Morgunblaðið - 18.12.1976, Síða 11

Morgunblaðið - 18.12.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976 11 Guðlaug Sveinbjarnardóttir sjúkraþjálfari: „Annar eins maður og...” Val manna til forystu í félögum eóa stjórnmálaflokk- um hefur löngum verið tengd- ara einstaklingum þeim, er bjóðast til forystu, en málefn- um þeim er þeir teljast tals- menn fyrir. Þessi staðreynd er mörgum forystumanninum svo vel kunn, að hann lætur sér nægja slagorð og tilfinninga- áslátt máli sínu til stuðnings i stað málefnalegs rökstuðnings. Því hærra sem komist er í stig- anum, því minna eru menn spurðir út úr og þeim mun meira má láta frá sér fara af rökleysum og rugli. Alltaf finn- ast margir aðdáendur er telja, að allt, sem frá leiðtoganum komi, sé rétt. „Annar eins mað- ur og Oliver Lodge fer ekki með neina lygi.“ Grein Björns Jónssonar, for- seta ASÍ og fyrrverandi ráð- herra, sem birtist i Mbl. 14. þ.m. er gott dæmi um réttmæti ofangreindra þanka. Greinin ber nafnið: „Viljirðu sví- virða. . .“ og er innihald hennar í megindráttum: 1) Það er lítt sæmandi sjúkraþjálfara, er ritaði grein í Mbl. 10. þ.m., að geta ekki unnt gömlu fólki ókeypis þjálfunar hjá Heilsuræktinni á kostnað almennings og flutnings úr og í þjálfun án endurgjalds. 2) Sjúkraþjálfarinn ætti að skammast sín fyrir að vega „að því ágæta fólki, sem árum sam- an hefur lagt á sig ómælt ólaun- að erfiði" að endurhæfingar- málum. 3) Sjúkraþjálfarinn er fá- fróður að vita ekki að Heilsu- ræktin er sjálfseignarstofnun en ekki einkafyrirtæki. Ekki ætla ég að svara þessum aðfinnslum Björns Jónssonar, forseta ASl, utan einni. Heilsuræktin er ekki opinber stofnun. Fjármál stofn- unarinnar er ekki samvinnu- félag eða verkalýðsfélag. Hvað er þá Heilsuræktin? Samkvæmt lögum félagsins Heilsuræktin getur enginn orð- ið aðili að því félagi nema öll stjórn félagsins sé sammála um verðleika þess sem mælt er með að verði félagi. Félaga ber að kynna sér og breyta samkvæmt fræðilegum grundvelli heilsu- ræktar, Yoga og Judo. (Hvers á islenska bændaglíman að gjalda). Þeir sem standast kröf- ur um réttan hugsunarhátt og vinnuframlag í þágu félagsins (sbr. 6. gr. laganna) mega velja formann til 5 ára. Formaðurinn velur sér tvo meðst jórnendur. Það var af hreinni tilits- semi, að ég kallaði Heilsurækt- ina einkafyrirtæki. 1 raun væri orðið „klíka“ miklu betur til þess fallið að lýsa þessu félags- formi og það er höfuðnauðsyn, að þessu félagsformi verði aldrei ruglað saman við frjáls félagssamtök eins og t.d. Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra. Björn Jónsson, forseti ASl, lætur aðalatriðum greinar minnar ósvarað. Fé því, sem islendingar hafa efni á að verja til heilbrigðismála eru takmörk sett. Fram hjá þessari stað- reynd verður ekki komist. Ég hef starfað sem sjúkraþjálfari í 14 ár og tel mig engariafsakanir skulda Birni Jónssyni þótt ég ræði um kjör og aðstæður fatl- aðs fólks hér í Reykjavík. Og því miður er staðreyndin sú, að mikið vantar enn á, að fötluðu fólki jafnt ungu sem gömlu sé búin sú aðstaða til endurhæf- ingar, sem nútíma þekking i sjálfu sér ætti að gera því kleift að njóta. Hvað réð því, Björn Jónsson, að opinberir sjóðir voru opnaðir og utanríkisráðu- neytið virkjað 1 þágu Heilsu- ræktarinnar á sama tíma og þær opinberu og hálfopinberu stofnanir sem sinna endurhæf- ingu eru sveltar að fé og sjúkraþjálfarar ríkisspítalanna verða sjálfir að vera á snöpum meðal kollcga erlendis eftir vinnuafli til þjónustu fyrir ríkissjóð? Hvað réttlætir þá til- högun, að veikt gamalt fólk greiði almennt fyrir endurhæf- ingu en sæmilega heilbrigt fólk 67 ár og eldra fái ókeypis þjón- ust á kostnað hins opinbera, fari þeir til Heilsuræktarinn- ar? Það er í sjálfu sér athyglis- vert, að Björn Jónsson, forseti ASl, skuli fyrstur manna svara grein minni og reyndar enn þá athyglisverðara á hvern veg skrif hans eru. Tilfinningar virðast algerlega ráða ferðinni. Við upphaf þings í haust fluttu þrír fyrrverandi heilbrigðisráð- herrar tillögu um að sundlaug yrði byggð við Grensásdeild Borgarspítalans. Öllum þessum mönnum var það sammerkt að hafa notið hjúkrunar á deild þessari. Björn Jónsson, fyrrver- andi ráðherra, segir í grein sinni, að hann hafi notið árangursríkrar meðferðar í Heilsuræktinni að allir ættu að gleðjast yfir. Frá ráðherratíð allra þessara mætu manna verður ekki minnst sérstaks áhuga á málefnum fatlaðra. Því liggur nærri að ætla að af tii- finningaástæðum séu menn þessir orðnir eins konar eigin hagsmunamenn og búnir að missa nauðsynlega sýn yfir heilbrigðismálin sem heild. Þeir eru reyndar um leið orðnir lítt hæfir sem stjórnmálamenn til að raða upp verkefnum i röð eftir mikilvægi með tilliti til þarfa þess samfélags, er þeir búa í. Og verði framtíð Björns Jónssonar sú að gerast talsmað- ur „klíku“-athafna frekar en samfélagsþjónustu þá má hann að því vísu ganga, að „forseta" nefni hans festist innan gæsa- lappa. TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS KARNABÆR LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a SlMI FRÁ SKIPTIBORDI 28155 PL. 112 plötuspilari meö Ortofon hljóðdós. Hljómtæki frá Pioneer tryggja gæðin Staðgreiðslu- verð CS 313 hátalarar, sem skila hreinum tón. kr. 164.500, Komið og hlustið í nýju hljómdeildinni. OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.