Morgunblaðið - 18.12.1976, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.12.1976, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavlk. Haraldur Sveinsson. Matthlas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100 Aðalstræti 6, sími 22480 Áskriftargjald 1100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60.00 kr. eintakið. V erdhækkanir og áhrif þeirra Morgunblaöið skýrði frá því í fyrradag, að veruleg veröhækkun heföi oröið á frystum fiski á Banda- ríkjamarkaði að undanförnu. Er hér um að ræða 14% hækkun á þorskflökum, 6% hækkun á þorskblokk, 8% hækkun á ýsublokk og 4% hækkun á ýsu- og steinbíts- flökum. Tekjuauki þjóðarbúsins vegna þessarar hækk- unar nemur um 1,5—2 milljörðum króna á ársgrundvelli. Þegar litið er á verðhækkanir á Bandaríkjamarkaði á þessu ári kemur í ljós, að þorskblokk hefur hækkað um 50% í ár og þorskflök um 16,5%. Þá hefur það komið fram í þessum fréttum, að veruleg söluaukning hefur orðið á Bandaríkjamarkaði á þessu ári og hefur gengið mjög á fiskbirgðir okkar og er ekki talið útlit á verulegri framleiðsluaukningu, sem staðið gæti til frambúðar und- ir þessari söluaukningu. Hér er að sjálfsögðu um fagnaðartíðindi að ræða. Lífskjör þjóðar okkar eru að verulegu leyti háö verð- sveiflum á Bandaríkjamarkaði. Þegaý verð fer hækkandi þar, batna lifskjörin hér og þegar verð fer lækkandi þar, versna lífskjörin hér. Þetta er gömul saga og ný, sem við skulum ekki gleyma. Sú umtalsverða verðhækkun, sem orðið hefur á útflutningsverði afurða okkar á þessu ári skapar að sjálfsögðu traustari grundvöll til kjarabóta en áður hefur verið til staðar. Þó má ekki gleyma þvi að hluti þessarar hækkunar hefur gengið og hlýtur enn að ganga til þess að greiða fyrir umframeyðslu okkar á undanförnum misserum, þegar þjóðarútgjöldin hafa í raun verið meiri en efni hafa staðið til. Að öðru leyti á þessi fiskverðshækkun, verði hún varanleg, að skapa aukið svigsúm til kjarabóta í þjóðfélaginu. Með sama hætti og þess er krafizt með rökum, að almenningur sætti sig við skert lífskjör, þegar verðlag fer lækkandi á útflutningsmörkuðum okkar, getur al- menningur með nokkrum rétti krafizt þess að lífskjörin batni með hækkandi verði. Á því byggist trúnaðartraust milli launþega og atvinnurekenda að svo verði og milli launþega og stjórnvalda í landinu. En við skulum samt staldra við og íhuga okkar gang áður en við sannfærum sjálf okkur um, að nú sé runninn upp tími til nýrra veizluhalda. Reynslan hefur kennt okkur, að verðsveiflur vestan hafs eru afar ótryggar og lítt á þeim byggjandi til frambúðar. Þannig voru t.d. kjarasamningarnir í febrúar 1974 m.a. byggðir á því, að verðlag á útflutningsafurðum okkar hafi náð algeru hámarki tveimur mánuðum áður. Á þeirri bjartsýni, sem þessar verðhækkanir vöktu, voru þeir kjarasamningar m.a. byggðir. En blekið var varla þornað á undirskriftum samninganna, þegar verðfallið mikla hófst, sem boðaði þá kreppu og erfiðleika í efnahagsmálum, sem við höfum átt við að búa um nokkurt skeið. Kjarasamningarnir 1974 voru þvi byggðir á sandi. Þeir voru byggðir á verðhækkunum erlendis, sem stóðu ekki nema stuttan tíma. í örfáa mánuði, eftir að kjara- samningarnir voru gerðir, höfðu menn fullar hendur fjár en síðan kom að því, að óhjákvæmilegt var að skerða lifskjör almennings verulega. Þessi reynsla ætti að kenna okkur nú að fara varlega í sakirnar. Enginn er bættari, þótt gerðir verði nú kjarasamningar, sem byggja á ýtrustu verðum og ýtrustu bjartsýni um það, sem framundan er. Hyggilegra er að athuga vel sinn gang og safna frekar sjóðum heldur en að taka áhættuna af því að verða fyrir nýju áfalli með nýrri kjara- skerðingu. Þess vegna er nauðsynlegt, aó menn meti af skynsemi og hyggindum þá stöðu, sem upp er komin með hækkandi verði og gangi hægt um gleðinnar dyr. Vel má vera, að þessar hækkanir reynist varanlegar og þá er vissulega betri tími framundan í okkar litla samfélagi En fari svo, að þessar hækkanir reynist aðeins tímabundnar er verr af stað farið en heima setið ef menn rjúka nú til og ætla að skipta upp ávinningi, sem ekki er enn kominn í kassann. Y oung sendiherra h já SÞ og Brzezinski öryggismálaráðgjafi Plains, Georglu, 17. desember. Reuter. JIMMY CARTER hefur skipað Andrew Young, fulltrúa- deildarþingmann frá Georgfu, sendiherra Bandarfkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Þetta