Morgunblaðið - 14.11.1976, Síða 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÖVEMBER 1976
302.000,- og Guðmundur varma
yfirbreiðslu sem kostar um kr.
150—200.000-
í öllu baslinu er gott að finna
þennan góða stuðning sam-
ferðamannanna og skal því tek-
ið undir með skáldinu frá Bólu.
Víða til þess vott ég fann
þó vendist oftar hinu
að guð á margan gimstein þann
sem glóir i mannsorpinu.
SKÓLI — LEIKSKÓLI
Nokkur undanfarin ár hefur
verið unnið að smíði skólahúss,
sem er almennt kennsluhús-
næði og búningsklefar fyrir
sundlaug og væntanlegt
íþróttahús, samtals 950 fm.
Mesti hluti þessarar nýbygg-
ingar hefur verið tekinn í notk-
un, og nú þessa dagana verður
opnaður leikskóli, sem rauða-
krossdeildin hér mun reka í
vetur í anddyri og í hluta skóla-
byggingarinnar.
Óhjákvæmilegt er að ljúka
þessari byggingu á árinu og
hinu næsta. Ekki má dragast
lengi enn að hefjast handa um
byggingu íþróttahúss, sem er
mest brennandi mál skólans
eins og sakir standa.
í vetur eru 190 nemendur í
níu bekkjardeildum grunnskól-
ans.
Starfandi kennarar eru 15
auk skólastjórans Arnar For-
bergs. Aðeins einn kennari er
nú aðkominn, en allmargar hús-
mæður gegna kennslustörfum
að hálfu. Auk hinna hefð-
bundnu námsgreina verða
kennd bæði siglingafræði og
sjóvinna.
Tónlistaskóli hefur starfað
hér í eitt ár og nú hefur verið
ráðinn skólastjóri til tveggja
(Ljósm. Bærinj' Cecilsson)
✓
hefjast handa, þó ekki sé útséð
með hvaða hætti á að fjár-
magna fyrirtækið.
BYGGINGARFRAMKVÆMD-
IR
Nú eru í smíðum 17 einbýlis-
hús, og stöðugt er ungt fólk að
sækja um lóðir og undirbúa sig
á einn eða annan hátt, að koma
yfir sig þaki. Enn sem komið er
hafa Grundfirðingar ekki hlot-
ið náð hjá húsnæðismálastjórn
til þess að byggja leiguíbúðir á
vegum sveitarfélagsins. Þess er
fastlega vænst að ekki verði
gengið endalaust fram hjá okk-
ur i þessum efnum og að
skýrslufargan stofnunarinnar
glepji ekki svo fyrir henni sýn,
að hún sjái ekki brýna þörf
okkar fyrir aukið húsnæði.
Eldri fiskvinnslufyrirtækin
hafa ótrauð haldið áfram mark-
vissri uppbyggingu sinni og ný
rísa. Eru fiskvinnslufyrirtækin
orðin 5 að tölu, og vantar þó
feitmjölsverksmiðju sem verð-
ur að rísa hér innan tíðar.
Þrátt fyrir mörg óleyst verk-
efni og ótalda þröskulda verður
ekki annað sagt en að bjartsýni
sé rikjandi i Grundarfirði og
fólk trúir því að framundan sé
betri tíð með blóm í haga.
GATNA OG
HOLRÆSAGERÐ
í sumar hefur áfram verið
unnið hægt og bítandi við skipt-
ingu jarðvegs og íagna í kaup-
túninu og stendur sú vinna yfir
enn. Er þá undirbúningi því
næst lokið fyrir varanlegt slit-
lag á allá Grundargötu og
Hrannarstíg, sem mynda „þjóð-
veg í þéttbýli". Verður því haf-
Nýja sundlaugin
ára Bjarki Sveinbjörnsson, en
auk hans kennir við skólann
sóknarpresturinn okkar sr. Jón
Þorsteinsson. Skólastarfið fer
fram í félagsheimili kirkjunn-
ar.
Á degi hverjum æfir samkór
og kirkjukór undir stjórn
Bjarka og er fyrirhugað að kór-
arnir, ásamt nemendum tónlist-
arskólans, flytji kirkjutónleika
á aðventunni.
FELAGSHEIMILI
Samkomuhúsið, sem er gam-
alt og lítið er fjarri þvi að vera í
nokkrum takti við tíðina og er
þörf Grundfirðinga fyrir nýtt
félagsheimili mjög brýnt. Er nú
unnið að undirbúningi nýrrar
byggingar, og hefur Vífill
Magnússon arkitekt þegar gert
tillögu um viðbyggingu við
gamla húsið, sem er nú til skoð-
unar hjá heimamönnum.
