Morgunblaðið - 18.12.1976, Qupperneq 22
22
.MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976
Sigurdagur 1. desember 1976:
íslenzkt frumkvæði
í f iskréttarmálum
1 fyrradag var frá þvf skýrt f
fréttum að þann dag hefðu 11
erlend veiðiskip verið á
tslandsmiðum, en að á sama tfma
fyrir 5 árum hefðu erlend veiði-
skip verið 116 talsins.
Hugsanfegt er, að þessi frétt
hafi farið framhjá mörgum lands-
mönnum, en hér er um svo ein-
stæðan atburð að ræða, að ekkí er
hægt að láta undir höfuð leggjast
að hafda þeirri staðreynd á loft,
að tslendingar eru eftir áratuga-
baráttu, búnir að hreinsa erlenda
aðila svo til algjörlega út úr
fslenzkri fiskveiðilögsögu. Með
rökum, gegn vopnum höfum við
unnið sigur og virðingu þjóða.
Það er söguleg staðreynd, að á
grundvelli stefnumörkunar
núverandi ríkisstjórnar með þar
af leiðandi aðgerðum, hefur tekizt
að tryggja Islendingum full yfir-
ráð yfir fiskimiðunum umhverfis
landið.
Staðfesting þessi fólst m.a. i
hinum svonefnda Óslóar-
samningi, er Island og Bretland
gerðu með sér 1. júní s.l. er hafði
það í för með sér að brezk fiski-
skip hurfu af fslenzkum fiskimið-
um 1. des. 1976. Höfðu Eng-
lendingar þá stundað veiðar hér
við land í svo til samfellt 560 ár.
1. desember er þvf sem fyrr
merkisdagur í sögu þjóðarinnan
Sigurdagur eins og 1918, er
fullveldi Islands var viðurkennt.
En 200 mflna fiskveiðilögsaga
hér við land hefur ekki aðeins
merkilega þýðingu fyrir sögu
Islands, heldur einnig fyrir
heimsbyggðina.
Frumkvæði
*
Islands
Islendingar — hin fámenna
þjóð — norður á hjara veraldar,
tóku fyrstir Evrópuþjóða af skar-
ið um nauðsyn 200 sjómflna fisk-
veiðilögsögu og höguðu fram-
kvæmdum samkvæmt því.
Ef íslendingar hefðu ekki haft
þetta frumkvæði, væri enn verið
að kasta fiskréttarmálunum og
afstöðunni og 200 mflna fiskveiði-
lögsögu á milli manna á Haf-
réttarráðstefnum S.Þ. einu sinni
eða tvisvar á ári.
Nú hefur það skeið í kjölfar
aðgerða Islendinga, að hver þjóð
af annarri, og ríkjasambönd eru
einhliða að taka upp 200 sjómflna
fiskveiðilögsögu:
Bandarikin 1. marz 1977
Noregur 1. janúar 1977
Sovétrfkin hafa tilkynnt
ákvörðun þessa efnis
og EBE 1. janúar 1977
Allar eru þessar þjóðir l'A ári á
eftir Islendingum f framkvæmd
þessara mála, því eins og alþjóð
man, gaf Matthfas Bjarnason
sjávarútvegsráðherra út reglu-
gerð um 200 mflna fiskveiðilög-
sögu við Island 15. júlf 1975 og
kom hún til framkvæmda 15.
október sama ár.
Forysta Sjálf-
stæðisflokksins
Það er eftírtektarvert, hvað
Sjálfstæðisflokkurinn og forustu-
menn hans koma mikið við sögu f
landhelgismálum.
Og það er einnig vert að benda
á það hversu góður árangur næst
jafnan f þessum málum, þegar
tveir stærstu flokkar þjóðarinnar,
Framsóknarflokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn taka höndum
saman til sóknar f landhelgis-
málum.
Þegar barátta liðinna ára er
vegin og metin og horft er til
framtíðarnnar, er hollt að
minnast þess, með hvaða hætti
þróun þessara mála hefur verið.
