Morgunblaðið - 18.12.1976, Síða 48
<@ttU & ^ílfnr
Laugavegi 35
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1976
Hauki vik-
ið úr starfi
— á meðan rannsókn fer fram á
meintri ólöglegri handtöku
HAUKUR Guðmundsson
rannsóknarlögreglumaður í
Keflavfk var boðaður á fund Jóns
Eysteinssonar bæjarfógeta á
staðnum um ntuleytið t gær-
kvöldi. Las bæjarfógetinn upp
bréf þess efnis, að Haukur væri
leystur frá störfum þar til öðru
vfsi væri ákveðið og væri þetta f
sambandi við rannsókn á meintri
ólöglegri handtöku vegna Guð-
bjartsmálsins.
Morgunblaðið hefur aflað sér
bréfs þess, sem Jón Eysteinsson
las og afhenti sfðan Hauki á
fundinum í gærkvöldi. Fer bréfið
í heild hér á eftir:
Hr. Haukur Guðmundsson,
rannsóknarlögreglumaður.
Ríkissaksóknari hefur með
bréfi dagsettu 13. desember s.l.
óskað opinberrar rannsóknar
vegna meintrar ólögmætrar hand-
Framhald á bls. 26
Bensínlítrinn
hækkar í 80 kr.
Ríkissjóður fær
í sinn hlut 2,58 kr.
af 4 kr. hækkun
RtKISSTJÓRNIN staðfesti f gær
ákvörðun verðlagsnefndar um
hækkun á bensfni og gasolfu.
Hækkar hver lftri af bensfni úr 76
krónum f 80 krónur, eða 5,3%,
gasolfa til húsahitunar og til
fiskiskipa hækkar úr 27 krðnum f
28 krónur lftrinn, eða 3,7%, og
gasolfa á bfla úr 36 krónum f 38
krónur Iftrinn, eða um 5,6%. Að
sögn Georgs Ólafssonar verðlags-
stjóra er helmingur bensfn-
hækkunarinnar, eða 2 krónur,
tilkominn vegna beiðni olfufélag-
anna um hækkun en hinn
helmingurinn vegna hækkunar á
vegagjaldi, en fjármálaráðuneyt-
ið hefur heimild til slfkrar
hækkunar samkvæmt lögum. t
hluta olfufélaganna er innifalinn
söluskattur og fleiri gjöld, þannig
að rfkissjóður fær f sinn hluta
2,58 krónur af þessari 4 króna
hækkun, samkvæmt upplýsingum
verðlagsstjóra.
Að sögn verðlagsstjóra er
hækkunin til olfufélaganna á
bensíni vegna gengissigs,
erlendra verðhækkana og
hækkunar á dreifingarkostnaði.
Hækkunin á gasolíu er vegna
erlendra verðhækkana og gengis-
sigs.
Georg Ólafsson sagði að
fjármálaráðuneytið hefði laga-
heimild til þess að hækka vega-
gjald til samræmis við hækkun á
byggingarvísitölu. Hefði ráðu-
neytið nú notfært sér þessa
heimild og hækkað vegagjaldið.
Er vegagjaldið þá komið í 19,96
krónur af 80 króna útsöluverði
hvers lítra.
Þingið í
jólaleyfi á
þriðjudag?
5AMKVÆMT upplýsingum
Friðjóns Sigurðssonar, skrif-
stofustjóra Alþingis, var f gær
enn ekki ákveðið, hvernær
þriðja umræða um f járlög færi
fram, en Ifkur bentu til þess að
hún yrði á mánudag og að fjár-
lög yrðu afgreidd á þriðjudag
— á sama tfma og alþingis-
menn færu f jólaleyfi.
Ljósm. RAX
Ooooooooooog hannnn skoooooooorrrrar söng f hjörtum 3000 áhorfenda f Laugardalshöllinni f gær,
þar sem fslenzka landsliðið í handknattleik sigraði erkifjendurna, Dani, 23—20 f hörkuspennandi
leik. Björgvin Björgvinsson, sem á myndinni skorar hjá danska markverðinum, var ásamt Geir
Hallsteinssyni og Óiafi Benediktssyni f hópi beztu leikmanna fslenzka liðsins. Sjá bls. 46
Samþykkt Vinnuveitendasambands Islands:
Sambandið reiðubúið
að hef ja viðræður um
skipan kjaramála
„Stendur aldrei á verkalýdssamtökunum ad hef ja við-
ræður um kjaramál,” segir Snorri Jónsson varaf. ASÍ
Morgunblaðinu hefur
borizt samþykkt fram-
kvæmdastjórnarfundar
Vinnuveitendasambands
tslands þar sem segir m.a.
