Morgunblaðið - 07.11.1976, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÖVEMBER 1976
25
Minning:
Halldór Jóhannsson
Syðri- Úlfsstöðum
Fæddur 28. febrúar 1897
Dáinn 1. nóvember 1976.
Kallið er komíð, komin er nú stundin
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vfnirnir kveðja vininn sinn látna
er sefur hér sinn sfðasta blund.
M.J.
Já, kallið hans Halldórs á Ulfs-
stöðum er komið.
Ég vil hér á eftir rifja upp fá-
tækleg manningabrot um mann-
inn sem vann með Guði slnum og
var sannur kirkjunnar maður.
Það var haustið 1967 að ég
kynntist Halldóri heitnum fyrst.
Þá var ég nýkominn hér að
Krossi, öllum mönnum hér
ókunnugur. Það var á messudegi,
Halldór kemur inn til mln og
heilsar mér innilega og býður mig
hjartanlega velkominn. Það er
mikils virði að finna að maður sé
velkominn.
Sllkt gleymist seint, sé af heil-
indum mælt. Við spjölluðum
nokkra stund saman og I lok sam-
tals okkar segir Halldór:
„Þú verður svo með okkur I
kirkjukórnum." Ég játti þvf að
síðar yrði. Gengum við nú I
kirkju. Halldór var þá meðhjálp-
ari og var I því starfi til sannrar
fyrirmyndar. Þá var Halldór virk-
ur þátttakandi I söngnum, og seg-
ir mér svo hugur um að þar hafi
hann átt margar unaðsstundir á
valdi söngsins.
Vil ég þvl fyrir hönd okkar kór-
félaganna færa honum hjartans
þakkir fyrir forystu hans og
ógleymanlegar samverustundir, I
kirkju og á söngæfingum. Þá veit
ég að margur hugsar til samveru-
stunda með Halldóri hér I Kross-
kirkju með virðingu og þökk I
huga.
Það kviknaði svo ylríkur neisti
á milli okkar Halldórs við fyrstu
kynni. Slfkan neista er gott að
eiga.
Nú er kall hans komið. Fari
hann I friði Guðs á vald.
Hafi hann hjartans þökk.
Sveinbjörn Benediktsson
— 889
Framhald af bls. 1.
Stuðningsnefnd ofsóttra verka-
manna hefur neitað þvf að 75
menn, sem hafa verið fangelsaðir,
hafi gert sig seka um glæpsamlegt
athæfi. Nefndin segir að þeir hafi
flestir verið ákærðir fyrir að taka
þátt I mótmælaaðgerðum, valda
umferðartöfum og kveikja I skrif-
stofu kommúnistaflokksins.
„Langflestir hinna handteknu
hafa sætt pyntingum," segir
nefndin I yfirlýsingu.
— Unesco
Framhald af bls. 1.
álitu að ef frjálsar umræður um
ályktunina hefðu fengið að drag-
ast á langinn hefði afstaða manna
aðeins harðnað og gert málmiðlun
erfiða.
Það voru Brasilfumenn, sem
áttu uppástunguna um að senda
ályktunina til 25 manna samn-
inganefndar, sem ætlað er að
fjalla um viðkvæm mál á bak við
tjöldin. En ekki er búizt við að
nefndin geti mjókkað bilið á milli
kommúnistarfkjanna og fylgi-
rfkja þeirra, þar á meðal Araba-
landa, annars vegar og Vestur-
landa hins vegar.
1 ályktuninni segir að „rfkas-
valdið sé ábyrgt fyrir umfjöllun-
um allra fjölmiðla innan sinnar
lögsögu um utanrfkismál" I reynd
táknar þetta að rfkisstjórnir eigi
að stjórna skrifum blaða og ann-
arra fjölmiðla.
— Síld flutt út
Framhald af bls. 2
á þann hátt að hún hentaði
íslenzku söltunarstöðvunum, t.d.
þegar verkefni væru ekki nægileg
fyrir starfsfólk stöðvanna.
Kvaðst Gunnar vilja taka það
skýrt fram, að þessi fyrirhugaði
útflutningur SUN væri ekkert
skyldur venjulegum smáum
neytendaumbúðum svo sem
gaffalbitum eða svipuðum niður-
lögðum vörum, sem seldar væru
beint til neytenda.
