Morgunblaðið - 18.12.1976, Page 36

Morgunblaðið - 18.12.1976, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976 Minning: Frú Steinunn Magnúsdóttir SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Ég hef búið með óheiðarlegum manni ( f jörutlu ár til þes að halda fjölskyldunni saman. Hann hunzar allt siðgæði. Hann skrifar ávlsanir, þó að hann eigi ekki fyrir þeim í bankanum; hleypir sér I skuldir, sem hann getur aldrei borgað, og er sífellt að fá lánaða peninga, þó að honum dettí ekki ( hug að skila þeim. Það ömurlegasta er það, að fólk heldur að ég lifi I þessum sömu syndum. Ég er að bugast. Ástand yðar er ágætt dæmi fyrir ungt fólk. Spurning yðar felur í sér þá ábendingu, að stúlkur ættu að þekkja vel mennina, sem þaer giftast, og eins er um piltana gagnvart stúlkunum. Þær eru allt of' margar, sem létu heillast af blíðmálum og vingjarn- legum pilti (eða stúlku) og gengu í hjónaband án þess að þekkja skapgerð makans hið minnsta. Ég þekki mann, sem gekk að eiga stórfallega stúlku, sem er haldin stelsýki. Alla sína daga hefur hann verið að borga ýmsa ónauðsynlega hluti, sem hafa verið teknir ófrjálsri hendi. Ágæta konu þekki ég. Hún vissi ekki fyrr til en hún hafði gifzt kynvillingi. Hugsið ykkur þá harmsögu; Hún er að sönnu kristin og trúir ekki, að skilnaður sé rétta leiðin, svo að hún er bundin i báða skó. Manni einum hef é kynnst. Hann gekk í hjónaband með konu, sem sér engan karlmann í friði, og tilvera hans er ekki annað en vandræði og víl. Allt er þetta því að kenna — og ófarir yðar með taldar — að fólk hraðar sér um of í hjónabandið í stað þess að kynnast vel þeim, sem á að vera maki þess. Hjónaband getur verið einhver mesta gleði lífsins. Það getur líka verið ein átakan- legasta lífsreynsla manna, og þeir, sem giftast í flýti og án einlægrar bænar, eru að bjóða hættunni heim. Skilnaðir væru mun færri en reyndin er, ef fólk ætlaði sér meiri tíma, áður en það segir hið óaftur- kallanlega orð frammi fyrir altarinu: „Já“. Eigin- maður yðar gæti breytzt. Hann gæti látið frelsast. Það er ekki um seinan; Biðjum þess, að það gerist; Frú Steinunn Magnúsdóttir, ekkja Ásmundar Guómundssonar biskups, var til moldar borin 16. desember s.l. Leiðir okkar frú Steinunnar lágu fyrst saman haustið 1951. Ég var þá á fyrsta ári náms 1 guð- fræðadeild Háskólans. Prófessor Ásmundur var þá, að öðrum ólöst- uðum, langáhrifamestur kennari þar. Jákvæð áhrif hans voru ekki eingöngu fólgin í ágætri kennslu og víðsýnni vegsögn. Við urðum og ýmsir nemenda hans, honum mjög handgengnir. Og heimili hans og frú Steinunnar stóð okk- ur ávallt opið. Flestir okkar stú- dentanna voru einnig félagar í Bræðralagi, kristilegu félagi stú- denta, en hann var hinn raun- verulegi leiðtogi félagsins. Fund- ir þess voru haldnir á heimilum sumra prófessoranna og ýmissa presta hér 1 borganni, en hvergi þó eins oft og heima hjá þeim prófessor Ásmundi og frú Stein- unni. Það var á aðalfundi Bræðralags þetta umrædda haust, sem fund- um okkar frú Steinunnar bar fyrst saman. Það fylgir því visst óöryggi að koma inn á heimili kennara síns fyrsta sinni. En hjartanlegar móttökur þeirra hjóna beggja eyddu fljótt þeirri tilfinningu þetta kvöld. Frú Steinunn tók okkur stúdentum alltaf með sínu fallega brosi og umvafði okkur þeim hlýhug, sem hún átti svo mikið af. Frú