Morgunblaðið - 18.12.1976, Síða 26

Morgunblaðið - 18.12.1976, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976 — Haukur Framhald af bls. 48 töku á Karli Guðmundssyni, Þóru- felli 14, Reykjavík, og að þeirri rannsókn verði beint að þvf að upplýsa, hvort f þessu efni hafi verið framið brot samkvæmt 131. grein eða 132. grein laga nr. 19/1940. I því sambandi hefur rannsóknin beinzt að hlut yðar, hr. rannsóknarlögreglumaður, í hinni meintu ólöglegu handtöku og i ljós leitt, að framkvæmd handtökunnar hafi verið undir yðar stjórn. Ég tel rétt að þér gegnið ekki störfum hér við embættið meðan á rannsókn stendur og eruð þér hér með leystur frá störfum sem rann- sóknarlögregluþjónn í umdæminu frá og með deginum i dag að telja, þar til öðru vísi verður ákveðið. Þér munuð njóta þeirra lögkjara varðandi launa- greiðslur, sem lög um réttindi og skyldur ríkisins og önnur laga- fyrirmæli gera ráð fyrir. Afrit bréfs þessa verður sent dóms- og kirkjumálaráðuneytinu ásamt þeim gögnum sem fyrir liggja. Jón Eysteinsson (sign). Framangreint bréf móttekið i dag, 17. desember 1976. Haukur Guðmundsson, Guðmundur Kristjánsson, fulltrúi, vottur Sigtryggur Árnason, yfirlögregluþjónn, vottur Morgunblaðið spurði Hauk að því hvað hann vildi segja um málið. Hann sagði: „Ég þykist vita hvernig þetta hefur verið undir- búið og hverjir hafa gert það. En það kemur væntanlega i ljós siðar. Ég hef ekkert verið kallaður til yfirheyrslu i máli þessu og það, sem mér þykir ein- kennilegast, er, að fulltrúi sak- sóknara, sjálfur vararíkissaksókn- arinn, Hallvarður Einvarsson, skuli vera viðstaddur allar yfir- heyrslur í málinu. Slíkt er ekki venjan, nema um morðmál sé að ræða, eftir þvf sem ég veit bezt. Ég mun bíða rólegur og fylgjast með framvindu mála.“ Haukur sagði að lögreglumenn hefðu boðað sig á fund bæjar- fógetans í gærkvöldi. Þar hefði verið lesið yfir honum fyrrnefnt bréf og hann fengið það í hendur. Siðan hefðu lyklar að skrifstofu hans verið af honum teknir og einnig lyklar að bil embættisins, sem hann hafði til umráða. — Samþykkt VÍ Framhald af bls. 48 vinnumarkaðarins og rfkisvalds- ins og mætti engan tíma missa í þeim efnum. Framkvæmdastjórn Vinnuveit- endasambands Islands vill nú, 14 mánuðum siðar, ítreka þá stefnu, sem fólst í fyrrgreindri ályktun, og lýsir yfir því, að Vinnuveit- endasambandið er hvenær sem er reiðubúið að hefja viðræður um þá skipan kjaramála, sem taka skuli við að gildistíma núverandi samninga útrunnum. Þótt útlit sé fyrir, að umskipti séu að verða til hins betra f efna- hagsmálum þjóðarinnar, þá er langt í frá, að þjóðarskútan hafi rétt við. Verðbólgan verður 25—30% á árinu 1976 viðskipta- hallinn er enn tæp 4% af þjóðar- framleiðslu og greiðslubyrði erlendra skulda er talin verða um 17% af útflutningstekjum áþessu ári og gæti enn farið vaxandi á næstu árum. Þá er á næsta ári í bezta falli þess að vænta að halda þeim viðskiptakjarabata, sem fram er kominn. Og þrátt fyrir hækkun útflutningsverðlags á sjávarafurðum, hafa tilkostnaðar- hækkanir innanlands og utan verið slikar, að Þjóðhagsstofnun segir i nýútkomnu yfirliti sfnu, „Ur þjóðarbúskapnum", að það sé áhyggjuefni, að lengra hafi verið gengið í hækkun tekna í sjávarút- vegi en jafnvel hækkandi verðlag afurða leyfi. Nýjustu verðhækkanir freð- fisks á Bandaríkjamarkaði skipta hér engum sköpum, þar sem markaðshækkanir og gengissig hafa