Morgunblaðið - 14.09.1976, Page 40
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JftvtQnnbUibib
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JR*r0tinbtaí)iíi
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976
Skeiðarárhlaup fyrr á
Mosfellssveit:
ferðinni en ætlað var
Lítil stúlka
FLEST bendir nú til þess, að
hlaups sé að vænta úr Skeiðará,
en vatnsborð hækkar hægt og
stöðugt ( ðnni samfara mikilli
jöklafýlu, að sögn Sigurjöns Rist
vatnamælingamanns, en hann
hugðist halda austur f nótt sem
leið og byrja mælingar á ánni (
dag.
Sigurjón sagði, að bezta vís-
bendingin um hlaup væri alla
jafnan jöklafýlan og eins það, að
miðað við eðlilegar kringumstæð-
ur hefði áin á þessum árstima
fremur átt að lækka vegna þess
frost væri á jöklinum um nætur
Að sögn Sigurjóns er aðdrag-
andinn nú alveg samsvarandi þvf,
sem verið hefur í fyrri hlaupum,
en venjan væri sú, að þetta væri
hæg þróun og gæti tekið hálfan
mánuð til þrjár vikur, þar til
hlaupið næði hámarki. Hins vegar
væri þetta hlaup heldur fyrr á
ferðinni en menn hefðu reiknað
Framhald á bls. 26
Flugránsnefndin:
Fleiri en ein
áætlun er til
með tilliti til mismunandi aðstæðna
FLUGRANSNEFNDIN svo-
nefnda kom saman til fundar (
Reykjavfk í gær og fóru nefndar-
menn þar yfir starfsskipulag sitt
með tilliti til aðgerða á Keflavfk-
urflugvelli sl. laugardag vegna
komu króatfsku flugræningjanna
á TWA-þotunni. Það var sam-
dóma álit þeirra tveggja nefndar-
Búið að salta
7 þús. tunnur
TREG sfldveiði var hjá rek-
netabátunum f gærdag og
komst aflinn hæst upp f 60
tunnur hjá einum bátnum,
sem leggur upp á Hornafirði.
Veiðin hefur verið að tregast
töluvert sfðustu dagana.
Að sögn síldarútvegsnefndar
var sl. laugardag búið að salta í
kringum 7 þúsund tunnur.
Sfldin sem veiðist er yfirleitt
fremur stór og falleg og hentar
vel til söltunar.
manna, sem Mbl. ræddi við f gær,
þeirra Kristins Gunnarssonar,
fuiltrúa samgönguráðuneytisins,
og Pétur Guðmundssonar flug-
vallastjóra, að starfsskipulag
nefndarinnar hefði gefið mjög
góða raun.
Báðir lögðu þeir Kristinn og
Pétur ríka áherzlu á, að ekki væri
hægt að gefa neinar frekari upp-
lýsingar um það f hverju starfs-
skipulag nefndarinnar væri fólg-
ið, heldur væri hér eðlilega um
algjört trúnaðarmál að ræða og
helgaðist leyndin af því, að fyrir-
byggja að flugránshópar fengju
upplýsingar fyrirfram um við-
brögð yfirvalda á Keflavíkurflug-
velli við einstökum tilfellum í lík-
ingu við ffugránið á laugardag.
Pétur Guðmundsson flugvalla-
stjóri tók fram, að innan starfs-
skipulags nefndarinnar væru
fleiri en ein áætlun og miðuðust
þessar áætlanir við að taka til
allra hugsanlegra aðstæða, sem
kynnu að skapast.
Það verður að kafa djúpt f tunnuna til þess að leggja fyrsta sfldarlagið,
en þær vfla það ekki fyrir sér sfldarstúlkurnar f Eyjum fremur en
annars staðar. Myndina tók Sigurgeir f Eyjum um helgina, þegar
söltun hófst þar. Sjá bls. 3.
drukknaði í
afrennslisþró
ÞAÐ hörmulega slys varð á Teigi
f Mosfellssveit skömmu fyrir
klukkan 19 á sunnudaginn, að
fjögurra ára stúlka féll f
afrennslisþró, sem full var af
vatni, og drukknaði stúlkan f
þrónni. Lítla stúlkan hét Jóna
Sigurðardóttir, Asmundarstöðum
II, Asahreppi, Rangárvallasýslu.
Jóna litla var fædd 1. marz 1972
og var dóttir hjónanna Nönnu
Bjargar Sigurðardóttur og Sig-
urðar Garðars Jóhannssonar.
Nánari atvik voru þau, að for-
eldrar Jónu komu að Teigi undir
kvöldmat á sunnudag, en þangað
áttu þau erindi. Stoppuðu þau þar
í hálftíma og ætlaði Jóna litla að
vera úti við leik á meðan. Þegar
foreldrarnir bjuggust til brottfar-
ar, var farið að svipast um eftir
Jónu og fannst hún fljótlega í
frárennslisþrónni. Var hún þá lát-
in.