Steinunn var með falleg- ustu og glæsilegustu konum, sem ísland hefur alið. Samt er það ekki ytri glæsileikur, sem verður hugstæðastur nú, þegar leiðir skilja um sinn, heldur þeirmann- kostir, sem hana prýddu. Frú Steinunn var hógvær kona og hlé- dræg í eðli sínu, en þegar kynni urðu nánari, kynntumst við vel skörpum gáfum og mikilli mennt- un konu, sem þó hafði aldrei i skóla gengið, heldur numið hjá föður sínum, þeim ágæta manni sr. Magnúsi Andréssyni á Gils- bakka. Hún annaðist með manni sínum prófarkalestur ýmissa bóka hans. Og hún var óvenju vel lesin í bókmenntum okkar, ekka síst hinu bundna máli. Það var gaman að ræða slíka hluti við frú Steinunni í góðu tómi heima á Laufásvegi 75, einnig trúmálin, sem eðlilega voru þar mjög á dag- skrá. Alls staðar myndaði hún sér skoðanir byggðar á eigin ígrund- un, skoðanir, sem hún þorði að standa við óhikað, hver sem i hlut átti. Um það leyti, sem ég lauk há- skólanámi í janúar 1954, kusu prestar Ásmund Guðmundsson til biskups yfir íslandi. Við vorum 6 nemendur hans i fyrsta hópnum, sem hann vfgði. Hann hafði að texta orð Jóhannesarguðspjalls, þar sem Jesús segir við lærisvein- ana: Ég hefi kallað yður vini. Mér finnst sem þessi texti hafi verið táknrænn um afstöðu þeirra biskupshjóna beggja til okkar prestanna í íslensku kirkjunni. Þá var það fastur siður, hvenær sem prestur utan af landi kom til Reykjavikur, að hann var boðinn heim í biskupsgarð. Frú Steinunn var þar daglega með sínar rausn- arlegu veitingar og umvafði okk- ur þeim sama hlýhug, sem við þekktum margir frá fyrri árum. Þau biskupshjón voru bæði full af áhuga að heyra frá starfi okkar, veita okkur uppörvun og andleg- an stuðning. Við heyrðum aldrei á það minnst, að starf þeirra væri erfitt. Excelsior — áfram hærra var hvatning þeirra beggja. Við fundum, hver sem var og hver sem skoðun okkar var, að við vor- um vinir meðal vina. I öllu þessu átti frú Steinunn sinn sterka þátt, — í því, hve góður og áhrifarikur andi rikti þá í samstarfi íslenskra presta og samvinnu þeirra við biskup sinn. Fyrir þetta allt vil ég, að heyrist þakklát rödd úr islenskri presta- stétt. Guð blessi sál göfugrar og góðr- ar konu. Honum sé þökk, sem leyfði okk- ur að njóta mannkosta hennar. Lof sé honum fyrir vissuna um upprisu og eilíft lif. Þórir Stephensen. Mikil höfðingskona er látin, ein glæstasta húsfreyja þessa lands: Steinunn Magnúsdóttir, ekkja Ásmundar biskups Guðmunds- sonar. Fædd var hún og upp alin á einu þvi prestsetri landsins, þar sem mest víðsýni blasir við augum, á „Gilsbakkanum háa“, þar sem „í vestri blasir byggðin öll og blómleg Hvitársiða, í austri jöklar", eins og Steingrimur kvað. Faðir hennar var valmennið sira Magnús Andrésson, sem kenndi föður minum undir skóla, og hann mat ætáð siðan umfram flesta menn aðra, og móðir hennar Sig- riður Pétursdóttir Sivertsen, syst- ir míns ástsæla kennara Sigurðar P. Sívertsens, sem ég veit manna vammlausastan, og sjálf varð frú Steinunn sem ung prestskona i Stykkishólmi kennari konu minnar. Síðar urðu þó kynni okkar hjóna af þessari ágætu frú og manni hennar, prestssyninum frá Reykholti, sem hún var ung gefin, miklu nánari og héldust raunar svo lengi sem þau lifðu, þótt samvistir okkar við hana sfð- ustu árin hafi orðið stopulli en við hefðum öll viljað, og söknum við þess nú ekki