Morgunblaðið - 02.10.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÖBER 1976
11
Haustlaukar: Hvft perlulilja
OfurlUið um haust-
störfí görðum
NÚ stendur yfir gróðursetningartimi haustlaukanna. Þeir eiga helst
að vera settir niður svo snemma að þeir byrji að mynda rætur áður
en moldin frýs. Jarðvegurinn á að vera vel framræstur og fremur
laus, það má ekki þrýsta laukunum fast niður. Flestar laukjurtir
þrífast í venjulegri, góðri garðmold. Ef hún er full rök eða þétt er til
bóta að láta ofurlitið af sandi undir laukana og jafnvel í kringum þá.
Gáið vel að því að laukarnir snúi rétt þegar þeir eru settir niður og
betra er að setja þá á alla kanta aðra en að rótarendinn snúi upp!!
Laukarnir eru settir misdjúpt eftir stærð og tegundum, stórir
laukar dýpra en smáir, að jafnaði, en ekki er það þó algild regla.
Spyrjið því jafnan um leið og þið kaupið lauka hve djúpt þeir skuli
settir, þ.e. hve þykkt moldarlag skuli vera ofan á þeim. Haustlaukar
blómgast snemma á vorin, missnemma þó og fer það eftir tegundum
og vaxtarskilyrðum. Fyrst vitanlega móti sól og upp við húsvegg.
Sumar tegundir blómgast ár eftir ár t.d. páskaliljur, sumir túlípan-
ar, svo sem kaupmannatúlípanar og ýmsir smálaukar og hnúðar.
Einna fyrst blómgast vorboðar og vetrargosar, síðar stjörnuliljur,
dvergliljur (krókus) ofl. smálaukar. Síðan koma páskaliljur, vepju-
liljur, perluliljur, túlipanar, hvitasunnuliljur o.s.frv. Flestar haust-
laukjurtir blómgast vel undir trjám og runnum áður en trén
laufgast og laufbakið skyggir verulega á — og laukblómaskrúðið
getur orðið mikið. Yfir blómlaukabeð og yfir viðkvæmar fjölærar
jurtir er gott að leggja skýli á haustin áður en mikið frýs. Má nota
greinar, jurtastöngla, þaraþöngla, lyng, mosa ofl. Skýlið verður að
vera létt og loftmikið, en þétt þungt skýli getur kæft jurtirnar.
Skýlið veldur þvi að bæði raki og hiti í moldinni verður mun jafnari
en ella. Margir bera búfjáráburð kringum tré og runna á haustin.
Þetta jafnar hita og raka eins og hvert annað skýli og auk þess siast
næringarefni niður í jarðveginn smátt og smátt. Best er að áburður-
inn sé gamall, a.m.k. ekki mjög megn. Ekki er nóg að bera áburðinn
rétt i kringum stofninn því að rætur trjáa og runna ná álika langt út
og greinar trésins og það eru einmitt ystu yngstu rótargreinarnar
sem aðallega sjúga næringu úr moldinni. Yfir ung barrtré er gott að
refta á haustin og hlifir slikt gisið skýli bæði fyrir veðrum og
ágangi. I þessum tilgangi nota margir gisinn hessianstriga. Skýli
sem þetta hllfir llka fyrir sólbruna á vorin, en hætt er við honum I
sólskini þegar jörð er frosin svo ræturnar ná ekki I vatn. Holklaki
vor og vetur getur lyft plöntunum og slitið rætur. Vörn við þvl er að
láta sand ofan á moldina eða þökur og jafnvel steina þegar á
haustin. Skýli þarf vitanlega að njörva niður þar sem veðrasamt er.
I.D.
myntsöfnun. Get ég þar nefnt
m.a. Coin Collecting, eftir
Laurence Brown; Illustarated
teach yourself Coin Collecting,
eftir þá Frenk Atkinson & John
Matthews og Coins eftir
Howard Linecar. Allar eru
þessar bækur ríkulega mynd-
skreyttar, siðasta bókin þó al-
veg sérlega fallega. Hjá Ey-
mundsson rakst ég einnig á
bókina Myntir Islands eftir
Staffan Björkman. Er hún á
gömlu verði núna. Hún var
nefnilega fokdýr, miðað við
stærð, er hún kom út. Kostaði 7
krónur og 50 sænskar fyrir um
14 árum.
Dr. Kristján Eldjárn hefir
skrifað þrjá þætti um peninga I
bókinni Gengið á reka. Einn
þátturinn fjallar um Róm-
verska peninga á Islandi, annar
um silfur Egils og hinn þriðji
um Gaulverjabæjarsjóðinn.
Þessar greinar allar eru ein-
staklega vel og skemmtilega
skrifaðar. Dr. Kristján fjallar
einnig um Gaulverjabæjarsjóð-
inn I bókinni Hundrað ár I
Þjóðminjasafni.
Ég hefi svo á undanförnum
árum orðið mér úti um nokkrar
bækur, sem fjalla um mynt-
söfnun. Keypt þær hér I bóka-
búðum; t.d. Worlds eoins eftir
Fred Reinfeld og Coins and
medals eftir Howard Linecar.
Það koma alltaf við og við I
bókaverzlanir, er mér sagt,
nokkur eintök af bókum um
myntsöfnun. Geta menn þvl
bara haft augun opin, næst er
þeir fara I bókabúð, ef eitthvað
nýtt hefir borist af slíkum
bókum.
Bókabúð Braga I Verzlana-
höllinni selur 2 ensk tímarit
sem eru um mynt og jnedalíur.
Frímerkjamiðstöðin á Skóla-
Framhald á bls. 31
laugardag og
sunnudag k/. 2-7
fagmenn
aðstoða
við val
haustlauka
Jólahýasyntur
Jólatúlípanar
Berklavarnadagur
sunnudagur 3. október 1976
_____AFGREIÐSLUSTAÐIR___
merkja og blaða í Reykjavík og nágrenni:
simi
SIBS, Suðurgötu 10 22150
Kvisthagi 17 23966
Fálkagata 28 11086
Grettisgata 26 13665
Eskihlíð 10 16125
Hrísateigur 43 32777
Kambsvegur 21 33558
Barðavogur 17 30027
Sólheimar 32 34620
Háaleitisbraut 56 33143
Háagerði 15 34560
Langagerði 94 32568
Skriðustekkur 11 74384
Árbæjarskóli
Fellaskóli
SELTJARNARNES: sími
Skálatún 18087
KÓPAVOGUR:
Langabrekka 10 41034
Hrauntunga 11 40958
Vallargerði 29 41095
HAFNARFJÖRÐUR:
Þúfubarð 11
Reykjavíkurvegur 34
Lækjarkinn 14
v._
Merki dagsins kostar 100 krónur og ársritið
„Reykjalundur" 200 krónur.
Merkið gildir sem happdrættismiði: Vinningur
er litasjónvarpstæki.
Sötubörn komi kl. lOárdegis. Há sölulaun.
S.I.B.S.