Þró þessi er steypt, um einn
metri á dýpt, og var hún full af
vatni. Liggur þróin meðfram
hænsnahúsi á staðnum, en á Teigi
er alifuglabú.
94 skjálftar mælast nú
við Kröflu á sólarhring
SAMKVZFIVIT cfðnctii mælimr- fn11 (clmAo fí 1 »A dobn A w ««
„SAMKVÆMT sfðustu mæling-
um okkar fer virkni enn vaxandi
á Kröflusvæðinu og margvfslegar
athuganir þarna upp á sfðkastið
gefa til kynna, að það er a.m.k.
Strangt eftirlit með veiðum útlendinga:
Uppistaðan er karfi og ufsi,
þrír steinbítar og tíu síldar
VARÐSKIPSMENN hafa strang-
ar gætur á veiðum erlendra fiski-
skipa hér við land, og sfðast á
sunnudag var farið um borð f
einn þýzkan togara og einn brezk-
an fyrir Suðausturlandi.
Varðskipsmenn könnuðu sér-
staklega samsetningu aflans f v-
þýzka togaranum, og komu í ljós í
lest skipsins 400 kassar af karfa
og um 1600 kassar af ufsa. í síð-
asta togi skipsins reyndist uppi-
staðan vera karfi og ufsi, en auk
þess þrír steinbítar og 10 síldar,
svo að nákvæm hefur athugunin
verið.
Öll veiðarfæri v-þýzka togarans
reyndust vera í lagi og sömu sögu
er áð segja um veiðarfæri og afla
brezka togarans, sem varðskips-
menn fóru um borð í. Að sögn
Gunnars Ólafssonar hjá stjórn-
stöð Gæzlunnar er haft strangt
eftirlit með veiðum fiskiskipa við
landið og skoðunarferðir af þessu
tagi alltaf farnar öðru hverju.
í gær voru að veiðum hér við
land 17 v-þýzkir togarar, 4 belg-
ískir, þrír færeyskir og 22 brezkir,
en auk þess 2 á siglingu áleiðis til
Englands og einn að koma á mið-
full ástæða til að slaka hvergi á
eftirliti með goshættunni,“ sagði
Axel Björnsson jarðeðlisfræðing-
ur f samtali við Morgunblaðið f
gær, en hann hefur umsjón með
gosvaktinni, sem svo er nefnd,
fyrir Orkustofnun.
Axel sagði, að sérstaklega hefði
nú síðustu dagana orðið mikil
aukning á tíðni jarðskjálftanna á
svæðinu og miðað við fimm daga
meðaltal mælast nú 94 skjálftar
þar á sólarhring, en skjálftarnir
fara einstöku daga niður í 75 yfir
sólarhringinn og allt upp í 120.
Sagði Axel, að skjálftatíðnin á
svæðinu hefði ekki orðið meiri
allt frá þvf að gaus í Leirhnjúki.
Einnig sagði Axel, að nýlegar
mælingar á landrisi sýndu, að ris-
ið hefði lítið eitt hægt á sér, eða
FYRSTU RÉTTIR HAUSTS-
INS — Þúsundum fjár er þessa
dagana smalað til rétta um land
allt. Þessi mynd var tekin f
Tjarnarrétt í Kelduhverfi í N.-
Þing. sl. föstudag. — Sjá grein
um Tjarnarré‘t á bls. 10 og 11 í
blaðinu f dag. i jósm. Mbl. t.g.
Jarðskjálftatíðn-
in hefur vaxið
ört síðustu daga
og ekki orðið
meiri frá gosi
frá því að vera 6,5 mm á sólar-
hring f 5.3 mm á dag, en risið væri
engu að síður enn verulegt.
Þá er hallinn á stöðvarhúsinu
nú mældur daglega, og virðist það
stöðugt vera að rétta sig af og ris
norðurenda hússins er um 0.15
mm á dag miðað við suðurendann
siðustu 25 dagana, og ekki að sjá,
að neitt lát sé á þessu risi, að sögn
Axels.
Axel kvað því augsýnilegt, að
virknin færi stöðugt vaxandi,
breytingar mætti greina á hvera-
svæðinu og til þessa hefði einn
nýr hver myndazt, en sá væri lítið
Framhald á bls. 26
Dagvistunar-
gjöld hækka
DAGVISTUNARGJÖLD á dag-
heimilum og leikskólum Sumar-
gjafar hækkuðu um sfðustu
mánaðamót um 9%. Dagheimila-
gjöld hækkuðu úr 11 þúsund f 12
þúsund krónur fyrir mánuðinn og
leikskólagjöld úr 5.500 krónur f 6
þúsund krónur fyrir mánuðinn.
Mbl. fékk þær upplýsingar á
skrifstofu Sumargjafar, að þessi
hækkun væri tilkomin vegna
launahækkana, en um 80% af
rekstrarkostnaði stofnananna er
launakostnaður. Ríkissjóður
Framhald á bls. 26