Morgunblaðið - 18.12.1976, Síða 27

Morgunblaðið - 18.12.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976 27 Jón Erlendsson skrifar frá Svíbióð: Sænskur handknatt- ieikur á uppleið FYRIR nokkru átti ég þess kost að ræða við Bertil Andersen, en hann sér um þjálfun sænska landsliðsins ásamt Danne Lind- quist. Þeir tóku við liðinu 1974 og settu sér það takmark að verða meðal átta beztu á heims- meistarakeppninni 1978, en ráðn- ing þeirra náði til þess tfma. Sænskur handbolti var i nokkr- um öldudal um þær mundir. Sviar voru ekki eins hátt skrifaðir á alþjóðlegum vettvangi og áður, en heima fyrir fækkaði áhorfendum ár frá ári. öllum var ljóst að árangur landsliðsins varð ekki bættur verulega án þess að taka alla starfsemina fyrir og því var ráðist í: — að bæta þjálfarafræðsluna, — að endurskoða dómara- fræðsluna, Jón Erlendsson — að auka og endurskoða fræðslu leikmanna, — að vinna að bættu samstarfi við félögin og auka svigrúm landsliðsins. Þrír fyrstu þættirnir voru fengnir sérstöku fræðsluráði, en í því sátu báðir landsliðsþjálfararn- ir. Mikið starf hefur þegar verið unnið og árangur umtalsverður. Nýtt fræðsluefni var samið fyr- ir þjálfaranámskeiðin og starf- semin endurskipulög, og nú er unnið að endurskoðun námsefnis- ins með tilliti til reynslu undan- farinna ára. Dómarafræðslan hefur verið heldur lausari í reipunum, en seinna i vetur á að taka þau mál fyrir og leita úrbóta. Fræðsla leikmanna hefur stór- aukist. Með þvl að ná ungum leik- mönnum saman í búðir af og til og kenna þeim þar ákveðin atriði næst samræmi sem auðveldar og tryggir heildarþróunina. Þessi starfsemi hefur gefist það vel, að nú stendur til að auka hana og byrja með yngri leikmenn en áð- ur. Samstarf milli félaga og land- liðs hefur batnað. Félögin hafa aukið og bætt þjálfunina og það svo, að þess er farið að gæta i aðsókn að leikjum, en áhorfendur eru bezti mælikvarðinn á þann leik sem boðið er upp á. Bezta dæmið um þetta er i Stokkhólmi, þar sem Hellas hefur fengið fleiri áhorfendur á þremur fyrstu heimaleikjunum i ár en þeir fengu allt siðasta keppnistimabil. Allar ,,gömlu“ kempurnar eru komnar heim aftur og leggja sig fram um að leika fyrir áhorfend- ur, og það svo manni finnst stund- um nóg um, en áhorfendur kunna vel að meta. Helzta vandamálið nú er að ennþá setja félögin eigin hag ofar hag landsliðsins, þótt nokkuð hafi einnig áunnizt þar, og þá fyrst og fremst með auknu og bættu skipulagi. Hópurinn, sem I upphafi var orðaður við landsliðið, var nokk- uð stór. Nokkrir féllu strax út, höfðu ekki áhuga eða aðstöðu. Aðrir stóðust ekki þær kröfur sem gerðar eru til handknattleiks- manna I fremstu röð nú orðið. Fljótlega varð því eftir harðsnú- inn kjarni, sem sýndi að hann gat og vildi vinna saman og hafði þá leikreynslu sem nauðsynleg er ef ná á varanlegum árangri. 1 skjóli þessa kjarna hefur siðan verið hægt að reyna nýja leikmenn, ef ástæða hefur verið til. Liðið, sem farið verður með til Austurríkis í febrúar, hefur þeg- ar verið ákveðið, að öllu forfalla- lausu, þótt engin nöfn hafi verið birt. Árangur landsliðsins hefur ver- ið ærið misjafn. Fyrsta árið var erfitt, liðið tapaði þá leik eftir leik. A siðasta ári var árangurinn hins vegar góður I heild, þótt ekki tækist að komast á Ólympiuleik- ana. 1 haust hefur árangurinn verið mjög góður. I byrjun nóv. lék liðið þrjá leiki á þremur dög* um og vann alla. Fyrst var leikið við Dani en siðan tveir leikir við V-Þýzkaland. Leikjanna við Þjóð- verjana var beðið með nokkurri eftirvæntingu, þvi Júgóslavinn Stenzel hefur annazt þjálfun þeirra siðastliðið ár. Búizt var við að Stenzel kynni að koma eitthvað á óvart. Svo varð þó ekki, Þjóð- verjarnir léku að vísu góðan og harðan leik eins og áður, en Stenzel hefur ekki ennþá haft áberandi áhrif á leik þeirra. Munurinn á júgóslavneskum og þýzkum handknattleik er mikill og því líklegt að Stenzel þurfi længri tima áður en árangur sést af starfi hans, ef hann þá ræður við breyttar aðstæður. Nú er lokaspretturinn fram- undan. I byrjun des. verða tveir leikir i Noregi. Tveir leikir eru ákveðnir við Rússa, tveir við Tékka, einn eða tveir við Dani og svo verður leikið í Balticacupen, sem fer fram I A-Þýzkalandi um miðjan janúar. „Við lltum á alla þessa leiki sem beinan undirbúning að B- keppninni í Austurriki. Þar vilj- um við mæta með alla okkar beztu menn eins vel undirbúna og kost- ur er á, því þar ræðst hvort við verðum með á heimsmeistara- keppninni 1978.“ var það síðasta sem Bertil Andersen sagði, en ég óskaði honum góðs gengis. Það er augljóst að Sviar gera nú alvarlega tilraun til að vinna aft- ur forna frægð og að þeir hafa stefnt vel og skipulega að því marki. Arangur starfsins er þegar sýnilegur heima fyrir og úrslit landsleikja I haust lofa góðu. En hvort þeim tekst að verða meðal átta beztu á næsta ári er óráðið, þvi vlöar er vel unnið. ÍJr landsleik Svía og Norðmanna, er fram fðr í Noregi nýlega. Einn leikmanna Noregs, Rune Sterner, reynir að brjótast í gegnum sterka vörn sænska liðsins. Okkar vegna. pantið tími Veitingahús V/ÓÐINSTORG Pöntunarsímar: 25640 — 25090 — 20490

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.