að Vinnuveitendasam-
bandið sé hvenær sem er
reiðubúið að hefja
viðræður um þá skipan
kjaramála, sem taka skuli
við að gildistáma
núverandi kjarasamninga
útrunnum. Vegna þessarar i
samþykktar hafði Morgun-
blaðið I gær samband við
Snorra Jónsson, varafor-
seta Alþýðusambands
tslands. Snorri kvaðst ekki
hafa fengið þessa sam-
þykkt f hendur og sagðist á
þessu stigi geta sagt það
eitt, að það hefði aldrei
staðið á verkalýðssamtök-
unum að hefja viðræður
Einvígi Kortsnojs og
Petrosjans á íslandi?
Hort vildi tefla einvígid vid Fischer hér á landi
SKÁKSAMBANDI Islands
hefur borizt um það orðsending
frá Alþjóðaskáksambandinu,
FIDE, hvort hugsanlegt sé að
halda einvfgi skákmeistaranna
Victors Kortsnojs og Tigrans
Petrosjans, fyrrverandi heims-
meistara, hér á landi. Einvfgi
þetta er liður f keppninni um
réttinn til að skora á núverandi
heimsmeistara f skák, Anatoly
Karpov. Einar S. Einarsson,
forseti Skáksambandsins, sagði
f samtali við Morgunblaðið f
gærkvöldi, að nú væri verið að
kanna möguleikana á þvf að
halda einvfgið hér á fslandi en
svar verður að berast fyrir ára-
mótin. Sagði Einar að mörg
atriði væru óljós og þá ekki sfzt
hvað sovézka skáksambandið
hygðist gera f sambandi við
þetta einvfgf. Kortsnoj flúði
i W.
É
Victor Kortsnoj
Tigran Petrosjan.
sem kunnugt er frá
Sovétrfkjunum s.1. sumar og
hefur sfðan verið sviptur öllum
metorðum þar f landi. Liggur
ekki ljóst fyrir hvort Sovét-
menn ieyfa Petrosjan að keppa
við Kortsnoj.
Einar S. Einarsson sagði í
samtalinu við Mbl., að mál
þetta hefði fyrst komið til
þegar Skáksambandinu barst
bréf frá tékkneska stór-
meistaranum Hort, en hann á
að mæta Robert Fischer í einu
af fjórum áskorendaeinvfgjum,
sem standa fyrir dyrum. Spurði
Hort i bréfinu hvort
Islendingar væru svo fátækir
Framhald á bls. 26
um kjaramál, og svo væri
heldur ekki nú.
Samþykkt framkvæmda-
stjórnarfundar V.S.I. fer í heild
hér á eftir:
Fyrir rúmu ári, nokkru áður en
samningaumleitanir aðila vinnu-
markaðarins hófust, gerði fram-
kvæmdastjórn Vinnuveitenda-
sambands Islands sérstaka sam-
þykkt, þar sem sambandið lýsti
sig reiðubúið til að hef ja þá þegar
viðræður við verkalýðshreyfing-
una og rikisstjórnina um ástand
og horfur f efnahags- og kjara-
málum þjóðarinnar. Var tekið
fram í samþykkt Vinnuveitenda-
sambandsins, að miklu varðaði, að
sameinast yrði um samræmt átak
I efnahags- og kjaramálum, jafn-
framt þvf, sem sú skoðun var látin
f ljós, að heildarlausn yrði ekki
við komið, nema með samvirku
samráði og ákvörðunum aðila
v Framhald á bls. 26
Bíómiðínn
hækkar í
350 krónur
VERÐLAGSNEFND hefur
heimilað kvikmyndahúsum að
hækka verð aðgöngumiða.
Hækkar fullorðinsmiði úr 300
krónum í 350 krónur eða um
16.7% og verð barnamiða hækkar
úr 110 krónum f 130 krónur eða
18.2%. Að sögn Georgs Ólafs-
sonar verðlagsstjóra, er hækk-
unin tilkomin vegna hækkunar á
rékstrarkostnaði kvikmyndahús-
anna. Hækkun þessi hefur þegar
hlotið staðfestingu hjá rfkis-
stjórninni.