Morgunblaðið - 18.12.1976, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LÁUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976
Ræða Magnúsar
Torfa Olafsson-
ar í útvarpsum-
ræðum um land-
helgismálið
Þrautseigja og
leikni tals-
manna okkar
Herra forseti, góðir hlustendur.
Þessir dimmu desemberdagar eru i
rauninni sigurdagar fyrir fslendinga.
Um leið og mánuðurinn rann upp,
héldu breskir togarar með tölu á
brott úr 200 mílna fiskveiðilögsögu
íslands. Með því var staðfest endan
lega og ótvírætt, að íslenska þjóðin
ræður ein yfir fiskimiðunum um-
hverfis landið og hefur tök á að
hagnýta þau f sína þágu f bráð og
lengd, eins vel og ábatasamlega og
henni gefst forsjálni og þekking til.
Samtímis er orðið lýðum Ijóst, að
stefnan sem íslendingar mörkuðu fyrir
þrem áratugum, að strandríki skuli
ráða fiskimiðum á breiðu belti fyrir
landi, stjórna þar veiðum og kveða á
um nýtingu og vernd hverskonar líf-
vera, er að hljóta viðurkenningu á
heimsmælikvarða Á fyrsta fjórðungi
komandi árs munu öll önnur ríki, sem
land eiga að nyrsta hluta Atlantshafs
og hafa auðug fiskimið fyrir ströndum,
fara að dæmi okkar íslendinga og færa
fiskveiðilögsögu sína út í 200 mílur,
sem sé Noregur, Kanada, Bandaríkm
og þau níu ríki sem mynda Efnahags-
bandalag Evrópu
Einmitt í þessari viku var svo smiðs-
höggið rekið á sigur þeirrar stefnu að
ákveða fiskveiðilögsöguna 200 mílur.
Þau tvö fiskveiðistórveldi sem lengst
og harðast hafa streist á móti 200
mílna reglunni, vegna þess að þau taka
mikinn meirihluta af afla sínum á fjar-
lægum miðum, sem koma undir lög-
sögu annarra ríkja við útfærsluna,
játuðu algeran ósigur sinn og gáfust
gersamlega upp. Þetta eru Japan og
Sovétríkin, sem séð hafa þann kost
vænstan að venda sínu kvæði í kross
og ganga í 200 mílna hópinn, taka sér
sömu fiskveiðilögsögu og þau höfðu
áður reynt að varna af fremsta megni
að önnur strandríki hlytu.
Ástæða er til fyrir íslendinga, að
samfagna hversu gæfusamlega hefur
til tekist, þegar miðað er við þá and-
stöðu eða tómlæti sem við hefur verið
að etja á alþjóðavettvangi gagnvart
okkar málstað Tómlætið lét smátt og
smátt undan þrautseigju og leikni tals-
manna okkar á alþjóðavettvangi, þar
sem fengist hefur verið við fiskveiða-
og hafréttarmál Andstaðan í
grimmustu mynd, beitmg flotavalds til
að halda uppi ólöglegum veiðum
erlendra skipa innan íslenskrar lög-
sögu, stóð allt fram á síðastliðið sum-
ar. Umskiptin hvað okkur snertir hafa
því orðið alger á einu misseri Fyrir sex
mánuðum vofði sú hætta yfir hvern
dag, að varðskip okkar yrðu sigld i kaf í
ójafnri viðureign við breskar freigátur.
Nú bregður svo við að breskir togarar
eru farnir af íslandsmiðum eftir fimm
alda samfellda sókn breskra skipa á
þær fiskislóðir, og á þessari öld varð
sóknin svo áköf, að lifsbjörg okkar í
sjónum var stórkostleg hætta búin.
Beinir hags-
munir okkar
krefjast þess. . .
Enn búum við að eftirköstum ofveiði
og rányrkju, og því er mikill vandi á
höndum að nýta unninn sigur svo að
til varanlegra heilla horfi Svo nærri er
gengið stofnum helstu nytjafiska, að
setja verður bæði beinar og óbeinar
hömlur á sókn okkar eigin sjómanna,
og þurfa því sannarlega að vera ríkar
ástæður fyrir hendi, til að léð sé máls á
því að hleypa fiskiskipum frá öðrum
löndum á miðin, sem við ráðum nú
óumdeilanlega einir
Þjóðin getur fagnað sigri í land-
helgismálinu af óblandinni ánægju,
vegna þess að um meginstefnu og
afdrifaríkustu ákvarðanir útfærslu-
áfanga höfum við borið gæfu til að
standa saman Hins vegar hefur menn
greint á um ýmis framkvæmdaatriði.
bæði friðunaraðgerðir gagnvart okkar
eigin fiskiskipum, og þó sér í lagi
veiðiheimildir til handa erlendum skip-
um í fiskveiðilögsögunni. og svo er
enn.
