Morgunblaðið - 02.10.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.10.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1976 Svo mælti Svarthöfði Svarthöfði Vfsis segir í I fyrradag: ,, Morgunblaðið | hefur endurprentað þau ■ sjónarmið Ragnars Arn- | alds, formanns Alþýðu . bandalagsins (sem sam- kvæmt settum reglum þess flokks á ekki að gegna formannsstarfinu nema takmarkaðan tíma), að islenzkum kommúnist um sé ekki vandara um að mynda stjórn með borgaraf lokkunum, sem standa að aðild að Nato, en þeim ítölsku, er hafa I marglýst því yfir, og þó einkum Berlinguer, for- I maður þeirra, að þeir myndu ekki gera ágrein- I ing út af veru Ítalíu f ' Nato, þótt þeir tækju þátt I I samsteypustjórn. ' Samkvæmt þessu hefur I Einar Ágústsson, utan- I rfkisráðherra, verið illa | hrakinn að nauðsynja- I lausu f sfðustu vinstri I stjórn, fyrst þátttaka ' íslands f Nato er algjört I aukaatriði. Svo skjótt ' hafa skipast veður f lofti hjá formanni Alþýðu- bandalagsins, að engu er Ifkara en hann sé með þessu að biðla til Sjálf- stæðisflokksins og blása til nýrrar stjórnar. Birting Morgunblaðsins á umm- ælum Ragnars Arnalds gæti bent til þess, að þeim megin þyki ástæða til að benda á hugrenning- ar Ragnars um nýja leið til samstarfs við Sjálfstæðis- flokkinn" Bónorð Al- þýðubanda- lagsins „Sé það staðreynd, að einhverjir menn hugleiði nú, þegar Nato er úr leik sem stórpólitfk á íslandi, hugsanlega samstjórn með kommúnistum, áður en þjóðin er komin úr öng- þveitiskafinu eftir sfðustu vinstri stjóm, þá má búast við að efnahagskollsteyp- urnar verði svo hraðar, að ekki reynist nægur tfmi til að draga f land á milli. Eins og efnahagsástandið er nú er það beinlfnis borgaraleg skylda að vfsa öllum bónorðum komm- únista á bug, hvort sem þau eru rituð á bréfsefni frá Natoeða eitthvaðann- að. Það skal haft f huga að 50—60% verðbólga, sem við hefur verið að glfma fram á þetta ár, er afraksturinn af fjármála- stefnu vinstri stjórnarinn- ar. Það er ekki að efa, að Ólafur Jóhannesson, for- sætisráðherra vinstri stjórnarinnar, sá snemma fyrir til hvers stjórnarsam- starfið ætlaði að leiða. En honum reyndist erfiðara úr að komast en f að fara, og sú rfkisstjóm, sem nú situr, hefur varla haft tfma til að sinna öðru en björgunarstarfi, sem hvergi nærri er lokið." Að skapa öngþveiti Enn segir Svart- höfði:„Það er gott og blessað ef fráfarandi for- maður Alþýðubandalags- ins hef ur fengið Ijós sann- leikans sent frá Berlinguer á ítalfu, f mynd einskonar lasergeisla, til að auðga og fjörga póli- tfskt andrúmsloft á íslandi. Að vfsu finnst mörgum, sem við nóg sé að fást, þótt ekki bætist við einskisverð umræða um nýja stöðu fslenzkra kommúnista f Nato- málinu, en svo er til orða tekið, að eins er vfst að Natoþfða kommúnista f V- Evrópu standi ekki degin- um lengur en hún þjónar þeim sjálfum. Flokkar, sem hafa að stefnumiði að leggja lýðræðið að velli, geta ekki til lengdar stutt við bakið á vopnuð- um vfgbúnaði til varnar því. Þessvegna er stefnu- mörkun Berlinguer langt frá þvf að vera sfðasta orðið f þeirri baráttu um