Hverjir hafa markað stefnuna
og lagt grundvöllinn að hinum
miklu sigrum og tryggt að settu
marki yrði náð? Þvf það er auð-
vitað aðalatriðið. Þeir, sem
þannig vinna hljóta helzt að hafa
traust þjóðarinnar.
Stefnan mörkud
Fyrsta skrefið var stigið árið
1944 við myndun nýsköpunar
stjórnarinnar, undir forsæti Ölafs
Thors, þáverandi formanns Sjálf-
stæðisflokksins.
Meðal helztu stefnumála
þeirrar stjórnar var að vinna að
rýmkun fiskveiðilandhelginnar
og friðun á þýðingarmiklum upp-
eldisstöðvum fisks.
Framkvæmd þessarar stefnu-
mörkunar krafðist mikils undir-
búnings. Til þess að vanda hið
bezta til þessa verks, réði Ólafur
Thors, árið 1946, ungan þjóð-
réttarfræðing í utanríkisráðu-
neytið. Var það Hans G.
Andersen, núverandi ambassador
Islands f Bandaríkjunum. Hafði
hann kynnt sér landhelgismál sér-
staklega.
I samræmi við tillögur Hans G.
Andersen, voru gerð lög, sem
staðfest voru hinn 5. apríl 1948,
um vísindalega verndun fiski-
miða landgrunnsins.
Var þetta grundvallarlöggjöf
sem allar siðari ráðstafanir
Islendinga í fiskveiðilögsögumál-
um hafa byggzt á.
1 framhaldi af þessari löggjöf
var samningum við Bretland frá
1901 sagt upp sfðari hluta árs
1949.
Straumhvörf
1952
Næsti stórviðburðurinn verður
árið 1952, er Ólafur Thors,
þáverandi sjávarútvegsráðherra f
stjórn Steingríms Steinórssonar
gaf út reglugerð um verndun
fiskimiða umhverfis Island og
voru grunnlínur dregnar
hvarvetna til friðunar flóum og
fjörðum og 4. mílna landhelgi
ákveðin frá þeim grunnlínum.
Við þennaú atburð hinn 15. maí
1952, urðu straumhvörf í land-
helgismálum Islendinga. Stefnan
var mörkuð og vfsað á leiðina til
frekari aðgerða eftir því sem
þarfir og heill þjóðarinnar
krefðist.
Sfðan fóru vinstri ríkisstjórnir
troðnar slóðir með 12 mílna út-
færslunni 1958 og 50 mílunum
1972.
Viðurkenning
og friður
En vinstri stjórninni tókst ekki
að skapa frið um 12 mflna út-
færsluna árið 1958. Það er ekki
fyrr en árið 1961, sem viðreisnar-
stjórninni tekst að fá viður-
kenningu Breta fyrir þessari út-
færslu og 3 árum sfðar, eru þeir
komnir út fyrir 12 mílurnar.
Sama sagan endurtekur sig við
50 mflna útfærsluna 1972. Vinstri
stjórninni tókst ekki að skapa frið
um þá útfærslu, né tryggja viður-
kenningu fyrir henni. Bráða-
birgðasamninginn frá 1973
skyldu Bretar sem vopnahlés-
samning, er fæli ekki f sér viður-
kenningu. Og ekki tókst að fá
Vestur-Þjóðverja til að beygja sig
fyrir einhliða rétti Islendinga til
fiskimiðanna fyrr en núveranda
rfkisstjórn gekk f málið. Vestur-
þýzki samningurinn frá þvf f
nóvember 1975 felur í sér
ótvíræða viðurkenningu áþessum
rétti. Með þeim samningi var
brautin rudd og eftirleikurinn við
Breta gerður auðveldari.
200 mílna fisk-
veidilögsaga
Enn kemur það f hlut Sjálf-
stæðisflokksins í góðu samstarfi
við Framsóknarflokkinn, að taka
forustu í þessu mesta máli þjóðar-
innar og leiða það til lykta á
farsælan hátt, landi og þjóð til
sæmdar.
