Morgunblaðið - 02.10.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1976
3
Hugmynd um vamargarda vid Kröfiu
Flutningur á 180 þúsund
rúmmetrum af jarðvegi
ORKUSTOFNUN hefur nú sent frá sér tillögur um gerð varnar-
garða vegna hugsanlegs hraunrennslis frá Leirhnjúk við Kröflu
og gerir tillagan ráð fyrir tveimur varnargöðum og einum skurði
til að veita hrauni. Tillögurnar miðast við gos f Leirhnjúk eins og
fyrr er sagt og þunnfljótandi hrauni.
S:mkvæmt uppiýsingum
Axels Björnssonar hjá Orku-
stofnun er gert ráð fyrir öðrum
varnargarðinum uppi á brekk-
unni fyrir norðan stöðvarhúsið,
en þar er skarð niður i Hlíðar-
dalinn. Þessi varnargarður yrði
rétt vestan við holu 8 sem verið
er að ljúka við, og á garðurinn
að veita hrauni frá Leirhnjúk
ofan í Þríhyrningadal.
Kortið sýnir hug-
myndirnar að varnar-
görðunum við Kröflu
vegna hugsanlegs eld-
goss í Leirhnjúk.
Gert er ráð fyrir hinum
varnargarðinum beint vestur af
stöðvarhúsinu í Skarði sem er i
Þríhyrningadal, en skarðið gef-
ur greiða leið fyrir hraun-
rennsli úr Þrihyrningadal og
inn í Hlíðardal.
Þriðja aðgerðin sem lagt er
til að sé framkvæmd er sú að
lækka Þríhyrningadalinn til
suðurs úr dalnum niður í
Hlíðardal um Hvíthóla klif, en
það er um 1 km. fyrir sunnan
við stöðvarhúsið.
Efnismagn í garðinn uppi á
brekkunni er áætlað um 88 þús.
Framhald á bls. 18
Akureyri:
Ibúar vöknuðu
við eld í húsinu
Innbrotsþjófur kveikti í húsgögnum
Akureyri 1. okt.
UNGUR piltur sem leigir her-
bergi á jarðhæð í húsi einu hér í
bæ vaknaði af værum svefni kl. 1
i nótt við það að eldur logaði á
hæðinni. Hann ætlaði að forða sér
út, en komst ekki út um útidyrnar
vegna þess að mikið eldhaf var í
forstofunni. Hann sneri við og gat
forðað sér út um glugga og gert
eigendum hússins, hjónum, sem
búa á efri hæð, viðvart um eldinn.
Þegar húsbóndinn kom niður
varð hann þess vísari að eldur
logaði í sófa og hægindastól í
stofu og úlpa piltsins f forstof-
unni var brunninn til ösku. Fljót-
lega tókst að slökkva eldinn, en í
úlpunni hafði verið veski piltsins
með um 22 þús. kr. Greinilegt var
að einhver óboðinn gestur hafði
smeygt sér inn um gluggann, sem
hafði verið ókræktur og lagt eld í
húsgögnin og úlpuna, en horfið
síðan á braut. Miklar skemmdir
urðu af eldi og reyk, einkum á
jarðhæðinni. Lögreglan vinnur
nú að rannsókn málsins.
Sv.P.
Garðabær:
Eitrað fyrir
faraó-maurimum
BUlÐ er að eitra fyrir faraó-
maurunum sem fundust I húsi (
Garðabæ, en maurar þessir
tímgast mjög ört þar sem þeir
ná bólfestu. Maurarnir geta
borizt með matvælum eða far-
angri, en undanfarnar vikur
hafa útlendingar, rússneskir
vísindamenn, búið I húsinu
sem um er að ræða og er Ifklegt
talið að maurarnir hafi borizt
meó farangri þeirra.
Maurar þessir eru skaðlausir
mönnum en þeir geta ráðizt á
matvæli og þessi maurategund,
faraó-maurarnir, sem eru upp-
runnir f Indlandi, hafa breiðzt
út um heiminn sem meindýr.
Þeir eru um 1,5 millimetrar á
lengd, brúnir að lit.
Mjög stækkuð mynd af faraómaurum eins og þeim setn fundust f
húsi f Garðabæ. Þeir eru um 1.5 millimetrar á lengd.
AJAX er fljötvirktferskt sem sítróna.
AJAX með sítrónukeim
nýja uppþvottaefnið,
sem
fjarlægir fitu
fljótt og vel.
Nýja AJAX -
uppþvottaefnið
fjarlægir fituleifar án
fyrirhafnar. Teskellur
- eggjabletti - varalit.
Vinnur bug á lyk
jafnvel fisk- og
lauklykt - heldur
uppþvottavatninu
ilmandi.
AJAX með
sítrónukeim - A
hin ferska
orka.
■ k■■ *v t * ■'