Morgunblaðið - 14.11.1976, Blaðsíða 1
64 SIÐUR
265. tbl. 63. árg.
SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Carter ráðfærir
sig við Dean Rusk
Plainíi — 13. nóvember. Reuter AP.
! DAG ræðir Jimmy Carter nýkjörinn
forseti Bandaríkjanna, utanríkismálefni
við Dean Rusk, sem var utanrfkisráð-
herra í stjórnum Kennedys og Johnsons
um átta ára skeið.
Jody Powell, blaðafulltrúi Carters,
sagði í gær, að ekki væri útilokað að þess
yrði farið á leit við Henry Kissinger,
utanríkisráðherra Fords, að hann gegndi
áfram samningahlutverki sínu í Mið-
austurlöndum fyrir hönd Bandaríkja-
stjórnar, eftir að Carter tekur við emb-
ætti 20. janúar n.k.
Alexander Haig, yfirmaður alls
herafla Atlantshafsbandalagsins í
Evrópu, sagði í gær, að hann
byggist ekki við stefnubreytingu
Bandarikjastjórnar í málefnum
bandalagsins eftir að Carter er
tekinn við stjórninni. Hann taldi
ólíklegt, að niðurskurður fjárveit-
inga til varnarmála hefði i för
með sér breytingu á stöðu Banda-
ríkjanna í Evrópu.
Fyrr í vikunni tilkynnti Ford
forseti, að skipunartímabil Haigs
hefði verið framlengt um tvö ár,
þó með þeim fyrirvara að Carter
kynni að breyta þessari ákvörðun.
Alexander Haig lýsti þvi yfir i
dag, að hann ætti ekki von á því
að þessari ákvörðun yrði breytt
eftir að Carter tekur við Stjórnar-
taumunum.
Að loknum fundi sinum með
Pólland:
Herferð gegn
hjálparstarfi
við verkamenn
Varsjá, 13. nóvember. Reuter
LÖCREGNAN í Varsjá
handtók f gær Piotr Naimski,
sem hefur að undanförnu tekið
þátt f skipulagningu hjálpar-
starfs vegna þeirra verkamanna,
sem pólsk yfirvöld hafa beitt
refsiaðgerðum vegna verkfalla og
uppþota í júnfmánuði s.l.
Naimski er 25 ára lífefnafræð-
ingur. Hann starfar í nefnd 18
manna, sem að undanförnu hafa
safnað sem svarar rúmlega þrem-
ur milljónum íslenzkra króna, en
féð á að renna til fjölskyldna
þeirra verkamanna, sem misst
hafa atvinnu sína vegna þátttöku
í mótmælaaðgerðunum i júni.
Carter í dag sagði Hamilton
Jordan, sem stjórnaði kosninga-
baráttu hins nýkjörna forseta, að
þegar hefðu borizt um 3 þúsund
tillögur um menn í 200 æðstu
stöður, sem Carter skipar í.
Eltu flótta-
menn yfir
landamærin
Omungwelume, 13. nóv.
Reuter.
ANGÓLSKIR og kúbanskir
hermenn réðust tvö hundruð
metra inn fyrir landamæri
Suðvestur-Afríku fyrir tíu dög-
um og höfðu á brott með sér 20
til 30 flóttamenn sem þeir
höfðu veitt eftirför að sögn
lögreglustjórans í
Omungwelume f Suðvestur-
Afríku, Eric Winter.
Flóttamenn segja að
angólsku og kúbönsku her-
Framhald á bls. 31
SPÆNSKA lögreglan handtók
247 verkfallsverði meðan stóð á
sólarhringsverkfalli þriggja
verkalýðshreyfinga gegn stefnu
stjórnarinnar f efnahagsmálum
að sögn talsmanns innanrfkis-
ráðuneytisins f Madrid í dag.
Hann sagði að 548.698 verka-
menn hefðu tekið þátt í verkfall-
inu í gær og hinir handteknu yrðu
sektaðir. Talsmenn verkalýðs
félaganna ségja hins vegar að
tvær milljónir af átta milljónum
verkamanna Spánar hafi tekið
þátt í verkfallinu og um 400 hafi
verið handteknir sfðustu daga.
Verkfallið náði aðallega til
iðnaðarins og olli ekki röskun á
lífi fólks í helztu borgum.
Starchik
sleppt
Moskvu, 12. nóvember. Reuler.
TÓNSKALDINL Pyotr Starchik,
sem fluttur var á geðveikrahæli í
septembér s.l. var sleppt úr haldi
f gær, að því er félagar háns f
andspyrnuhreyfingunni skýrðu
frá í dag. Frá því að Starchik var
tekinn til meðhöndlunar á hæl-
inu hafa honum verið gefin ýmiss
konar lyf, þar á meðal „halo-
peridol", sem orsakar tauga-
krampa, vatnssýki, þunglyndi og
deyfð, en þrátt fyrir þessa með-
ferð segja félagar hans að líðan
hans sé nú með eðlilegum hætti.