Eitt aðalatriðið í stefnuskrá
rfkisstjórnar Geirs Hallgrfms-
sonar, sem mynduð var sumarið
1974 var að færa fiskveiðilögsögu
tslands út í 200 mflur árið 1975.
Áður, eða f ágúst 1973 hafði
Sjálfstæðisflokkurinn markað
þessa stefnu.
Sem fyrr er frá greint, kom það
i hlut Matthíasar Bjarnasonar,
sjávarútvegsráðherra að fram-
kvæmahana.
Við mikla erfiðleika var að
stríða út á við.
Sigur unninn
Flestar voldugustu þjóðir
heims voru ekki búnar að gera
upp hug sinn til fiskveiðilögsögu-
mála árið 1975 og sumar voru
jafnvel fjandsamlegar. Fóru
Islendingar ekki varhluta af þvf
sem kunnugt er.
Hófust nú lokaátökin við þær
þjóðir, sem fjandsamlegastar
voru. Reyndust Bretar sérstak-
lega erfiðir — en fyrir harðfylgi
og þrautseigju ríkisstjórnarinnar
og þjóðarinnar tókst bæði að fá þá
og Vestur-Þjóðverja til að viður-
kenna samningsrétt og yfirráð
tslendinga yfir fiskimiðunum
innan 200 mflnanna. Aðrar þjóðir
eins og Norðmenn veittu
tslendingum beinan stuðning,
Sovétríkin stóðu álengdar en
Bandarfkin veittu Islendingum
stuðing á bak við tjöldin á síðustu
stigum hinna illvfgu átaka við
Breta.
1. júlí 1976 var sigurinn unnin
með samningnum í Osló.
30 ára baráttu
lokið
Baráttan um fiskimiðin við
landið tslendingum til handa
hófst á fyrsta ári lýðveldisins
undir forustu þáverandi for-
manns Sjálfstæðisflokksins og
henni lyktaði með endanlegum
sigri rúmlega 30 árum sfðar undir
forustu núverandi formanns
Sjálfstæðisflokksins, Geirs
Hallgrímssonar. Er þessi sigur
unninn í sameiginlegu átaki með
Framsóknarflokknum og á utan-
ríkisráðherra Einar Agústsson,
mikinn og giftudrjúgan þátt í
hinni farsælu lausn.
Sögulega merkilegt atriði í
harðri baráttu þjóðarinnar fyrir
stækkun íslenzkrar fiskveiðilög-
sögu er að núverandi rfkisstjórn
réðist í mestu og erfióustu
útfærsluna — úr 50 mflum í 200
mflur og tókst að tryggja frið um
hana og fulla viðurkenningu,
eftir eins árs harðvítuga baráttu.
Verndun fisk-
stofna
200 mílna fiskveiðilögsagan
kallar á nýtt stöðumat í utanrfkis-
stefnu Islendinga og samskiptum
við aðrar þjóðir.
Við höfum nú náð mikils-
verðum árangri í deilum við aðrar
þjóðir. Stefna Islands hef-
ur sigrað í fisklögsögumálum.
Afram verður haldið og lögð
áherzla á vfðtækar friðunarráð-
stafanir fiskstofna og að veiðar
lúti vísindalegri stjórn. Lífsspurs-
mál er að styrkja helztu fisk-
stofna að nýju, en að mati fiski-
fræðinga er ástand þeirra engan
veginn sem skyldi.
TARZANBÆKURNAR
eru nú að koma út i nýrri
útgáfu hjá Siglufjarðar-
prentsmiðju, en alls eru
hinar spennandi Tarzan-
bækur 25 talsins. Tarzan
snýr aftur er 2. bókin í
bókaflokknum um Tarzan.
