Morgunblaðið - 07.11.1976, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1976
+
Móðir okkar og fósturmóðir
SIGRÍÐUR SAMÚELSDÓTTIR
frá Vonarlandi, Nauteyrarhreppi,
andaðist föstudaginn 5. nóv
Börn og fósturböm.
+
Eiginmaður minn. faðir og fósturfaðir
JÓHANNES TEITSSON,
húsasmíSameistari
verður jarðsunginn þriðjudaginn 9 nóvember frá Fossvogskirkju kl 3
Blóm vinsamlegast afþökkuð, þeim sem vildu minnast hans er bent á
styrktarsjóð vistmanna Hrafnistu
Þóra Guðmundsdóttir,
Björn Jóhannesson,
Magnús Jóhannesson,
Pétur Jóhannesson,
Baldvin Jóhannesson,
Guðlaug K. Arnadóttir
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURLAUG HALLDÓRSDÓTTIR,
frá Valþjóðsstöðum,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 8 nóv kl 1 3.30
Fyrir hönd aðstandenda,
Stefán Jóhannesson.
+
Eiginmaður minn og faðir
HREIÐAR PÁLSSON,
kjötiðnaðarmaður,
Lindargötu 24,
verður jarðsunginn þriðjudaginn 9 nóvember kl 10.30 frá Fossvogs-
kirkju
Aðalheiður Steingrlmsdóttir,
börn og aðrir vandamenn
+
Útför eigínmanns míns. föður okkar. tengdaföður og afa.
ÞORSTEINS HALLDÓRSSONAR.
prentara,
Fálkagötu 4, Reykjavfk,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 9. nóvember kl. 1 3.30.
Sara Hermannsdóttir,
Erla H. Þorsteinsdóttir, Þorsteinn SigurSsson.
Margrét Þorsteinsdóttir, Benedikt Bachmann
og barnabörn.
+
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
VIGDÍSAR STEINGRÍMSDÓTTUR,
verður gerð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 1 0 þ m kl 1 3:30
Steingrimur Hermannsson, Pálina Hermannsdóttir,
Edda Guðmundsdóttir, Sveinbjörn Dagfinnsson,
og barnabornin
+
Útför eiginkonu, móður. tengdamóður og ömmu okkar
SVÖVU LILJU MAGNÚSDÓTTUR,
Rauðalæk 38,
verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudagmn 9. nóv kl. 1.30
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Öryrkjabandalag íslands
Einar E. Guðmundsson,
Gunnar G. Einarsson,
Guðleifur Einarsson,
Gústaf Þ. Einarsson,
Magnús Einarsson,
tengdadætur og barnabörn.
^mmmmmmmmmmmmmrn^mmmmmmmKmm^mma^mmmmmmmmmmmmmmamK^
+
Útför eigmmanns mins og föður,
VALS LÁRUSSONAR.
Háaleitisbraut 47.
fer fram frá Fossvogskirkju miðvíkudaginn 10. nóvember kl. 1.30e.h.
Þeim, sem vildu minnast hans. er bent á liknarfélög
Gróa Guðjónsdóttir,
Trausti Valsson.
Sigurlaug Halldórs-
dóttir - Minningarorð
Fædd. 16. aprll 1892.
Dáin. 31. október 1976.
A morgun verður til moldar
borin Sigurlaug Halldórsdóttir,
en hún andaðist á Sólvangi 31.
október s.l.
Sigurlaug var fædd á Valþjófs-
stöðum í Presthólahreppi i
Norður-Þingeyjarsýslu 16. dag
aprílmánaðar árið 1892. Hún var
yngst þriggja barna hjónanna
Hólmfriðar Sigurðardóttur og
Halldórs Ingimundarsonar, sem
þar bjuggu. Faðir Sigurlaugar
féll frá, þegar Sigurlaug var enn i
frumbernsku. Móðir hennar hélt
áfram búskap á Valþjófsstöðum
með börnin þrjú, en nokkrum ár-
um síðar giftist hún aftur, og
gekk þá að eiga Stefán Björnsson,
og eignaðist með honum tvö börn,
Halldór bónda á Valþjófsstöðum
og Sigrúnu, húsfreyju í Reykja-
vik. Alsystkyini Sigurlaugar voru
Ingimundur, sem siðast bjó á
Einarsstöðum í sömu sveit, og lát-
inn er fyrir mörgum árum og
Hólmfríður, sem andaðist hér í
borg árið 1972.
A miklu myndarheimili á Val-
þjófsstöðum ólst Sigurlaug upp
hjá móður sinni og stjúpföður, og
óhætt er að fullyrða, að allur var
systkinahópurinn órjúfandi heild
og kærleikur mikill. Og nú hlýtur
Sigurlaug, að eigin ósk, hinztu
hvílu við hlið Hólmfríðar systur-
sinnar. Nú mun sú móðurmold ,
sem brauðfæddi hana unga og
skilaði henni til þroska, umvefja
hvílu hennar við hlið ástríkrar
systur.
Sigurlaug vann öll algeng
sveitastörf á heimili sínu, en ung
að árum giftist hún Jóhannesi
Þorleifssyni kennara frá Dalvík.
Stofnuðu Sigurlaug og Jóhannes
heimili I heimasveit Sigurlaugar,
og eignuðust þau einn son,
Stefán, bifreiðarstjóra á B.S.R
sem búsettur er I Kópavogi og
kvæntur Láru Valsteinsdóttu frá
Akureyri. Eftir fárra ára sambúð
missti Sigurlaug mann sinn, og
hélt hún þá suður, fyrst til
Reykjavikur, en siðan til Hafnar-
fjarðar, og þar bjó hún siðari
hluta ævi sinnar, og nú siðast á
Sólvangi, þar sem hún andaðist
31. október s.l.