Meira sagðist Gunnar ekki hafa
að segja um mál þetta. Skýrsla
yrði send til saltenda þegar meiri
reynsla væri fengin.
Upplýsingabréf síldarútvegs-
nefndar fer hér á eftir:
„Svo sem kunnugt er, er söltuð
sfld að verulegu leyti flutt út sem
fullunnin neyzluvara. T.d. fer öll
sú sfld, sem seld er til Austur-
Evrópu, beint f verzlanir f því
ástandi, sem hún er afgreidd héð-
an. Sama er að segja um hluta af
sfldinni, sem seld er til Svfþjóðar,
Finnlands, o.fl. markaðslanda.
Kryddsfldin er aftur á móti að
mestu leyti tekin til frekari
vinnslu, svo sem framleiðslu á
gaffalbitum og öðrum svipuðum
vörum f venjulegum smáum neyt-
endaumbúðum. 1 Svfþjóð er hin
venjulega saltsfld, og í Finnlandi
sykursfldin, ýmist send f verzlanir
í hinum upprunalegu umbúðum
(þ.e. síldartunnum) eða pökkuð í
mismunandi stórar dreifingarum-
búðirnar. Algengasta stærð dreif-
ingarumbúða, annarra en venju-
legra tunna, er i Svfþjóð 15 kg. og
Finnlandi 10 kg. Sé síldin flökuð,
reyna sfldarkaupendur, eftir þvf
sem mögulegt er, að flaka hana
jafnóðum og pantanir berast frá
verzlunum eða öðrum þeim aðil-
um, sem kaupa sfldina í svo stór-
um umbúðum, þar sem gæði flak-
anna rýrna, ef of langur tfmi líður
frá þvf sfldin er flökuð og þar til
flökin komast f hendur neytenda.
Sfldarútvegsnefnd hefir að
sjálfsögðu fylgzt með þróuninni í
þessum málum og hóf m.a. til-
raunaframleiðslu á pökkun haus-
skorinnar og slógdreginnar sfldar
og einnig síldarflaka f 10 kg.
dreifingarumbúðir, áður en sfld-
veiðibannið sunnanlands hófst.
Tilraunasending af mismunandi
tegundum, sem send var f þessum
umbúðum til Finnlands veturinn
1972, kom á finnska markaðinn í
góðu ásigkomulagi þrátt fyrir
ýmsar hrakspár.
Eftar að sfldveiðibanninu með
hringnót lauk var haldið áfram
þar sem frá var horfið og er nú í
undirbúninga að senda aukið
magn' í tilraunaskyni til Finn-
lands, Bandarfkjanna, o.fl. landa
og hafa þegar verið gerðar ýmsar
undirbúningsráðstafanir f þessu
skyni. Gert er ráð fyrir að fyrstu
sendingarnar verði settar á mark-
aðinn í 3—10 kg. dreifingarum-
búðum. Samningaumleitanir
standa nú yfir milli Sfldarútvegs-
nefndar og finnskra sfldarinn-
flytjenda um sölu á verulegu
magni af sykursaltaðri sfld f 10
kg. úmbúðum og er ekki ólíklegt
að samningar takist um sölu á
sykursaltaðri sfld f slfkum um-
búðum fyrir allt að 50 milljónir
fslenzkra króna til afgreiðslu á
fyrrihluta komandi árs.
Áframhald á tilraunapökkun
þessari verður fyrst um sinn á
vegum Sffdarútvegsnefndar, en
ef markaður eykst fyrir saltaða
sfld f þessum umbúðum á viðun-
andi verði, er ráðgert að pökkun-
in verði framkvæmd á þeim sfld-
arsöltunarstöðvum, sem góða að-
stöðu hafa til slfkrar vinnslu.
Annars hefir það komið á óvart,
að samkvæmt nýlegri könnun
Sfldarútvegsnefndar virðist sem
kaupendur íslenzkrar saltsfldar í
Svíþjóð sendi nú sfldina aftur í
auknum mæli á upprunalegu
tunnunum f verzlanirnar, en svo
sem kunnugt er finnst mörgum
saltsfldin bezt til matreiðslu beint
upp úr tunnunum.
Fylgzt verður áfram náið með
þróuninni í þessum málum og
mun SUN síðar í vetur senda síld-
arsaltendum sérstaka skýrslu þar
að lútandi."
