Morgunblaðið - 02.10.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÖBER 1976
81
Enginn sótti
um Reykhóla
Sex bátar
búnir með
síldarkvótann
Hringnótabátarnir hafa verið
að veiðum austan við Ingólfs-
höfða slðustu tvo daga og fengið
ágætis afla. NIu bátar fengu þar
afla á miðvikudagskvöld og I
fyrrinótt var aðeins einn hátur á
miðunum, Kefivfkingur KE, en
hann hélt tii lands I gær með sfld.
Þá var vitað um einn bát á miðun-
um slðari hluta dags I gær,
Reykjaborgu frá Siglufirði.
Alls hafa sextán bátar hafið
síldveiðar og þar af eru sex þegar
hættir veiðum, þar sem þeir eru
búnir með kvótann eða svo til.
Heildarafli þessara sex báta riiun
vera um 1100 lestir, en hver bátur
hefur rétt á að fiska 200 tonn.
Bátarnir, sem þegar eru búnir
með kvótann, eru: Rauðsey ÁR,
Jón Finnsson GK, Svanur RE,
Bjarni Ölafsson AK, Grindvíking-
ur GK, og Hilmir SU.
Atkvæði til
kirkjuþings
Frestur til sóknarnefnda og
presta til að skila atkvæðum til
Biskupsstofu varðandi kosningar
til kirkjuþings 1976 hefur nú ver-
ið framlengdur til 10. okt. n.k.
Seldu síld fyrir
6,6 millj. kr.
Þrir bátar seldu síld í Dan-
mörku I gærmorgun fyrir alls 6.6
millj. kr. Eldborg GK seldi 35
lestir fyrir 2.6 millj. kr. og var
meðalverð pr. kíló kr. 77, Hrafn
Sveinbjarnarson GK seldi 37.7
lestir fyrir 2.8 millj. kr. og meðal-
verðið var kr. 75. Þá seldi Ljósfari
ÞH 15.8 lestir fyrir 1.2 millj. kr.
og var meðalverðið kr. 75.
— Afdrif . . .
Framhald af bis. 17.
sem þeim var ætlað að liggja á.
Tvær dætranna voru með stutt-
klippt hár og trefil. Ein dætranm
sat á dýnunni. Ég sá hún horfð
með fyrirlitningu á bróður minn
Á dýnunum lágu lika koddar oj
hermannayfirhafnir og keisara
frúin hafði hermannajakka undii
koddanumsinum."
Meginstyrkur framburðai
Mytnykh liggur í þeim orðuni
hennar að hún fékk að koma og
sjá með eigin augum keisarafjöi-
skylduna fyrir meðalgöngu
Vladimirs bróður síns. Við höfum
nú einnig komist að raun um að
hann var annað og meira en
réttur og sléttur ritari. Hann var
persónulegur aðstoðarmaður
Alexanders Beleborodovs, sem
var yfirmaður i héraðinu og hafði
borið ábyrgð á brottfiutningi
Romanovfjölskyldunnar.
Heimildir bera að eftir fali
Ekaterineburg hafi hann flutt til
Perm, þar sem hann var áfram
tengiliður við Moskvu um málefni
mikilvægra fanga. Natalya
Mutnykh hefði naumast geta
borið fyrir sig traustari heimild.
Feikileg
vínsala í
Reykjavík
FEIKILEG umferð var I vln-
búðum I Reykjavtk I gær og
varð að ná I lögregluna til þess
að loka vlnbúðinni við Snorra-
braut. Svo mannmargt var inni
I búðinni þegar kom að lokun-
arttma að afgreiðslumennirnir
komuzt ekki að dyrunum. Hef-
ur aldrei verið önnur eins sala
á áfengi fyrir venjulega helgi
að sögn lögreglunnar I Reykja-
vfk.
Umsóknarfrestur um brauðið
að Reykhólum rann út í gær og
samkvæmt upplýsingum frá
Biskupsstofu sóttti enginn um
embættið. Séra Sigurður Pálsson
vfglubiskup hefur gegnt starfi
þar um skeið, en hann mun láta af
því á næstu mánuðum.
— Washington
Post
Framhald af bls. 1.
ekki ástæðu til að höfða mál.
Ruff hefur ekki viljað segja
neitt um þessa frétt.
Ford ræddi I fyrsta sinn í
gærkvöldi við fréttamenn um
rannsókn Ruffs á fjármálum
hans, og sagði að hann hefði
aldrei tekið við ólöglegum fjár-
styrk á meðan hann var þing-
maður. Sagði hann blaðamönn-
um að hann yrði hreinsaður af
öllum orðrómi þegar
rannsóknunum væri lokið.
Harold Tyler, aðstoðardóms-
málaráðherra, sagði Reuter-
fréttastofunni að hann hefði
tekið kosningasjóði forsetans í
fyrrverandi kjördæmi hans,
Michigan, til rannsóknar, eftir
að alríkislögreglunni, FBI,
hafði borizt vitneskja um að
þeir hefðu verið misnotaðir f
forsetakosningunum 1972.
Tyler sagði að nafn Fords
hefði ekki verið nefnt af þeim,
sem skýrði FBI frá þessu né í
beiðni sinni til Watergate-
saksóknarans um að hann
stjórnaði rannsókninni. Hann
sagði einnig að hann vissi ekki
til þess að aðrir embættismenn
dómsmálaráðuneytisins hefðu
verið í sambandi við sak-
sóknarann.