Talið er að athygli sú, sem mál
Starchiks hefur vakið meðal al-
mennings á Vesturlöndum, svo og
stuðningsyfirlýsing um 80 manna
hóps hafi stuðlað að því að Starc-
hik var sleppt úr haldi, en f þess-
um hópi voru meðal annarra
Vladimir Borisov og Pyotr.Grigor-
enko, fyrrverandi hershöfðingi.
Báðir þessir menn hafa verið í
haldi á geðveikrahælum
Ástæðan fyrir þvi að Starchik
var handtekinn um miðjan sept-
ember var sú,að hann hafði dauf-
heyrzt við áskorunum KGB um að
hætta vikulegu tónleikahpiHi á
heimili sinu í Moskvu. Þar voru
meðal annars sungin ljóð um dvöl
í fangabúðum og lög við ljóð eftir
Osip Mandelstam frá því fyrir síð-
ari heimsstyrjöldina, en verk
skáldsins hafa aldrei fundið náð
fyrir augum sovézkra stjórnvalda.
Lögreglan leysti upp göngur og
fundi til stuðnings verkfallinu. 1
Barcelona skaut lögreglan
gúmmíkúlum til að dreifa um
5.000 verkamönnum og stúdent-
um og sjónarvottar segja að um 12
hafi verið handteknir.
Það dró nokkuð úr áhrifum
verkfallsins að kommúnistar og
sósíalistar vöruðu stuðningsmenn
sína við því að koma af stað átök-
um sem gætu aukið andstöðu
hægrimanna gegn umbótastefnu
stjórnarinnar sem miðar að af-
námi einsflokkskerfis og verður
rædd eftir nokkra daga í þinginu,
Cortes. Stefna stjórnarinnar gerir
ráð fyrir þingi í tveimur deildum,
beinum og leynilegum kosningum
og almennum kosningarétti.
ALLT A FLOTI... — Það er því miður ekkert útlit fyrir að þessar
tvær geti slegið niður regnhlífunum sínum i dag ef þær þurfa i
bæinn, og þessi ljósklædda á milli þeirra verður áreiðanlega að
halda áfram að halla sér upp að þeim eins og hér á myndinni, ef
hún slæst aftur i för með þeim. Veðurstofan var ekki aldeilis á
þeim buxunum í gærmorgun að veðrið ætti eftir að skána þennan
sólarhringinn; hún spáði rigningu annað slagið og svo sjö til átta
vindstigum hér í höfuðstaðnum til þess að þeyta henni framan í
vegfarendur.
V erkf allsmenn
teknir á Spáni
Madrid, 13. nóvcmbpr. Rculcr.
Fleiri nefndarmenn hafa verið
handteknir í herferð yfirvalda
gegn hjálparstarfinu og hafa þeir
yfírleitt verið hafðir í haldi hluta
úr degi. Leitað hefur verið á
heimilum þeirra og hefur lögregl-
an lagt hald á skjöl um störf
nefndarinnar.
Allsherjar-
fundi frestað
Genf — 13. nóvember
— Reuter.
Áformuðum allsherjarfundi
Genfarráðstefnunnar um framtíð
Rhodesiu var í dag frestað til
mánudags. Umræður um sáttatil-
lögu Ivor Richards voru á dagskrá
fundarins. Leiðtogar blökku-
manna fengu tillöguna í hendur I
gær, en töldu sig þurfa lengri
frest til að ræða hana.
NATO óttast aukinn
k jarnorkumátt Rússa
Brtlssel, 12. nóvember. Reuter.
Landvarnarráðherrar NATO koma saman til fundar í London í
næstu viku til að ræða áætlanir bandalagsins um hvernig það
skuli heyja kjarnorkustyrjöld og endurbætur sem verið euað gera
á 7.000 kjarnorku búnaði Bandaríkjamanna í Evrópu.
Bandarikjamenn hafa þegar
gefið Rússum til kynna að þeir
geti ekki haldið áfram að efla
kjarnorkuherafla þann sem
þeir ætla það hlutverk að nota
gegn Vestur-Evrópu með þvi að
senda til Evrópu flugvélar af
gerðinni F-lll og^ F-16 sem eru
betur hæfar til'að bera kjarn-
orkuvopn en flugvélar af gerð-
inni F-4 Phantom sem verða
teknar úr umferð.
Vestur-Þjóðverjar og fleiri
NATO þjóðir óttast að kjarn-
orkujafnvægið í Evrópu sé far-
ið að raskast Rússum í vil þar
sem Rússar hafa tekið í notkun
nýja meðaldræga kjarnorkueld-
flaug, SS-X-20, tveggja þrepa
Framhald á bls. 31