ekki haft við innlendum hækkunum og þvi komið f hlut Verðjöfnunarsjóðs að tryggja frystihúsunum hærra útflutningsverð fyrir framleiðsl-' una en markaðsverð hefur gefiðj tilefni til. Sjóðurinn er tómur og mun þessi verðhækkun þvf öll ganga til að jafna núverandi halla hans, en ekki renna til fiskvinnsl- unnar. A nýafstöðnu þingi Alþýðusam- bands Islands var gerð ályktun, þar sem þvá er slegið föstu, að fuliar efnahagslegar forsendur séu nú fyrir hendi til þess að stórbæta almenn launakjör og að óhjákvæmilegt sé að hækka verkalaun mjög mikið þegar f næstu kjarasamningum. Þessi samþykkt þingsins er þeim mun merkilegri þar sem Alþýðusam- bandsþing ítrekaði jafnframt þá grundvallarkröfu að dregið verði úr verðbólgunni, enda er fullyrt I ályktun þingsins að byrðunum af verðbólgunni sé sífellt velt af fullum þunga yfir á herðar alþýðunnar. Þvi miður verður ekki á þessu sviði fremur en öðrum bæði sieppt og haldið. Það kann engan veginn góðri lukku að stýra að gera hvort tveggja f senn að for- dæma verðbólguna og setja fram kaupkröfuhugmyndir, sem verka myndu eins og olía á verðbólgu- bálið. Þjóðhagsstofnun bendir á það f fyrrgreindu yfirliti sinu, að ef von eigi að vera til þess að draga úr hraða verðbólgunnar á næsta ári og koma jafnframt stöðunni út á við f viðunandi horf, þurfi að fara saman hóflegar tekjuákvarðanir um mitt næsta ár og aðhald í útgjöldum hins opin- bera og lánveitingum. Aðilar vinnumarkaðarins verða að taka höndum saman um að forða þjóðinni frá nýrri verð- bólguholskeflu vegna þeirra skelfilegu afleiðinga sem af henni kynnu að hljótast. — Jólaösin Framhald af bls. 2 sem dæmi um söluna, aó þá hafa skautar selzt tiltölulega lftið og er það eflaust vegna þfðviðrisins f vetur. Skiði og skíðavörur hafa hins vegar selzt mjög vel og meira en áður, sagði Jón Aðalsteinn. — Við höfum ekki ástæðu til að kvarta yfir dræmri sölu fyrir þessi jól, sagði Haukur Gunnars- son kaupmaður I Rammagerðinni. — Fólk er greinilega farið að snúa sér i auknum mæli að islenzkum vörum. Það er litið með aukinni virðingu á íslenzku vöru- tegundirnar. Við erum mikið með vörur, sem sendar eru til annarra landa og f því sambandi eru íslenzku vörurnar sérstaklega vinsælar, sagði Haukur. — Hvort fólk kaupir dýrari eða ódýrari vörur en áður er erfitt að segja til um, þetta er einstaklings- bundið eins og alltaf og ég treysti mér ekki til að dæma um þetta. Hins vegar held ég að það sé ekki sanngjarnt að kvarta og salan varla minni en undanfarin ár, sagði Haukur Gunnarsson. — ösin hjá okkur hefur verið viðráðanleg undanfarna daga og af því dreg ég þá ályktun að jóla- salan sé seinni i gang en oft áður, sagði Aðalsteinn Kristinsson í Leikfangaveri f gær. — Hvað söl- una snertir er öruggt að fleiri krónur hafa komið f kassann en áður og ég held að við höfum selt meira magn ef eitthvað er. — Einvígi Framhald af bls. 48 eftir þorskastrfðin, að þeir treystu sér ekki til þess að halda hér skákeinvfgi. Kvaðst hann hafa mikinn áhuga á þvi að tefla einvfgið við Fischer hér á landi og bað Skáksambandið að athuga möguleikana á þvf. Var það gert en þá kom í ljós, að búið var að ráðstafa einvfg- inu til Bermuda, en bréf Horts mun hafa verið heilan mánuð á leiðinni hingað til lands. Reyndar er talið fullvfst að Fischer mæti ekki til einvígis- ins, og mun þá Spasskf, fyrrverandi heimsmeistari, koma f hans stað. Þegar þessi möguleiki