Morgunblaðið - 18.12.1976, Síða 17
Jólaget-
raun um
umferd-
armál
ÞESSA dagana er verið að dreifa til
allra skólabama I Reykjavfk á aldrin-
um 6—12 íra jólagetraun um
umferðarmðl. Ætlast er til, a8 bömin
fari með getraunina heim til stn og
leysi hana meS aðstoS foreldra.
SkilastaSir eru lyfjaverslanir i borg-
inni og Iögreglustö8vamar. A8
kvöldi Þorláksmessu verSur dregiS
úr þeim lausnum, sem borist hafa.
Til verSlauna em 175 bækur. Hin
heppnu fá verSlaunin send heim á
aSfangadag. ASstandendur þessarar
getraunar eru lögreglan I Reykjavik
og UmferSemefnd Reykjavikur.
ÞETTA eru bækurnar, sem bfða
hinna heppnu. Verðlaunin fá
skólabörn heimsend á Þorláks-
messu.
MOEGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976
17
A ÞESSARI mynd má sjá hinar nýju gerðir Ford-dráttarvélanna með „lúxushúsi“, og á
myndinni er Einar Þorkelsson hjá Þðr hf. að afhenda Kristni Siggeirssyni bönda á Hörgslandi,
Hörgslandshreppi, V-Skaft, fyrstu vélina af þessari gerð. Fékk Kristinn um leið rafeinda-
armbandsúr að gjöf frá Þór af þessu tilefni, en Kristinn hefur ávallt verið með þelm fyrstu að
tileinka sér nýja tekni þegar hún hefur borist, að sögn Einars. Mun þetta vera þriðja nýja
Ford-dráttarvélin sem Kristinn eignast (sinni búskapartfð, 10 ár. (Ljósm. RAX)
Ford-dráttarvél
með „lúxushúsi,,
ÞÓR hf., sem hefur umboð fyrir
Ford-dráttarvélar kynnti í gær
nýjar gerðir dráttarvéla. Voru
það gerðirnar 4100, 4600, 5600 og
6600, og það er þeim öllum
sammerkt að þær eru með svo-
kallað „lúxushús".
Hús þessi eru að sjálfsögðu
öryggishús, en þau eru vönduð að
frágangi, og eru öllu betri en þau
hús sem hingað til hafa verið á
dráttarvélum Fords. Hús þessi
eru algerlega lokuð að sögr.
Einars Þorkelssonar hjá Þór. Að
sögn Einars eru þau einnig mjög
mikið einangruð, nánast eins og
venjuleg fólksbifreið, og gerir
þetta að verkum, að hávaða og
vélatitring er að mestu haldið
utan dyra. Einar sagði að þessi
nýju hús væru f raun og veru
smíðuð sem hluti af dráttarvél-
inni sjálfri, en þau grófsmfðuðu
hús og þær öryggisgrindur sem
áður gengu, og ganga reyndar
enn, voru eins konar auka hlutir
sem smellt var á.
I húsum þessum er miðstöð,
ásamt ferskloftsinntaki, og er
viftan fjögurra hraða. Þá er
tengdur þessu rúðublásari, svo
koma má í veg fyrir hélu og móðu
á rúðum, og er það til öryggis-
auka. Einar sagði okkur ennfrem-
ur að ferskloftsinntakið væri með
sjálfhreinsandi sfum, og það,
ásamt yfirþrýstingi f húsi, á að
koma f veg fyrir allt ryk í lúxus-
húsinu, að sögn Einars. Þá sagði
Einar okkur að ökumannssætið
væri stillanlegt, eftir stærð og
þunga ökumanns.
Palli var einn í heiminum
er aftur komin á kreik
HIN heimsfræga og vinsæla
barnabók, Palli var einn f heimin-
um, er nýlega komin út hjá Bóka-
útgáfunni Björk f Reykjavfk, en
hún hefur nú verið ófáanleg um
margra ára skeið. Bókin hefur
tvisvar áður komið út á fslenzku.
Höfundur bókarinnar er Jens
Sigsgaard, en hún kom fyrst út
hjá Gyldendal í Kaupmannahöfn
árið 1942. Hún hefur verið þýdd á
um 30 tungumál og er löngu kom-
in í tölu klassiskra barnabóka.
Arne Ungmann teiknaði mynd-
irnar í söguna um Palla og eru
þær f fjórum litum. Vilbergur
Júliusson skólastjóri þýddi bók-
ina á islenzku. Prentsmiðjan Oddi
hf. annaðist prentun og er bókin f
vönduðu og sterku bandi á góðum
pappfr.
íbúum Seltjarnar-
ness gefið jólatré
AFHENDING jólatrés, sem
Kiwanisklúbburinn Nes gefur
fbúum Seltjarnarnesbæjar, fer
fram við Félagsheimili Sel-
tjarnarness kl. 3.00 laugardaginn
18. desember. Jólatré þetta er
sent frá vinaklúbbi Ness f Noregi,
og er tréð höggvið rétt utan
Óslóar. Sama fyrirkomulag hefur
átt sér stað undanfarin ár.
Segir í frétt frá Kiwanisklúbbn-
um Nes að til að auka samskipti
Nesodden og Seltjarnarness hafi
norski klúbburinn boðið nokkr-
um börnum til að dvalar f Noregi
sl. sumar.
Sem fyrr er sala flugelda fyrir
áramót aðal fjáröflunarleið
klúbbsins, og verður svo enn nú.
Mun sala flugelda á vegum Ness
verða f ár, sem venjulega, í and-
dyri íþróttahússins á milli jóla og
nýárs.
<Ertu buxnctlcms 9
#?
-
Gallabuxurnar
sem endast & endast
■
D /1 LAUGAVEGUR
“2?-21599
BANKASTRÆTI
‘5?-14275