Sigurlaug var alin upp á þeim
tímamótum, sem islenzk þjóð stóð
á mestum krossgötum. Hún sá
þjóðlifið taka þeim mestu breyt-
ingum, sem orðið hafa, sfðan land
byggðist. Hún var af þeirri kyn-
slóð, sem jafnan er nefnd alda-
mótakynslóðin, og hún haggaðist
hvergi í umróti hinna miklu
breytinga, heldur hélt i heiðri öll-
um aðalsmerkjum þeirrar kyn-
slóðar. Guðstrú og góðir siðir,
+
Innilegar þakkir til allra nær og fjær, fyrir auðsýnda samúð, vinsemd og
virðingu við andlát og útför,
RÓSMUNDAR TÓMASSONAR,
Laugarnesvegi 66.
Berga G. Ólafsdóttir,
Ólafur Ingi Rósmundsson, Karitas Haraldsdóttir,
Guðrún Rósmundsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson,
Birgitta Rósmundsdóttir
+
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og jarðarfarar
eiginkonu minnar og móður okkar
GUÐMUNDU ÁGÚSTSDÓTTUR
Kleppsvegi 4
Jakob V. Emilsson og börn.
+ Þökkum af alhug vinsemd og samúð víð andlát og jarðarför
BALDURS BREIÐFJÖRÐS SIGURLAUGSSONAR,
bifreiðastjóra
Skólagötu 8, ísafirði
Soffla Ingimarsdóttir, Karitas Rósinkarsdóttir.
Ingimar Baldrusson Jóhann Sigurlaugsson
Sigurlaugur Baldursson Lydia Sigurlaugsdóttir.
Anna Baldursdóttir Trausti Sigurlaugsson
Óli Baldursson Erling Sigurlaugsson
Þóra Baldursdóttir. Ingibjörg Sigurlaugsdóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður og afa,
HELGA ÓLAFSSONAR
trésmíðameistara
Austurgotu 45,
Hafnarfirði
Þórunn Helgadóttir, Sveinn Þórðarson
Kristjana Helgadóttir. Finnbogi Guðmundsson,
Olafia Helgadóttir, Ragnar Björnsson.
Sólrún Helgadóttir, Jón Óskarsson
og barnaböm.
+
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför
VIGGÓS GUÐJÓNSSONAR.
frá jsafirði.
Þórdts Einarsdóttir Guðbjörg Guðjónsdóttir,
Guðrún Viggósdóttir,
Sælaug Viggósdóttir.
Guðmundur Viggósson,
Guðjón L. Viggósson,
Sveinbjörg Guðmundsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
nægjusemi, vinnusemi, frænd-
rækni, kröfur til sjálfrar sin, allt
voru þetta eiginleikar, sem hún
hafði hlotið í vöggugjöf, og þeir
entust henni til hinztu stundar.
Kröfugerð nútimans var henni
ekki að skapi. Sá, sem þessar lin-
ur ritar, kynntist Sigurlaugu,
þegar hún var orðin roskin kona,
og bjó þá í lítilli ibúð I Hafnar-
firði. Hún undi glöð við sitt, það
var nú öðru nær en að hún væri
að kvarta. Henni fannst elli-
styrkurinn alveg nægur, þó að
aðrir kvörtuðu. Þó hafði hún unn-
ið öllum sinum húsbændum og
þjóðfélaginu af einstækri sam-
vizkusemi, meðan kraftar leyfðu.
Og þakklæti hennar var einstakt.
Heimsókn til hennar á Sólvang
þakkaði hún af þeirri einlægni,
sem eftir verður munað. Og gott
var að eiga með henni rabbstund.
Hún var hreinskilin, og sagði
meiningu sina alltaf hispurslaust,
hver sem í hlut átti. Og slík kona
sem Lauga var hlaut að eignast
marga vini. Og víst er, að margir
Hafnfirðingar, eldri sem yngri,
þekktu Laugu vel. Hún hafði oft á
efri árum passað börn fyrir fólk,
sem þurfti að bregða sér út, og
var þá ekki spurt um laun, en
margir tengdust henni vináttu-
böndum, og guldu með heimsókn-
um, þegar hún var komin á Sól-
vang, og það kunni hún vel að
meta.
Eftir að Sigurlaug kom á Sól-
vang, undi hún sér við lestur og
hannyrðir. Hún hafði mikið yndi
af að gleðja frændfólk og vini
með hannyrðum sínum og undra-
vert, hverju hún kom i verk, þó að
heilsu væri tekið að hraka.
Eins og áður er að vikið, átti
Sigurlaug sér aldrei neina
drauma um veraldlega velgegni,
svo sem títt er nú á dögum. En
hún átti sér einn draum, og sá
hann rætast. Hún sá einkasoninn
eignast ágætt heimili og þrjú
mannvænleg börn. Og á þessu ári
var Ólöf elsta barn Stefáns og
Láru, búin að stofna heimili, og
fyrsta langömmubarnið var fætt.
Þetta allt var hennar auður.
Nú hafa orðið þáttaskil. Sigur-
laug er gengin á fund feðra sinna.
Heilsu hennar var mjög tekið að
hnigna, og sæt mun nú sú hvíld,
sem hún hefir hlotið. Eftir standa
góðar minningar, sem ei munu
gleymast. Eftirlifandi aðstand-
endum sendi ég og fjölskylda mín
innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Birgir
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
\n,IASI\(, \
SÍMINN ER:
22480