var úr sögunni, spurði FIDE hvort Skáksambandið gæti tekið að sér að sjá um einvfgið milli Kortsnojs og Petrosjans, en ekkert land hafði þá boðið f það einvfgi. Er þetta mál nú f athug- un eins og fyrr segir og hefur Skáksambandið m.a. sent FIDE spurningalista um ýmis atriði og einnig kannað hér innan- lands, hvort möguleiki er að halda einvfgið hér, en þvf skal vera lokið fyrir 1. aprfl n.k. Er allt óákveðið ennþá f þessum efnum, að sögn Einars. Svar verður að gefa fyrir áramót og ef það verður jákvætt, verða keppendur að samþykkja Island sem keppnisstað. Sagði Einar að lokum, að ekki yrði lagt út f neinn kostnað nema fullvfst væri talið að einvfgið yrði haldið hér. Sem fyrr segir er þetta ein- vfgi eitt fjögurra áskorendaein- vígja og er það talið þeirra at- hyglisverðast, þar sem Petrosjan er Sovétmaður og Kortsnoj landflótta frá þvf landi. Hefur hann verið sviptur öllum metorðum þar f landi og Sovétmenn hafa auk þess krafizt þess af FIDE, að Kortsnoj verði sviptur öllum skáktitlum og réttinum til að taka þátt f heimsmeistara- keppninni. Þessu hefur FIDE algjörlega neitað, þar sem menn hefðu til þessa unnið sem einstaklingar en ekki fulltrúar einhvers lands. Petrosjan er fyrrverandi heimsmeistari í skák og Kortsnoj tefldi einvígi við Karpov um heimsmeistara- titilinn sfðast, svo að sjá má að þetta eru tveir geysisterkir skákmenn. — OPEC Framhald af bls. 1. gagnrýndu rfkin 11 og hrósuðu S-Arabfu og Sameinuðu fursta- dæmunum. Harðasta gagnrýnin kom frá Ford Bandarikjaforseta, sem fordæmdi ákvörðun ríkjanna 11 og sagði að þau hefðu sýnt algert ábyrgðarleysi og virt að vettugi eyðileggjandi áhrif að- gerða sinna. Hann sagði að S- Arabar og Saneinuðu fursta- dæmin hefðu sýnt stjórnvizku og ábyrgð með aðgerðum sfnum. Hins vegar mótast gagnrýnin einnig af þvf óvissuástandi sem skapazt hefur með klofningnum innan OPEC, því að enginn grundvöllur er til fyrir olfu- kaupendur til að reikna út hvað olíuverðshækkuin muni kosta þá. Almennur léttir var meðal EBE- þjóðanna og Japans yfir afstöðu S-Arabfu og talið vist að ekki takist að koma 15% hækkuninni í gegn, en rfkin 11 ætla að hækka olíuna um 10% 1. janúar og 5% 1. júli, en S-Arabía og Sameinuðu furstadæmin um 5% 1. janúar. Jimmy Carter, kjörinn forseti Bandaríkjanna, og Cyrus Vance, utanríkisráðherraefni hans, hrós- uðu báðir afstöðu S-Araba og Sameinuðu furstadæmanna og sögðust mundu senda stjórnum landanna þakkarorðsendingu. — Viðræður í Brussel Framhald af bls. 1. Islands til athugunar og kvaðst Tómas ekki geta skýrt frá inni- haldi þess. Eins og áður sagði hefur verið boðaður nýr utanrfkisráðherra- fundur rfkjanna níu innan Efna- hagsbandalagsins á mánudag og þriðjudag. Til þessa fundar er boðað vegna þess að á fundinum 14. desember, þ.a.s. sfðastliðinn þriðjudag mistókst gjörsamlega að ná einingu um innri tilhögun bandalagsins mistókst gjörsam- lega að ná einingu um innri tilhögun bandalagsins á fiskveiði- málum. Sjö rfkjanna samþykktu tillögur framkvæmdastjórnar bandalagsins um kvótákerfi, en Bretar og Irar voru andvígir þeim tillögum og vildu einkalögsögu með ströndum ríkja sinna, sem einungis írskir og . brezkir sjómenn hefðu aðgöngu að. A meðan svo er og f raun er ekki vitað, hver niðurstaðan innan bandalagsins verður, er ekki hægt að segja til um, hvað bandalagið í raun getur boðið rfkjum, sem standa utan þess. Sagt var i BrUssel