— Alviðra
Framhald af bls. 2
núverandi ábúanda Alviðru, Helga
Þórarinssyni, verið sagt upp ábúð á
jörðinni frá og með 1. júní á naesta
ári og hefur lögmaður hans, Hilmar
Ingimundarson mótmælt uppsögn-
inni á þeim forsendum, að eigendur
jarðarinnar hefðu ekki við upphaf
búsetu núverandi ábúanda gefið út
byggingarbréf eins og skylt er sam-
kvæmt ábúðarlögum og þrátt fyrir
itrekaðar óskir ábúanda þar um
Sagði Hilmar, að samkvæmt lögum
væri litið svo á, að I þeim tilvikum,
þegar ekki væri gefið út byggingar-
bréf fyrir jarðirnar, væri um að ræða
llfstiðarábúð ábúanda
Hilmar tók fram, að þessum mót-
mælum hefði ekki verið svarað en
hins vegar hefðu eigendur jarðar-
innar látið taka hana út og þá um
leið hefðu fulltrúar eigenda. Páll
Hallgrímson, sýslumaður, og Hauk-
ur Hafstað, látið fjarlægja allar vélar
af búinu. Sagði Hilmar að þarna
væri að sínum dómi gróflega brotið
á ábúanda því I fyrsta lagi hefði
ábúandi umráð á jörðinni til bú-
skapar til 1 júní n.k. og af vélunum
hefði hann haft óskert afnot frá þvi
er hann tók við jörðinni um mánaða-
mótin ágúst- september 1974 Þá
væri þarna um að ræða brot á
ákvæðum um friðhelgi heimilisins.
— Við þetta bætist líka, að það
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRÝGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS
Kaupgengi pr. kr. 100.-
1965 2. flokkur 1654.41
1966 1. flokkur 1500.62
1966 2. flokkur 1409.22
1967 1. flokkur 1324.78
1967 2. flokkur 1316.44
1968 1. flokkur 1153.74
1968 2. flokkur 1085.64
1969 1. flokkur 808.68
1970 1. flokkur 746.66
1970 2. flokkur 551.39
1971 1. flokkur 522.79
1972 1. flokkur 458.48
1972 2. flokkur 397.02
VEÐSKULDABRÉF:
6—8 ára fasteignatryggð veSskuldabréf með 7%—8% vöxtum
(sölutilboð óskast).
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RIKISSJÓÐS:
Sölugengi pr. kr. 100.-
1975 1 flokkur 160.00
1976 2 flokkur 100 00
1976 2 flokkur er nýtt útboð — dagvextir
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RIKISSJÓÐS:
Sölugengi pr. kr. 100.-
1974 D 24414 (6.4% aföll)
VEÐSKULDABRÉF:
3ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með 1 7%— 1 9% vöxtum (35%
afföll)
6 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með 10% vöxtum (kauptilboð
óskast).
FJÁRFCITinGARFÉinG ÍflMDl HP.
Verðbréfamarkaður
Lækjargötu 12, R (Iðnaðarbankahúsinu)
Sími20580
Opið frð kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.
BÍLASÝNINGARSALIR í HJARTA BORGARINNAR - ALLIR BÍLAR í HÚSI TRYGGÐIR
Bílaskipti
Bílar fyrir skuldabréf
Opið alla daga 8.30-7 nema sunnudaga - Vanir sölumenn - Opið í hádeginu
NÆG BÍLASTÆÐI
5 4r~“
l
Sími 25252 4 línur
BILAMARKAÐURINN Grettisgötu 12-18
stríðir á móti lögum, að sýslumaður
geti i þessu tilviki bæði komið fram
fyrir hönd embættis sins og sem
einn fulltrúa eigenda á jörðinni og
því verður mótmælt, sagði Hilmar
að lokum.
Helgi Þórarinsson. ábúandi á
Alviðru, fluttist fyrir um þremur
vikum úr ibúðarhúsinu á Alviðru,
þvi héraðslæknir umdæmisins hafði
þá lýst það óíbúðarhæft. Segir í
vottorði hans, að húsið sé hrörlegt
og erfitt sé sennilega að halda hús-
inu hlýju. Þá sjáist greinileg merki
um leka og frárennsli frá húsinu sé i
algjörlega óviðunandi ástandi, þar
sem rörin opnast i grunni hússins
og meindýr s.s. kakkalakkar og húð-
krabbar væru i húsinu. Helgi sagði i
samtali við blaðið að tildrög þess að
hann kom að Alviðru hefðu verið
óskir Hauks Hafstaðs þar um en
fulltrúar eigenda jarðarinnar hefðu
siðar gert fjölmargt til að flæma
hann af jörðinni.