En það er eindregin skoðun mín, að
á þessum tímamótum sé rangt og
varhugavert að einblína svo á úr-
lausnarefni sem að ber á líðandi stund,
að menn láti hjá líða að taka eftir
sjálfum tímamótunum. sjáist yfir að
gerbreyting er orðin, láti undir höfuð
leggjast að meta þá möguleika sem nú
blasa við og móta stefnu til að hagnýta
þá rækilega til langframa.
Skoðun mín er sú að ástand
þorskstofnsins á íslandsmiðum sé slíkt
að ekki sé gerlegt að semja við Efna-
hagsbandalagið um frekari veiði-
heimildir Bretum til handa Jafn sann-
færður er ég um hitt. að rétt var að
taka boði framkvæmdastjórnar Efna-
hagsbandalagsins um viðræður um
fiskveiðimál Þótt ofveiddur þorskstofn
á íslandsmiðum girði fyrir að við séum
færir um að leysa vanda fiskveiðibæja
Bretlands fyrir Efnahagsbandalagið,
jafnvel þótt við værum allir af vilja
gerðir, eiga fulltrúar íslands ýmislegt
annað vantalað við fulltrúa frá Brussel
einmitt núna. þegar þessi volduga
efnahags- og viðskiptasamsteypa allra
stærstu þjóða Vestur-Evrópu og
nokkurra af þeim smærri hyggst fara
að dæmi okkar og taka sér 200 mílna
fiskveiðilögsögu.
Beinharðir hagsmunir okkar krefjast
þess, að ekkert tækifæri sé látið ónotað
til að fylgjast með því sem fram fer í
Efnahagsbandalaginu einmitt nú.
þegar stefnumótun þess I fiskveiðimál-
um er í deiglunni Ljóst er að hér eftir
ráða fimm aðilar yfir svo að segja
öllum fiskimiðum á Norður-Atlantshafi,
þeim auðugustu í heimi Miðin skiptast
milli íslands, Noregs, Kanada,
Bandaríkjanna og Efnahagsbandalags-
ins. Af þessum fiskveiðiveldum Norð-
ur-Atlantshafs hefur ísland þá sér-
stöðu. að fiskveiðarnar eru megin at-
vinnuvegur okkar og afkoma þeirra
ræður úrslitum um hag þjóðarinnar.
Ekki þarf því mikla umhugsun til að
sjá, að við þessar nýju aðstæður hljóta
islendingar að kosta kapps að afla sér
vitneskju um fyrirætlanir og athafnir
hinna fiskveiðiveldanna fjögurra.
AÐ venju hefur Morgunblaðið valið til birtingar
eina af þeim ræðum, er talsmenn stjórnarandstöðu
fluttu i útvarpsumræðum sl. miðvikudag. Valin er
sú ræða, er að mati Morgunblaðsins er málefnaleg-
ust. í samræmi við það fer hér á eftir í heild ræða
Magnusar Torfa Ólafssonar alþingsmanns. Yfir-
skirft og kaflafyrirsagnir eru blaðsins.
Vivitar - Vivitar.
VAL ATVINNULJOSMYNDARANS JAFNT, SEM
ÁHUGALJÓSMYNDARANS. MEST SELDU
EILÍFÐARFLÖSS í USA.
VIVITAR NR. 283 - NR. 273 - NR. 202 - NR. 102
FÓKUS Lækjargötu 6b sími 15555
Sigurdagar Islendinga:_
Skylda
íslenzkra
stjórnvalda á
öllum tímum
Fiskverndarsjónar-
mið annarra
fiskveiðilanda
Eitt dæmi nægir til að sýna fram á
þetta. Segjum svo að eitthvert hinna
fiskveiðiveldanna taki þá ákvörðun að
láta fiskverndarsjónarmið lönd og leið,
en reyni að gera sér fiskimiðin að
féþúfu á meðan stofnarnir endast. Slík
rányrkja myndi að minnsta kosti fyrst í
stað valda auknu framboði og verð-
lækkun á sjávarafurðum á öllum fisk-
mörkuðum okkar og kæmi verðfallið
langtum harðar niður á íslendingum
en nokkurri annarri þjóð íslensk
stjórnvöld sem létu slíkt koma sér að
óvörum hefðu vissulega burgðist
skyldu sinni.