Virðist mikill hugur í fólki að
ist handa um útlagningu olíu-
malar þegar næsta vor, enda
bíður á Harðakambi (á milli
Ólafsvíkur og Rifs) 2000 tonna
oliumalarhaugur, sem fram-
leiddur var í sumar, þess að
verða settur á göturnar. Verður
reynt að flytja olíumölina inn í
Grundarfjörð í haust ef samn-
ingar takast um flutninginn.
0 0 0
Á þessu hausti lét af störfum
stöðvarstjóra Pósts og síma i
Grundarfirði, Guðríður Sigurð-
ardóttir, eftir að hafa gegnt því
á fjórða tug ára. — Það mun
álit allra er til þekkja, að þessi
störf hafi Guðríður rækt af
mikilli alúð, endá naut hún
trausts og virðingar samborg-
ara sinna. — Þegar Guðríður
hvarf á brott héðan kvöddu
Grundfirðingar hana með
kveðjuhófi og færðu henni m.a.
málverk að gjöf, sem málað hef-
ur Kári Eiríksson.
- Emil.
Miklar hafnar-
framkvæmdir
—f jörkippur
í at vinnulif inu
ALLMIKLAR framkvæmdir
hafa verið á vegum sveitarfé-
lagsins, einstaklinga og fyrir-
tækja í Grundarfirði á sl.
sumri, og standa enn.
A erfiðleikaárunum fyrir
1970 hrönnuðust upp óleyst
verkefni sem beðið hafa úr-
lausnar allt til síðustu ára, og
eru reyndar æði mörg óleyst
ennþá.
Þrátt fyrir það að verulegur
bati væri merkjanlegur upp úr
1970, er á engan hallað þótt
fullyrt sé að fjörkippur hafi
komist í Grundarfjörð með
komu skuttogarans Runólfs,
sem flutti með sér nýjar vonir
og bjartsýni í byggðina.
Atvinnuástand er gott, en þó
vantar nýjar greinar, til þess að
gera atvinnuna fjölbreyttari og
er það verkefni, sem bíður úr-
lausnar.
H AFNARFRAMKV.
Á síðastliðnu ári var byrjað á
gerð nýrrar hafnar og var þá
keyrður út hafnargarður, sem
formar hina nýju höfn. G:rður-
inn er byggður á landi sem Eyr-
arsveit keypti úr jörðinni Gröf.
Grjótmagn er sem næst 64.000
rúmmetrar eða 12.047 bílhlöss
og heildarkostnaður kr. 46.7
milljónir. Á miðju sumri var
aftur hafist handa og rekið nið-
ur 45 m langt stálþil innan á
nýja garðinn, og stendur það
verk yfir enn. Framkvæmdir
hafa tafist, vegna þess að vant-
að hefur efni, en vonir standa
til að Hafnamálastofnunin nái
að senda það með síðasta haust-
skipi.
heildver; lun
Ólafur Kjartansson, Lækjargötu 2.
Nýju Ultralucent kremin halda
rakanum sérlega vel i húðinni enda
kemur árangurinn strax i Ijós.
Guðríður Sigurðardóttir (sitjandi) sem lét nýlega af starfi stöðvar-
stjóra Pósts og sfma er hér f hópi starfsstúlkna.
Fyrirhugað er að nota nýju
höfnina á næstu vertíð og er
reiknað með að þessi áfangi
kosti um 30 milljónir króna.
Verkstjóri bæði árin hefur
verið Bergsveinn Breiðfjörð,
sem hefur farist þetta verkefni
vel úr hendi.
SUNDLAUG
Síðastliðin tvö ár hefur verið
unnið að smíði sundlaugar, og
var hún tekin i notkun í haust
við mikinn fögnuð Grundfirð-
inga, og þó einkum ungu kyn-
slóðarinnar.
Nú stendur yfir sundkennsla,
sem Guðráð Pétursson íþrótta-
kennari annast, og taka þar
þátt ekki færri en 190 börn og
ungiingar.
Á kvöldin og um helgar er
laugin opin almenningi og er
hún óspart notuð.
Frá hafnargerð f Grundarfirði.
Sundlaugin er útiiaug, og er
íslensk smíði svokölluð plast-
laug að stærð 16% m x 8 m.
Heildarkostnaður þessa mann-
virkis í dag er kr. 13.3 millj. og
er þvi, sem næst lokið.
Sundlaugin verður vigð
næsta sjómannadag til heiðurs
þeim, enda verið drjúgir að
safna í Sundlaugarsjóð, eins og
reyndar ýmsir fleiri svo sem
Kvenfélagið, Lionsmenn og
fjölmargir einstaklingar. Nú
allra sfðustu daga gáfu athafn-
armennirnir og fyrrverandi sjó-
sóknarar Soffanías Cecilsson og
Guðmundur Runólfsson laug-
inni stórgjafir, Soffanias plast-
laugina sjálfa að verðmæti kr.
Fréttabréf frá Grundarfirði: