Morgunblaðið - 18.12.1976, Page 3

Morgunblaðið - 18.12.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976 3 Bankaráðskosn- ingar á mánudag? SAMKVÆMT upplýsingum, sem Mbl. fékk I gær, var þá enn ekki ljóst, hvenær kosning I bankaráð hinna fjögurra rfkisbanka færi fram á Alþingi, en lfkur bentu þó til að kosningarnar gætu farið fram á mánudag, en þingfundir eru þó ráðgerðir á laugardag, þar sem svo mikið af verkefnum tiggur fyrir, áður en þingmenn fara f jólaleyfi. Rikisbankarnir eru fjórir: Seðlabanki, Landsbanki, Utvegs- banki og Búnaðarbanki. 1 hverju bankaráðanna sitja 5 menn, sem nú skal kjósa að nýju. I Seðla- bankaráði sitja Ragnar Ólafsson, formaður, , fyrir Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna, Ingi R. Helgason, varaformaður fyrir Alþýðubandalag, Pétur Sæmund- sen fyrir Sjálfstæðisflokk, Jón Skaftason fyrir Framsóknarflokk og Sverrir Júliusson fyrir Sjálf- stæðisflokk. I bankaráði Landsbankans sitja Einar Olgeirsson, formaður fyrir Alþýðubandalag, Kristinn Finn- bogason, varaformaður fyrir Framsóknarflokk, Árni Vilhjálmsson fyrir Sjálfstæðis- flokk, Baldvin Jónsson fyrir Alþýðuflokk og Kristján G. Gisla- son fyrir Sjálfstæðisflokk. I bankaráði Otvegsbankans sitja Ólafur Björnsson, formaður fyrir Sjáifstæðisflokk, Halldór Jakobsson, varaformaður fyrir Alþýðubandalag, Guðlaugur Gíslason fyrir Sjálfstæðisflokk, Haraldur Henrýsson fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna og Björgvin Jónsson fyrir Fram- sóknarflokk. I bankaráði Búnaðarbankans sitja Stefán Valgeirsson, formað- Framhald á bls. 26 Járnblendið: Undirbúningur fram- kvæmda að hefjast N(J, þegar að mestu hefur verið gengið frá samningum við norska fyrirtækið Elkem Spigelverket, hefur af hálfu Islenzka járn- blendifélagsins verið tekið til við að undirbúa framkvæmdahliðina á nýjan leik. Að sögn dr. Gunnars Sigurðssonar, stjórnarformanns fslenzka járnblendifélagsins, hefur þegar verað gengið frá út- boði á stáli vegna þeirra fram- kvæmda, sem fram munu fara á Grundartanga og auk þess vegna ýmiss konar jarðvinnslu á svæðinu enda þótt hluta þess verks sé þegar lokið. Að þvi er Gunnar sagði er núna verið að vinna að ýmsum undir- búningsatriðum fyrir fram- kvæmdirnar á svæðinu vegna járnblendiverksmiðjunnar, þar sem endurhanna þarf ýmsa þætti vegna hins nýja eignaraðila. Gunnar sagði, að enda þótt vinnsluaðferðin væri alveg hliðstæð hjá Elkem og Union Carbide þá notuðu Norð- mennirnir annars konar ofna og þar sem sjálft verksmiðjuhúsið væri i aðalatriðum byggt utan um ofnana yrði ekki hjá þvi komizt að breyta húsinu i samræmi við það. Islenzka járnblendifélagið hefur þegar fengið loforð hjá Norræna fjárfestingarbankanum fyrir framkvæmdaláni að fjárhæð um 200 milljón krónur norskar eða 7,2 milljarðar islenzkra króna en hins vegar er eftir að ganga formlega frá því láni. Gluggaskreytingin f Breiðagerðisskóla er hin glæstlegasta eins og sjá má. Ljósm. rax Leikarar og leikstjóri Láka f Ijótri klfpu. I aftari röð talið frá vinstri er kynnir leikritsins, þá „nemandi", leikstjóri, „móðir“ og „kennslukona“, sem krakkarnir sögðu að Ifktist Elizabeth Taylor. 1 fremri röð eru svo önnur „móðir“, „ráðskona", „þjónustustúlka" og Láki. Láki í ljótri klípu: Jólaleikrit Breiðagerð- isskóla t Breiðagerðisskóla stóð yfir leikæfíng I gær á leikritinu Láki f ljótri klfpu, sem sýnt verður á litlu jólum skólans i dag. Það eru nemendur úr 6. B., sem leika I leikritinu og kennarinn þeirra, Njáll Guðmundsson, leikstýrir. Þau virtust hvorki kviðin né með frumsýningarhroll, þegar við litum inn á æfingu f gær. Við smelltum af þeim nokkrum myndum og óskuðum þeim góðs gengis í dag. Skólastjóri Breiðagerðisskóla sýndi okkur mósaik- gluggaskreytingu, sem nemendur úr öllum bekkjar- deildum hafa gert undir hand- leiðslu teiknikennara sfns, Guðrúnar Júlfusdóttur. Nýjar skósendingar ieknar MIKIÐ ÚRVAL AF ★ gallabuxum ★ flauelsbuxum ★ bíússum ★ skyrtum ★ kuldajökkum og allskonar sportfatnaöi. Opið til kl. 10 í kvöld \ffSm TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS lp) KARNABÆR Austurstræti 22 Simi frá skiptiborði 28155 Opið til kl. 10 í kvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.