Við þetta bætist að efnahagsbanda-
lagsríkin hafa tekið þá stefnu, að skáka
til hliðar þeim aðila sem annast hefur
margháttað samstarf fiskveiðiríkja
austan við okkur, Norðaustur-
Atlantshafs fiskveiðinefndinni Þau
gera þetta í því skyni að sniðganga
Austur-Evrópuríkin, sem eru fullgildir
aðilar að nefndinni, en efnahagsbanda-
lagsríkin ætla nú að bægja af miðun-
um sem falla undir 200 mllna lögsögu
þeirra. Norðaustur-Atlantshafsnefndin
hefur haft ráðgefandi vald um fjölmörg
þýðingarmestu atriði fiskveiða, veiðiað-
ferðir, veiðarfæri, veiðisvæði og ann-
að, auk þess sem upplýsingaskipti af
hálfu embættismanna og fiski-
fræðinga, aðildarríkja hafa farið þar
fram. Full þörf er fyrir íslendinga að
afla sér sem nánastrar vitneskju um
hvað Efnahagsbandalagið ætlar að
ganga langt I að gera nefndina óvirka
og móta síðan islenska afstöðu til þess,
hvert hlutverk eðlilegt sé að nefndin
hafi eins og nú er komið málum, og
hvort vinna beri að þvi að koma á nýrri
stofnun til að taka við því milliríkjahlut-
verki sem ekki yrði lengur á vegum
nefndarinnar.
Sama getur orðið uppi á teningnum
hvað varðar Norðvestur-Atlantshafs
nefndina, nema þar eru það Kanada og
Bandarikin sem vilja losna við skip
Austur-Evrópuríkja og reyndar fleiri
landa af sínum miðum, og kynnu því
að vilja leika þá nefnd svipað og Efna-
hagsbandalagið hantérar Austur-
Atlantshafs nefndina.
Stefnumótun EBE
í fiskverndarmátum
Útfærslu efnahagsbandalagsríkjanna
í 200 mílur ber brátt að, vegna þess að
hún er afleiðing þróunar sem banda-
lagsríkjunum hefur verið þvert um geð,
og þess vegna hafa hvorki einstök
bandalagsriki né bandalagið í heild
mótað sér stefnu i ýmsum þýðingar-
miklum atriðum sem til álita koma við
slíka ráðstöfun. Þarf ekki að minna á
annað en deiluna sem uppi er um það,
hve stór einkalögsaga hvers ríkis skuli
vera gagnvart öðrum bandalagsríkjum.
Stjórnir Bretlands og írlands halda því
fast fram, að fá 50 milna einkalögsögu
fyrir sína fiskimenn, og getur svo farið
að þetta mál verði óútkljáð um áramót,
þannig að bandalagsríkin færi út fisk-
veiðilögsöguna sitt í hverju lagi og
með mismunandi móti. Auðsæir hags-
munir íslands eru þeir, að breskir fiski-
menn fái sem stærsta einkalögsögu,
þvi þá dregur eitthvað úr ásókn bresku
útgerðarinnar í veiðiheimildir hér við
land Væri því mjög misráðið að veita
Efnahagsbandalaginu nokkurn ádrátt
um aðgang bretum til handa að
íslensku fiskveiðilögsögunni, meðan
þetta mál er óútkljáð, jafnvel þótt aðrar
aðstæður gerðu það ekki eins óráðlegt
og ég hef áður lýst.
Snertipunktur
hagsmuna
íslands og EBE
Þegjandi kemur þorskur i ála, segir
máltækið Göngur þorskins sem
annarra nytjafiska stjórnast ekki af
markalínum á landakortum, dregnum
eftir fjarlægð frá ströndum, heldur af
sjávarhita, straumum hafsins, efna-
samsetningu sjávar og þeim átuskilyrð-
um sem ákvarðast af þessum eiginleik-
um hinnar votu heimsálfu. Reik
þorsksins milli miða er hvergi jafn
mikið né jafn rækilega kannað hér við
land og milli miðanna við suðvestan-
vert landið annars vegar og Grænland
hins vegar. Þar á ofan eru karfamið
beggja vegna miðlinunnar sem skilja
mun að fiskveiðilögsögu íslands og
Grænlands. Efnahagsbandalagið
kveðst ætla að telja sér fiskveiðilög-
sögu Grænlands, þótt svo virðist sem
enn sé ófrágengið að ýmsu leyti
hvernig með skuli farið, eins og svo
margt annað í útfærsluaðgerðum og
væntanlegri fiskveiðistefnu banda-
lagsins Það fer ekki milli mála, að
helsti snertipunktur hagsmuna íslands
og Efnahagsbandalagsins er í Græn-
landshafi og er mun þýðingarmeiri
fyrir íslendinga en aðgangur að síldar-
miðunum í Norðursjó og við Skotland.
En í þessu efni er margs að gæta Þó
ekki þess sem helst hefur verið á orði
haft, sem sé að það væri ósæmilegt að
ræða við Efnahagsbandalagið um fisk-
veiðimál þar sem lögsögur íslands og
Grænlands mætast, af því Græn-
lendingar eigi skilið sjálfstæði, eða
heimastjórn að minnsta kosti Á slíkar
mótbárur er ekki hlustandi, hreinlega
vegna þess að hvorki þorskur né karfi
og þaðan af síður loðna akta hið
minnsta stjórnréttarstöðu Grænlands,
heldur synda um Grænlandshafið eins
og þeim hentar. Eða dettur nokkrum í
hug að hafa það á móti hugsanlegum
síldveiðum íslenskra skipa í væntan-
legri, stækkaðri fiskveiðilögsögu Skot-
lands, að þeir hafi samúð með skosku
sjálfstæðishreyfingunni?
Stjórnréttarstaða Grænlands er stað-
reynd, hvort sem mönnum finnst hún
réttlát eða ekki, og staðreyndir er holl-
ast að viðurkenna Við það bætist, að
enginn aðili er finnanlegur sem vill og
getur tekið að sér að gæta 200 mílna
lögsögu við Grænland annar en Efna-
hagsbandalagið. nema ef vera skyldu
Bandarikin. Vilja kannski þeir
íslendingar sem mest tala nú um þörf
Grænlendinga á að nytja sín fiskimið
sjálfir, frekar fá bandariska flotadeild
hér vestan við okkur en evrópska?
Skylda stjórnvalda
á öllum tímum
Fyrsta verk þeirra varðskipa sem
send verða i stækkuðu lögsöguna við
Grænland, líklega dönsk skip sem
sjóður Efnahagsbandalagsins kostar,
verður að stökkva sovésku verksmiðju-
skipunum af uppvaxtarslóðum karfans
rétt utan við íslensku línuna, þar sem
þau hafa mokað upp ungkarfanum
eins og íslenskir fiskifræðingar lýstu í
sumar eftir rannsóknaferð á miðin.
Slikar friðunaraðgerðir hafa mikla
þýðingu fyrir karfaafla íslenskra skipa
siðar meir, hvort sem okkur líkar betur
eða verr staða Grænlands í danska
ríkinu. S:ma máli gegnir um hvert
einasta atriði fiskveiðistefnunnar sem
framfylgt verður á miðum fyrir Austur-
Grænlandi. Jafnvel þótt íslenskir
sjómenn sæktust ekki eftir einum
einasta ugga vestan við miðlfnuna við
Grænland i bráð og lengd, ber íslensk-
um stjórnvöldum á öllum tímum
skylda til að láta sig varða fiskveiði-
stefnuna á miðum sem skiptast milli
lögsögu íslands og annars lands, sem
svo vill til að heitir Grænland og býr
við danska stjórn.
En mergurinn málsins er sá hvað
Grænlandsmið varðar, að þótt afli
fslenskra skipa vestan miðlinu verði
— ekki nema 10 til 11 þúsund tonn á
þessu ári, er alls engum vafa undirorp-
ið, að þau ár og jafnvel þær áraraðir
eiga eftir að koma siðar eins og verið
Framhald á bls. 32