í gær að fremur góðar vonir væru til þess að ráðherra- fundurinn eftir helgi myndi ná samkomulagi og ef sú yrði raunin á, ættu málin að skýrast mun betur eftir helgina. Verði þessi ráðherrafundur hins vegar árangurslaus sem hinir fyrri, bendir allt til þess að enn þurfi ráðherrarnir að hittast, þótt naumur tfmi sé til stefnu þar til fiskveiðilögsaga bandalagsins verður færð út f 200 sjómílur hinn 1. janúar 1977. Morgunblaðið hafði f gærkveldi samband við Finn Olav Gundelach, aðalsamningamann Efnahagsbandalagsins, en hann sagðist ekkert geta tjáð sig um gang samningaviðræðnanna við Island, fyrr en f fyrsta lagi á mánudag. — Flugvalla- nefnd Framhald af bls. 2 Þá leggur nefndin til að efnt verði til samkeppni um hönnun staðlaðra flugstöðva og tækja- geymslna, er henti á íslenzkum áætlunarflutvöllum. I tillögum nefndarinnar er að finna tillögur um framkvæmdaröðun verkefna, og meðal stærri verkefnanna er þar að finna eftirfarandi: Flugstöðvar: 1. Reykjavfk, 2. Vestmannaeyjar, 3. Sauðárkrók- ur, 4. Hornafjörður, 5. Húsavfk, 6. Patreksfjörður. Búnaður fyrir næturflug: 1. Blönduós, 2. Vopna- fjörður, 3. Vestmannaeyjar (braut 04/22), 4. Reykjavfk (braut 02/20, ný ljós), 5. Rif (þarf að hækka flugbraut og lengja um 170 m), 6. Stykkishólm- ur (þarf að lengja flugbraut um 120 m), 7. Raufarhöfn (miðað við 800 m) 8. Þórshöfn (á nýjum 800 m flugvelli), 9. Kópasker (miðað við 800 m). Malblkun flugbrauta, akbrauta og hlaða: 1. Vestmanna- eyjar, 2. ísafjörður, 3. Sauðár- krókur, 4. Egilsstaðir, 5. Horna- fjörður, 6. Húsavfk, 7. Patreks- fjörður. Þá gerar nefndin það að tillögu sinni, að berist stjórnvöldum beiðni um byggingu varaflugvall- ar fyrir stórar millilandaflugvélar þá verði gerð samanburðaráætlun um fjarfestingar- og rekstrar- kostnað slfks flugvallar við Egils- staði, Húsavfk og Sauðárkrók, og sú lausn valin, sem hagkvæmust teldist. I þessu sambandi leggur nefndin til að lendingargjöld Keflavfkurflugvallar verði hækk- uð til að standa straum af þeim kostnaðarauka sem stór varaflug- völlur myndi vafda umfram rekst- ur innanlandsflugvallar á sama stað. Nefndin gerir einnig tillögu um að gerð verði athugun á tæknileg- um og fjárhagslegum þáttum f sambandi við byggingu lftils, upp- hitaðs flugskýlis á Reykjavíkur- flugvelli, sem ætlað sé að leysa vanda í sambandi við viðhalds- og skoðunaraðstöðu minni loftfara, og þá er að finna tillögu þess efnis að farþegaskattur og tekjur af frfhöfn Keflavíkurflugvallar verði markaðir tekjustofnar sem renni til flugmálastjórnar. Síðar verður væntanlega getið frekar skýrslu þessarar, en I henni er að finna miklar og margvíslegar upplýsingar um flugmál hérlend- is. — Bankaráðs- kosningar Framhald af bls. 3 ur fyrir Framsóknarflokk, Friðjón Þórðarson, varaformaður fyrir Sjálfstæðisflokk, Gunnar Gfslason fyrir Sjálfstæðisflokk, Helgi Seljan fyrir Alþýðubanda- lag og Karl Árnason fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Ef skipting flokkanna er dregin saman skipa bankaráð Seðla- bankans 2 sjálfstæðismenn, 1 framsóknarmaður, 1 alþýðu- bandalagsmaður og 1 samtaka- maður. I bankaráði Lands- bankans er skiptangin þannig að þar eiga sæti 2 sjálfstæðismenn, 1 framsóknarmaður, 1 alþýðu- bandalagsmaður og 1 alþýðu- flokksmaður. í bankaráði Utvegs- bankans sitja 2 sjálfstæðismenn, 1 alþýðubandalagsmaður, 1 samtakamaður og 1 framsóknar- maður. I bankaráði Utvegsbank- ans