valdatöku, sem nú er háð í flestum löndum Evrópu vestantjalds, og byggist öðrum þræði á þvf, að skapa eins mikið öng- þveiti og hægt er með sf- endurtekinni þátttöku f samsteypustjórnum, en gera sfðan hlé á milli til að halda borgaralegum stjórnum önnum köfnum við björgunarstörf. Eflaust Iftur Alþýðubandalagið svo á, að þegar verðbólga sé komin niður f 30% megi fara að ýja að nýrri stjómarmyndun svo hrunadansinn geti hafist að nýju." Þríklofinn einingar- flokkur Áður hefur fram komið f blaðafréttum að kjör- dæmisráð SVF á Vest- fjörðum hefur gert sam- þykkt um kosningasam- starf og jafnvel samruna við Alþýðuflokkinn. Þá hefur Ólafur Ragnar Grfmsson lýst þvf yfir, sem talsmaður eins flokksbrotsins, að hann telji sig fremur eiga sam- leið með Alþýðubandalag- inu en Alþýðuflokknum. í fyrradag birti Alþýðublað- ið samtal við þá Einar Hannesson, einn af forystumönnum SVF f Reykjavfk, og Kára Arnórsson skólastjóra, frambjóðanda SVF f Norðurlandskjördæmi eystra f sfðustu þingkosn- ingum. Báðir lýsa þeir þeirri skoðun sinni að SFV muni starfa áfram, f óbreyttri mynd, og frá- biðja sér vegvfsa yfir til krata og/ eða komma. Þar með eru samtökin þrf- klofin um það eitt, hvort þau skuli sem slfk lifa áfram, eða endurholdgast á öðrum tilverustöðum vinstri einingarinnar á íslandi. Jíltöáur á morgun k mmm DOMKIRKJAN Prestvigsla kl. 11 árd. Biskup Islands vígir 6 kandi- data. Þeir eru: Gunnþór Inga- son, settur prestur I Staðar- prestakalli f Isafjarðarprófasts- dæmi. Hjálmar Jónsson, settur prestur í Bólstaðarprestakalli f Húnavatnsprófastsdæmi. Pétur Þórarinsson, settur prestur í Hálsprestakalli f Þingeyjarpró- fastsdæmi. Sighvatur Birgir Emilsson, settur prestur í Hóla- prestakalli í Skagafjarðarpró- fastsdæmi. Vigfús Ingvar Ingvarsson, settur prestur i Vallanesprestakalli f Múla- prófastsdæmi. Vigfús Þór Árnason, settur prestur í Siglu- fjarðarprestakalli í Eyjafjarð- arprófastsdæmi. Sr. Birgir Snæbjörnsson lýsir vfgslu. Víglsuvottar auk hans prófast- arnir sr. Björn Björnsson, sr. Pétur Ingjaldsson, sr. Sigurður Kristjánsson og sr. Stefán Snævarr. Gunnþór Ingason prédikar. ÁSPRESTAKALL. Guðþjón- usta kl. 2 sfðd. að Norðurbrún 1. Framhaldsstofnfundur Safn- aðarfélags Ásprestakalls að lok- inni messu. Kaffidrykkja. Séra Grfmur Grfmsson. HALLGRIMSKIRKJA Messa kl. 11 árd. Séra Karl Sigur- björnsson. Fjölskyldumessa kl. 2 síðd. Séra Ragnar Fjalar Lár- usson. LANDSSPITALINN. Messa kl 10 árd. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. LAUGARNESKIRKJA. Messa kl. 2 síðd. (Ath. breyttan tima). Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd. Séra Garðar Svavarsson. FELLA- OG H0LAS0KN. Barnasamkoma f Fellaskóla kl. 11 árd. Guðþjónusta í skólanum kl. 2 síðd. Séra Hreinn Hjartar- son. GRENSÁSKIRKJA. Guðþjón- usta kl. 11 árd. Séra Jón Bjarman messar. Barnasam- komur hefjast 10. október næst- komandi. Séra Halldór S. Gröndal. HÁTEIGSKIRKJA. Messa kl. 2 sfðd. Séra Arngrímur Jónsson. FlLADELFlUKIRKJAN. Safn aðasamkoma kl. 2 síðd. Almenn samkoma kl. 8 sfðd. Guðmund- ur Markússon. HJÁLPRÆÐISHERINN. Helgunarsamkoma kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 2 sfðd. Her- samkoma á Lækjartorgi ef veð- ur leyfir kl. 4 síðd. Hjálpræðis- samkoma kl. 8.30 sfðd. Kafteinn Daníel Óskarsson. FRlKIRKJAN REYKJAVlK. Messa kl. 2 sfðd. Ferming og altarisganga. Séra Þorsteinn Björnsson. DOMKIRKJA KRISTS Kon- ungs I.andakoti. Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síðd. LANGHOLTSPRESTAKALL. Messa kl. 11 árd. Ferming. Séra Árelíus Nfelsson. Messa kl. 1.30 sfðd. Ferming. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. NESKIRKJA. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Séra Guðmundur Óskar Ólafsson. Guðþjónusta kl. 2 sfðd. Vinsamlegast athugið breyttan messutíma (vetrar- messutfmi). Séra Frank M. Halldórsson. Aðalsafnaðar- fundur f félagsheimili kirkj- unnar hefst að lokinni guðþjón- ustu, sem hefst kl. 2 sfðd. Sókn- arnefndin. ÁRBÆJARPRESTAKALL. Barnasamkoma í A'íbæjarskóla kl. 10.30 árd. Guðþjónusta f Guðspjall dagsins: Lúk. 7, 11.—17.: Sonur ekkjunnar f Nain. skólanum kl. 2 síðd. (Ath. breyttan messustað og tíma.) Séra Guðmundur Þorsteinsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL. Barnaguðþjónusta kl. 11 árd. f Breiðholtsskóla. Óskað eftir þátttöku foreldra. Séra Lárus Halldórsson. ELLI- OG hjúkrunarheimilið Grund. Messa kl. 2 sfðd. Kirkju- kór Breiðholtssóknar syngur, séra Tómas Sveinsson Sauðár- króki prédikar. Heimilisprest- urinn. BUSTAÐAKIRKJA. Barnasam- koma kl. 11 árd. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Fundur f Æskulýðs- félaginu kl. 8.30 sfðd. Séra Ólaf- ur Skúlason. K0PAVOGSKIRKJA. Guðþjón- usta kl. 11 árd. Séra Árni Páls- son. GARÐAKIRKJA. Barnasam- koma f skólasalnum kl. 11 árd. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra Bragi Friðriksson. MOSFELLSPRESTAKALL. Messa i Lágafellskirkju kl. 2 síðd. Sóknarprestur. FRlKIRKJAN Hafnarfirði. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðþjónusta kl. 2 sfðd. Séra Magnús Guðjónsson. NJARÐVlKURPRESTAKALL. Innri-Njarðvíkurkirkja. Sunnu- dagaskóli kl. 11 árd. 1 Stapa sunnudagaskóli kl. 2 sfðd. Séra Páll Þórðarson. KEFLAVIKURKIRKJA. Messa kl. 2 sfðd. Séra Ólafur Oddur Jónsson. GRINDAVlKURKIRKJA. Messa kl. 2 sfðd. Sóknarprestur. EYRARBAKKAKIRKJA. Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. STOKKSEYRARKIRKJA. Guð- þjónusta kl. 2 sfðd. Sóknar- prestur. SELFOSSKIRKJA. Sunnu dagaskóli kl. 11 árd. Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA. Messa fellur niður vegna viðgerðar á orgeli. Séra Björn Jónsson. 7 SNOGH0J NORDISK R)l.KI:.iklJSKO.I.E vert LiiiehÆit 6. mánaða námskeið frá 1 /1 1 4. mánaða námskeið frá 6 / 1 Nemendur frá 1 8 ára aldri. Námsferð til eins af Norðurlöndunum. Sendið eftir bæklingi. DK 7000 Fredericia Danmark tlf. 05 -94 2219 Forstander Jakob Krogholt OOODfYEAR SNJÓDEKK A flestar tegundir bifreiða - FYRIRLIGGJANDI SNJÓDEKK á Austin Mini kr. 4.423,— GÚMMÍVINNUSTOFAN Skipholti 35 — Sími 31055 VORUM AÐ TAKA UPP MIKIÐ ÚRVAL AF TANDBERG SEGULBANDSTÆKJUM GEÍl H [1[B)H HAFNARSTRÆTI 17 ELLUKf SÍMÍ 20080

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.