er f fyrsta sinn, sem blökkumaður gegnir þessu embætti. Þá hefur Carter skipað Zbigniew Brzezinski sérlegan ráðunaut í öryggismálum og Charles Schultze formann ráð- gjafanefndar í efnahagsmálum. Andrew Young var áður fyrr einn helzti samstarfsmaður dr. Martins Luther Kings í barátt- unni fyrir jafnrétti kynþátt- anna. Hann hefur setið á þingi sfðastliðin fjögur ár og hefur fram að þessu látið í veðri vaka að hann hefði mestan hug á að gegna þingmennsku áfram. Young hefur staðið ötullega við hlið Carters allt frá upphafi kosningabaráttu hans. Zbigniew Brzezinski, sem nú tekur við þvi embætti, sem Henry Kissinger gegndi áður Zbigniew Brzezinski en hann varð utanríkisráð- herra, er prófessor og sérfræð- ingur I sovézkum málefnum við Colombiu-háskóla. Brzezinski er eindreginn í afstöðu sinni til Andrew Young Sovétrfkjanna og telur, að Bandarikin hafi farið halloka gagnvart Sovétrfkjunum í „détente“-tilraunum. Hann er af pólskum ættum. Japan: Tokýó — 17. desember — Reuter. TAKEO Miki, forsætisráðherra Japans, tilkynnti afsögn sfna í dag. Er þvf tveggja ára valda- ferli hans f skugga Lockheed- hneykslisins lokið, en flokkur Mikis, Frjálslyndi lýðræðis- flokkurinn, beið ósigur f þing- kosningunum fyrr f þessum mánuði. Miki lýsti þvf yfir um segir af sér leið, að hann segði af sér for- mennsku flokksins. 1 bréfi til flokksforystunnar hvetur Miki til umbóta í flokks- starfinu og þess, að dregið verði úr áhrifum klíkusinna, auk þess sem hann lýsir þvf yfir, að halda verði áfram rannsókn á Lockheedhneykslismálum. Talið er víst, að við embætti forsætisráðherra taki keppi- nautur og flokksbróðir Mikis, Takeo Fukuda. Þingflokkur Frjálslynda lýðræðisflokksins kemur saman til fundar 23. desember til að velja eftirmann Mikis. Hann verður förmlega útnefndur daginn eftir, en bú- izt er við þvf að nýr ráðherra- listi verði birtur 25. desember. Nixon og félagar skaðabóta- skyldir vegna símhlerana Washington — 17. desember — Reuter ALRlKISDÖMARI felldi f dag þann úrskurð að Richard M. Nixon, fyrrverandi Bandarfkja- forseti, John Mitchell og Bob Haldeman bæri að greiða ein- um fyrrverandi starfsmanna Hvfta hússins skaðabætur vegna sfmhlerana. Dómarinn úrskurðaði ekki hversu háar skaðabætur hér yrði um að ræða, en ákvörðun um það atriði verður tekin á sfðari dómstigum. Starfsmaðurinn, Halperin að nafni, stefndi fjölda annarra yfirmanna sinna í Hvíta húsinu, þar á meðal Kissinger, sem var öryggismálaráðgjafi forsetans þegar hleranirnár hófust í mafmánuði 1969, en Kissinger lagði þá fram lista með nöfnum manna, sem hugsanlegt var að staðið hefðu fyrir þvi að trúnaðarmál bárust út. Kissinger var sýknaður af ákæru Halperins, en þeir þrfr sem fyrr eru nefndir voru úrskurðaðir skaðabótaskyldir á þeirri forsendu að hleranirnar hefðu staðið miklum mun lengur en nauðsynlegt var af öryggisástæðum, eða f 21 mánuð, og hafi það verið að undirlagi Nixons, Mitchells og Haldemans. Skreiðareftirspurn eykst í Nígeríu Hammerfest — 17. desember — NTB LlKUR eru á þvf að samkomu- lag takist um skreiðarút- flutning Norðmanna til Nigeríu í byrjun janúar. Verðlags- horfur eru þó mjög óljósar, og Liðsmenn N-Kóreu- mannanna dæmdir Kaupmannahöfn — 17. desember — Reuter PÓLVERJAR tveir, sem voru f vitorði með n-kóreönsku sendi- ráðssmyglurunum f Kaupmannahöfn, voru f gær dæmdir f sex mánaða fangelsi, auk þess sem eignir þeirra að verðmæti 110 þúsund danskar krónur, eða um 3.5 milljónir fsl. króna, voru gerðar upp- tækar. Auk þessara tveggja voru dæmdir þrír aðrir Pólverjar, sem hlut áttu að ólöglegrasölu á tollfrjálsum varningi frá N- Kóreumönnunum. Þeir voru allir sektaðir, en starfsmönnum n-kóreanska sendiráðsins var vfsað úr landi í október s.l. þar sem erindreka erlendra rfkja má ekki lögsækja samkvæmt alþjóðlegum samningum. framkvæmdastjóri norskra skreiðarútflytjenda segir f viðtali við Finnmark dagblad í dag, að jafnvel kunni svo að fara að hallarekstur verði á þessum útflutningi. Eftirspurn eftir skreið f Nígeríu fer vaxandi, en Nígerfumenn hafa keypt tæplega 70 af hundraði skreiðarframleiðslu Norð- manna, en framkvæmdastjór- inn, Ove Roll, segir, að hugsan- legt tap muni koma niður á útflytjendum en ekki fram- leiðendum, þar sem sala hafi farið fram og uppgjör liggi fyrir. ERLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.