Stuttu eftir að Ford hafði
lýst yfir sakleysi sínu varðandi
meðferð kosningasjóða og af
að hafa þegið boð stórfyrir-
tækja um golfleiki, var birt
Gallup-skoðanakönnun, sem
sýndi að bilið á milli Carters og
Fords hefur minnkað. Nýtur
Carter, sem reyndar varð 52
ára í dag, fylgis 50% kjósenda
en 42% styðja Ford. Fyrir
mánuði siðan voru tölurnar
54% gegn 36% Carter í vil.
— Palestínu-
mennn
Framhald af bls. 1
lands, um þróun mála I Libanon.
Frestaði hann heimferð sinni eft-
ir að útvarp vinstrisinna í Beirut
skýrði frá því að leiðtogi vinstri-
manna i Libanon, Kamal Jun-
blatt, myndi fara til Parísar innan
skamms. Segja embættismenn i
Paris að hann sé væntanlegur á
miðvikudag. Fahmi kom í gær til
Parísar til að færa Frakklandsfor-
seta skilaboð frá Sadat, forseta
Egyptalands.
— Ródesía
Framhald af bls. 1.
en báðir gáfu þeir í skyn að fund-
inum loknum að þeir hittust fljót-
lega aftur i Salisbury.
Nkomo, sem oft hefur verið tal-
inn liklegur sem fyrsti svarti for-
sætisráðherra Ródesiu, sagði að
fundurinn hefði gengið mjög vel
en Muzorewa sagði að ekkert stór-
vægilegt hefði gerzt á honum.
Ivor Richards, sendiherra Breta
hjá Sameinuðu þjóðunum, sem
Bretar hafa skipað forseta ráð-
stefnunnar um Ródesiu, sagði í
New ,York í dag, að úr þvi að
Ródesíustjórn hefði fallizt á hug-
myndina um meirihlutastjórn i
landinu, þá yrði að reyna að ná
því marki eins fljótt og mögulegt
væri. En hann bætti þvi við að
ekki væri þar með sagt að lausnin
væri auðfengin.
Utanrikisráðherra Tanzaníu,
Ibrahim Kaduma, sagði á allsherj-
arþingi Sameinuðu þjóðanna i
dag, að hægt væri að binda enda á
bardaga í Ródesiu ef „raunveru-
lega umsamið samkomulag" næð-
ist, en það þýddi ekki að öllum
bardögum væri lokið i suðurhluta
Afríku.
— Mynt
Framhaid af bls 11
vörðustig selur danska timarit-
ið Möntsamlernyt.
Landsbókasafnið á töluvert
af bókum um mynt og eitthvað
er lika til á Borgarbókasafninu
þótt ekki sé það nærri eins mik-
ið.
Félagar I Myntsafnarafélag-
inu eiga þess kost að fá alls
konar verðlista og blöð um
mynt viða að. Bæði frá Evrópu
og Amerfku. Berast all margir
verðlistar til félagsins og hafa
þeir verið sérstaklega kynntir
félagsmönnum á fundum. Geta
menn gerst áskrifendur að
sumum verðlistunum og fengið
aðra ókeypis.
Það er svo með myntirt.< að
lítill peningur, sem varðveiri
hefir í tugi, hundruð
vel þúsundir ára, grafi
ina, getur opnað nýjar
mannkynssögunni. Þe
er það afar eðlilegt, að mynr
safnarar hafa mjög gam tn af að
lesa sig til í sögu. Sjá menn þn
oft hlutina I nýju ljósi.
inn i peningnum getur verið
farinn að láta á sjá gegn timans
tönn, en sagan lifir. N
svo í mörgum fjölsky! ■
til er einn og einn gai
ingur, sem enginn veit
síðan hvenær er, eða nvaöa;:
hann kemur. Þá er ei ti!
hægt að finna peningir ;
myntkatalógunum eins
World Coins, sem er upp :
siður og fæst í Frimerkjamiö
stöðinni. Ef til vill þarf að fai a
á Landsbókasafnið og
eða þá ef allt þrýtur
peninginn út og láta <
sérfræðinga segja til um hvað-
an hann kemur.
Ragnar Borr,
Hringum og
myndavélum
stolid
ÞJÓFNAÐIR voru framdir á
tveimur stöðum í höfuðborginni í
fyrrinótt. NIu gullhringum var
stolið úr sýningarglugga
Hjálmars Torfasonar gullsmiðs
við Laugaveg, og er verðmæti
þeirra hátt á annað hundrað þús-
unda króna. Ennfremur var brot-
inn gluggi I verzluninni Gevafoto
i Austurstræti og þaðan stolið
tveimur Olympus-myndavélum,
að verðmæti á þriðja hundrað
þúsunda króna. Bæði þessi mál
eru I rannsókn.
KjnunRinn
Skuggar leika
fyrir dansi
tii ki 2.
Borðpantanir
frá kl. 15.00
isima 19636.
Kvöldverður
framreiddur
frá kl. 18.
Til sölu
vönduð og falleg jarðhæð 4ra til 5 herb 1 10
fm. ásamt innbyggðum bílskúr 30 fm. í Kópa-
vogi austurbæ. Allt fullfrágengið. Verð 12.5
millj. Uppl í síma 43875.
Nafnskirteini
Sætaferðir frá B.S.Í.
Fjörið er í Stapanurr
Stapi
DISKOTEK
í Templarahöllinni frá kl. 9—1
Fædd 61
Allir velkomnir
Aðgangseyrir
300 kr.
Hrönn