ekki
vísbendingu um að Helsing-
fors sé f Sovétríkjunum. „Nei,
við höfum ekki orðið varir við
að fólk skilji þetta þannig.
Fólk, sem fer í svona löng
ferðalög er venjulega vel upp-
lýst og veit betur,” sagði
Ojanen.
A-Evrópskir togarar
hrella enska siómenn
London 13. september.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP:
FLOTI rússneskra og rúm-
enskra togara, sem nú er
kominn á miðin undan suð-
urströnd Englands hefur á
ný vakið ótta um afkomu
2000 brezkra sjómanna,
sem veiða á heimamiðum.
þeim alveg af miðunum og
hirða lífsviðurværi þeirra.
Les Cunningham, formaður
samtaka fiskimanna i Suðvestur-
Englandi, sagði í dag: „Rússar eru
ógnun, sem við virðumst þurfa að
búa við til langframa. Floti 100
veiðiskipa getur aflað um 4.000
tonna á dag og slík veiði getur
riðið fiskistofnunum að fullu."
Hann sagði, að fiskimenn á þessu
svæði kynnu að verða atvinnu-
lausir innan eins árs nema brezka
ríkisstjórnin geri eitthvað til að
stöðva ofveiði erlendra togara.
David Mudd, þingmaður fyrir
héraðið, sagði i dag um veiðar
austur-evrópsku togaranna: „Sú
staðreynd, að þeir voru mættir til
leiks strax á fyrsta degi veiðitima-
bilsins, sýnir, að þeir eru stað-
ráðnir i þvi að þurrausa miðin af
fiski.“