sízt, þegar hún er frá okkur farin. Það er þvi ekki að Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á þv(, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á ( mið- vikudagsblaði, að berast ( s(ð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili. ástæðulausu, að við hjónin viljum minnast hennar í fáum orðum og fátæklegum, því að betri vini en þau hjón höfum við ekki eignast á lífsleiðinni né ljúfari til samvista og samvinnu. Einkum urðu sam- skipti og samstarf okkar Ásmund- ar prófessors mikil og náin, og ætið hin beztu, einnig eftir að hann var biskup orðinn, en ekki lítill hluti þess samstarfs fór fram á heimili þeirra, þar sem húsfrúin var jafnan reiðubúin til hvers kyns þjónustu við gesti sina, hvort sem þeir voru fleiri eða færri, og leiftrandi af gáfum og glæsileik hélt hún uppi samræð- um við gestina, ekki ætíð orð- mörg, en þeim mun gagnorðari. En yfirlætisleysi hennar og næst- um að segja hlédrægni olli þvi, að engin upphefð steig henni til höf- uðs, og ekkert var henni fjarlæg- ara en að miklast af eigin verð- leikum. Því verður ekki heldur í þessu máli þulin löng lofræða um marga mannkosti þessarar ágætu frúar, þót til þess skorti engin efni, enda mundi henni það engan veginn kærkomið, eins og Jón Auðuns, fyrrverandi dómprófastur, minnt- ist á í ágætri ræðu sinni við útför hennar í dómkirkjunni, sem fram fór að viðstöddum miklum fjölda manna. En minningin lifir um einlægan og trúfastan vin, sem öllum vildi vel og ætið brá ljóma á umhverfi sitt, hvar sem hún fór. Við vinir hennar, sem eftir erum, þökkum henni alla vináttu hennar og órofa tryggð, og biðjum henni blessunar Guðs, er hún nýt- ur sælla endurfunda við þá ást- vini, sem hún hafði átt og misst kærasta. Björn Magnússon. Kveðja VIÐ hið skyndilega fráfall Olafs H. Guðmundssonar formanns Iðn- ráðs Reykjavikur viljum við sam- starfsmenn hans í framkvæmda- stjórn Iðnráðs þakka honum allan þann áhuga, sem hann hefur sýnt málefnum þess frá upphafi og öll þau störf, er hann leysti þar af hendi. An hans forystu með þeirri miklu reynslu og þekkingu, sem hann hafði aflað sér, verður áframhaldandi starf ekki létt. Það er haft á orði, að maður komi I manns stað, en það er ekki sýnilegt, að maður, sem býr yfir hæfileikum og þekkingu Ólafs, finnist í hópnum og verði leiddur til forystu á stuttri stundu. Við sendum eiginkonu og ættingjum Ólafs okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Framkvæmdastjórn Iðnráðs Reykjavfkur. Litli drengurinn okkar t ÖRN sem lést af slysförum 15 desember. verður jarðsunginn frá Stykkis- hólmskirkju mánudagmn 20 desember kl 2 Sigrún Sigurjónsdóttir, Sigurður Hjörleifsson. Móðir okkar t JÚLÍANA RANNVEIG MAGNÚSDÓTTIR Tómasarhaga 1 7. lést i Landakotsspítala að morgni þess 1 7 desember Börnin. t Jarðarför föður míns og tengdaföður GÍSLA KONRÁÐSSONAR fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20 desember kl 10 30 Alda Gísladóttir. Brynleifur Sigurjónsson Miklubraut 60. Faðir okkar Eiginmaður minn, JENS GUÐMUNDUR JÓNSSON EINAR EINARSSON. frá Fjallaskaga, klœðskeri. Austurgötu 6, til heimilis að Garðsvík, Svalbarðsströnd, andaðist í sjúkrahúsi Akureyr- HafnarfirSi, ar 1 5 desember lézt 1 6 desember Fyrir mína hönd og systkina minna Jón Jensson. Helga Þorkelsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.