sitja 2 sjálfstæðismenn, 1 framsóknamaður, 1 alþýðubanda- lagsmaður og 1 samtakamaður. Staðan á Alþingi, þegar til bankaráðskosninganna kemur er þannig að stjórnarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur hafa að baki sér 42 þingmenn, en stjórnarandstaðan, Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur og Samtök frjálslyndra og vinstri manna, hafa að baki sér 18 þing- menn. Hreinustu kosningalfkur, ef stjórn stendur gegn stjórnar- andstöðu verður þvf að hvor stjórnarflokkanna fær 2 menn kjörna í hvert bankaráð, en Alþýðubandalag að öllum lfkind- um einn mann. Þvf falla út full- trúar Alþýðuflokksins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. — Bukovsky Framhald af bls. 1. hennar yrði sleppt og hún, dóttir hennar og dóttursonur ættu að fylgja honum í útlegð. Sér hefði verið sagt að komið yrði með son hennar beint úr fangelsinu út á flugvöll. Hún sagðist vera mjög glöð, en vildi ekki svara öðrum spurningum fréttamanna. Ekkert hefur verið sagt um málið af hálfu sovézkra yfirvalda, en heimild f Moskvu hermdi að gefin yrði út opinber tilkynning, er Corvalan kæmi til Moskvu. Diplómataheimildir f Moskvu hermdu að samningaviðræðurnar hefðu hafist fyrir mánuði sáðan f aðalstöðvum Sameinuðu þjóð- anna f New York, en tillagan um skiptin var fyrst borin fram f október af Sakharovmann- réttindasamtökunum f Kaup- mannahöfn, en samtökin heita f höfuð sovézka vfsindamannsins og foringja sovézkra andófs- manna Andrei Sakharov. Augusto Pinochet forseti Chile lýsti þvf svo yfir opinberlega f nóvember að hann væri samþykkur tillög- unni. Bukovsky sem er 33 ára að aldri var handtekinn 1971 fyrir að senda upplýsingar til Vestur- landa um að gagnrýnendur sovézka stjornarfarsins væru nauðugir sendir á geðveikrahæli. Hann hefur undanfarna mánuði verið í Vladimirfangelsinu rétt fyrir utan Moskvu. Móðir hans, sem er ekkja, sextfu og þriggja ára, fékk að heimsækja son sinn í ágúst og sagði þá að hann væri niðurbrotinn maður og liti út eins og fórnarlamb nauðungarbúða, fársjúkur. Talið er að ein ástæðan fyrir því að honum var sleppt hafi verið að leiðtogar, kommúnistaflokka á Vesturlöndum gengu f lið með samtökunum Amnesty Inter- national f herferð fyrir því að Bukovsky yrði látinn laus. Sovésk yfirvöld brugðust illa við herferð- inni ag sögðu að Bukovsky væri ekki pólitískur fangi heldur hreinn afbrotamaður. Þá hafa kommúnistaþjóðir einnig unnið að þvf undanfarið að fá Corvalan sleppt úr haldi, en hann er einn af hörðustu stuðningsmönnum Sovétrfkjanna meðal komm- únistaleiðtoga f S-Amerfku. Heímildir f Moskvu sögðu f dag að ekki væri hægt að segja fyrir um hvort þetta samkomulag kynni að verða fordæmi fyrir fleiri slfkum, þar sem í hlut ættu kommúnistaleiðtogar og vinstri- menn, sem f haldi eru f S- Amerfku. Stjórn Chile bauð sovésku stjórninni upp á það 1974 að eiga fjöldaskipti á pólitfskum föngum, en Sovétstjórnin hafnaði því boði og sagði að engir pólistfkir fangar væru f haldi í Sovétrfkjunum. Talsmenn Amnesty Inter- national f London sögðu f kvöld að fulltrúar samtakanna myndu taka á móti Bukovskyfjölskyldunni í Sviss, en Mikhail 12 ára systur- sonur Bukovskys, sem kemur með honum er I sjúkrahúsi í Moskvu með krabbamein í eitlum og mun þurfa að leggja hann með hraði inn f sjúkrahús í Sviss strax og flugvélin lendir þar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.