Óskað eftir
f ógetaúrskurði
um umráð
yfir eigninni
Hákon Guðmundsson vildi það
eitt segja um dvöl Helga á jörðinni,
að hann hefði flutzt burt af staðnum
fyrir skömmu og yrði viðskilnaði
hans lýst i úttekt, sem úttektarmenn
Ölfushrepps hefðu gert á jörðinni og
skýrslu lögreglunnar á Selfossi, sem
litið hefði eftir staðnum frá þvi að
Helgi yfirgaf hann. Sagði Hákon, að
Helgi hefði neitað að afhenda eig-
endum Alviðru formleg umráð
eignarinnar og hefði því verið hafizt
handa um það af hálfu eigenda að
þeim yrðu með fógetaúrskurði
fengin öll umráð yfir eigninni.
— Þeir sýna . . .
Framhald af bls. 3
hef ég lúmskt gaman af þessu svona
hráu, en það er ekki hægt að ætlazt
til þess að aðrir hafi það á meðan
fólk hefur ekki kynnst því.
FLEIRI EINDIR INN
í MYNDIRNAR
Ég vinn fremur ákveðinn vinnu-
^ tíma og hver mynd byggist á því að
ég þreifa fyrir mér ef svo má segja,
finn út ákveðið myndeðli og vinn að
þvi. í gömlu myndunum sinni ég oft
fáum hreyfingum, en tengi síðan
þessar hreyfingar saman með einu
merki, t.d. SS merkinu til mótvægis
Fleiri ólíkar eindir eru komnar i
spilið í nýrri myndunum, en það að
vinna með hart form á móti mjúku
eru leifar af því sem hann Hörður
var að kenna okkur og ég gekkst
svolitið upp i.
GLÆPAMAÐUR EÐA
HERRA GLÆPAMAÐUR
Ein mynd hérna heitir Geirfinnur
fundinn, Geirfinnur ófundinn Þessi
mynd er i sjálfu sér ekki tengd við
nokkurn ákveðinn mann. Hins vegar
leiðir hún mann að þeirri staðreynd
sem er í íslenzku þjóðfélagi i dag að
það er jafnvel ekki hægt að upplýsa
glæpamál sem liggja á borðinu
vegna þess að um er að ræða „herra
glæpamann" á sama tíma og
„glæpamaður" af smávægilegri gerð
er flattur út og opinberaður Geir-
finnsmyndin er aðeins kveikja til að
sýna ástandið sem við verðum að
gera upp við okkur hvort við viljum
búa við eða ekki, Jörgensensmálið
og alls konar mál sem eru svo lengi í
kerfinu að þegar loks kemur að
skuldadögunum getur sá seki greitt
skuld sína eftir verðbólguhjálp og
fleira , með ávísun upp á litið brot af
hinum raunverulega glæp miðað við
stað og stund þegar glæpurinn er
framinn. Stórglæpurinn fær raun-
verulega að hverfa i hítina
AÐ NÝTA LYKTARLAUSA
RUSLIÐ TIL FEGURÐAR
Annars er það nú svo að marga
rekur i rogastanz yfir slikri mynd-
gerð sem ég ber á borð, en fordóma-
magnið held ég að skipi þar veg-
legan sess. Húsmóðir ein skrifaði að
hún henti ruslinu sínu i öskutunn-
una, en samt vil ég nú benda þeirri
kæru á að oft er hægt að nýta
allskonar rusl betur en gert er ef
maður gerizt samningslipur og játar
að ekki megi vera vond lykt af þvi og
ég hef marg-sannreynt að þegar fólk
fer að kynnast þessari myndgerð án
fordóma og með eðlilegum húmor,
þá finnst þeim þessar myndir reglu-
lega fallegar og fá eitthvað út ú r
þeim sem reynizt ekkert drasl þ° Tr
ti! lengdar lætur Síðan bið
heilsa íslenzku þjóðinm oc
anum og vonast til að sjá ♦
fyrst á Kjarvalsstööuni