Morgunblaðið - 18.12.1976, Side 7

Morgunblaðið - 18.12.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976 7 Hin glæru gler sýndar- mennskunnar 1 Skæðadrífu breytingartil- lagna við f járlagafrum- varpið hefur ringt niður é borð þingmanna undan- famar vikur, einkum og sér i lagi frá stjórnarand stöðunni. Og það eru eng- ar smáupphæðir, sem þessi plögg hafa að geyma Þar hrannast sam- an útgjaldaliðir upp á marga milljarða- króna en hvergi bólar á aðhalds- votti eða sparnaðarvið- leitni. Það er létt verk að leita uppi fjármagnsþörf hjá ýmsum þörfum málaflokk- um og gera tillögur um nokkur milljónahundruð i þessa áttina og önnur milljónahundruð i hina. Hitt hefur vafist fyrir þessum tillöguglöðu þing- mönnum sýndarmennsk- unnar að benda á fjár- öflunarleiðir til að mæta útgjoldunum, enda bólar hvergi á minnstu viðleitni i þá átt. Þvert á móti krefjast þeir þess, sam- hliða útgjaldatillögum sín- um, að tekjuöflun ríkis- sjóðs sé verulega dregin saman. Og ekki nóg með það, heldur deila þeir á skuldasöfnun rikisins og vaxandi vaxtabyrgði. Þessi málflutningur allur stangast hastarlega á og hvað rekur sig á annars horn. Siðan koma leiðara- skrif. þar sem frá þvi er greint af heilagri vandlæt- ingu, að stjómarliðið hafi fellt hin góðu málin, sem stjómarandstaðan hafi flutt, sé á móti hærri elli- launum, fleiri sjúkrahús- um og þar fram eftir götunum. Allur byggir þessi loddaraleikur á því, að hinn almenni borgari brjóti aldrei mál til mergj- ar, liti aðeins á yfirborð mála en kafi ekki ofan i þau. Hann byggir sem sé á taumlausri fyrirlitningu á dómgreind hins al- menna borgara. Hætt er þó við að hér reikni stjórnarandstaðan dæmið sitt skakkt. Hinn almenni borgari þekkir sem sé af eigin reynslu að tekjur heimilanna sniða útgjöld- um þeirra stakk. Sama máli gegnir með þjóðar- heimilið. Fjölskyldumeð- limur, sem gerir tillögur um útgjaldaliði, sem eru i engu samræmi við greiðlsumöguleika, heimilisins er einfaldlega ekki marktækur. Þar af leiðir að fólk almennt sér í gegn um hin glæru gler sýndarmennskunnar — og þar blasir við ábyrgðar- leysið eitt. En það er ein- mitt þessi loddaraleikur sem á drýgstan þáttinn i því að Alþingi hefur sett niður i augum alþjóðar á undanförnum árum. Flokks- pólitískir hagsmunir ÞaS hefur stundum ver- ið á það drepið hér i stök- um steinum, hve vinstri armur islenzkra stjóm- mála sé margklofinn og sjálfum sér sundurþykkur. Jafnvel smá flokkseining, eins og SFV, sem hafði að markmiði „sameiningu vínstri afla", klofnaði i ótal smábrot. Alþýðu- bandalagið er samansett af margs konar „sértrúar- söfnuðum". Á vinstri væng þess eru einnig þó- nokkrir sjálfstæðir smá- hópar: Sósialistafélag Reykjavikur, Fylkingin, Kommúnistaflokkur ís- lands, Einingarsamtök kommúnista — eða hvað þær heita nú allar „sell- urnar", sem einangrast hafa frá samfélaginu um- hverfis þær. En það kem- ur engu að siður ýmislegt i Ijós „þegar hjúin deila"; þegar þessi brota-brot fara i hár saman, sem er eitt höfuðviðfangsefni þeirra. í leiðara eins sellu- blaðsins nýverið er eftir- farandi lýsing á Alþýðu- bandalaginu: „Hvarvetna þar sem barátta hefst reyna póli- tiskir flokkar að eigna sér hreyfinguna og færa hana inn á sér hagstæðar braut- ir. Sérstaklega kemur þetta skýrt fram hjá Al- þýðubandalaginu. Það hefur mátt sjá það á sið- um Þjóðviljans, hvernig Alþýðubandalagið þykist standa fremst i flokki þeirra, sem vilja raunhæf- ar aðgerðir til að verja kjör og hagsmuni verka- lýðsins, en i raun hefur þetta farið á annan veg. Á sama hátt og aðrir hefur Alþýðubandalagið aðeins reynt að nota hreyfinguna fyrir þrönga flokkspili- tiska hagsmuni sina. Þeg- ar Alþýðubandalagið hef- ur talið að baráttan þjón- aði sér ekki hefur það snúizt gegn henni. Ljós- asta dæmið um þetta er kannski hvernig Ab. sner- izt gegn baráttu ABS með rógi og lygum. . . Við meg- um ekki láta blekkjast af fagurgala Ab. eða annarra þvi að reynslan sýnir okk- ur að þeir munu svikja við fyrsta og bezta tækifæri." | Sjá messutilkynningar á bls. 10 í blaðinu í dag Það kann að virðast erfitt að velja góða bók í öllu jólaflóðinu, en er það svo? Islandsferðin 1907 För Friðriks konungs áttunda og ríkisþingmanna til Færeyja og íslands. Tveir danskir blaða menn. Svenn Poulsen og Holger Rosenberg, fylgdust með kon- ungi og skrifuðu bók þessa sem er um 330 bls og í henni eru um 200 myndir. Harpa minninganna Minningar Árna Thorsteinsson- ar tónskálds sem Ingólfur Kristjánsson færði í letur. í ævi- sögu þessa aldna Reykvíkings blandast þróun fæðingarborgar hans og afskipti hans af menn- ingarmálum og þá sérstaklega tónlistamálum landsmanna. Látleysi og gpðlátleg kímni ein- kenna frásögnina, sem iðar af lífi og glaðværð í bókinni eru um 80 myndir af einstaklingum og hópum, en Árni starfaði um ára- bil sem Ijósmyndari. I ís og myrkri eftir Friðþjóf Nansen. í ferða- bók þessari segir frá frækilegasta þætti Fram-leiðangursins norska (1893—96) þegar Friðþjófur Nansen fór við annan mann frá leiðangursskipinu, og gerði til- raun til að komast á norður- heimskautið en sneri síðan suður á bóginn og komst eftir fimmtán manaða svaðilför og mannraunir til Franz-Jósefslands. Bókin er yfir 300 bls. með fjölmörgum myndum Þetta eru þrjár bækur sem hafa verið ófáanlegar um langt árabil, en eru nú til i mjög takmörkuðu upplagi. Nú, það er ekki erfitt að velja góða bók, Isafoldarbök er göð bók. Rowenta, Kaffivélar 4 gerðir ROWENTA- UMBOÐIÐ IWI j p /V SUÐURVERI I V I I I Stigahlíð 45—47 Simi 82430 Blakboltar verðfrá kr. 18.30.-! Flestar gerðir af Fótboltar Verðfrá kr. 2080,- æfingaskóm m.a. Handboltar Verðfrá kr. 4510,- frá PUMA Körfuboltar Verðfrá kr. 2180. Verð frá kr. 1 932. - KLAPPAHSTIG 44 SIMI 1 1 783, LOUHOLUM 2 — 6 SIMI 75020

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.