Morgunblaðið - 14.11.1976, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.11.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1976 ^0 Kaupið ekki kðttinn i sekknum NÚ GILDIR AÐEINS RÖKRÉTT HUGSUN. LITSJÓNVARP KOSTAR MARGRA MÁNAÐA LAUN. ÞAÐ MÁ EKKI RASA AÐ NEINU, EKKI LÁTA TILFINNINGARNAR RÁÐA, EKKI LÁTA BERAST MEÐ STRAUMNUM. NÚ SKAL TEKIN SJÁLFSTÆÐ, YFIRVEGUÐ ÁKVÖRÐUN. Litsjónvarp hefir einn meginkost umfram þaö svarthvíta. Fyrir þenn- an eina kost vilja margir greiöa hátt verö. Of margir, segja sumir. Þaö metur þú sjálfur hvort rétt sé. Viö teljum þaö hins vegar í okkar verkahring aö benda þér á annað sem athuga þarf ef þú ert aö hug- leiða litsjónvarpskaup. Litsjónvarpi fylgja vandamál, önnur og öðruvísi en áöur var aö venjast. Ef eitthvað bilar eru t.d. varahlutir dýrari (myndlampinn einn kostaói allt aö 100.000 krónur síðast, hver veit hvaö þaö veröur næst?). Öll stilling er vandasamari því litkerfið er allt næmara en þaö svarthvíta (skilyröin hjá næsta nágranna þín- um geta jafnvel verið önnur en hjá þér sjálfum). Og, satt aö segja, vit- um viö ekki enn hvaöa sérstakir erfiðleikar kunna aö koma í Ijós viö margháttaðar íslenskar aöstæöur. ÞAÐ ER AÐEINS TIL EITT RÁÐ VIÐ ÞESSUM VANDA: AÐ KAUPA ÖRUGGT MERKI MEÐ LANGRI ÁBYRGÐ ÞAR SEM ÞJÓNUSTAN ER GÓÐ. Viö höfum lagt metnaó okkar i aö svara þessum kröfum. Nú bjóöum viö: TVÖ GÓÐ MERKI: Þriója hvert litsjónvarp sem nú er selt í Vestur-Þýskalandi er frá GRUNDIG. Hvaö segir þaö þér ef erfiðustu kaupendur heims halla sér i svo rikum mæli aö einni teg- und? SABA tækin eru gerð í Svarta- skógi þar sem menn leggja stolt sitt í gæöin. SABA útvarpsvörur hafa aldarfjórðungs reynslu hér- lendis. SJÖ DAGA SKILAFRESTUR: Þú getur keypt hvort merkiö sem er. Ef þér líkar ekki tækiö máttu skila því til okkar og fá peningana þína til baka. Þú hefur viku til um- hugsunar. ÞRJÁTÍU DAGA RÉTTURINN: Ef tæki bilar fyrsta mánuöinn tök- um viö þaö aftur og látum þig hafa annað eins í staöinn, (svo fremi sem þaö er til). LENGRI ÁBYRGÐ: Árs ábyrgö er á hverju tæki eins og lög gera ráö fyrir. Ef þaö bilar greiöum viö efni og vinnu. Auk þessa ábyrgjumst viö aö mynd- lampinn (þessi dýri, munið þiö?) endist og starfi eðlilega i fimm ár. Ef hann bilar færöu nýjan. EINFALT TÆKNIMÁL: Einingaverk nefnum vió nýja, ein- faldari samsetningu sjónvarpstækja, sem bæöi GRUNDIG og SABA nota. Verkiö er sett saman úr 12-17 einingum. Ef ein þeirra bilar skipt- um viö um. Svo einfalt er þaö. Þetta styttir viögeröartímann, þú færö örugga þjónustu meðan þú bíöur. Fjögur töfraoró látum viö svo fylgja, það er óþarft aö láera þau, nægir aö vita aö þessi galdratæki eru öll á sínum staö í GRUNDIG og SABA sjónvarpstækjunum. ”IN LINE SYSTEM”. Ný, gjörbreytt gerö myndlampa sem gefur skarp- ari litmynd og er ekki eins hætt viö vanstrllingu og eldri geröum, t.d. viö flutning. "THYRISTOR” er arftaki smárans (transistorsins), gegnir sama hlut- verki en er miklu seigari og endist betur. Hann er í GRUNDIG tækjum þar sem mest mæöir á og smárar hafa enst hvaö skemmst. ”COLOR KILLER” er sjálfvirkur rofi sem breytir i svarthvita mynd er óhagstæö skilyrði eöa vanstilling hindra eðlilega birtingu í lit. "AUTOMATIC VOLTAGE” er spennu- stillir sem jafnar sveiflurnar sem veröa tíðum í rafkerfinu og hlífir tækinu viö því álagi og sliti sem því fylgir. ERTU ENN AÐ HUGSA UM SVARTHVÍTT? Já, hversvegna ekki? Þaö ér marg- ra mat, miðaö viö hag og horfur, aö ekki sé tímabært nú aö drífa sig í "litinn”. Spurningin er aöeins sú hvort aöstæöurnar breytast fyrr en varir og þú kunnir aö sjá eftir öllu saman. Jæja, viö bjóöum þér þetta: Innan þriggja ára tökum viö óskemmt svarthvítt tæki, keypt hjá okkur, upp í viö kaup á nýju lit- sjónvarpi, aö sjálfsögöu meö eöli- legri afskrift. Þetta veröur aö nægja aö sinni um GRUNDIG, SABA og þjónustuna hjá okkur. Nú bjóöast þér líklega ein átján merki önnur, hjá níu verzlun- um eöa svo, sem þú kannt aö vilja gera samanburð á. Já, taktu þér góöan tima. Kauptu nú ekki köttinn í sekknum. Þegar þér hentar erum viö reiöu- búnir aö gangast undir yfirheyrstu eöa senda þér tæki heim til reynslu í sjö daga. Þröstur Magnússon Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps útvarps og hljómtækja VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150. r •»•««•«• « »• ••« * * • •-•;* •«••**• # • » • * + A *■«»'*'■# 't ♦ * 9 4 i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.