I lok I. bókarinnar fékk Tarzan
sannanir fyrir því að hantTer lá-
varðurinn af Greystoke. Hann
yfirgefur þvf skóginn og heldur
Hagsmunir Islands og annarra
ríkja er liggja að Atlantshafi fara
saman f þeim efnum að byggja
upp og viðhalda helztu fiskstofn-
um í Norður Atlantshafi. Inn í
það blandast óhjákvæmilega
spursmálið um veiðiþol þeirra og
nýtingu.
Um þessi mál og önnur skyld,
hljóta að fara fram viðræður milli
þeirra þjóða er hagsmuna eiga að
gæta.
Á valdi
Islendinga
sjálfra
íslendingar komast ekki hjá því
að taka þátt í slíkum viðræðum,
en það er að sjálfsögðu á valdi
okkar Islendinga einna að ákveða,
hvort eða með hvaða hætti til
greina kæmi að heimila öðrum
þjóðum fiskveiðar innan hinnar
nýju fiskveiðilögsögu f fram-
tíðinni.
I þeim efnum virðist ekki vera
um mikið svigrúm að ræða til
samninga.
En í öllum viðræðum við
erlendar þjóðir f þessum efnum
sem öðrum, verður að sýna til-
hlýðilegt raunsæi f mati á stöðu
og hagsmunum þjóðarinnar í víð-
tækum skilningi.
Það lýsir miklu ábyrgðarleysi
fyrir utan það að vera ómerkileg
einföldun á stöðu Islands gagn-
vart umheiminum að segja, að við
aðrar þjóðir höfum við ekkert að
ræða.
Samofnir hags-
munir íslands
og annarra
Evrópulanda
Frjálst og fullvalda ríki verður
að eiga friðsamleg og sjálfstæð
samskipti við aðrar þjóðir á
grundvelli gagnkvæmra
samninga um hin ólfklegustu mál.
Hagsmunir þjóða nú á timum
eru svo samofnir og fjölbreytileg-
ir, að raunverulega verður ekkert
eitt atriði einangrað út af'fyrir sig
og leyst með þeim hætti. Líta
verður á gildi fleiri þátta er
þýðingu hafa og meta sfðan
stöðuna f heild og taka ákvarðanir
samkvæmt því.
I aldir hafa íslendingar verið f
sterkum tengslum við Norður-
löndin og Vestur-Evrópu.
Rökrétt afleiðing þessa hefur
verið sú, að þjóðlff á tslandi hefur
mótazt af hinum nánu samskipt-
um við þessar þjóðir í hagrænu-,
menningar, félagslegu- og stjórn-
málalegu tilliti.
Hefur það reynzt Islendingum
hagstætt frá þvf að við fengum
stjórn eigin mála.
Það hefur verið og er þvi enn
vilji fslenzku þjóðarinnar að eiga
hagkvæm samskipti við Evrópu-
þjóðir.
Þess vegna verður á hverjum
tíma að gera ráðstafanar og
samninga við þessar þjóðir sem
aðrar eftir þvi sem við á með
alhliða hagsmuni og lífshamingju
Islendinga i huga.
Viðræður Islands við Efnahags-
bandalag Evrópu sem og aðrar
þjóðir hljóta að grundvallast á
þessu markmiði.
til menningarinnar. En f frum-
skógi menningarinnar eru ekki
minni hættur en f hinum villta
frumskógi Afríku og oft á Tarzan
hreysti sinni og snarræði að
þakka, að honum tekst að halda
lffi.
Tarzan snýr aftur fjallar um
það þegar söguhetjan snýr aftur
frá heimsmenningunni eftir
margs konar ævintýri og leitar á
sfnar gömlu slóðir á frumskógin-
um, en þar bfða hans að sjálf-
sögðu einnig margvíslegustu
ævintýri.
01
01
01
01
01
01
Bingó kl. 3 í dag.
Aðalvinningur vöruúttekt fyrir 25.000.— kr.
01
01
0
0
0
0
0
BIBlEnBlElElBlEIEISIElElElEIBlElElElElglEl
Ræða Guðmund-
ar H. Garðars-
sonar, alþingis-
manns, í útvarps-
umræðum um
landhelgismálið
Tarzan snýr aftur